Morgunblaðið - 01.09.2009, Síða 14

Morgunblaðið - 01.09.2009, Síða 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009 Þetta helst ... ● GENGISVÍSITALA krónunnar lækkaði lítillega í gær, eða einungis um 0,06%, og er vísitalan nú 231 stig. Styrktist krónan því sem þessu nemur, sam- kvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka. Í lok síðustu viku styrktist krónan um rúm 3%. Gengi Bandaríkjadollars er um 124,7 krónur og evru 179 krónur. gretar@mbl.is Lítilsháttar styrking ● Íbúðalánasjóður (ÍLS) gæti tapað 3,5 milljörðum króna á falli SPRON og Straums Burðar- áss. Sjóðurinn á innlán hjá þessum bönkum, en sam- kvæmt tilkynningu frá ÍLS er ágreiningur um skilgreiningu innlána hjá þeim. Segir í tilkynningunni að ef innlánin verði skilgreind sem almennar kröfur í þrotabú bankanna tveggja megi reikna með að tap Íbúðalánasjóðs geti numið um 3,5 milljörðum. gretar@mbl.is ÍLS gæti tapað 3,5 milljörðum króna Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is MEIRI afgangur varð á vöruskipt- um við útlönd í júlí en bráðabirgða- tölur Hagstofu Íslands frá því í byrj- un ágústmánaðar gerðu ráð fyrir. Var afgangurinn 6,8 milljarðar króna en ekki 6,4 milljarðar eins og bráðabirgðatölurnar sögðu til um. Afgangur á vöruskiptum við út- lönd á fyrstu sjö mánuðum ársins var 39,8 milljarðar króna. Þetta er mikil breyting frá fyrra ári en þá voru vöruskiptin neikvæð um 71,3 milljarða. Því er útkoman á fyrstu sjö mánuðum þessa árs 111,1 millj- arðs króna hagstæðari en í fyrra. Minni eftirspurn Mikill samdráttur í innflutningi á þessu ári varpar ljósi á hve eft- irspurn hefur dregist mikið saman frá fyrra ári. Á tímabilinu frá janúar til júlí á þessu ári voru fluttar út vörur fyrir um 253 milljarða króna og inn fyrir um 214 milljarða. Á sama tímabili í fyrra voru hins vegar fluttar út vörur fyrir um 355 millj- arða og inn fyrir um 427 milljarða. Útflutningur á föstu gengi dróst saman um tæp 29% á milli ára en innflutningur hins vegar um 50%. Útfluttar iðnaðarvörur námu um 50% alls útflutnings á fyrstu sjö mánuðum þessa árs. Verðmæti þeirra var hins vegar um 30% minna á föstu gengi en á sama tímabili í fyrra. Verðmæti útfluttra sjávaraf- urða var um 45% alls útflutnings og var verðmæti þeirra um 14% minna en á síðasta ári. Verðmæti vöruinnflutnings á tímabilinu frá janúar til júlí í ár var um 50% minna en á sama tíma árið áður, reiknað á föstu gengi. Sam- dráttur varð í flestum liðum inn- flutningsins. Þar munar mest um innflutt flutningstæki, hrá- og rekstrarvörur og fjárfestingarvörur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Innflutningur Minna er nú flutt inn. Vöruskiptin áfram jákvæð Meiri afgangur en áður var spáð FRÉTTASKÝRING Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is SKILANEFND Glitnis er lang- stærsti kröfuhafinn í þrotabú Fons ehf., sem áður var í meirihlutaeigu Pálma Haraldssonar. Alls nema kröfur í búið 34,5 milljörðum króna, en þar af eru kröfur Glitnis 23,7 milljarðar króna, eða 68,7% allra krafna í búið. Af kröfum Glitnis eru aðeins 570 milljónir veðkröfur. Nýi Landsbankinn, NBI, er næst- stærsti kröfuhafinn, með 4,8 millj- arða kröfur. Kröfur NBI eru allar veðkröfur á meðan langstærstur hluti krafna Glitnis er almennar kröfur. Almennar kröfur fást ekki greiddar fyrr en veðkröfur og for- gangskröfur hafa verið greiddar, en til forgangskrafna teljast t.d. laun. Vill fá aðgang að upplýsingum Vilhjálmur Bjarnason hefur farið þess á leit við Héraðsdóm Reykja- víkur að dómurinn úrskurði um skyldu skilanefndar Glitnis og skiptastjóra Fons um að veita Vil- hjálmi aðgang að upplýsingum er varða kröfur Glitnis á hendur þrota- búinu. Vilhjálmur rekur nú mál fyrir Hæstarétti á hendur stjórn Glitnis vegna meðferðar þeirra á fjármun- um bankans. Hafa skilanefnd og skiptastjóri bæði hafnað beiðni Vilhjálms um að- gang að þessum upplýsingum. Skiptastjóri þrotabúsins, Óskar Sig- urðsson, vísar í bréfi á skilanefndina, en skilanefndin ber hins vegar við bankaleynd. Telur Vilhjálmur að ákvæði um bankaleynd eigi hins vegar ekki við í þessu tilfelli, annars vegar vegna þess að þrotabú Fons sé annar lög- aðili en Fons sjálft og hafi aldrei ver- ið í viðskiptum við bankann. Þá hafi Vilhjálmur einkaréttarlega hags- muni af því að fá umrædd gögn, þar sem hann