Morgunblaðið - 09.07.2009, Qupperneq 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009
✝ Guðni Elís Har-aldsson fæddist á
Siglufirði 18. júlí 1976.
Hann lést 1. júlí síðast-
liðinn. Foreldrar hans
eru Þuríður Vigfús-
dóttir, f. í Reykjavík
15.5. 1951 og Karl
Haraldur Bjarnason,
f. á Siglufirði 24.8.
1949. Þuríður og Har-
aldur slitu samvistum.
Eiginmaður Þuríðar
er Ólafur Árnason, f. í
Bandaríkjunum 8.6.
1951 .
Alsystir Guðna er Dagný Rut, f.
28.10. 1983. Hálfsystir Guðna sam-
mæðra er Vigdís Arna Jóns- og Þur-
íðardóttir, f. 4.7. 1969. Systkini
Guðna, samfeðra, eru Auður, f. 3.1.
1967 og Bjarni Bjarkan, f. 20.3.
1971. Stjúpsystur eru þær Tinna, f.
19.8. 1976 og Stella, f. 27.2. 1984,
Ólafsdætur.
Guðni eignaðist þrjár dætur. Dótt-
ir hans og Rebekku Símonardóttur
er Rakel Birta, f.
28.10. 1996. Hinn
27.10. 2000 eignuðust
hann og Jóna Jak-
obína Þorgeirsdóttir
tvíburadæturnar
Thelmu Rut og Diljá
Sif.
Guðni fæddist og
ólst upp á Siglufirði en
flutti síðar til Reykja-
víkur og lauk grunn-
skólagöngu sinni þar.
Eftir menntaskóla lá
leið hans í Háskóla Ís-
lands en síðar flutti
hann til Noregs þar sem hann bjó og
stundaði nám. Síðar lá leið hans aft-
ur til Íslands og lauk hann sínu námi
við Háskólann á Akureyri. Höf-
uðborgin kallaði aftur á hann og réð
hann sig þá til starfa við Lands-
banka Íslands.
Guðni verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju í dag, 9. júlí, og
hefst athöfnin kl. 15.
Meira: mbl.is/minningar
Í dag kveðjum við yndislegan vin
og samstarfsfélaga með miklum
söknuði. Ekki verður hægt að fylla
það skarð sem Guðni skilur eftir sig í
lífi okkar allra. Guðni hóf störf í
Landsbankanum í Smáralind árið
2006. Hann passaði strax inn í hópinn
og sýndi fljótt hversu úrræðagóður
og hjálplegur hann var. Einnig var
hann gáskafullur, stríðinn, mikill
keppnismaður og ávallt var stutt í
húmorinn.
Ein af mörgum ógleymanlegu
minningum um Guðna er kollhnísa-
keppnin á Hótel Hvolsvelli þar sem
hann tapaði 17-2 á gangi hótelsins.
Ekki var hann sáttur við það enda
keppnismaður mikill. Einnig minn-
umst við 5-mínútna-föstudagsfýl-
unnar þegar hann vann ekki rauð-
vínspottinn, alltaf varð hann jafn
hissa að vera ekki dreginn út en góða
skapið kom ávallt strax aftur. Guðni
var drífandi í félagslífinu og hafði oft
frumkvæði að því að skipuleggja
partí, golf- og tennismót utan vinnu-
tíma sem vakti mikla lukku meðal
samstarfsfélaga hans. Við minnumst
Guðna af virðingu og munum heiðra
minningu hans um ókomna tíð.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
svefnsins draumar koma fljótt.
Svo vöknum við með sól að morgni,
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Við viljum votta dætrum, foreldr-
um og öðrum aðstandendum Guðna
okkar dýpstu samúð. Megi Guð veita
ykkur styrk á erfiðum tímum.
Kveðja, fyrir hönd samstarfsfólks
í útibúi Landsbankans, Smáralind,
Guðrún B. Ægisdóttir.
Við samstarfsfólkið í Landsbank-
anum í Bæjarhrauni viljum kveðja
góðan vin og samstarfsfélaga og
minnumst við Guðna með söknuði.
Guðni hóf störf hjá okkur í lok
október 2008 og var hann fljótur að
aðlagast hópnum enda leist okkur
strax vel á þennan hávaxna og glæsi-
lega mann. Fyrir stuttu komu sam-
starfsfélagarnir saman til þess að
gleðjast. Upp kom sú hugmynd inn-
an hópsins að lýsa hvert öðru í fáein-
um orðum sem síðan var lesið upp.
