Morgunblaðið - 01.09.2009, Side 4

Morgunblaðið - 01.09.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009 Guðjón Arnar endurskoðar veiðilöggjöfina JÓN Bjarnason sjávarútvegs- ráðherra hefur ráðið Guðjón Arnar Krist- jánsson, fv. al- þingismann, til sérstakra verk- efna í sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðu- neytinu. Í fréttatilkynningu ráðuneytisins segir að Guðjón Arnar muni eink- um sinna verkefnum sem snúi að undirbúningi brýnna breytinga á fiskveiðilöggjöfinni sem ráðherra hyggist leggja fram á haustþingi í samræmi við stjórnaryfirlýsingu ríkisstjórnarinnar Guðjón Arnar sagði í samtali við Morgunblaðið að hann myndi m.a. skoða framkvæmd kvótakerfisins og nýtingu fiskistofna. „Ég tel mig þekkja kvótakerfið nokkuð,“ sagði Guðjón en vísaði að öðru leyti á ráð- herra þegar hann var spurður um hvað verkefni biðu hans. Hann sagðist ekki telja að útgerðarmenn þyrftu að óttast aðkomu sína að málinu. „Ég vinn þau verk sem ráð- herrann felur mér og það er hann sem hefur síðasta orðið.“ Guðjón Arnar er formaður Frjálslynda flokksins en flokkurinn kom ekki manni á Alþingi í þing- kosningunum í apríl. Steingrímur J. Sigfússon, sem var sjávarútvegs- ráðherra í minnihlutastjórn Sam- fylkingar og VG fyrir kosning- arnar, sagði í leiðtogaumræðum á Ríkissjónvarpinu eftir kosning- arnar, að hann hefði hringt í Guð- jón, þegar ljóst var að hann var fall- inn af þingi, og nefnt við hann að ef hann yrði eitthvað lengur í sjáv- arútvegsráðuneytinu væri viðbúið að hann hóaði í hann. Guðjón Arnar Kristjánsson „MIKILVÆGT er að tilurð þess- arar nefndar verði útskýrð,“ segir Höskuldur Þórhallsson, fulltrúi Fram- sóknar í fjár- laganefnd Al- þingis. Í Morgunblaðinu í gær segir frá fundi ríkisfjármálanefndar sem for- ystumenn ríkisstjórnar, fulltrúar stjórnarflokka í fjárlaganefnd og embættismenn sitja í. Höskuldur segir nefndastarfið koma sér spánskt fyrir sjónir og óeðlilegt sé að blanda starfi framkvæmda- og löggjafavalds saman með þessum hætti. Hann hefur óskað skýringa á málinu við formann fjárlaganefnd- ar. Höskuldur óskar skýringar á rík- isfjármálanefnd Höskuldur Þórhallsson FRÉTTASKÝRING Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is „VIÐ teljum þessa lagasetningu misráðna enda leiðir hún til hækk- unar neysluvísitölu og leggst mis- jafnt á vörutegundir. Slíkt skapar ósamræmi og skekkir samkeppni,“ segir Almar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna. Gjöld á hreinan safa Ný lög um vörugjöld taka gildi í dag, 1. september. Rauði þráðurinn er sá að auknar álögur leggjast á matvörur sem innihalda sykur eða sætuefni. Slíkt er þó ekki algilt. Að sögn Almars eru dæmi um vörur sem hafa mikið sykurinnihald séu undanþegnar þeirri aukningu álagningu sem lögfest hefur verið á sama tíma og lögð séu vörugjöld á sykurlaus matvæli. „Vörugjöldin áttu að vera syk- urskattur, en það verður ekki séð að löggjafinn hafi rökstutt efnislega hvaða ástæður eru að baki skatt- lagningunni. Hreinn ávaxtasafi sem er sykurlaus fær á sig vörugjöld en ekki jógúrtvörur sem þó geta verið dísætar. Sojamjólk fær á sig vöru- gjöld en ekki kúamjólk, sem er ósanngjarnt til dæmis gagnvart þeim stóra hópi fólks sem hefur mjólkuróþol,“ segir Almar. Afsláttur á jafnræði Þegar vörugjaldafrumvarpið kom fram taldi Félag íslenskra stór- kaupmanna það illa unnið enda þótt það hefði skánað við umfjöllun Al- þingis. „Meginmálið er aukin fjárþörf ríkisins. Til að brúa það gat eru farnar ýmsar leiðir og á því höfum við skilning. Hið mikla misræmi sem er í álagningu vörugjaldanna er hins vegar óþolandi. Þótt illa ári fyrir ríkissjóð á það ekki að gefa af- slátt af jafnræðisreglu í skatta- málum,“ útskýrir Almar sem segir stórkaupmenn mælast til þess að fjármálaráðherra endurskoði vöru- gjöldin meðal annars svo neyt- endum sé ekki mismunað. „Meiri niðurskurður útgjalda er leið sem ríkið hefði getað notað til að minnka hallarekstur ríkissjóðs í stað þess að leggja á skatta sem mismuna. Skattahækkanir séu ekki líklegar til að auka tekjur ríkissjóðs að ráði,“ segir Almar. Engar grundvallarbreytingar Indriði H. Þorláksson, aðstoð- armaður fjármálaráðherra, segir að þegar endurskoðun á vörugjöld- unum hófst hafi verið ráðgert að færa matvörur sem voru fyrir tveimur árum færðar niður í lægra þrep virðisaukaskattsins aftur upp í hærra þrepið. Við nánari athugun hafi hins vegar orðið að ráði að taka aftur upp vörugjaldakerfið, sem af- lagt var fyrir tveimur árum en sam- kvæmt því miðast álagningarstuðull