Morgunblaðið - 01.09.2009, Side 28

Morgunblaðið - 01.09.2009, Side 28
28 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009 KANADÍSKI rithöfundurinn, blaðamaðurinn og aðgerðasinninn Naomi Klein er ósátt við heimild- armynd sem hinn heimskunni leik- stjóri Michael Winterbottom vann upp úr metsölubók hennar The Shock Doctrine. Klein krefst þess að leikstjórinn taki nafn hennar af lista yfir þá sem komu að gerð mynd- arinnar. Til stóð að Klein læsi inn á mynd- ina og veitti jafnframt ráðgjöf við efnistök. Dagblaðið Guardian telur að Klein hafi orðið ósátt við fram- setningu Winterbottoms á ákveðinni gagnrýni hennar á s.k. hamfarakapí- talisma (e. disaster capitalism), þ.e. að Bandaríkin og fleiri lönd nýti sér náttúruhamfarir og hamfarir af mannavöldum í þróunarlöndum í gróðaskyni. Klein er talin hafa viljað fleiri viðtöl í myndina og draga úr innálestri. Hún var ekki viðstödd frumsýningu myndarinnar á kvik- myndahátíðinni í Berlín í febrúar sl. og minnist ekki á hana á vefsíðu sinni. Í samtali við dagblaðið Independ- ent segir Klein mikinn ágreining hafa verið milli hennar, Winterbot- toms og aðstoðarleikstjóra mynd- arinnar Mats Whitecross. Þau hafi ekki getað komið sér saman um efn- istökin og því sé myndin algjörlega túlkun Winterbottoms á bókinni. Deilt um efnistök Naomi Klein ósátt við túlkun Winterbottom Winterbottom Deildi við Klein um kvikmyndagerð bókar hennar. HANN var held- ur betur heppinn maðurinn sem keypti gamalt málverk á forn- markaði í Lan- caster-sýslu í Fíladelfíu á fjóra dollara. Þegar hann tók mynd- ina úr ramm- anum kom í ljós saman brotið blað sem við nán- ari athugun reyndist vera eitt af frumeintökum Sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkj- anna. Skjalið er um 800.000- 1.200.000 dollara virði, að sögn upp- boðshússins Sotheby’s í New York, sem hefur tekið það í umboðssölu. Skjalið var prentað 4. júlí 1776, nema hvað, og er eitt 24 frumeintaka af yfirlýsingunni, að því er vitað er. Til stendur að selja skjalið á uppboði í Sotheby’s í júní á næsta ári. Árið 1990 var annað eintak yfir- lýsingarinnar slegið hæstbjóðanda í uppboðshúsinu fyrir metverð, 1.595.000 dollara. Það verður því spennandi að sjá hvað fæst fyrir hið nýfundna eintak. Óvæntur glaðningur í málverki Thomas Jefferson, aðalhöfundur Sjálf- stæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna. SÝNINGAR Kvikmyndasafns Íslands hefjast á ný eftir sum- arfrí í kvöld kl. 20. Þá verður sýnd myndin Strategia del- ragno (Herkænska köngulóar- innar) í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Myndin er tilbrigði við smá- sögu argentínska rithöfund- arins Jorge Luis Borges. Þar segir frá eftirgrennslan ungs manns um afdrif föður síns í valdatíð fasista á Ítalíu. Fað- irinn hafði verið andstæðingur Mússólíni og fasism- ans og sonurinn ræðir við fyrrum ástkonu og vini föðurins til að komast að því hvað olli aftöku hans. Sýningar eru á þriðjudagskvöldum kl. 20 og á laugardögum kl. 16. Miðaverð er 500 kr. Kvikmyndir Herkænska köngulóarinnar Jorge Luis Borges FRIÐRIK Vignir Stefánsson organisti Seltjarnarneskirkju heldur tónleika í Selfosskirkju í kvöld kl. 20.30 og hefur þar með röð tónleika í kirkjunni í september. Friðrik hefur á síðustu árum haldið fjölda orgeltónleika bæði hérlendis