telji að þau geti nýst hon- um í dómsmálinu. Í samtali við Morgunblaðið segir Óskar Sigurðsson, skiptastjóri þrotabúsins, að forgangskröfur í bú- ið muni að öllum líkindum fást greiddar og veðkröfur sömuleiðis. Hins vegar sé ekki hægt að slá á það á þessu stigi hve mikið af almennum kröfum fáist greiddar. Segir hann að meðal þess, sem verið sé að skoða, sé hvort hægt sé að rifta samningi, sem þynnti hlut Fons í Iceland Express, en jók hlut Fengs ehf., annars félags í eigu Pálma Haraldssonar. Nær engin veð fyrir kröfum Glitnis Vilhjálmi Bjarnasyni neitað um upplýsingar um lán til Fons Þrotabú Skiptastjóri þrotabús Fons er með til skoðunar gjörning, sem færði Iceland Express til Fengs, eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar. Morgunblaðið/ÞÖK Glitnir á tæp 70% krafna í þrotabú Fons. Lítil veð eru fyrir kröfunum og alls óvíst hve mikið af þeim fæst greitt. Í HNOTSKURN »Veðkröfur í þrotabú Fonsnema alls 5,34 milljörðum króna. »Forgangskröfur nema30,9 milljónum. »Almennar kröfur nemaalls 29,15 milljörðum.                                   VERÐ á neyslu- vörum á evru- svæðinu hélt áfram að lækka í ágústmánuði, þriðja mánuðinn í röð. Lækkunin var þó minni en í júlímánuði. Seg- ir í tilkynningu frá hagstofu svæðisins, Eurostat, að þetta sé vísbending um að sam- drátturinn á svæðinu sé á und- anhaldi. Vísitala neysluverðs á evrusvæð- inu lækkaði um 0,2% í ágúst. Lækkunin í júlí var hins vegar 0,7%. Ekki hætta á keðjuverkun Sérfræðingar evrópska seðlabank- ans telja að verðhjöðnunin yfir sumarmánuðina á evrusvæðinu sé ekki upphafið að langvarandi skeiði samdráttar, að því er fram kemur í frétt AP-fréttastofunnar. Segja sérfræðingarnir að ekki sé hætta á því að sú staða sem nú er uppi leiði til keðjuverkunar, þ.e. minni eftirspurnar, lækkandi verð- lags og enn meira atvinnuleysis, eins og gerðist í kreppunni miklu á fjórða áratug síðustu aldar. Þá segir í frétt AP, að verulega hafi dregið úr eftirspurn á neyt- endamarkaði á fyrri hluta þessa árs. Eftirspurnin sé hins vegar far- in að aukast á ný með auknum væntingum neytenda. gretar@mbl.is Verðlækkun á evrusvæði ● AÐALFUNDUR Teymis eftir end- urreisn og nauðasamninga verður hald- inn á morgun. Teymi á og rekur m.a. Vodafone á Íslandi, Kögun, Skýrr og EJS. Eftir fundinn taka kröfuhafar fé- lagsins formlega við stjórnartaumunum í Teymi en Nýi Landsbankinn verður stærsti hluthafinn með 62,16 prósenta hlut. Eignarhaldsfélagið Vestia, dótt- urfélag Nýja Landsbankans, mun fara með eignarhlutinn í Teymi fyrir hönd bankans. Ekki liggur fyrir hvort breyt- ingar verða gerðar á framkvæmda- stjórn Teymis eftir aðalfund en ákvarð- anir um slíkt verða í verkahring nýrrar stjórnar. Nýlega átti forstjóri félagsins, Árni Pétur Jónsson, frumkvæði að því að eigin laun yrðu lækkuð umtalsvert. thorbjorn@mbl.is Landsbankinn stærstur í Teymi eftir aðalfund REKSTUR deCODE Genetics hefur verið einfaldaður og að sögn Kára Stefánssonar, forstjóra félagsins, mun fyrirtækið einbeita sér að greiningartækni í framtíðinni og draga sig úr lyfjaþróun. „Við erum hér ennþá og ekki gleyma því að það eru nú ýmsir farnir sem menn höfðu nú spáð að myndu lifa lengur en við. Við höf- um unnið að endurskipulagningu og það hefur gengið nokkuð vel,“ segir Kári. Í janúar á þessu ári keypti Nýi Landsbankinn safn vaxtaberandi skuldabréfa (e. portfolio) af de- CODE, en um er að ræða fjármagn sem sat fast í Lehman Brothers- bankanum eftir bankahrunið. Áður höfðu bæði Kaupþing og Glitnir hafnað því að kaupa skuldabréfa- safnið, en með sölu þess tryggði de- CODE sér 1,4 milljarða króna sem áttu að duga fyrir rekstrarkostnaði út annan ársfjórðung þessa árs, eða út lok júní sl. Ekki var þó öll nótt úti hjá félaginu. Samkomulag við fyr- irtækið Celera Corporation hefur aukið tekjur deCODE nokkuð á þessu ári og verið meðal þess sem tryggt hefur áframhaldandi rekstr- argrundvöll. Fyrirtækið á sem stendur í viðræðum við fagfjárfesta um aðkomu að rekstrinum, en Kári segist ekki geta nafngreint þá að svo stöddu. „Ég er bjartsýnn á þessu augnabliki að þetta muni allt koma til með að ganga upp,“ segir hann. thorbjorn@mbl.is „Við erum hér ennþá“ Morgunblaðið/Golli DeCODE Kári á í viðræðum við fag- fjárfesta um aðkomu að rekstri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.