Morgunblaðið - 09.07.2009, Síða 37

Morgunblaðið - 09.07.2009, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009  Fréttablaðið greindi hins vegar frá því í gær að Jóhanna Guðrún hefði landað dreifingarsamningi við Warner Bros. um dreifingu á plötu hennar Butterflies and Elvis um Norðurlöndin og síðar meir um fleiri lönd Evrópu. Eins og fram hefur komið hefur Jóhanna Guðrún unnið að þessum áfanga leynt og ljóst og skemmst er að minnast þess þegar tónleikum hennar í Höllinni var frestað vegna samningafunda við erlend plötufyrirtæki. Ætti nú loks að gefast tími fyrir Ísland. Jóhanna Guðrún fær loks frí til að syngja Fólk ALÞJÓÐLEG kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) undirbýr nú í annað sinn Sound on Sight- markaðinn en um er að ræða vett- vang sem settur er á laggirnar fyrir framleiðendur tónlistartengdra kvikmynda þar sem kostur gefst á að kynna hugsanlegum kaupendum og dreifingaraðilum myndirnar. Í fyrra mættu m.a. fulltrúar frá BBC, VH1 og Channel 4. Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi hátíð- arinnar, segir undirbúning hafinn og óskar eftir umsóknum frá ís- lensku kvikmyndagerðarfólki. „Við auglýsum alþjóðlega eftir verkefnum í vinnslu og fullbúnum myndum en erum með fókus á að fá verkefni frá Norðurlöndunum og Bandaríkjunum,“ segir Hrönn. „Við erum að reyna að hjálpa kvik- myndagerðarmönnum að koma sín- um verkum á framfæri og fá stuðn- ing, hvort sem það er að fá fjármagn eða samning við sjón- varp.“ Sound on Sight í annað sinn Morgunblaðið/Heiddi Hjaltalín Tók þátt í RIFF í fyrra.  Eins og lesendur Fréttablaðsins hafa ábyggilega rekist á hefur blað- ið tekið upp á því að bjóða nokkrum vel völdum einstaklingum í þjóð- félaginu að skrifa forystugreinar á leiðarasíðu blaðsins. Það má velta því fyrir sér hvort forystugrein sé rétt orð yfir pistla fólks utan úr bæ en það er kannski önnur saga. Uppátækið hefur í það minnsta vakið athygli og einn þeirra sem fagna þessari stórgóðu hugmynd Fréttablaðsins er Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og heyrt. Segist hann jafnvel vera að hugsa um að gera það sama hjá sér og fá þau Geir Ólafs, Fjölni Þorgeirs, Ásdísi Rán, Kalla Bjarna og Nylon-stelpurnar til að skrifa forystugreinar blaðs- ins. Séð og heyrt fylgir for- dæmi Fréttablaðsins Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is BJÖRK er í stuði. Það er létt yfir henni og hálf- gerður gáski líka, þar sem við spjöllum í einu her- bergi veitingastaðarins Við tjörnina. Hún er nánast óðamála þegar hún rifjar upp viðburði síðustu tveggja ára en hljómleikaferðalagið í kjölfar plöt- unnar Volta var yfirgripsmikið, svo ekki sé nú meira sagt. Hún hlær mikið, gefur löng og pæld svör og undir enda viðtals er hún meira að segja farin að syngja – „We Are The World“! Langaði upp í rútu „Mig langaði til að prófa eitthvað nýtt,“ segir Björk þegar síðustu tvö ár koma til tals. Volta var gefin út vorið 2007 og um svipað leyti var lagt af stað í túrinn mikla. „Þetta var alltaf plata, túr, plata, túr, plata, túr. Og allt mjög þétt. Ég túraði hins vegar ekki Me- dúllu (2004), það var nokkuð snúið að gera það, mikið af röddum. Flestar mínar. Mikið af sjálfri mér (hlær). En svo ákvað ég að slá Medúllu saman við Voltutúrinn, og lögin af Medúllu voru endur- útsett fyrir þá sveit og hljóðfæri sem við vorum að nota þar.