og erlendis. Á efnisskrá tónleikanna í kvöld eru orgelverk eftir Buxtehude, J.S. Bach, Händel, systkinin Fanny og Felix Mendelssohn, djass-tilbrigði eftir Johannes Matthias Michel yfir sálmalagið „Eigi stjörnum ofar“ og nýlegt verk eftir Susanne Kug- elmeier. Aðgangur á tónleikana er ókeypis. Tónlist Orgeltónleikar í Selfosskirkju Friðrik Vignir Stefánsson KJÖRGRIPIR september- mánaðar hjá Landsbókasafni Íslands-Háskólabókasafni eru „bíóprógrömm“ fyrstu talkvik- myndanna sem sýndar voru í kvikmyndahúsum á Íslandi. Hinn 1. september 1930, fyr- ir 79 árum í dag, voru fyrstu talkvikmyndirnar sýndar á Ís- landi. Það voru kvikmyndirnar Hollywood-Revyan og The Singing Fool. Í þjóðdeild Landsbókasafnsins er varðveittur fjöldi „bíóprógramma“ frá ýmsum tímum auk fjölda annars konar útgáfuefnis og eru þau kjör- gripir septembermánaðar í safninu. Sjá nánar á www.landsbokasafn.is. Kvikmyndir 79 ár frá fyrstu talkvikmyndunum Forsíða á einu bíóprógrammi. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is LEIKLISTARHÁTÍÐIN Lókal hefst á fimmtudag og í ár verður lögð áhersla á að sýna metnaðarfullar ís- lenskar leiksýningar frá liðnum vetri, auk þess sem ný verk verða frum- sýnd. Þá kemur írska leikhúsið Fis- hamble – New Play Company í heim- sókn og sýnir einleikinn Forgotten eftir Pat Kinevane. Ragnheiður Skúladóttir, deild- arstjóri leiklistardeildar Listahá- skóla Íslands, er framkvæmdastjóri hátíðarinnar sem nú er haldin í annað sinn. „Á hátíðina í fyrra komu 37 lista- menn að utan, allt atvinnufólk sem fékk greitt fyrir sína vinnu. Núna þurftum við hins vegar að setjast nið- ur og hugsa alvarlega okkar gang miðað við stöðu krónunnar því allt hafði hækkað um helming. Það var þó aldrei inni í myndinni að láta hátíðina falla niður því við undirbúning fyrstu hátíðarinnar skapaðist mikil þekking auk þess sem við náðum tengslum við erlent leiklistarhátíðafólk.“ Útsendurum hátíða boðið að sjá Útsendari frá leiklistarhátíðinni í Tampere í Finnlandi, sem er stærsta leiklistarhátíðin á Norðurlöndunum kom á hátíðina í fyrra, að sögn Ragn- heiðar. „Hann tók tvær sýningar af hátíðinni með sér út, franska sýningu og svo sýningu Sokkabandsins, Hér og nú. Þær fóru því báðar til Tam- pere, og sú íslenska fór í sumar á eina stærstu leiklistarhátíð í Þýskalandi.“ Ragnheiður segir að vegna þessa hafi kviknað sú hugmynd fyrir hátíð- ina nú að bjóða hingað útsendurum erlendra leiklistarhátíða og sýna breitt úrval úr íslensku leikhúsi. „Það koma hingað fulltrúar sex eða sjö hátíða, meðal annars frá Wiener Festwochen, Dublin Theatre Festi- val, listahátíðinni Transamerica í Montreal sem er risastór; Perfect Performance Festival í Stokkhólmi, Black Box Théater í Ósló og Hann- over Theaterformen í Þýskalandi. Okkar von er sú að þetta leikhúsfólk, sem allt er atvinnufólk, sjái íslensku sýningarnar og það geti í kjölfarið breikkað starfsgrundvöll íslenskra listamenn.