Morgunblaðið - 01.09.2009, Síða 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009
ÞORLEIFUR
Gunnlaugsson,
borgarfulltrúi í
Reykjavík, hefur
verið kjörinn
varaformaður
Sambands ís-
lenskra sveitar-
félaga í stað
Svandísar Svav-
arsdóttur. Svan-
dís lét af störfum
í stjórn sambandsins þegar hún tók
sæti í ríkisstjórn Íslands eftir al-
þingiskosningar sl. vor.
Þorleifur hefur setið í borgar-
stjórn Reykjavíkur frá 2007 og í
stjórn sambandsins frá því í maí sl.
Nýr varaformaður
sambandsins
Þorleifur
Gunnlaugsson
89. ráðstefna
evrópskra tann-
réttingasérfræð-
inga verður
haldin hér á
landi í júní árið
2013. Ráðstefnan
verður haldin í
Tónlistar- og
ráðstefnuhúsinu
í Reykjavík sem
til stendur að vígja í lok árs 2011.
Forseti samtakanna árin 2012-
2013 verður Árni Þórðarson, tann-
læknir og sérfræðingur í tannrétt-
ingum. Árni lauk tannlæknanámi
frá Háskóla Íslands árið 1982, sér-
námi í tannréttingum frá Ósló-
arháskóla árið 1986 og hlaut við-
urkenningu The European Board
of Orthodontics árið 2003. Hann
var stundakennari við tann-
læknadeild Háskóla Íslands og síð-
ar lektor í tannréttingum við sömu
deild til ársins 2000. „Það er mikill
heiður og viðurkenning fyrir mig
og kollega mína hér á landi að ég
skuli hafa verið kjörinn forseti
Samtaka evrópskra tannréttinga-
sérfræðinga, fyrstur Íslendinga,“
segir Árni í tilkynningu.
Fer fyrir tannrétt-
ingasérfræðingum
Árni Þórðarson
YFIR 45 milljónir króna söfnuðust í
tengslum við söfnunarþáttinn „Á
allra vörum“ sem sýndur var í
beinni útsendingu á Skjá einum,
mbl.is og á skjarinn.is sl. föstudags-
kvöld. Allt söfnunarféð rennur til
kaupa á hvíldarheimili handa
krabbameinssjúkum börnum en öll
skipulagning og framkvæmd var í
höndum sjálfboðaliða.
45 millj. söfnuðust
ÞESSI myndarlegi lyngbobbi
varð á vegi ljósmyndara Morg-
unblaðsins í Fossvoginum á dög-
unum.
Á vef Náttúrufræðistofnunar
Íslands segir að lyngbobbinn sé
einkum útbreiddur á Austurlandi
á svæðinu frá Gunnólfsvíkurfjalli
við Bakkaflóa og suður til Kví-
skerja í Öræfum.
Landnám hans á höfuðborgar-
svæðinu er hins vegar öllu nýrra,
en fyrst fréttist af lyngbobba í
Örfirisey og lék grunur á að sá
hefði borist með timburfarmi frá
Eistlandi. „Næst fundust sniglar í
húsagarði í Reykjavík 1998 og í
óræktarlimgerði við íþróttasvæði
í Hafnarfirði 2001. Síðan hefur
tegundinni fjölgað mikið á þessu
svæði.
Það hefur verið á það bent að
lyngbobbar á höfuðborgarsvæð-
inu séu öllu stærri en ættingjar
þeirra á Austurlandi og því sé
líklegt að þeir séu afkomendur
slæðinga erlendis frá,“ segir á
vef stofnunarinnar. annaei@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Snigill Lyngbobbinn á höfuðborgarsvæðinu þykir stærri en sá fyrir austan.
Lyngbobbum fjölgar á
höfuðborgarsvæðinu
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti Húsgögn
Landsins mesta úrval af sófasettum
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
DL-634 3+1+1
Aspen-lux NICE
man-8356 3+1+1
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
Roma Aspen
man 8205 relax
Tungusófar
Sófasett
Stakir sófar
Hornsófar
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
Bonn
Man 8279 Tau bogasófi
199.90
0 kr
verð á
ður
399.90
0 kr
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Bonn horn
takma
rkað m
agn ef
tir
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Suðurlands um
að karlmaður sæti þriggja mánaða
nálgunarbanni og á þeim tíma fái
hann ekki að nálgast barnsmóður
sína og þrjú börn þeirra.
Sýslumaðurinn á Selfossi krafðist
nálgunarbannsins vegna þess að
maðurinn hefur á liðnum mánuðum
ítrekað raskað friði konunnar og
barnanna með símtölum, sms-
sendingum og ógnandi framkomu,
meðal annars hótunum um líkams-
meiðingar.
Þá hefur hann ítrekað ruðst inn í
íbúð konunnar og rótað þar í dóti
ásamt því að hóta henni því að hann
muni ,,ganga frá henni“.
Í dómi Hæstaréttar er haft eftir
manninum að hann hafi aðeins verið
að leita eftir umgengni við börnin
sem ekki hafi náðst samkomulag
um. Hæstiréttur segir að maðurinn
njóti úrræða samkvæmt barnalög-
um til úrlausnar á ágreiningi um um-
gengni við börn sín. Geti sjónarmið
hans um þetta ekki réttlætt áreitni
hans í garð fyrrverandi sambýlis-
konu sinnar og barna þeirra.
Hæstiréttur
staðfestir
nálgunarbann