Morgunblaðið - 01.09.2009, Síða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009
STANGVEIÐI
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
„VIÐ erum að fara í 1.400 fiska og
veiðum bara á sex stangir, útkoman
er því mjög fín,“ sagði Einar Sigfús-
son, eigandi Haffjarðarár.
Lítið sem ekkert hefur rignt við
Haffjarðará í tíu vikur og sagði Ein-
ar að áin hafi haldið vatni ótrúlega
vel. Spáð er rigningu og kvaðst Ein-
ar mjög bjartsýnn á það sem eftir er
af veiðitímanum. Stefnt er að því að
veiða til 14. september en venjulega
hefur veiðinni lokið 8. september.
„Það er auðséð að við förum í ein-
hverja 1.500 til 1.600 fiska sem verð-
ur annað besta árið okkar frá upp-
hafi,“ sagði Einar. „Hjá okkur er
mikið af mjög stórum fiski, bolta-
fiskum. Við bíðum spenntir eftir að
sjá hvað gerist ef hann fer að rigna,
hvort þessir fiskar fari þá hugs-
anlega að taka.“
Mælst var til þess við veiðimenn í
Haffjarðará þegar 1996 að þeir
slepptu stórum fiskum og gert að
skyldu árið 2000. Einar sagði að nú
heimtist mjög vel af stórum laxi.
„Þetta er fiskur sem allir vilja draga
og allir sækjast eftir – stóri fisk-
urinn,“ sagði Einar.
Þverá og Kjarrá
Veiðin í Þverá og Kjarrá í Borg-
arfirði er komin yfir 2.200 fiska í
sumar. „Þetta hefur gengið alveg
prýðisvel, framundir þetta alla-
vega,“ sagði Jón Ólafsson, forsvars-
maður Sporðs. „Við erum ánægðir.
Þetta er allt í lagi miðað við meðaltöl
fyrri ára. Það eru horfur á að þetta
verði gott meðalár.“
Jón sagði að nú hafi aðeins hægt á
veiðinni vegna kulda. Veitt er á 14
stangir, sjö í hvorri á, og lýkur veið-
um 10. september. Jón sagði að ef
kæmu hlýindi mætti búast við að
veiðin örvaðist.
Boltafiskar bíða
eftir rigningu
Hlýindi og rigning myndu örva veiðina
Morgunblaðið/Einar Falur
Laxveiðar Víða hefur gengið vel að veiða í sumar. Þótt nú fari að styttast í
veiðitímanum í mörgum laxveiðiám bíða enn silfurfægðir laxar í hyljum.
Í HNOTSKURN
»Haffjarðará á Snæfellsnesirennur úr Oddastaðavatni
um 20 km leið niður í Haffjörð.
»Þverá og Kjarrá eiga upp-tök í vötnum á hálendinu
og renna um 71 km að Hvítá.
Efri hluti árinnar heitir
Kjarrá og sá neðri Þverá.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
BREYTINGUM á almennum
hegningarlögum er ætlað að taka
á skipulagðri glæpastarfsemi, líkt
og þeirri sem talin er geta fylgt
stofnun Hells Angels-félagsdeildar
hér á landi. Frumvarp um slíkar
breytingar var lagt fram á Alþingi
í þriðja sinn undir lok júl-
ímánaðar. Meðferð málsins var þá
frestað en Ragna Árnadóttir
dómsmálaráðherra hyggst leggja
frumvarpið fram að nýju á haust-
þingi.
„Þar er lagt til að nýtt refsi-
ákvæði komi inn í almenn hegn-
ingarlög,“ segir Ragna og kveður
refsiréttarnefnd dómsmálaráðu-
neytisins hafa komist að þeirri
niðurstöðu að rétt sé að lögfesta
sérstakt refsiákvæði í almenn
hegningarlög um bann við þátt-
töku í skipulagðri brotastarfsemi.
Fjallaði nefndin um þetta álita-
efni í sambandi við fullgildingu á
Palermó-samningnum gegn fjöl-
þjóðlegri, skipulagðri brotastarf-
semi frá árinu 2000.
Félagsskapur
þriggja eða fleiri
Í frumvarpinu er að finna nýtt
ákvæði um bann við þátttöku í
skipulagðri brotastarfsemi. Skipu-
lögð brotasamtök eru þar skil-
greind sem félagsskapur „þriggja
eða fleiri manna sem hefur það að
meginmarkmiði, beint eða óbeint í
ávinningsskyni, að fremja með
skipulegum hætti refsiverðan
verknað sem varðar minnst 4 ára
fangelsi, eða þegar verulegur þátt-
ur í starfseminni felst í því að
fremja slíkan verknað.“
Í frumvarpinu segir ennfremur
að: ,,sá er sammælist við annan
mann um að fremja verknað sem
varðar minnst 4 ára fangelsi og
framkvæmd hans er liður í starf-
semi skipulagðra brotasamtaka
skal sæta fangelsi allt að 4 árum,
nema brot hans varði þyngri refs-
ingu samkvæmt öðrum ákvæðum
laga þessara eða öðrum lögum.“
Fáfnir orðinn félagsdeild
Vítisengla 2010?