“ Björk segir að vinnan í kringum plöturnar Me- dúllu og Vespertine (2001) hafi einkennst af miklu hljóðversnostri. „Jafnvel of miklu,“ segir hún. „En á Voltu sneri ég þessu við. Tók bara ár í að vinna hana en tvö ár í að túra hana. Ég hugsaði þetta sem rosa „blast“- túr: Tíu brass-stelpur! Öll festivölin! Allar heims- álfurnar! Pælingin var líka að spila plötuna, sem er þannig séð frekar hrá, til á túrnum. Þannig að í endann á túrnum var þetta orðið mjög gott. Betra í raun en á plötunni.“ Björk viðurkennir líka að það að hafa nánast ver- ið á tónleikaferðalagi síðan hún var tólf ára hafi spilað inn í. Hún hafði ekki farið í slíka reisu í fjögur ár, og hana var farið að lengja eftir því að komast upp í rútu, ef svo mætti segja. Andlega gjaldþrota listamenn Björk hefur valið með sér alls kyns meðreiðar- sveina og -meyjar á tónleikaferðalögum, fólk sem kemur úr hinum ólíklegustu hornum tónlistarinnar. „Ég er alltaf eins og krakki í dótabúð þegar kemur að því að setja saman hljómsveitirnar fyrir tón- leikaferðalögin. Ég held að þetta stafi af því að hafa verið í hljómsveitum í fimmtán ár eða hvað það nú er, þar sem hljóðfærin voru alltaf þau sömu!“ Björk segist hafa tekið Sigur Rós sér til fyrir- myndar hvað skipulagið á tónleikaferðalaginu varð- aði, þ.e. það var túrað í mánuð og svo frí í mánuð. „Ég hugsaði, „af hverju datt mér þetta ekki í hug fyrr?“ (hlær). Maður hvíldist betur, líkamlega sem tilfinningalega. Allir komu saman á ný endur- nærðir og gátu miðlað einhverju nýju, í stað þess að vera orðin andlega gjaldþrota sem ég hélt að fylgdi því einfaldlega að vera tónlistarmaður.“ Kínverjarnir skutu sig í fótinn „Declare Independence“, eitt laga plötunnar, átti eftir að vekja gríðarlega athygli. Um er að ræða kröftugt teknópönk þar sem Færeyingar og Græn- lendingar voru hvattir umbúðalaust til að lýsa yfir sjálfstæði. Seinna átti Björk eftir að syngja óðinn til fleiri þjóða, m.a. Tíbet. Og ekki stóð á við- brögðum. Og Björk var ekkert hissa á því. Þannig séð. „Ég átti reyndar von á miklu meiri viðbrögðum frá Danmörku. Við vorum að spila á besta tíma á Hróarskeldu og við keyptum risastóra fána, græn- lenska og færeyska, af tilefninu. Stelpurnar hlupu með fánana fremst á svið. Þetta er í eina skiptið sem ég hef skannað hvern einasta tónleikadóm af því að ég var svo forvitin um viðbrögðin! Og það var ekki minnst einu orði á þetta. Var reynt að þegja þetta í hel? Eða hugsaði fólk bara „æ, týpískt Björk eitthvað að rífa kjaft“?“ Kínverjar tóku því svo að sjálfsögðu óstinnt upp þegar Björk tileinkaði lagið Tíbetum á tónleikum í Sjanghæ. „Kínverska stjórnin er með 30.000 ungmenni á launum hjá sér sem blogga á netinu og stjórna þar umræðunni. Ungt fólk í Kína þekkir ekki einu sinni orðið Tíbet þannig að Kínverjar klúðruðu þessu sjálfir þegar ríkisbloggararnir fóru að tala um að Björk væri ekki „kúl“ að vera að tala um Tíbet. Þá fyrst byrjuðu lætin. Þeir skutu sig í fótinn.“ Pólitísk lög eru vafasamur pappír Björk segir að þegar Mark Bell, samstarfsmaður hennar til margra ára, hafi spilað fyrir hana lagið fyrst hafi hún fengið hláturskast, henni hafi þótt það svo fyndið. „Textinn átti í upphafi að vera húmorískur. Mér hefur alltaf þótt pólitísk lög fremur vafasöm. Þann- ig að þetta var djók. En svo varð þetta að … hmmm … að blöndu af gríni og alvöru (glottir).