Morgunblaðið - 01.09.2009, Page 8

Morgunblaðið - 01.09.2009, Page 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009 „ÉG ER ánægð- ur með nýja stjórn. Það er ekkert sem heft- ir okkur í að vinna áfram að þeim fjölmörgu verkefnum sem eru á okkar borði,“ segir Ás- geir Margeirs- son, fram- kvæmdastjóri Geysis Green Energy (GGE). Hann segir fjár- hagsstöðu GGE vera betri nú á sumarmánuðum en um síðustu áramót. „Í lok síðasta árs var eig- ið fé GGE um tíu milljarðar sam- kvæmt ársreikningum og sam- kvæmt okkar mati hefur það aukist síðan. Þannig að staða fé- lagsins er með ágætum, þótt hrun- ið hér á Íslandi hafi vitaskuld komið við okkur eins og aðra. Ein- hverra hluta vegna hefur því verið kastað fram í umræðu um félagið að það sé ekkert nema skuldir, en því fer fjarri,“ segir Ásgeir. „Mér finnst mjög mikilvægt að það komi nýir hluthafar að HS Orku sem geta eflt félagið.“ Verðum að horfa fram á við Ný stjórn skipuð hjá Geysi Green Ásgeir Margeirsson „ÉG LÍT svo á að þetta sé góð nið- urstaða fyrir OR, úr því sem komið var. Nú er málið á borði borgar- ráðs og borgar- stjórnar,“ segir Guðlaugur Sverrisson. Hann segir stjórn OR hafa gert allt sem í hennar valdi stóð til þess að auðvelda ríkinu að koma að málinu, ef það vildi. Fundir hefðu farið fram um málið og upplýsingar veittar um stöðu málsins. „Að lok- um var okkur síðan tilkynnt um það að ríkið gæti ekki skilað inn skuld- bindandi tilboði innan þess frests sem gefinn var. Það er mikill léttir að þessu máli sé lokið frá okkar hendi. Ég tel þetta góða lendingu fyrir OR, og þar með íbúa í Reykja- vík, Akranesi og Borgarbyggð, eig- enda fyrirtækisins.“ Telur söluna góða fyrir Orkuveituna Guðlaugur Sverrisson FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is ÍSLANDSBANKI, Landsbankinn og lífeyrissjóðir munu fara með meiri- hlutaeignarhlut í HS orku eftir að að- alfundur Geysis Green Energy (GGE), sem haldinn var í höfuð- stöðvum félagsins í Reykjanesbæ í gær, samþykkti breytingar á stjórn- inni. GGE fer með 55 prósent eign- arhlut í HS orku, en útlit er fyrir að kanadíska orkufyrirtækið Magma Energy muni fara með um 45 prósent hlut. Eftir breytingarnar á stjórn GGE er Íslandsbanki með einn mann í stjórn, Landsbankinn með tvo og líf- eyrissjóðirnir einn. Stjórnarmenn Íslandsbanka og líf- eyrissjóðanna, Einar Sigurðsson og Gunnar V. Engilbertsson, koma að GGE í gegnum fjárfestingarsjóðinn Glaciel Renewable Energy Fund. Ís- landsbankinn fer með 48 prósent eignarhlut í honum og lífeyrissjóð- irnir um 40 prósent hlut. Stjórnar- menn Landsbankans, Þórður Ólafur Þórðarson og Steinþór Baldursson, koma inn í stjórnina þar sem Lands- bankinn hefur yfirtekið 40 prósent hlut Renewable Energy Resource, félags í eigu Atorku, í GGE. Skulda- staða þess félags var orðin það alvar- leg að Landsbankinn tók það yfir. Auk þeirra fjögurra er Eyjólfur Árni Runólfsson í stjórninni fyrir hönd Mannvits. Fyrirhuguð kaup Magma Energy á liðlega 32 prósenta hluta Orkuveitu Reykjavíkur og Hafnarfjarðarbæjar hafa valdið miklu uppnámi, bæði inn- an stjórnmálaflokkanna og ekki síst á Suðurnesjum. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti tilboð Magma í hlutinn í gær með fyrirvara um samþykki borgarráðs og borgar- stjórnar. Frestur til þess að taka af- stöðu til tilboðs Magma rann út í gær. Sérstaklega hefur verið mikill þrýstingur innan Vinstri grænna og ályktaði flokksráð flokksins á þann veg að allt yrði gert til þess að koma í veg fyrir kaup Magma á hlut OR og Hafnarfjarðarbæjar, og opinbert eignarhald á orkufyrirtækjunum þannig tryggt. Í sameiginlegri fréttatilkynningu fjármála- og iðnaðarráðuneytisins, sem send var út í gær, kemur fram að viðræðuhópi hafi verið komið á til að kanna forsendur þess að ganga til samninga við núverandi eigendur HS