Morgunblaðið - 01.09.2009, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 01.09.2009, Qupperneq 17
ÚR BÆJARLÍFINU MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009 Fjöldi ferðamanna hefur aldrei verið meiri hér á Flúðum en á þessu sumri og hið sama gildir um uppsveitir Ár- nessýslu að sögn Árborgar Arnþórs- dóttur ferðamálafulltrúa. Kemur þar mest til nálægðin við þéttbýlið við sunnanverðan Faxaflóa. Hótel, tjald- og hjólhýsasvæði voru víðast hvar fullsetin allar helgar frá því tók að hlýna upp úr 20. júní og fram í miðjan ágúst. Það er enda margt að sjá, mikil náttúrufegurð, merkir sögustaðir og margvísleg afþreying, t.d. fjöldi golf- valla, sundlauga, hestaleigur og margt fleira. Sem fyrr eru það nátt- úruperlurnar Gullfoss og Geysir sem draga mest að.    Það reynir á vegakerfið þegar um- ferðin er svo mikil sem raun ber vitni. Nú er unnið að mikilvægum sam- göngubótum, svo sem brú yfir Hvítá hjá Bræðratungu og lagningu nýs vegar yfir Lyngdalsheiði. Munu þessi mannvirki bæta samgöngur mikið og mannlíf allt á svæðinu. Þá vonast margir eftir brú yfir Þjórsá skammt frá Árnesi sem fyrst til að tengja upp- sveitir Suðurlands enn frekar saman og greiða leiðir um fagrar og frjósam- ar byggðir.    Ákveðið er að haldin verði uppskeru- hátíð á Flúðum 19. september. Í fé- lagsheimilinu verður til sýnis og sölu fjölbreytt úrval afurða úr matarkistu Hrunamannahrepps. Meðal annars sýnt handverk og gallarí eru opin, garðyrkjustöðvar verða til sýnis. Þetta er í fyrsta skipti sem svona há- tíð er haldin í sveitarfélaginu, enda vert að þakka fyrir gjöfulan gróður jarðar. Heyfengur er með besta móti og vel lítur út með uppskeru af korn- ökrum. Hið sama má segja um upp- skeru flestra tegunda matjurta sem hér eru ræktaðar, ef undan er skilin kartöfluræktin. Næturfrost síðla júl- ímánaðar skemmdi kartöflugrös sumstaðar með þeim afleiðingum að dró úr uppskerunni.    Fjallmenn halda senn inn á afréttina í sínar löngu leitir en smalað er allt að Hofsjökli og Tungnamenn smala inn fyrir Hveravelli á Kili. Einhver æv- intýraljómi og tilhlökkun er alltaf yfir fjallferðunum þó að þær geti verið bæði langar og strangar, einkum ef illa viðrar. Mikill fjöldi fólks sækir í að komast í fjallferðirnar; finnst þessi vika sem það tekur að smala vera mest ómissandi hluti ársins. Félgs- skapurirnn er góður og glaðvær. Tign og fegurð öræfanna í sinni haustlitadýrð lætur engan ósnortinn og lagðprúðar hjarðirnar liðast til byggða. Sjálfsagt þykir að nýta víð- feðm afréttarlöndin með sínum kjarngóðu grösum. Fjöldi sauðfjárins er aðeins hluti þess sem áður var. Bændur umgangast landið af varúð og af virðingu. Það og verulegt upp- græðsluátak hin síðari ár gerir það að verkum að alstaðar er afréttur að gróa. Réttað verður í Hreppum 11. sept- ember og Reykja- og Tugnaréttum þann 12.    Nýtt athafnasvæði fyrir hestamenn sem hestamannafélagið Smári hefur unnið að á Flúðum var tekið í notkun fyrir skömmu með félagsmóti. Vel þykir hafa til tekist. Svæðið er við reiðhöllina sem er nýlega risin. Á mótinu gaf frú Katrín Jónsdóttir fé- laginu glæsilegan bikar til minningar um eiginmann sinn, Hermann Sig- urðsson í Langholtskoti og hans stór- brotna gæðing Blæ, sem vann það af- rek að verða efstur í keppni alhliða gæðinga á tveimur landsmótum. Bik- arinn verður farandbikar, veittur ár- lega afreksknapa félagsins og að þessu sinni féllu þau í skaut Birnu Káradóttur frá Háholti. Æskulýðs- nefnd hestamannafélagsins sem starfar af krafti hélt viku síðar árleg- an æskulýðsdag þar sem tugir barna og foreldra komu saman á hestum sínum í leik og keppni. FLÚÐIR Sigurður Sigmundsson fréttaritari Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds Hestamenn Þessir ungu knapar stóðu sig mjög vel á æskulýðsdegi hestamanna á Flúðum. Hestarnir voru fallegir. Bjargey Arnórsdóttir sendiþættinum línu með spurning- unni: „Er skáldið að drukkna í leið- indum á alþingi?