“ Björk segir að einu sinni hafi henni þótt acapella- tónlist það hallærislegasta í heimi. „Þannig að ég gerði heila plötu þannig. Þetta er einhver aulahúmor líka hjá mér, það er erfitt að skilgreina þetta. Svo fannst mér umhverfisvæn, pólitísk tónlist mjög bjánaleg. Þá þurfti ég að prófa það. Ég hef nefnilega aldrei skilið af hverju græn, umhverfisvæn tónlist þarf alltaf að vera væmin. Umfjöllunarefnið er nefnilega langt frá því að vera væmið (spinnur upp væminn náttúrusöng á staðn- um – og hlær). Af hverju þarf þetta að vera svona? (syngur „We Are The World“ með hæðnisröddu).“ Eitthvað annað Björk er nú farin að huga að næsta verki, en vinnan er afar stutt á veg komin, segir hún. „Þetta er á hugmyndastigi. En ég get lofað þér því að ég er búin með acapellupakkann og ég er bú- in með Joan Baez-réttlætispakkann . Í bili (hlær innilega). Ég er að fara eitthvað annað núna.“ Björk er búin með réttlætispakkann … í bili Björk ræðir um ævintýri síðustu tveggja ára út frá safnútgáfunni Voltaic Tilkeyrsla „Pælingin var líka að spila plötuna ... til á túrnum,“ segir Björk um Voltu. » „Ég hef nefnilega aldreiskilið af hverju græn, umhverfisvæn tónlist þarf alltaf að vera væmin.“  Lagið „Icelandic Woman“, eftir tónlistarmanninn Kevin Moroney, hlýtur að vera eitt dýrasta lag Ís- landssögunnar, kostaði hvorki meira né minna en 99 dollara á ís- lenska vefnum Tonlist.com í gær, um 12.600 krónur. Að sögn höf- undar átti lagið að kosta 99 sent en ekki dollara. Moroney er írskur tónlistarmaður og samdi lagið til ís- lenskrar unnustu sinnar, Dísu. 99 dollara lag um ís- lensku konuna Dísu Voltaic-pakkinn inni- heldur mynddisk með tónleikaupptökum frá París og Reykjavík (Langholtskirkju), myndbönd sem voru gerð í tengslum við Volta og á geisladiskum eru endurhljóðblandanir og upptaka sem var gerð beint í Olympic-hljóðverinu í Bretlandi rétt áður en Björk og hennar fólk fór á svið á Glastonbury. Voltaic kemur út í fimm mis- munandi gerðum, er allt frá stóreflis pakka niður í einfaldan geisladisk. „Listamenn eru stundum gagnrýndir fyrir að leggja það á aumingjans aðdáendurna að þurfa að kaupa allt klabbið,“ segir Björk. „Ég hef meiri trú á fólki en það, þetta eru sjálf- stæðar verur sem geta nú frekar valið þá stærð sem þeim hentar. Fólk er ekki fífl.“ „Fólk er ekki fífl“ 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Söngvaseiður (Stóra sviðið) Sannleikurinn (Litla sviðið) Söngvaseiður - tryggðu þér miða núna Við borgum ekki (Nýja sviðið) Uppsetning Nýja Íslands. Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone! Lau 11/7 kl. 19:00 Ö Fim 9/7 kl. 20:00 Fös 4/9 kl. 19:00 U Lau 5/9 kl. 19:00 Ö Sun 6/9 kl. 19:00 Ö Mið 9/9 kl. 19:00 U Fim 10/9 kl. 19:00 Ö Fös 11/9 kl. 19:00 Fös 18/9 kl. 19:00 Ö Lau 19/9 kl. 19:00 U Sun 20/9 kl. 14:00 Ö Lau 26/9 kl. 14:00 Ö Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust. Sérstakar sýningar verða í Háskólabíó á Voltaic í sumar, á laugardögum kl. 16.00 og á mið- vikudögum kl. 18.00. Ljósmynd/Bernard Kristin/ILC

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.