orku um kaup á meirihluta í félaginu. Hópurinn verður skipaður af ríkinu, lífeyrissjóðum, Grindavíkurbæ, fleiri sveitarfélögum auk annarra sem rætt hafa samstarf um kaup á eignar- hlutum í HS orku að undanförnu. Ljóst má vera að viðræðuhópurinn er fyrst og fremst að skoða hvort mögulegt verði að kaupa hlutinn í HS orku af GGE, og ná þannig meiri- hlutaeign í félaginu. Ólíklegt er að Magma selji hlut sinn í HS orku, ef kaup félagsins ganga eftir. Það yrði a.m.k. í mótsögn við yfirlýsingar forsvarsmanna fé- lagsins um að byggja félagið upp og hjálpa því að vaxa og dafna í framtíð- inni. Fari svo að GGE haldist áfram með þeim hætti sem það er nú, þ.e. að bankarnir og lífeyrissjóðirnir haldi sínum hlutum í félaginu, þá verður HS orka að stærstum hluta í eigu fjárfesta sem teljast til einkaaðila. Ekki síst ef sú áætlun stjórnvalda gengur eftir að kröfuhafar Glitnis eignist Íslandsbanka, og þar með hlut bankans í GGE. Morgunblaðið/Heiddi Stjórnarmenn á fundi Stjórnarmenn hjá Orkuveitu Reykjavíkur tókust á í gær um hvort OR ætti að selja hlut sinn í HS orku til Magma Energy. Togast á um HS orku  Stjórnarmönnum í GGE var fækkað úr sjö í fimm  Íslandsbanki, Landsbanki og lífeyrissjóðir ráða för í félaginu sem fer með meirihluta í HS orku Eignarhald félaga sem tengjast HS Orku Geysir Green Energy (GGE) Eigendur HS Orka Framtíðareignarhald 40% 41% 12% 7% 55% 45% Glaciel Renewable Energy Fund Atorka Minni fjárfestar, íslenskir, þýskir og ástralskir Mannvit Magma Energy GGE (Fjármála- og iðnaðar- ráðuneyti kanna möguleika á kaupum) Kröfuhafar eigenda GGE fara nú með meirihluta í HS orku. Enn er togast á um eignarhald á HS orku. Fjármála- og iðnaðarráðu- neyti vilja reyna að tryggja meiri- hlutaeign opinberra aðila. Hvers vegna vildi OR selja hlut sinn í HS orku? Samkeppnisyfirvöld settu skorður við eignahlut OR í HS orku með ákvörðun þar um, og hefur verið unnið að sölu á hlut fyrirtækisins í HS orku innan þess frest sem veitt- ur var. Auk þess taldi meirihluti stjórnar OR skynsamlegt selja hlutinn á við- skiptalegum forsendum. Þá spilaði inn í, samkvæmt tilkynn- ingu frá OR, að með sölunni er OR ekki að selja auðlindir sem HS orka nýtir til Magma, heldur einungis orkuframleiðsluhluta fyrirtækisins. Hvað bauð Magma í 32 prósenta hlut OR og Hafnarfjarðar í HS orku? Magma Energy, sem skráð er á hlutabréfamarkað í Kanada, bauð 12 milljarða króna. Þar af einn þriðji greiddur út með reiðufé en afgang- urinn með skuldabréfi til sjö ára, sem á eru skilyrði. Þar á meðal að ekki sé greiddur út arður og veðið sem OR tekur í er um 130 prósent að lágmarki, miðað við verðmæti þess kauptilboðs sem Magma lagði fram. S&S HRAFN Magn- ússon, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, seg- ir lífeyrissjóðina vilja skoða vel að- komu þeirra að orkufyrirtækj- unum. „Allar fjárfestingar sem eru skynsamlegar til lengri tíma eru skoðaðar vel af lífeyrissjóðunum, og orkugeirinn, þar á meðal eign- arhlutur í HS orku, er meðal þess sem vert er að skoða. Við munum vinna að þessum málum með stjórn- völdum og kanna með nákvæmum hætti hvernig við getum átt aðkomu að málinu.“ Hrafn segir þó forgangsmál að leysa úr gjaldeyrisskiptasamningum lífeyrissjóðanna áður en stórar ákvarðanir verði teknar um aðkomu þeirra að fjárfestingum. „Áður en ráðist er í stórar fjárfestingar verð- ur heildarmyndin að vera skýr. Ég myndi telja skynsamlegast að leysa úr gjaldeyrissamningunum.“ Vilja aðkomu að orkugeira Hrafn Magnússon IdeaPad U350 er betri hugmynd og kostar aðeins frá154.900kr. Kíktu inn á betrihugmynd.is og sjáðu um hvað málið snýst Sölustaðir •VerslunNýherja -Borgartúni 37 •VerslunNýherjaAkureyri - Kaupangi • SenseCenter -Kringlunni •www.netverslun.is • Söluaðilar um landallt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.