Morgunblaðið - 09.07.2009, Page 18
ÖLLUM unglingum í Sveitarfé-
laginu Skagafirði sem ekki
fengu sumarvinnu á almenna
vinnumarkaðnum var boðið í
vinnuskólann. Þannig bættust
um 20 unglingar á aldrinum 16
til 18 ára við vinnuskólann
sem nú er samfelldur frá 13 til
18 ára aldurs.
„Við gerðum könnun í skól-
unum í vetur og okkur brá í
brún þegar við sáum hvað
margir 16 til 18 ára unglingar
reiknuðu ekki með að fá vinnu
í sumar. Við ákváðum að taka
það alvarlega að ungmenni
teljast börn upp í átján ára
aldur og reyna að tryggja
þeim vinnu,“ segir María
Björk Ingvadóttir, frí-
stundastjóri Sveitarfélagsins
Skagafjarðar. Hægt var að
hagræða í málaflokknum og
taka við 30 til 35 unglingum
til viðbótar hefðbundnum
vinnuskóla sem er fyrir börn í
fjórum efstu bekkjum grunn-
skóla. Eitthvað rættist úr með
vinnu þannig að aðeins sóttu
liðlega 20 börn á þessum
aldri um vinnu.
Útbúin hafa verið ýmis verk-
efni. Unglingarnir hjálpa til við
námskeiðahald hjá sveitarfé-
laginu og eru við starfsþjálfun
hjá fyrirtækjum og stofnunum
sveitarfélagsins, svo sem í
íþróttamannvirkjum, leik-
skólum, menningarstofnunum
og við iðjuþjálfun. Þá er hópur
að vinna að listsköpun í svo-
kölluðu fjöllistaverkefni.
„Þetta hefur gengið virki-
lega vel. Enn hefur enginn
kvartað undan vinnuaflinu og
sumir hafa ráðið krakkana í
meiri vinnu,“ segir Sigurlaug
Vordís Eysteinsdóttir, starfs-
maður Húss frítímans.
Nú eru 130 unglingar í hin-
um hefðbundna vinnuskóla og
alls 150 með hópnum sem
bættist við í vor. helgi@mbl.is
Enginn
kvartar undan
vinnuaflinu
Eftir Björn Björnsson
Sauðárkrókur | Ferjumaðurinn er
á heimleið með væna silunga-
kippu, skyggir hönd fyrir augu,
enda væntanlega undir sól að sjá,
til að gá að hvort nokkur væri á
leið vestan sandinn til ferjustaðar.
Þannig er lýsing á styttunni af
ferjumanninum Jóni Ósmann
Magnússyni, en hún var afhjúpuð
fyrir skömmu.
Það var áhugamannahópur
undir forystu Sveins Guðmunds-
sonar, hins landskunna hesta- og
hrossaræktarmanns, sem hafði
forgöngu um gerð styttunnar, en
með honum í hópnum voru Stefán
Guðmundsson, fyrrverandi alþing-
ismaður, Hjalti Pálsson frá Hofi,
Sigurður Haraldsson frá Gróf-
argili og Árni Ragnarsson á Sauð-
árkróki. Styttan er eftir Ragn-
hildi Stefánsdóttur myndhöggv-
ara.
Kristmundur Bjarnason, fræði-
maður frá Sjávarborg, hefur ritað
sögu Jóns Ósmanns. Hann lýsir
honum sem heljarmenni að burð-
um. Hann var talinn rífur fjög-
urra manna maki. Það var ekki á
færi neins meðalmanns að knýja
fullhlaðna dragferjuna í sterkum
straumi Héraðsvatna og oft í
óblíðum veðrum.
„Í Jesú nafni“
Í bók Theodórs Friðrikssonar
er sagt frá því er hann og tveir
aðrir ætluðu að taka af Ósmann
ómakið og snúa sveif ferjunnar en
urðu frá að hverfa þegar komið
var út þar sem straumur var
þyngstur, og kom þá Ósmann til
skjalanna og tók einn við.
Alla sína tíð var Ósmann vín-
hneigður þó aldrei kæmi niður á
störfum hans. Hann talaði um að
„fá sér skudda“ þegar hann bauð
gestum að súpa á kútnum. Vini
sína, sem oft heimsóttu hann að
Furðuströnd, nefndi hann gjarna
skuddabræður. En þrátt fyrir að
Ósmann væri vinmargur og alla-
jafna gleði í hans húsum sótti á
hann þunglyndi og síðla aprílmán-
aðar 1914 gengur Ósmann frá í
byrgi sínu, leggur guðsorðabók á
borðið, skrifar á lítinn miða þrjú
orð: „Í Jesú nafni“, leggur þar hjá
úr sitt og fer síðan í sína hinstu
ferjumanns för.
