Morgunblaðið - 09.07.2009, Side 44
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 190. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SKOÐANIR»
Forystugreinar: Vítaverð vinnu-
brögð | Þróunarhjálp í kreppu
Pistill: Úr óskrifaðri dagbók – IV
Ljósvakinn: Reykjum í kringum
börnin!
Staksteinar: Þingheimur flýti sér
hægt
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-.,
+/0-11
**/-,,
+.-*1.
*,-1/2
*3-+21
**1-0,
*-2023
*,,-33
*1/-*+
4 564 1# 789 +//,
*+,-1
+/1-2,
***-2+
+.-+::
*,-13*
*3-+13
**,-*+
*-2003
+//-+:
*1/-3+
+22-+2+2
&;<
*2/-**
+/1-,
***-3:
+.-2+3
*,-,*,
*3-22.
**,-.:
*-21*3
+//-1.
*1*-*+
Heitast 20° C | Kaldast 10° C
Suðaustan 3-8 m/s
suðvestan til, annars
hæg breytileg átt. Víða
léttskýjað, hlýjast inn
til landsins. » 10
Nær hefði verið að
bjóða upp á almenni-
lega tónleika en
jarðarfararstemn-
ingu þegar Jackson
var kvaddur. »40
AF LISTUM»
Ekki sjón-
varpsefni
FÓLK»
Geir Ólafs með forystu-
grein í Séð og heyrt? »37
Sumarsafnplatan
hefur verið endur-
vakin með plötunni
Sumar á Íslandi
2009, enda nóg til af
sumarlögum. »41
TÓNLIST»
Sumar á
Íslandi 2009
TÓNLIST»
Gogoyoko er í senn net-
samfélag og búð. »38
TÓNLIST»
Raggi Bjarna syngur
djass-standarda. »36
Menning
VEÐUR»
1. Hundruð mynda og hrottaskapur
2. Starfsmönnum Kaupþings ógnað
3. „Mér er sagt það sé til“
4. „Aldrei hitt Karl Berndsen“
Íslenska krónan styrktist um 0,11%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
SVEITARÓMANTÍKIN svífur jafnan yfir vötn-
um á Árbæjarsafninu og fyrir þá sem vilja
gleyma amstri dagsins er tilvalið að gægjast
þangað inn og hverfa þar með aldir aftur í tím-
ann, líkt og þessi þjóðlegu skötuhjú sem teygðu
úr sér í grænu grasinu í gær og nutu sólarinnar.
PILTUR OG STÚLKA Í SUMARBLÍÐU
Morgunblaðið/Ómar
BJÖRK gefur í dag út safnið Voltaic
en á því er tveggja ára ferli í
tengslum við plötuna Volta gert upp
með tónleikaupptökum, mynd-
böndum, endurhljóðblöndunum og
fleiru. Björk lék á als oddi í spjalli
við blaðamann Morgunblaðsins og
lýsti því m.a. hvernig hún verður
eins og krakki í dótabúð þegar kem-
ur að því að raða saman hljómsveit.
Hún fer þá í pælingarnar á bak við
Volta, hvernig hún hafi verið hugsuð
sem tónleikaverkefni frá upphafi og
skýrir líka frá því að hinn eldfimi
sjálfstæðissöngur „Declare Inde-
pendence“ hafi upphaflega verið
hugsaður sem brandari. Kínverjar
fá þá líka á baukinn og hún veltir því
fyrir sér af hverju söngvar um nátt-
úruvernd þurfi alltaf að vera svona
déskoti væmnir!? | 37
Verður eins og
krakki í dótabúð
Hress Björk Guðmundsdóttir.
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur
svanbjorg@mbl.is
MÁLEFNI hjartans taka á sig ýms-
ar og misrómantískar myndir. Ön-
undur Jónasson, nýútskrifaður vél-
tæknifræðingur, fékk dönsk verk-
fræðiverðlaun fyrir sitt hjartans
mál, hönnun svokallaðs mitralhrings
sem er settur í kringum hjartalokur
til að styrkja hjartavefinn.
Frá svínsloku til plasthrings
Verkefnið var lokaverkefni Ön-
undar og dansks samnemanda, Jes-
pers Lønne, í véltæknifræði frá
Verkfræðiskóla Árósa í samvinnu við
Skejby-sjúkrahúsið sem er eitt af
stærstu sjúkrahúsum Evrópu.