Við viljum vitna í nokkra punkta sem
skrifaðir voru um Guðna sem lýsa
honum svo vel: „Guðni er traustur,
skemmtilegur, fráleit eldhúsdama,
prakkari, partý b. og húmoristi.“ Það
var okkur mikið áfall að frétta af
andláti Guðna. Við eigum eftir að
sakna þess að sjá hann ekki standa
inn á skrifstofunni sinni talandi í sím-
ann þannig að rödd hans ómi um allt
útibúið að ógleymdum hnitmiðuðum
húmor og samverustunda. Elsku
Guðni, við söknum þín og þökkum
fyrir að hafa fengið að kynnast þér.
Innilegar samúðarkveðjur sendum
við dætrum þínum og fjölskyldu.
Megi ljós og friður fylgja þér.
Fyrir hönd vinnufélaganna á
Hrauninu,
Jóhanna M. Sveinsdóttir.
Elsku besti Guðni
Þeir deyja ungir sem guðirnir
elska mest og það er sko alveg á
hreinu í þínu tilviki. Ég trúi því ekki
enn að þú sért farinn frá okkur og er
stórt skarð komið í Smáralindar-
gengið sem ekki verður hægt að
fylla, því betri samstarfsfélaga og vin
held ég að erfitt sé að finna. Þegar ég
byrjaði að vinna í Smáralindinni þá
fékk ég þá tilfinningu að þú kynnir
nú ekkert of vel við mig en eftir
nokkrar vikur þá varstu byrjaður að
stríða mér og þá þóttist ég vita að þú
værir búinn að taka mig í sátt. Meðal
annars gerðir þú mest grín að mér
fyrir að vera utan af landi en ég
komst svo að því seinna að þú varst
nú bara sjálfur utan af landi. Stríðnin
og húmorinn einkenndu þig en þér
fannst nú ekki leiðinlegt að stríða
okkur samstarfsfélögunum og man
ég þá sérstaklega eftir því þegar Eg-
ill fór að keppa á Siglufirði, þá hafð-
irðu mikið fyrir því að redda nælon-
sokkabuxum til að láta færa honum í
upphafi leiks.
Þú varst einnig drifkraftur í ýmsu
sem við tókum okkur fyrir hendur og
áttir þú meðal annars hugmyndina
að því að fara saman í tennis sem
endaði svo með mikilli keppni þegar
við skoruðum á Ástu og Egil í leik
þar sem leikið var um eldhúsvaktir
liðsfélaga og tenniskeppnin March
madness varð að veruleika. Við tók-
um keppnina alvarlega og sáum til
þess að hún væri nú lögleg og út-
bjuggum samning sem prentaður
var út á löggildan pappír og undirrit-
aður af öllum keppendum ásamt
vottum. Það er skemmst frá því að
segja að við unnum þessa keppni að
sjálfsögðu, þar sem við vorum nú
ansi sigurviss, þó við töluðum um það
okkar á milli hvað það væri nú slæmt
ef við myndum tapa eftir allar yfir-
lýsingarnar. Okkur fannst nú ekki
leiðinlegt að núa þeim Ástu og Agli
upp úr sigrinum og voru ófáir tölvu-
póstarnir látnir ganga um vinnustað-
inn til að minna samstarfsfólk okkar
á þetta. Golfáhugann áttum við líka
sameiginlegan og man ég hvernig
hugmyndin að lansasmáramótinu
kviknaði heima hjá mér, eftir að við
fórum nokkur að fá okkur kaffi kl.
fimm um nótt og fórum að tala um
golf. Þú gerðir heiðarlega tilraun til
að kenna Huldu golfsveifluna með
kerti úr aðventukransi. Ég, þú og
Egill sáum til þess að mótið yrði að
veruleika og að sjálfsögðu vannst þú
það. Við vorum nú þegar byrjuð að
skipuleggja næsta mót sem verður
nú í ágúst og munum við klára þann
undirbúning án þín, en þín verður þó
sárt saknað og mun mótið verða
haldið þér til heiðurs hér eftir. Þrátt
fyrir allt grínið og stríðnina sem ein-
kenndu þig þá sást stundum í alvar-
legu hliðina og áttum við oft góðar
samræður um hin ýmsu málefni. Þó
svo að við ynnum ekki á sama staðn-
um var oft gott að hringja í þig bara
til að spjalla og heyra í þér hljóðið og
verður erfitt að koma í vinnuna aftur
eftir sumarfrí og geta ekki hringt í
þig.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson.)
