Morgunblaðið - 01.09.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.09.2009, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009 Við munum hittast á ný“ söngVera Lynn á tímum seinniheimsstyrjaldarinnar og það stóð heima. Það er frábært að þessi breski söngfugl skuli enn á ný sjást á vinsældalista plötuútgef- enda en það munu vera um sextíu ár síðan lögin hennar sáust á þeim slóðum síðast. Hún er 92 ára aðl- aður harðjaxl sem söng sig inn í hjörtu bandamanna með lögum sem allir sem komnir eru til vits og ára þekkja, hvort sem þeir vita það eður ei. Á þessu ári gaf hún einnig út þriðju ævisöguna, Some Sunny Day sem og þessa plötu með vinsælustu lögum sínum, We’ll Meet Again - The Very Best of Vera Lynn. Í tilkynningu frá útgefanda nýju bókarinnar segir að nú sé Dame Vera „… komin á þann aldur að hún hafi yfirsýn yf- ir ævi sína og geti sett hana al- mennilega í samhengi“. Ég öfunda Veru af að hafa náð yfirsýn og samhengi í eigin ævi, hver kann- ast ekki við vandann sem fylgir samhengislausu æviskeiði?    Hin aðlaða Vera hefur í mörghorn að líta, þó að söngferl- inum hafi lokið upp úr 1970 og hún hafi ekki sungið opinberlega síðan 1995 þá hefur hún verið iðin við að mæta og árita bækur og diska úti um allar koppagrundir í sumar. Hún er poppstjarna eldri borgara og hefur hún hlotið margar viðurkenningar fyrir söng og góðgerðarstarfsemi. Merkileg- ustu upphefðina hlaut hún kannski þegar beska þjóðin kaus hana sem holdgerving 20. ald- arinnar (e. The person who most represents the spirit of the last century) árið 2000. Í þeirri kosn- ingu var ekki boðið upp á neinn nafnalista og hlaut hún ríflega 20% atkvæða sem segir manni hversu mikil stofnun þessi kona er. Vera Lynn hóf ferilinn sem barnastjarna og söng í klúbbum verkamanna í Austur-London. Á unglingsárunum hélt söngferillinn áfram og vann hún sömuleiðis við útvarp. Stríðið braust út þegar hún var rúmlega tvítug og segir gamall og fúll brandari að það hafi verið umboðsmaður hennar sem startaði stríðinu. Hún söng fyrir hermenn banda- manna í Norður-Afríku, Indlandi, Búrma og víðar og hélt uppi fjöri við ómögulegar aðstæður og náði að heilla hinn vestræna heim með rödd sinni og baráttuanda. Hún söng þekkt lög á borð við „We’ll Meet Again“ og „The White Cliffs of Dover“. Í nýju bókinni sinni segist hún oft hafa verið sökuð um að halda við menn sem hún hafði aldrei hitt þar sem hún var svo dugleg að árita myndir og skiptast á bréfum við hermennina. Eiginkonur og kærustur her- mannanna hafi síðan átt bágt með að trúa því að svo stór stjarna hafi tekið sér tíma í að skrifa drengjunum án þessa að eitthvað meira lægi að baki.    Vera átti ekki leið um Ísland ástríðsárunum en fyrir áratug eða svo fór sá sem þetta ritar í heimsókn til hennar í Ditchling í Suður-Englandi til að taka af henni portrett fyrir tímarit og birtist sú mynd nú aftur hér. Vera og eiginmaður hennar voru ákaf- lega elskuleg og skýrðu þau frá því að þó að hún væri ekki þekkt andlit lengur þá þekkti eldra fólk rödd hennar. „Er þetta hún Vera okkar?