Mótorhjólaklúbburinn Fáfnir
mun, samkvæmt upplýsingum frá
Ríkislögreglustjóra, geta sótt um
fulla aðild að Hells Angels-
samtökunum á seinni hluta næsta
árs. Í fréttum Stöðvar 2 nú um
helgina kom fram að Fáfnir, sem
raunar hefur lagt Fáfnisnafnið
niður, hafi nú hlotið stöðu vænt-
anlegs félags. Er það lokaskref að
fullri aðild sem félagsdeild Hells
Angels.
Skýrsla greiningardeildar ríkis-
lögreglustjóra, sem birt var í febr-
úarmánuði sl., greindi frá að Fáfn-
ir hefði þá þegar hlotið
viðurkenningu sem „stuðnings-
klúbbur“ Hells Angels hér á landi.
„Þar með hefur hópur manna á
Íslandi stofnað til formlegra
tengsla við alþjóðleg glæpa-
samtök. Fyrir liggur að félagar í
Fafner MC-Iceland stefna að fullri
aðild að Hells Angels-samtök-
unum,“ segir í skýrslunni.
Tilraunir vítisengla til að ná fót-
festu á Íslandi má rekja a.m.k. sjö
ár aftur í tímann og hafa á þeim
tíma hópar erlendra liðsmanna
vítisengla ítrekað verið stöðvaðir
við komu sína til Íslands. Er lög-
regla þeirrar skoðunar að þessar
aðgerðir hafi tafið fyrir að Fáfnir
öðlaðist fulla aðild að samtök-
unum.
Yfirvöld hér á landi hafa átt í
nánu samstarfi við hin Norður-
löndin, en þónokkuð er síðan
ríkislögreglustjórar Norður-
landanna komu sér saman um þá
stefnu að berjast gegn skipulagðri
glæpastarfsemi mótorhjólagengja.
Aukin skipulögð glæpastarfsemi
hefur enda, að sögn embættis
Ríkislögreglustjóra, alls staðar
fylgt í kjölfarið þar sem Hells
Angels hafa náð að skjóta rótum.
Líta á sem sitt svæði
Næstu nágrannar Fáfnis í
iðnaðarhluta Vallarhverfisins hafa
þó ekki enn orðið varir við þá þró-
un. Á sex mánaða tímabili, áður en
Fáfnir flutti í hverfið voru 30 inn-
brot framin í Vallarhverfinu og á
tímabilinu mars til ágústloka á
þessu ári voru þau 36. Að sögn
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu er þar ekki um teljandi mun
að ræða í tíðni innbrota.
Heimildir Morgunblaðsins
herma engu síður að menn hafi á
orði að dregið hafi úr innbrotum í
fyrirtæki í iðnaðarhverfinu í næsta
nágrenni félagsheimilisins.
Þekkt sé erlendis frá að mót-
orhjólagengi líti á svæðið í næsta
nágrenni við sitt félagsheimili sem
sína eign og það kunni ekki góðri
lukku að stýra fyrir brotamenn að
láta greipar sópa innan þess svæð-
is.
Skipulögð brota-
starfsemi bönnuð
Fáfnir getur sótt um fulla aðild að Vítisenglum í lok næsta árs
Bann við þátttöku í skipulagðri
brotastarfsemi hluti af frumvarpi
um breytingar á almennum hegn-
ingarlögum sem lagt verður fram
í fjórða sinn á haustþingi.
Morgunblaðið/Sverrir
Ekki á Íslandi Vítisenglar hafa oft verið stöðvaðir við komuna tll landsins.
1 Fyrsta skref til að verða fé-lagi í Vítisenglunum er aðvera skilgreindur sem
áhangandi. Áhangendum er boð-
ið að taka þátt í vissum við-
burðum eða hitta vítisenglana á
þekktum mótsstöðum.
2 Annað skref á þeirri lönguvegferð að öðlast fé-lagsaðild að vítisengl-
unum er sem stuðningsfélagi og
varir sú staða yfirleitt í eitt
til tvö ár.
3 Þriðja skref er svo semvæntanlegur félagi. Þeirtaka þátt í vissum félags-
athöfnum, en hafa ekki atkvæð-
isrétt á meðan hæfni þeirra fyrir
fulla félagsaðild er metin.
4 Til að verða fullgildur fé-lagi þarf væntanlegur fé-lagi að hljóta atkvæði
annarra félaga og þarf yfirleitt
meira en einfaldan meirihluta til.
Liggi samþykki fyrir fer fram
formleg innsetning þar sem
væntanlegur félagi staðfestir
tryggð sína í garð vítisenglanna.
heimild Wikipedia