Morgunblaðið - 09.07.2009, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 2009
Þriðjudagskvöld. Horfi á minn-ingarathöfn um æskugoðiðMichael Jackson með tölv-
una í kjöltunni og les um leið pistil
Toms Engelhardt um hvernig við
gleymum fjöldamorðum í Afganist-
an á meðan fréttatímar eru und-
irlagðir af dauða poppkonungsins.
Og einhvers staðar þarna á milli er
vísbending um bresti þessa kaldr-
analega heims.
Minningarathöfnin er vel aðmerkja drepleiðinleg áhorfs.
Þetta er efni fyrir þá nánustu,
þessu á ekki að sjónvarpa, fyrir
okkur aðdáendurna ætti að bjóða
upp á almennilega tónleika í anda
þeirra sem haldnir voru eftir andlát
Freddie Mercury, ekki þessa jarð-
arfararstemmningu.
Vegna þess að sorg aðdáenda erallt önnur en sorg aðstand-
enda. Og dauði frægs fólks er allt
annars eðlis en dauði annarra. Ekki
fyrir aðstandendur endilega, en
fyrir okkur hin – við þekktum þau
án þess að þekkja þau, hin þekktum
við ekki. Þannig eru flest dauðsföll
einkamál, en ekki þegar Michael
Jackson deyr.
Þessar endalausu analýsur um
Jackson (jafn misgóðar og þær
eðlilega eru) eru nefnilega
frábært efni, einmitt það sem vant-
ar alltof oft í fjölmiðla heimsins.
Því fjölmiðlar fjalla oftast um nú-
ið, þeir segja okkur frá öllum
trjánum sem ber fyrir augu þann
daginn en verða sjaldnast varir við
skóginn.
Og Jackson er heill skógur út affyrir sig. Svartur og hvítur,
liðamótalaust dansfrík og út-
brunnið skar, fullorðið barn og
bernskur maður. Og annaðhvort
barnaníðingur eða mesti sakleys-
ingi veraldarinnar. Svarið finnum
við seint, því á einhvern einkenni-
legan hátt er Jackson heimurinn
allur, jafn ljótur og fallegur sem
hann er, og við munum seint skilja
hann til fulls. Hann var eins og per-
sóna í bók eftir Salman Rushdie,
hann eltist ekki eins og við hin.
Hann varð fullorðinn of snemma og
barn of lengi.
Merkilegasta þversögnin er þó að
hann var bernskuminning heillar
kynslóðar, og merkilegt nokk virð-
umst við öll hafa þurft að verja
hann. Sveinbjörn Pálsson skrifar í
Reykjavik Grapevine um hvernig
plötur hans virðast ósjaldan hafa
verið fyrsta platan sem meðlimir
okkar kynslóðar keyptu, en svo
kemur þessi minning: „Skólinn var
mitt í leiðindahverfi, krakkarnir
voru reiðir og grimmir. Þau fíluðu
Prince. Ég man eftir að hafa fylgst
með sjö ára strák, sem líklega var
að fara í fyrsta skiptið í skólann,
stoltur í framan út af nýju Michael
Hvergilandið Afganistan
AF LISTUM
Eftir Ásgeir H Ingólfsson
» Í myndbandinusjáum við Rodney
King barinn niður, við
sjáum grátandi og yf-
irgefið barn á götu og
loks Jackson sjálfan í
fangelsi.
Reuters
Kista Jacksons Borin út af ættingjum hans undir lok leiðinlegrar minningarathafnar í Staples Center í Los Angel-
es í fyrradag. Nær hefði verið að bjóða upp á hressilega tónleika í anda poppgoðsins látna, að mati pistilshöfundar.
HEIMSFRUMSÝNING!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SACHA BARON COHEN SNÝR AFTUR Í EINHVERRI
SNARKLIKKUÐUSTU OG FYNDNUSTU MYND SÍÐARI ÁRA
MYND SEM ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF
„BETRI EN BORAT. HHHH
COHEN ER SCHNILLINGUR!“ – T.V. KVIKMYNDIR.IS
„Þið sem að héldu að The Hangover væri það fyndnasta sem komið
hefur út árið 2009, bíðið bara og sjáið hvað Brüno gerir af sér“
– T.V. - kvikmyndir.is
ATH: FYRSTA SÝNING ER KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
BRUNO kl. 4D - 6D - 8D - 9D - 10D - 11D - 12D 14 DIGITAL
TRANSFORMERS 2 kl. 6D 10 DIGITAL
THE HANGOVER kl. 4 - 6 - 8- 10:20 12 DIGITAL
BRUNO kl. 2 - 4 - 6 - 8D - 8:30 - 10:10D - 10:30 14 DIGTAL ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L
BRUNO kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LÚXUS VIP THE HANGOVER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 8:30 - 10:20 - 10:50 12
TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5:30 - 8 - 10:50 10 DIGTAL
ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:303D - 3:403D - 5:503D L DIGTAL 3D