Morgunblaðið - 01.09.2009, Síða 5
Fréttir 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009
N Ý T T
2 0 % k y n n i n g a r a f s l á t t u r
Ármúla 10 | sími: 5689950 | www.duxiana.com
TILBOÐ 2 DUX 1001/Original 90x200cmXtandard yfirdýna 180x200cmAscot höfuðgafl og rykfaldur
Aðeins
kr. 420.000
3 litir: Beige, brúnt og svart
Takmarkað magn
Afhentu yfir 9
þúsund áskoranir
UNDANÞÁGUR frá friðun margra
fuglategunda taka gildi í dag.
Þannig er nú leyfilegt að veiða
skarf, bæði toppskarf og dílaskarf.
Einnig margar andategundir, þ.e.
stokkönd, urtönd, rauðhöfðaönd,
duggönd, skúfönd, hávellu og top-
pönd. Einnig er aflétt friðun af
helsingja, nema í Skaftafellssýslum
þar sem hann nýtur friðunar til 25.
september. Friðunin þar er til að
vernda staðbundinn varpstofn.
Helsingjar sem hér eru veiddir eru
að langmestu leyti farfuglar sem
koma hér við á leið frá varp-
stöðvum í Grænlandi til vetrar-
stöðva. Þá er nú heimil skotveiði á
svartfugli, þ.e. álku, langvíu,
stuttnefju, teistu og lunda.
Skotveiðar á heiðagæs og grá-
gæs voru leyfðar frá 20. ágúst og
má veiða þessar tegundir til 15.
mars. Þungi gæsaveiðanna er þó í
september og október. Fyrst á
veiðitímanum sækja margir í heiða-
gæsina og sitja fyrir henni við
tjarnir og polla til fjalla. Þegar
kólnar til fjalla og berin falla sækja
gæsir, einkum grágæsir, í auknum
mæli í ræktunarlönd, bæði akra og
tún. gudni@mbl.is
Skotveiðitímabil
á fuglum er hafið
MEÐALLEGUTÍMI hefur heldur
styst á sjúkrahúsum undanfarin ár,
hann var 5,7 dagar árið 2001 sam-
anborið við 5,4 daga árið 2007. Þessi
þróun er svipuð og annars staðar í
heiminum, þ.e. að legum fer fækk-
andi á sjúkrahúsum og meðallengd
hverrar legu styttist, að því er fram
kemur í Talnabrunni á heimasíðu
landlæknis.
Aðsókn á legudeildir sjúkrahúsa
er mismunandi eftir kynjum og ald-
urshópum. Sem dæmi má nefna að
fleiri legur eru meðal karla en
kvenna í aldurshópnum 5-14 ára, en í
aldurshópunum 15-44 ára er fjöldi
lega mun meiri meðal kvenna. Mun-
ar þar mestu um legur vegna fæð-
inga.
Aukin þjónusta í heimahúsum
gæti skýrt fækkun
Þegar dregur nær efri árum eru
legur karla hins vegar aftur hlut-
fallslega fleiri en kvenna. Legum
fækkar umtalsvert í elstu aldurhóp-
unum milli áranna 2006 og 2007 og
er breytingin mest í aldurhópnum
85-89 ára. Hugsanleg skýring gæti
verið aukin þjónusta við aldraða í
heimahúsum undanfarin ár auk
betri göngudeildarþjónustu.
Þessar nýju tölur á vef Landlækn-
isembættisins sýna að legum hefur
fækkað stöðugt miðað við íbúafjölda
frá árinu 2001, en þá voru 50.908 leg-
ur skráðar en árið 2007 voru þær
48.635.
Meðal skýringa á þessari lækkun
gæti verið aukin aðsókn á göngu-
deildir sjúkrahúsa og má í því sam-
bandi nefna að 19,7% aukning varð á
göngudeildarstarfsemi á Landspít-
ala milli áranna 2006 og 2007.
aij@mbl.is
Legutími styttist og sjúkrahús-
legum fækkar með hverju árinu
Morgunblaðið/Heiddi
Landspítalinn Meðallegutími hefur heldur styst á sjúkrahúsum undanfarin
ár, hann var 5,7 dagar árið 2001 samanborið við 5,4 daga árið 2007.
ÁBYRGÐARMENN vefsíðunnar
kjosa.is afhentu Ólafi Ragnari
Grímssyni, forseta Íslands, í gærdag
undirskriftir rúmlega níu þúsund
einstaklinga sem tóku undir áskor-
un um að forsetinn synji svonefndu
Icesave-frumvarpi staðfestingar og
vísi því þannig til þjóðaratkvæða-
greiðslu. Í áskoruninni segir að rík-
isábyrgð vegna samninganna geti
raskað lífi þjóðarinnar stórkostlega
um mörg ókomin ár. „Að hafna
ábyrgðinni getur á sama hátt orðið
afdrifaríkt. Ábyrgðin og byrðarnar
yrðu þannig lagðar þjóðinni á
herðar í báðum tilvikum. Því er rétt
að þjóðin sjálf skeri úr um málið í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Slíkt fyrir-
komulag er ekki aðeins réttmætt og
sanngjarnt heldur einnig nauðsyn-
legt til að ná sæmilegri sátt um þá
leið sem farin verður.“