Þegar minnisvarðinn var af-
hjúpaður sagði Árni Ragnarsson
að tvennt hefði vakað fyrir þeim
sem stóðu að gerð minnisvarðans
um Ósmann, að minnast þess
manns sem nánast alla sína starfs-
ævi þjónaði samborgurunum með
ferjuflutningum við eitt erfiðasta
og mannskæðasta fljót landsins,
en ekki síður hitt að vekja athygli
á störfum þeirra manna víðsvegar
um land sem önnuðust þennan
þátt í samgöngusögu landsins, og
nú heyrir sögunni til.
Krafturinn geislar af henni
Sveinn Guðmundsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að hann
hefði um árabil átt sér þann
draum að láta reisa minnisvarða
um Jón Ósmann, afabróður sinn,
en Árni Magnússon, faðir Dýr-
leifar, móður Sveins, var bróðir
Jóns Ósmanns.
Sveinn er ánægður með sam-
vinnuna við listamanninn. „Ragn-
hildur er frábær listamaður. Það
ber öllum saman um það að betur
virðist ekki vera unnt að ná and-
liti ferjumannsins, en af honum
eru til margar myndir. Svo er
styttan öll á þann veg að aflið og
krafturinn geislar af henni.“
Afhjúpuðu styttu af heljarmenninu
Morgunblaðið/BB
Með ferjumanninum Sveinn Guðmundsson hestamaður og Ragnhildur
Stefánsdóttur myndhöggvari ásamt Jón Ósmann ferjumanni.
Stytta af ferjumanninum Jóni Ósmann
reist við Vesturós Héraðsvatna
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„BÖRNIN velja sjálf það sem þau
hafa áhuga á og þegar þau eru að
vinna að sínum áhugamálum þarf
ekki að hafa áhyggjur af þeim,“ seg-
ir Ingvi Hrannar Ómarsson, verk-
efnisstjóri Sumar TÍM, sem er tóm-
stunda-, íþrótta- og menningar-
dagskrá sem Sveitarfélagið
Skagafjörður býður 6 til 11 ára
börnum. Fleiri börn stunda íþróttir
en áður og í sumar taka 95% barna
þátt í námskeiðum.
Sumar TÍM er heilsteypt dagskrá
sem börnum stendur til boða alla
virka daga frá klukkan 8 til 16 í átta
vikur. Öll íþróttahreyfingin kemur
inn í dagskrána með sínar greinar
og áhugafólk heldur námskeið um
ýmis viðfangsefni á sviði tómstunda
og menningar. Unglingar úr vinnu-
skólanum aðstoða við framkvæmd-
ina og er það eftirsóttasta viðfangs-
efnið þar. Út úr þessu kemur
fjölbreytt dagskrá, á þriðja tug
námskeiða. Foreldrar og börn geta
síðan valið úr og sett saman sína
eigin dagskrá. „Það eina sem for-
eldrarnir þurfa að gera er að koma
með börnin á morgnana, gefa þeim
að borða í hádeginu og sækja þau í
lok dags. Við sjáum um rest,“ segir
María Björk Ingvadóttir, frístunda-
stjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Almenn þátttaka
Sveitarfélagið niðurgreiðir nám-
skeiðin með svokölluðum hvatapen-
ingum, 10 þúsund kr. á barn. Skil-
yrðið er að barnið taki þátt í
tveimur íþróttagreinum í fjórar vik-
ur og sæki eitthvert menningar- eða
tómstundanámskeið í jafn langan
tíma.
Frá því Sumar TÍM hófst, fyrir
tveimur árum, hefur þátttaka barna
í íþróttum og skipulögðu tóm-
stundastarfi aukist stórlega, að sögn
Maríu Bjarkar. Alls taka um 260
börn þátt í námskeiðunum og er
þátttakan almenn. Þannig sækja um
95% barna á Sauðárkróki og Hofs-
ósi þessi námskeið og þátttakan er
enn betri á Hólum.
Engar áhyggjur af börnunum
Sumar TÍM er heilsteypt sumardagskrá fyrir börn í Skagafirði Börnin geta verið í íþróttum og á
námskeiðum allan daginn í átta vikur Þátttaka í íþrótta- og tómstundastarfi hefur aukist stórlega
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kofabyggð Vel miðar við mannvirkjagerð á „Sumar TÍM“ tómstundanámskeiðum enda duglegt fólk að störfum.
Ástandið á byggingarmarkaðnum er betra í kofabyggðinni á Sauðárkróki en víðast annars staðar.
Sagað Margar fjalir þarf að saga í sund-
ur við byggingu kofanna. Auðveldara er
að saga beint en á ská og verkfærið bítur.
Bryggjuveiði Veiðinámskeiðin eru vinsæl á sumarnámskeiðunum í
Skagafirði. Ágæt aðstaða er á flotbryggjunni við nýja Suðurgarðinn.
Ekki fer sögum af veiðinni hjá þessum hópi veiðimanna.
18 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009