Fjölskyldunni sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur og þá sér-
staklega dætrum hans sem hann var
svo stoltur af.
Halldóra Brynjólfsdóttir.
Elsku Guðni Elís. Hvernig get ég
kvatt þig í hinsta sinn? Ég er svo
vanmáttug, mér líður eins og hluti af
hjarta mínu hafi verið rifinn út með
svo nístandi sársauka og honum ætl-
ar ekki að linna. Ég bíð eftir að vakna
upp frá þessari martröð en ekkert
gerist. Hvernig má þetta vera? Ég
sakna þín svo mikið! Ég er svo þakk-
lát fyrir að hafa sagt þér hversu
ómetanlegur vinur þú varst mér, ég
er svo þakklát fyrir að þú hafir vitað
hvað mér þykir vænt um þig. Vildi að
ég hefði sagt það oftar. Ég er svo
þakklát fyrir að hafa fengið að kynn-
ast þér á þann hátt sem við kynnt-
umst og fyrir þann tíma sem við
fengum. Það var svo gaman að vera í
kringum þig, nærvera þín var alveg
einstök. Það brást ekki að í hvert
skipti er við töluðum saman eða hitt-
umst brosti ég ósjálfrátt því þú varst
sjarmör að eigin sögn sem var alveg
rétt. Það var alltaf stutt í húmorinn,
kaldhæðnina og stríðnina. Í hvert
skipti er við hneyksluðum þig sem
gerðist ósjaldan roðnaðir þú upp úr
öllu valdi og stamaðir sem var svo
yndislegt.
Það var svo gott að tala við þig.
Þegar ég velti fyrir mér að hefja nám
í lögfræði við Háskólann á Akureyri
sagðir þú mér frá systur þinni sem
þú varst svo stoltur af sem myndi
bráðum útskrifast. Þú sagðir mér
bara að drífa í þessu, það væri ekkert
mál. Líkt og þegar þú fluttir skellt-
irðu öllu þínu í skottið og keyrðir af
stað. Það mun ég gera, mun standa
mig vel og þú munt fylgist með og
styrkja mig.
Mér er minnisstætt er við fórum
eina kvöldstund á salsanámskeið ég
var svo ánægð að þú skyldir vilja
koma með mér. Þú varst svo stífur og
klunnalegur, það var alveg yndislegt
að horfa á þig. Þetta var ekki eitt-
hvað sem þú ætlaðir að gera aftur og
sagðist seint ná þér eftir þetta. Eins
þegar þú reyndir eitt sinn að kenna
mér að halda á golfkylfu með kerti
því ekkert annað var við höndina.
Það gekk reyndar ekki nógu vel því
ég er örvhent. Þú verður búinn að
æfa vinstrihandar-gripið þegar við
hittumst á ný, þá kennir þú mér tök-
in! Það var svo gaman að hlusta á þig
tala um dætur þínar því það birti svo
yfir þér, þú fylltist af ólýsanlegu
stolti sem skein í gegn. Það var svo
gott að fá að hitta þig og tvíburana
áður en þið fóruð í Húsafell. Ég á svo
margar skemmtilegar og ómetanleg-
ar minningar sem fljúga hver á fætur
annarri í gegnum hugann.
Þó tapir vini og hann hverfi þér frá, þá
minningu hans ekki gleymum og ég
segi þér þá, hver stund svo dýrmæt er
í huga vorum geymum.
Og mína hugsun í té þér læt, þó lít-
ilmótleg virðist flestum, því vináttan
sönn hún spinnur sögu og í hjarta þér
þarfnastu að fá.
Að aldrei ég né þú við gleymum þeim
stundum og kjarki er vináttan skóp.
Sértu glaður verður hann glaður, sértu
dapur, veldurðu kvöl, því sérhver hugs-
un verður að himnadvöl sem vinurinn
heyrir, þó mælir eigi að vörum og hann
hugsun vora fyllir af svörum.
Sá tími kemur er þangað við förum og
upplifum hans kærleikans náð sem
Kristur um Guðsbörn sín hefur stráð.
En okkar námi er ekki lokið, því lífið
hefur tilgang, þar til honum er náð.
(J.R.S.)
