Morgunblaðið - 01.09.2009, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.09.2009, Blaðsíða 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009 ✝ SigurvaldiBjörnsson fæddist á Hrappsstöðum í Víðidal 21. febrúar 1927. Hann lést á nýrnadeild, 13 E, á Landspítala við Hringbraut 16. ágúst síðastliðinn eftir 10 daga legu þar. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Jónsdóttir og Björn Ingvar Jósefsson sem bjuggu á Hrapps- stöðum allan sinn bú- skap eða til 1947. Sigurvaldi var sá fimmti í röð 11 systkina. 10 kom- umst upp en eitt lést sem ungbarn. Þau eru: Tryggvi, f. 1919, d. 2001. Guðrún Ingveldur, f. 1921, d. 2002. Stúlka, f. 1922, d. 1923. Jósefína, f. 1924, býr í Kópavogi. Ásgeir Bjarni, f. 1925, d. 2009. Steinbjörn, f. 1929, býr í Reykjavík. Tvíbura- systurnar Álfheiður og Guðmund- ína Unnur, f. 1931, búa í Garðabæ og Kópavogi. Sigrún Jóney, f. 1933, Kristján Heiðar, f. 1957. Þeirra dóttir Kristjana. 3) Sigríður Bryn- dís, f. 1959, maki Sævar Rúnar Ein- arsson, f. 1960. Þau eiga þrjár dæt- ur: Elínu Sigríði, Hafdísi Elfu og Eyrúnu Lýdíu. 4) Sigtryggur Ás- geir, f. 1963, maki Þorbjörg Vigdís Guðmundsdóttir, f. 1966, þau eiga eina dóttur, Jóhönnu Helgu. 5) Pét- ur Hafsteinn, f. 1964, maki Bjarney Alda Benediktsdóttir, f. 1967, þau eiga þrjú börn, Ármann, Kristrúnu og Maríu. Sigurvaldi ólst upp á Hrapps- stöðum fyrstu æviárin, en var snemma sendur til að vinna fyrir sér sem léttadrengur á ýmsum stöðum. Hann lauk hefðbundnu grunnskólanámi þess tíma. Fór síð- an í vinnumennsku í Hvammi í Vatnsdal í nokkur ár. Síðan í Bændaskólann á Hvanneyri í tvo vetur. Keypti jörðina Litlu- Ásgeirsá í Víðidal, þar sem þau Ól- ína bjuggu í 40 ár, en síðustu 16 ár- in á Hvammstanga. Útför Sigurvalda fer fram frá Hvammstangakirkju í dag, 1. sept- ember, og hefst afhöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Víðidalstungu- kirkjugarði. Meira: mbl.is/minningar býr á Blönduósi, og Gunnlaugur, f. 1937, bóndi í Nípukoti. Sigurvaldi kvæntist 27. maí 1956 Ólínu Helgu Sigtryggs- dóttur, f. 20.9. 1937 í Öxnatungu í Víðidal. Foreldrar hennar voru Guðrún Jónína Pétursdóttir og Sig- tryggur Jóhannesson. Börn þeirra eru: 1) Björn Sigurður, f. 1955. Fyrri sam- býliskona Anna Heið- rún Jónsdóttir, f. 1957, þeirra börn eru tvö: Leó Viðar og Helga Sig- urrós. Þau slitu samvistir. Seinni sambýliskona: Anna Heiða Harð- ardóttir, f. 1972, þau eignuðust þrjú börn, Sigurvalda sem lést við fæð- ingu, Björn Gabríel og Brynhildi Írenu Sunnu. Þau slitu samvistir. 2) Ingibjörg Guðrún, f. 1956. Fyrri maki Gísli S. Reimarsson, f. 1949, lést 1991. Þeirra börn eru tvö: Gunnar og Jóhanna. Seinni maki: Elsku pabbi, þá er komið að leið- arlokum. Baráttan stóð í 10 daga og var hörð, þú ætlaðir sko að hafa betur. Að sitja við sjúkrabeð þinn þessa daga var lærdómsríkur tími, sem ég þakka fyrir að hafa tekið að mér. Þar leituðu margar minningar á hugann og þú ræddir margt úr þinni bernsku. Að vera sendur í vist af og til aðeins sex ára hefur bara þýtt eitt í þá daga, að duga eða drepast, vorkunnsemi var ekki til. Þetta hefur eflaust mótað þína barnssál, skrápurinn þurfti að vera harður til að standast allt sem til var ætlast af þér. Á unglingsárunum var hann nokk- ur ár vinnumaður í Hvammi og Marð- arnúpi í Vatnsdal, þar lærði hann margt hagnýtt sem kom honum til góða síðar í búskapnum. Hann kynnt- ist mörgu góðu fólki í Vatnsdalnum, sem alla tíð hefur haldið góðu sam- bandi við hann, þótt margir séu nú þegar látnir. En þú hélst ráði og rænu fram á síðasta dag. Spurðir mig t.d. hvort bú- ið væri að semja „gangnaseðilinn“ og hvort „strákarnir“ væru búnir að heyja mikla há, og hvort kvígurnar væru farnar að leggja af. Hugurinn