„Þegar fólk fær blóðtappa deyr oft
hluti af hjartavöðvanum og þarfnast
lagfæringar. Áður fólst lækningin í
að græða svínslokur í hjartað, síðar
var svínunum þyrmt og járnlokur
notaðar í staðinn. Nýrri tækni er að
nota hring til að styrkja hjartavef-
inn. Þeir hafa ekki reynst nógu vel
vegna þess að efnið í þeim, nitinol,
hefur viljað brotna. Verkefnið fólst í
að vinna þessa hringi í annað efni,
polypropylen, sem er plastefni. Við
létum framleiða fyrir okkur tvær
prufutegundir af hringjum sem lofa
góðu.“ Raunar lofar verkefnið það
góðu að Önundur og Jesper hlutu
hæstu einkunn frá skólanum og
verðlaun Verkfræðiþjónustu Dan-
merkur – DIS – sem er vel þekkt
innan verkfræðinnar.
Nokkra furðu vekur að véltækni-
fræðingur velji sér verkefni sem er
nær læknisfræði heldur en véltækni-
fræði. „Margir hafa undrast þetta en
líkaminn er eins konar líkamsvél,“
segir Önundur.
Fær ekki einkaleyfið
Önundur er vanur að taka u-
beygjur í lífinu. Upphaflega lærði
hann pípulagnir, tók síðan tækni-
stúdentspróf og fór í véltæknifræði.
Í vetur hyggur hann á meistaranám í
orkufræðum á vegum Reyst sem er
samstarfsverkefni, Orkuveitu
Reykjavíkur, HÍ og HR. „Það var
hreinlega orðið alltof dýrt að vera
námsmaður á íslenskum námslánum
með þrjú börn á framfæri í Dan-
mörku. Annars hef ég mikinn áhuga
á orkumálum og sérstaða Íslands er
mikil þar.“
Aðspurður hvort hann fái ekki
einkaleyfi á hringnum góða segir
hann það ekki vera. „Skejby-sjúkra-
húsið á einkaleyfið en ég fæ kannski
nafnið mitt greypt í hringinn,“ segir
Önundur og hlær.
Hringur fyrir hjartað
Hlaut dönsk verkfræðiverðlaun fyrir hönnun á hjartaloku-
hring sem styrkir hjartavef sem hefur skaðast við blóðtappa
Hjartans mál Önundur og Jesper
með hjartalokuhringinn góða.
Skoðanir
fólksins
’Hvað er verið að fela fyrir sjóð-félögum? Er það virkilega satt aðsjóðfélögum sem vilja fá upplýsingarsé synjað um sjálfsagðar upplýs-ingar? Ég tel það rétt og skylt að láta
sjóðfélögum allar upplýsingar í té
sem koma frá endurskoðanda.
Ástæða er til að nefna dæmi sem
ekki koma fram í ársskýrslu. Ekkert
er getið um innlent skuldabréfasafn í
ársskýrslu Gildis. » 24
JÓHANN PÁLL SÍMONARSON
’Ríkisstjórn og Alþingi eru í úlfa-kreppu. Samkvæmt samning-unum á að afgreiða málið fljótt ogfyrir sumarhlé þingsins. Ekkert færier gefið á að vísa málinu til þjóð-
arinnar. Almenningur verður því sjálf-
ur að láta til sín taka og knýja fram
þjóðaratkvæðagreiðslu. » 24
HJÖRTUR HJARTARSON
’Svo virðist sem umburðarlyndiÍslendinga séu engin takmörksett, þar sem við dugðum ekki til aðkrefjast opinberrar rannsóknar á þvíhvað þetta níðingsbragð kostaði ís-
lensku þjóðina og hvað þá að sækja
málið frekar fyrir alþjóðlegum dóm-
stólum. » 25
JÓHANNES KÁRI KRISTINSSON
’Hver er helsta ástæða þess aðþjóðin stendur nú í þessum deil-um varðandi Icesave-reikningana?Getur það verið að þjóðin sé ekkiábyrg fyrir innistæðum á Icesave-
reikningum Landsbankans? Getur
sökin legið hjá innbyggðum galla í
fjármálakerfi Evrópu? » 26
BIRGIR ÖRN STEINGRÍMSSON
’Fullyrðingin sem fram kemur umað „þetta sé landið sem ÁrniSigfússon ætlar nú að eignast og villselja Grindvíkingum á þrefalt hærraverði með fulltingi HS Orku …“ er
því alröng, algjörlega staðlausir stafir
og botninn þar með fallinn úr grein-
inni. » 26
JÚLÍUS JÓN JÓNSSON