Ég sendi hlýhug minn og styrk til
Rakelar Birtu, Thelmu Rutar og
Diljár Sifjar, foreldra, systkina og
fjölskyldu. Ég veit að þú munt vaka
yfir þeim og varðveita. Ég mun ávallt
geyma minningar mínar um þig innst
í hjarta mínu og efst í huga mér uns
við hittumst á ný, manni minn! Elska
þig og sakna þín.
Þín vinkona,
Hulda Teitsdóttir.
Mig langar með nokkrum orðum
að kveðja kæran vin og samstarfs-
félaga.
Í byrjun apríl árið 2006 kom Guðni
til mín í ráðningarviðtal. Það tók mig
ekki langan tíma að átta mig á því
hvaða mann hann hafði að geyma.
Guðni var samviskusamur og vann
sína vinnu af nákvæmni en það gat
farið í taugarnar á honum ef menn
voru með smámunasemi. Hann var
fljótur að sjá heildarmyndina og átta
sig á hlutunum. Guðni gegndi fyrst
starfi sem þjónustufulltrúi í Smára-
lindarútibúi en fljótlega tók hann við
starfi fyrirtækjasérfræðings. Við þá
ráðningu varð samstarf okkar enn
meira. Um haustið 2008 var ákveðið
að loka útibúinu í Smáralind. Þegar
mér var boðið að taka við öðru útibúi
kom ekki annað til greina en að
Guðni kæmi með mér yfir í útibúið í
Bæjarhrauni í Hafnarfirði. Það lýsir
því best hvernig starfsmaður hann
var hversu mikill fjöldi viðskiptavina
ákvað að fylgja okkur í Bæjarhraun-
ið. Ég vil þakka fyrir þann tíma sem
við áttum saman í vinnu og síðast en
ekki síst fyrir gleðina og húmorinn.
Fótboltinn var oft til umræðu hjá
okkur. Við gátum deilt um hæfni
okkar manna. Guðni mikill aðdáandi
Man. United og ég Poolari. Golf var
líka sameiginlegt áhugamál. Ég vil
þakka fyrir að hafa fengið að spila
golfhring með þér og góðum vinum
okkar á Hvaleyrarvelli rétt áður en
ég fór í fríið. Ég á eftir að sakna þess
að sjá þig ekki storma inn á vinnu-
staðinn okkar á morgnana, heyra
rödd þína þrátt fyrir lokaðar dyr og
veggi sem aðskildu skrifstofur okk-
ar. Þú talaðir oft hátt og skýrt. Megi
friður vera með þér, kæri vinur.
Ég sendi allar mínar bænir og
styrk til dætra þinna, foreldra og
fjölskyldu. Guð verði með ykkur.
Guðrún S. Ólafsdóttir.
Guðni Elís Haraldsson
✝
Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir,
GUÐNI ELÍS HARALDSSON
viðskiptafræðingur,
sem lést miðvikudaginn 1. júlí, verður jarðsunginn
frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 9. júlí kl. 15.00.
Rakel Birta Guðnadóttir,
Thelma Rut Guðnadóttir,
Diljá Sif Guðnadóttir,
Haraldur Bjarnason,
Þuríður Vigfúsdóttir, Ólafur Árnason
og systkini hins látna.
✝
Ástkær systir okkar, mágkona og frænka,
RAGNA HARALDSDÓTTIR,
Dídí,
hjúkrunarfræðingur,
Æsufelli 2,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn
10. júlí kl. 15.00.
Sigurður Haraldsson,
Gunnar Haraldsson, Ragnheiður Eiríksdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐFINNA EUGENÍA MAGNÚSDÓTTIR
frá Sjávargötu,
Ytri-Njarðvík,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum Hringbraut mánudaginn
6. júlí.
Magnea Áslaug Sigurðardóttir, Sigurður Bjarnason,
Erling J. Sigurðsson, Þórunn Einarsdóttir,
Sigurbjörg Sigurðardóttir, Kristinn Hraunfjörð,
Gunnar Þór Sigurðsson, Kolbrún Þorgeirsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÞÓRIR MAGNÚSSON
bifreiðarstjóri,
Meðalholti 14,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 7. júlí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
María Jóhannsdóttir,
Halldór Þórisson,
Jóhanna M. Þórisdóttir,
Þórir Þórisson, Halldóra Valgarðsdóttir,
Ragna H. Þórisdóttir, Kristján Guðmundsson
og barnabörn.