var lengstum í sveitinni enda unnir þú æskustöðvum þínum. Þú varst rétt- arstjóri í Víðidalstungurétt í 26 ár. Það varð þér mikið áfall þegar þú þurftir að hætta að fara í göngur ekki fimmtugur vegna aðgerðar á baki. Pabbi sat í ýmsum nefndum og ráð- um eins og sóknarnefnd, barnavernd- arnefnd var stefnuvottur sýslumanns í mörg ár forðagæslumaður og gangnastjóri. Hann var annálaður fyrir dugnað, ósérhlífni og kappsemi og geymdi aldrei til morguns það sem hægt var að gera í dag. Hann lagði mikla áherslu á að verslun skyldi haldast í heimabyggð og verslaði sjálfur allt þar, þótt verðið væri hálf- skrítið að sjá fyrir aðkomumenn og launin lítil. Aldrei flíkaðir þú tilfinningum þín- um og kvartaðir aldrei. Þú fylgdist vel með börnum og barnabörnum, varst umhyggjusamur og úrræðagóður afi og faðir sem gafst okkur holl ráð og hvattir okkur til dáða. Pabbi var þrot- inn að öllum kröftum og hefur eflaust kvatt saddur lífdaga. Mikil ró og frið- ur var yfir honum og bros á vör. Ég veit að vel verður tekið á móti þér af gengnum vinum, foreldrum, sveit- ungum og systkinum. Ef til vill verður farið í reiðtúr og tekið í spil. Ég sé þig fyrir mér ríðandi á grænum grundum með tvo til reiðar að fara í göngur. Missir mömmu er mikill og breyting- ar miklar sem og okkar allra. Ég sendi mömmu og systkinum mínum mökum og öllum öðrum að- standendum mínar bestu samúðar- kveðjur. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín dóttir, Ingibjörg Guðrún. „Við skulum bæta í réttina“ glumdi við í Víðidalnum er ég kom þar fyrst í réttir. Þessi orð frá réttarstjóranum eru mér fersk í minni og átti ég eftir að heyra þau oftar og kynnast mann- inum betur en við Ingibjörg dóttir hans Valda á Litlu Ásgeirsá áttum eftir að rugla saman reytunum okkar og ég að koma oft í dalinn hans. Valdi var oft gangnaforingi og réttarstjóri, vel virtur við þau störf sem og öll önn- ur störf sem hann tók að sér. Hann var annálaður fyrir dugnað, sam- viskusemi og foringjahæfileika enda oft falin trúnaðarstörf fyrir sína heimabyggð. Um það leyti sem ég fer að kynnast Valda er hann að hætta búskap og synir hans Björn og Sigtryggur að taka við en Valdi hafði ásamt Lóu konu sinni byggt jörðina upp af mikl- um myndarskap. Valdi var hygginn maður og vildi sjáanlega láta syni sína og tengdadætur taka við jörðinni á meðan unga fólkið hefði vilja til og hann hefði fullt þrek og þrótt til að flytjast á nýjan stað. Alla tíð fylgdist hann vel með búskapnum hjá sonum sínum á Ásgeirsá og Pétri syni sínum á Torfustöðum og gladdist yfir nýjum áföngum í uppbygginu þeirra. Valdi sýndist nokkuð hress fram á það síðasta og hugsun ávallt skýr þótt sjónin væri orðin döpur. Þá ók hann um Hvammstanga á bíl sínum og virðist það vera svo fyrir norðan að þegar sjóndaprir aka bílum þá víkja bara sveitungarnir aðeins meir en venjulega. Að aka um á bílnum hans á Tanganum var eins og að vera á sjúkrabíl í forgangsakstri því allir virtust þekkja þennan litla rauða bíl, meira að segja þeir sem voru langt að komnir. Valdi var oft lánsamur á sinni ævi en sennilega aldrei eins og þegar hann náði í sína góðu konu sem stóð eins og klettur við hlið manns síns til allra verka. Undir það síðasta varð Valdi að vera í nýrnavél hálfan sólar- hringinn og þurfti mikla umönnun. Lóa stóð vaktina, sá um vélina og að allt gengi snurðulaust og að hann hefði það sem best. Sjálf gleymdist hún þá eins og oft vill verða um maka sjúklinga sem þurfa mikla aðhlynn- ingu heima við og kerfið gerir ekki ráð fyrir. Valdi hugsaði ákaflega mik- ið og vel um börn sín og barnabörn og gaf þeim ávallt góð ráð enda voru hans seinustu orð á banalegunni beint til þeirra um giftu og samviskusemi út í lífið. Ég