ýmis við lítra eða klíó. „Hér eru engar grundvallarbreytingar á ferð- inni,“ segir Indriði. Hann segir bú- ist við að vörugjöldin muni skila ríkissjóði nokkur hundruð millj- ónum króna í tekjur á ári en ná- kvæmar tölur þar um liggi þó ekki fyrir. Þá hefur komið fram hjá Indriða að sykurskattssjónarmiðið hafi aldrei verið ráðandi í ákvörð- unum um vörugjaldið, þótt það við- horf hafi verið undirliggjandi. Beint út í verðlagið „Við eigum ekkert val og verðum að velta breytingum á vörugjöldum beint út í verðlagið,“ segir Valdimar Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Kjöríss í Hveragerði. Þannig verða nú lögð vörugjöld á ís sem nema 16 kr. á hvern lítra. Þá hækka vöru- gjöld á íssósur um að jafnaði 80 kr. á hvern lítra en innihaldi sósan kakómalt nemur hækkunin 100 kr. á hvern lítra. „Það mætti halda að kakómaltið væri stórhættulegt,“ segir Valdimar. Vörugjöldin og op- inber afskipti segir hann stjórn- endum Kjöríss vel kunn enda hafi þau litað alla starfsemi fyrirtæk- isins í fjörutíu ár. Skattur á sætindin en sumt hækkar þó ekki  Vörugjöld leggjast á matvæli í dag  Sykurskatturinn er með undantekningum Sykurskattur Dæmi um vörur sem sykurskatturinn verður lagður á. Veigamiklar breytingar á vöru- gjöldum taka gildi í dag. Syk- urskattur með undantekningum. Mjólkurvörurnar sleppa. Hærra ísverð beint út í verðlagið, segir framkvæmdastjóri Kjöríss. Undanþegin Sykursætar vörur sem innihalda mjólk eru ekki skattlagðar. Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is ÍTALSKI múrarinn Ugo Verni, sem talið er að hafi nýverið fengið tæplega 28 milljarða króna í ítalska ríkislottóinu, fer huldu höfði og hafði ekki gefið sig fram þegar síðast fréttist. Vinningsmiðinn var keyptur á bar einum í Bagnone, litlum bæ í Toskana-héraði á Ítalíu. Talið er næsta víst að maðurinn, sem vinn- ur bæði sem steinsmiður og múrari, sé hinn heppni, því aðeins fimm keyptu lottómiða á barnum tiltekinn dag í ágústmánuði og hinir fjórir munu ekki lengur koma til greina sem vinningshafar. Íslensk hjón, Ólöf Oddgeirs- dóttir og Magnús H. Magnússon, eiga hús í Bagnone og vilja gjarnan, eins og fleiri, ná tali af milljarðamæringnum. Þau fengu stein- smiðinn nefnilega til að hlaða fyrir sig arin í húsinu og vilja koma til skila steypufötum og múrskeiðum, sem Verni skildi eftir á vett- vangi. Margir vilja hitta Ugo Verni Þau voru að öllu leyti ánægð með fram- göngu mannsins, sem auk múrverksins lét sig ekki muna um að gróðursetja nokkur tré í garði þeirra, þar sem garðyrkjumaðurinn hafði ekki staðið sig í stykkinu. Það er hins vegar ekki einfalt að koma áhöldunum til skila, því múrarinn múraði virðist hafa horfið af yfirborði jarðar. Þó svo að fólk í Bagnone viti ýmislegt um náungann þá virðist enginn vita hvar hinn fimmtugi múrari, roskin móðir hans og rússnesk unn- usta halda sig. Mafían mun hafa lýst yfir áhuga á að fá hluta fjárins, bæjarstjórinn í Bagnone segist ekki þurfa nema milljón evra til að bjarga fjármálum bæjarins og presturinn segist sátt- ur ef hann fær bara nóg til að endurnýja þak- ið á gömlu kirkjunni. Stálheppinn múrari vann viðvik fyrir Íslendinga í Bagnone á Ítalíu Fegurð og saga Það er fallegt í Bagnone eins og víða í Toskana-héraði á Ítalíu. Beita á verðpólitík sem neyslustýr- ingu með mun markvissari hátt en gert hefur verið hingað til. Þá er mikilvægt er að auka alla fræðslu um hvaða neysluvörur eru heil- næmastar, segir Ögmundur Jóns- son heilbrigðisráðherra. Hann bindur vonir við hin nýju lög um vörugjöld, sem breyst hafi talsvert við umfjöllun Alþingis. Þau séu ekki sykurskattur með sama hætti og ráðgert var í fyrstu. „Verðlagning hefur mikil áhrif á neyslumynstur og sérstaklega eru börnin næm gagnvart slíku. Gos- drykkjaneysla hér á landi er mikil og raunar meiri en gerist annars staðar á byggðu bóli. Við þurfum sem hægt er að koma í veg fyrir slíkt. Neyslustýring með álögum er eitt af þeim verkfærum sem við höfum. Enginn heldur því fram að við eigum að hætta algjörlega við sykurinn, sem er meðal margra næringarefna sem við þurfum. Hér þarf hins vegar að fara leið skyn- seminnar og meðalhófs og virkja meðal fólks viljann til þess að borða heilnæman mat,“ segir Ög- mundur Jónasson. Eigum að beita markvissri verðpólitík Verðbreytingar vegna vörugjalda 0 kr. Velflestar mjólkurvörur hækka ekkert 16 kr. Hækkun á hverjum lítra af ávaxtasafa 50 kr. Hækkun á hverju kg af Nóa-konfekti. 4 kr. Hækkun á hverjum pakka af Ópal

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.