“ Og auðvitað fylgdi vísa: Í Sigmund minn Erni illa nú leggst Alþingis leiðinda þrasið. En ein er þó leið sem að aldregi bregst bara oftar að fá sér í glasið. Helgi Seljan orti eftir lestur Vísnahornsins á dögunum þar sem Sigurður Jónsson lagði sitthvað til mála: Í vísnahorni vel ég skil, að vísnafólk þar monti sig. Mig hefur lengi langað til að leggja það sjálfur undir mig. Sigurður Jónsson leggur orð í belg um byltu forsetans: Af Ólafi Ragnari reyndar ég frétti ríðandi um landið á hesti, en blessaður karlinn, ég býst við hann detti af baki á tíu ára fresti. Tómas Tómasson yrkir einnig um forsetann: Ætla má að okkur hraki Íslendingum nú um sinn. Allavega oft af baki er að detta forsetinn. Rúnar Kristjánsson skrifar að í sumum tilfellum mætti víst segja: „Milli manns og hests hangir meinaþráður.“ Ólafur er axlarbrotinn, útreiðin var laus við glans. Alveg féll hann eins og skotinn, enda skrítið reiðlag hans. VÍSNAHORN pebl@mbl.is Af byltu og forseta HEILAKROT er þrautabók fyrir klára og káta krakka sem var að koma út. Bókin segir sögu 12 ára tví- bura, Iðunnar og Freys, sem leggja í sveitaferð til ömmu sinnar og afa og þarfnast þau hjálpar við að leysa skemmti- legar en jafnframt krefjandi þrautir á leiðinni. Í bókinni er að finna hinar ýmsu þrautir eins og krossgátur, dul- mál, stafarugl, fimm villur og fleira. Heilakrot hentar vel börn- um á miðstigi grunnskólans, en duglegir krakkar í þriðja og fjórða bekk ættu líka að geta leyst þrautirnar og haft gaman af. Bók- inni fylgir blýantur, sem hægt er að þræða í kápuna, þannig að allt er á sínum stað og auð- velt að grípa bókina með og vinna í henni á ferð og flugi. Heila- krot fæst meðal ann- ars í Eymundsson, A4 og Hag- kaupum. Höfundur bókarinnar er Signý Gunnarsdóttir, teikningar eru eftir Andrés Andrésson og út- gefandi er Góður dagur ehf. Heilabrot fyrir krakka Í DAG kemur út ný bók um lungna- krabbamein. Bókin er sú fyrsta sinnar teg- undar á Íslandi og er skrifuð af 9 læknum á Landspítala sem ásamt fleiri læknum mynda samstarfshóp um lungnakrabba- mein. Lungnakrabba- mein er það krabba- mein sem verður flestum Íslendingum að aldurtila, og orsök þess má yfirleitt rekja beint til reykinga, þó nýlegar rannsóknir bendi til þess að erfðaþættir komi einnig við sögu. Einkenni lungnakrabbameins eru oft almenns eðlis. Lungnakrabbamein finnst því oft seint en gera má ráð fyrir að tveir af hverjum þremur sjúk- lingum séu með mein sem hefur sáð sér víðar um líkamann þegar það finnst/greinist. Læknar gefa út bók um lungnakrabbamein Bók Bókin er skrifuð af læknum á Landspítala. – meira fyrir áskrifendur Glæsilegt sérblað um börn og uppeldi fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 11. september Börn & uppeldi Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16 mánudaginn 7. september. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 netfang: kata@mbl.is Víða verður komið við í uppeldi barna bæði í tómstundum þroska og öllu því sem viðkemur börnum. Meðal efnis: • Öryggi barna innan og utan heimilis. • Barnavagnar og kerrur. • Bækur fyrir börnin. • Þroskaleikföng. • Ungbarnasund. • Verðandi foreldrar. • Fatnaður á börn. • Þroski barna. • Góð ráð við uppeldi. • Umhverfi barna. • Námskeið fyrir börnin. • Barnaskemmtanir. • Tómstundir fyrir börnin. • Barnamatur. • Ljósmyndir. • Ásamt fullt af spennandi efni um börn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.