“ var sú spurning sem hún sagðist fá hvað oftast í stórmörk- uðum og á götu úti. Ég leyfi mér að nota fornafn hennar í þessum pistli, ekki bara af því að hún bauð mér einu sinni í te heldur sökum þess að hún hef- ur alla tíð verið mjög alþýðleg. Hún var að mörgu leyti drottning almúgafólks í hinu stéttskipta Bretlandi eða öllu heldur sendi- herra þeirra í Buckingham-höll því hún var tíður gestur þar. Vera var fyrsti breski tónlistarmað- urinn til að koma lagi í fyrsta sæti vinsældalista beggja vegna Atl- antshafsins samtímis og hver veit nema nú sé hennar tími kominn, aftur. dagurg@mbl.is Hún Vera okkar rokkar á ný »Hún er 92 ára aðlað-ur harðjaxl sem söng sig inn í hjörtu banda- manna með lögum sem allir sem komnir eru til vits og ára þekkja, hvort sem þeir vita það eður ei. Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson Öðluð alþýðuhetja Dame Vera Lynn er komin á vinsældalistana eftir nokkurt hlé. AF LISTUM Dagur Gunnarsson MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR SARA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR EDDA GARÐARSDÓTTIR GRÉTA MJÖLL SAMÚELSDÓTTIR HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR KATRÍN JÓNSDÓTTIR FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ KEMUR EIN FLOTTASTA STÓRMYND SUMARSINS HASAR OG TÆKNIBRELLUR SEM ALDREI HAFA SÉST ÁÐUR FRÁ LEIKSTJÓRA QUENTIN TARANTINO KEMUR HANS MAGNAÐASTA, VILLTASTA OG STÓRKOSTLEGASTA ÆVINTÝRI TIL ÞESSA. HHHHH - H.G.G, Poppland/Rás 2 HHHHH “Besta Tarantino-myndin síðan Pulp Fiction og klárlega ein af betri myndum ársins” T.V. - Kvikmyndir.is HHHHH “ein eftirminnilegasta mynd ársins og ein sú skemmtilegasta” S.V. - MBL Í REYKJAVÍK HHHH „Skemmtileg, hjartnæm og drepfyndinn“ – T.V. kvikmyndir.is HHHH „Hér er enn eitt meistaraverk frá Pixar, sem ryður brautina í nútíma teiknimyndagerð.“ – Roger Ebert 100/100 The Hollywood Reporter 100/100 Variety Tvær ólíklegar hetjur munu finna týnda veröld, en stærsta ævintýrið verður að komast aftur heim Stórkostlegt ævintýri sem engin fjölskylda má missa af Sýnd með íslen sku o g ensk u tali Ein allra bestaDisney-Pixar myndtil þessa Gagnrýnendur eru á einu máli “Besta mynd ársins” Einstök kvikmyndaperla sem engin má missa af! Stórbrotin mynd um óvenjulega sögu! HHH “Með öllum líkindum frumlegasta ástarsaga sem hefur komið út síðustu misseri.” T.V. - Kvikmyndir.is SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, OG REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI HHHH „mögnuð og vel heppnuð“ – H.S. MBL 850 kr. 500 k r. 500 kr. 500 k r. 500 k r. Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó ATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS OG 3-D MYNDIR Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBOGANU M 500kr. SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓÍ OG BORGARBÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI Inglorious Basterds kl. 6 - 9 B.i.16 ára The Taking of Pelham 123 kl. 8 - 10 B.i.16 ára G.I. Joe: The Rise of Cobra kl. 6 B.i.12 ára Inglorious Bastards kl. 6 - 9 B.i.16 á. G.I. Joe kl. 10 B.i.12 ára Time Travelers w... kl.5:30-8-10:30 B.i.12 á. Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 B.i.16 ára Stelpurnar okkar kl. 6 - 8 LEYFÐ The Goods, live hard... kl. 5:50 - 8 - 10:10 500 kr B.i.14 ára My Sister‘s Keeper kl. 5:50 - 8 500 kr. B.i.12 ára The Time Traveler´s Wife kl. 5:30 - 8 - 10:30 500 kr. B.i.12 ára Karlar sem hata konur kl. 10:10 500 kr. B.i.16 ára Taking of Pelham kl. 5:30 - 8 - 10:30 500 kr. B.i.16 ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.