hef lesið í bókum að Guð taki unga þá sem hann unni mest. Það er gott til þess að vita að sá aldur er af- stæður. Sigurvaldi Björnsson lést á nýrnadeild Landspítalans þar sem m.a. dætur hans höfðu vakað yfir hon- um. Rétt fyrir andlátið gafst honum tími til að segja að sveitungar hans væru komnir að sækja hann. Síðan varð mikil ró og friður. Megi góður Guð geyma Sigurvalda. Við minnumst þín og þökkum þér það sem þú varst okkur öllum. Alltaf sá leiðtogi sem hægt verður að vitna til í heiðarleika, orðheldni og kær- leika. Ég votta eiginkonu hans, börnum og barnabörnum og öllum aðstand- endum mína dýpstu samúð. Kristján Heiðar. Sigurvaldi Björnsson  Fleiri minningargreinar um Sig- urvalda Björnsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Okkar ástkæra AGNA GUÐRÚN JÓNSSON, áður til heimilis Barðavogi 1, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 2. september kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Kristján S. Sigmundsson, Guðrún H. Guðlaugsdóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi, HÖSKULDUR STEFÁNSSON frá Illugastöðum í Laxárdal, A-Húnavatnssýslu, fyrrv. verkstjóri í Sútunarverksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki, andaðist á Heilbrigðisstofnun Blönduóss sunnudaginn 30. ágúst. Útförin mun fara fram í Reykjavík og verður hún auglýst síðar. Valný Georgsdóttir, Erla Höskuldsdóttir, Sigrún Höskuldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN SÆMUNDSSON vélstjóri, Kirkjubraut 17, Innri-Njarðvík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Garðvangi sunnudaginn 30. ágúst. Guðrún Jónsdóttir, Gylfi Guðmundsson, Kolbrún Jónsdóttir, Páll Á. Jónsson, Hrafnhildur Jónsdóttir, Skúli R. Þórarinsson, afabörn og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær sonur minn, stjúpsonur, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur og afi, GUÐMUNDUR JÓHANNES TÓMASSON, Hverfisgötu 125, Reykjavík, lést á heimili sínu föstudaginn 28. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 4. september kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Sjöfn Guðmundsdóttir, Guðni Þórðarson, Vega Rós Guðmundsdóttir, Dylan Kincla, Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, Andreas Guðmundsson, Guðrún Tómasdóttir, Hulda Rós Guðnadóttir, Sunna Jóna Guðnadóttir, Matej Hlavacek, Brynja Þóra Guðnadóttir, Andri Páll Pálsson og barnabarn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN ÞORSTEINS HJALTASON, Glói, lést á dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn 29. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigríður Steindórsdóttir, Steindór Jónsson, Anna Þórný Jónsdóttir, Helgi Vigfús Jónsson, Ingibjörg Jónasdóttir, Lára Magnea Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson, afabörn og langafabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, INGIBJÖRG ÁLFSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fimmtudaginn 20. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur hlýhug við andlát hennar og starfsfólki Sunnuhlíðar þökkum við góða hjúkrun og umönnun. Jóhanna Sigurrós Árnadóttir, Svanur Tryggvason, Gunnar Árnason, Guðný Jónasdóttir, Helga Elísabet Árnadóttir, Reynir Gústafsson, Jóhann Árnason, Hafdís Karlsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróðir, mágur og afi, HÖRÐUR HALLDÓRSSON, Furugrund 54, Kópavogi, lést fimmtudaginn 27. ágúst. Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 4. september kl. 11.00. Þórdís Sigtryggsdóttir, Eiríkur A. Harðarson, Haukur Harðarson, Sigtryggur Harðarson, Katrín Helga Reynisdóttir, Vildís Ósk Harðardóttir, Steindór Guðmundsson, Svanur Halldórsson, Jóhanna Jóhannsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.