“ Erlenda sýningin á hátíðinni í ár kemur frá Írlandi, en Fishamble – New Play Company í Dublin er eitt af stærstu sjálfstæðu leikhúsunum þar í landi með 20 ára merkilega sögu. Ragnheiður segir síðasta ár hafa verið óvenju gjöfult í íslensku leikhúsi og það sé til marks um það að sýningarnar á hátíðinni spanni leiklist allt frá nýútskrifuðum nem- endum úr Listaháskólanum til Sig- urðar Pálssonar. Sumar sýninganna á ensku „Vegna komu erlendu útsend- aranna ákváðu nokkrir hópanna að sýna verk sín á ensku, og um leið er það bæði tækifæri fyrir erlenda ferðamenn að sjá sýningarnar, en ekki síður fyrir innflytjendur á Ís- landi, sem hafa kannski ekki alveg náð íslenskunni, en skilja kannski ensku, að fá nasasjón af íslensku leik- húsi. Það er stemning í því að halda hátíðina núna, þegar leikhúsin eru að hefja vetrarstarfið.“ Afrakstur gjöfuls leikárs  Leiklistarhátíðin Lókal haldin frá 3.-6. september  Útsendurum erlendra leiklistarhátíða boðið að koma  Á annan tug verka sýndur á sjö sviðum Leiklist Úr útskriftarverki Hlyns Páls Pálssonar Homo Absconditus. SÖNGSKÓLINN í Reykjavík mun í vetur starf- rækja í fyrsta sinn sérstaka söngleikjadeild í skól- anum og fara inntökupróf í hana fram á morgun kl. 14. Í því þurfa umsækjendur að sýna færni í söng og dansi og flytja eitt eða tvö lög að eigin vali við píanóundirleik. Námið er miðað við fólk á framhaldsskólaaldri öðrum fremur og stendur hvert námskeið yfir í 14 vikur og kostar 90.000 krónur. Greiða þarf helming þeirrar upphæðar fyrirfram. Á námskeiðinu verður annars vegar kenndur einsöngur og raddbeiting í einkatímum í um hálfa klukkustund í viku og hins vegar dans, sviðsfram- koma og hópsöngur í 2-3 tíma á viku. Stefnt er að því að setja á svið atriði úr söngleikjum í lok hvers námskeiðs en hvaða söngleikir það verða liggur ekki fyrir. Umsjónarkennari hinnar nýju deildar er Ívar Helgason, en hann á tveggja ára söngleikj- anám að baki frá Tónlistarháskólanum í Vínar- borg og hefur komið fram í mörgum söngleikjum. Hann er því svokallaður söngleikari. Kjartan Valdemarsson verður tónlistarstjóri, Sibylle Köll danshöfundur sér um danskennslu og Dagrún Hjartardóttir hefur umsjón með söngkennslu. Ívar segir vissulega þörf á söngleikjanámi hér á landi enda njóta söngleikir mikilla vinsælda og þá ekki síst meðal framhaldsskólanema. Garðar Cortes, skólastjóri Söngskólans í Reykjavík, fékk hann til að stýra hinni nýju deild. Ívar segir fyrstu námskeiðin aðeins byrjunina enda ekki um einfalt nám að ræða. Þeir sem vilja kynna sér námið frek- ar geta gert það á vefsíðu skólans, songskolinn.is, eða sótt skólann heim á Snorrabraut 54. helgisnaer@mbl.is Söngur, dans og leiklist Morgunblaðið/Golli Dumbledore Frá sýningu Menntaskólans við Sund á söngleik um Harry Potter í febrúar sl. Inntökupróf í nýja söngleikjadeild þreytt á morgun Sýningarnar Ódauðlegt verk um stríð og frið | 3.9. kl. 20 í Listaháskólanum. Ódauðlegt verk um samhengi hlutanna | 3.9. kl. 21.30 í Nýló. Ódauðlegt verk um stjórn og stjórnleysi | 3.9. kl. 23 í LHÍ. Homo absconditus | 4.9. kl. 17 á Litla sviði Þjóðleikhússins. Utangátta | 4.9. kl. 20 í Svarta kassa Þjóðleikhússins. Feedback | 4.9. kl. 22 í LHÍ. Dauðasyndirnar | 5.6. kl. 13 á Litla sviði Borgarleikhússins. Humanimal | 5.9. kl. 16 í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Forgotten | 5.9. kl. 19 og 6.9. kl. 20 í Batteríinu. Þú ert hér | 5.9. kl. 22 og 6.9. kl. 20 á Litla sviði Borgarleikh. Red | 6.9. kl.15 á Litla sviði Þjóðleikhhússins Nánar á: www.lokal.is Blá lýsingin á svið- inu og reykurinn sköpuðu dulúð og seið- andi andrúmsloft … 32 »

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.