Morgunblaðið - 01.09.2009, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2009
Vegur söngkonunnar SigríðarThorlacius hefur farið sí-vaxandi undanfarna mánuðiog munar þar mestu um
vinsældir hljómsveitar hennar, Hjal-
talín, en einnig
vakti frammistaða
hennar á Gilligill,
hinni stór-
skemmtilegu
plötu Memfis-
mafíunnar, verð-
skuldaða athygli.
Efniviðurinn sem Sigríður hefur kosið
til flutnings á fyrstu sólóplötu sinni
samanstendur af lögum Jóns Múla
Árnasonar og ljóðum Jónasar bróður
hans, og er það einkar vel til fundið hjá
henni. Það er ekki hlaupið að því að
gera þjóðargersemum þeirra Árna-
sona viðeigandi skil þar eð flestir
þekkja lögin og hafa þar af leiðandi á
því skoðun hvernig fara skuli með, en
skemmst er frá því að segja að Sigríð-
ur Thorlacius kemst frá sínu með
bravúr á plötu sinni sem ber heitið Á
Ljúflingshól.
Henni til trausts og halds eru held-
ur engir skussar, heldur Heið-
urspiltar. Þeir eru bræðurnir Guð-
mundur Óskar (úr Hjaltalín) og
Sigurður (úr Hjálmum) Guðmunds-
synir og Daníel Friðrik Böðvarsson og
Magnús Trygvason Eliassen úr Moses
Hightower. Þeir piltar standa undir
nafni því spilamennskan er fyrsta
flokks og hinn afslappaði og seiðandi
djass sem var aðal Jóns Múla skilar
sér áreynslulaust í flutningi Heið-
urspilta. Ekki spillir innkoma góðra
gestahljóðfæra hér og hvar og heild-
arsvipur plötunnar er allur hinn fag-
mannlegasti.
Enn er ótalinn helsti kostur plöt-
unnar, en það er söngur Sigríðar
sjálfrar. Hún rennir sér glæsilega
gegnum úrval af indælis smellum úr
smiðju meistarans – nægir að nefna
lögin „Án þín/Með þér“, „Fröken
Reykjavík“, „Í hjarta þér“ og „Ást-
ardúett“. Rödd Sigríðar er með ein-
dæmum áheyrileg, björt og hljóm-
fögur, og smellur eins og flís við rass –
við Múladjass. Verður að nefna lögin
„Sérlegur sendiherra“, sem er dýrðleg
og flautuskotin bossanóva, og „Kavat-
ína Kristínar“ sem er dáleiðandi fal-
legur vals, sem hápunkta í raddbeit-
ingu Sigríðar; öryggi hennar og vald
yfir söngnum er algert.
Í það heila er „Á Ljúflingshól“ frá-
bærlega vel heppnuð plata og ekki síst
með tilliti til þess að sem sólóverkefni
er um frumraun listamannsins er að
ræða. En þó verður að fetta fingur út í
lokalagið, „Sjómenn íslenskir erum
við“. Þar taka Heiðurspiltarnir við
hljóðnemanum ásamt gestaspilurum
og sleppa sér í einkaflippi sem er ger-
samlega á skjön við það sem á undan
er gengið; þessi plata hefði betur verið
afgreidd án þess. En hvað sem Sigríð-
ur Thorlacius tekur sér fyrir hendur
næst blasir við að því verður vert að
fylgjast með. Hún er ekki einasta gríð-
arlegt efni heldur hefur hún hér með
tekið sér stöðu í fremstu röð söng-
kvenna hér á landi.
Á Ljúflingshól Sigríður Thorlacius og þrír heiðurspiltar. Helsti kostur plötunnar er söngur Sigríðar.
Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar
– Á Ljúflingshól
bbbbn
JÓN AGNAR
ÓLASON
TÓNLIST
Listilega sungin
ljúflingslög
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Blá lýsingin á sviðinu ogreykurinn sköpuðu dulúðog seiðandi andrúmsloft áNasa og Arve hóf hljóm-
leikana með dúnmjúkum og hlýjum
tónum. Hlutverk Jans Bangs var að
umbreyta því sem Arve sendi frá
sér og búa til lúppur. Einnig stjórn-
uðu þeir Arve upptökum úr hljóð-
smölum.
Jan tókst að fylla inn í allt tíðni-
sviðið með ýmiss konar hljóðum,
reglu og óreglu. Hann gerði tónlist-
ina dýnamískari og breiddi úr
hljóðgjöfunum og breytti þeim svo
að áferð blásturshljóðfæris hvarf.
Tónlistin minnti á köflum á sam-
starf Jons Hassells og Brians Enos
þegar Arve og Jan spunnu sinn
galdur.
Arve hefur einstakt vald á hljóð-
færi sínu. Hann skapaði miklu
stærri hljóðheim en vant er með því
að beita tungunni á marga vegu,
hann söng í gegnum trompetinn og
vogaði sér jafnvel að setja tréblást-
ursmunnstykki á hann. Hann söng
einnig á óræðu tungumáli sem svip-
aði til arabísku eða þvíumlíku.
Sænska sópransöngkonan Anna
Maria Friman hefur komið víða við.
Hún syngur með Gavin Bryars og
hefur hlotið fjölda viðurkenninga
fyrir tónlist sína. Ég bjóst við því
að galdur tónleikanna hyrfi þegar
hún steig að hljóðnemanum, en sú
varð ekki raunin.
Anna Maria söng meðal annars á
latínu og björt og hrein röddin féll
vel að hljóðumhverfinu. Þetta voru
eftirminnilegir tónleikar, einlægir,
fágaðir og framúrstefnulegir.
Fágað og
framúrstefnulegt
Nasa
Jazzhátíð Reykjavíkur
bbbbn
Arve Henriksen, trompet, söngur og
elektróník, Jan Bang, elektróník og
Anna Maria Friman, söngur. Nasa við
Austurvöll, 29. ágúst.
ARNLJÓTUR
SIGURÐSSON
TÓNLIST
Rósenberg var þéttsetinnþegar Narodna Muzikasteig á svið undir forystuHauks Gröndals. Narodna
Muzika þýðir þjóðleg tónlist og er í
raun samnefnari yfir þjóðlega tónlist
Búlgaríu, Makedóníu, Serbíu og
Bosníu. Músíkin sem spiluð var fyrir
okkur var þó mestmegnis frá Búlg-
aríu en einnig léku þeir tyrkneska og
gríska tónlist.
Landamæri tónlistar þessara
svæða eru ekki háð girðingum og
vegatálmum eins og sást best þetta
fimmtudagskvöld. Haukur hefur
heimsótt Búlgaríu til að læra að spila
eins og innfæddir. Hann hefur til-
einkað sér tónlistina af einlægni og
spilaði þar til svitinn lak niður ennið.
Bandið var einstaklega þétt og
samspilið eftir því. Lítið var um stæla
og þrátt fyrir að nótnafjöldi hvers
lags hafi talist í þúsundum, eins og
Haukur sagði, þá var engin keppni
eða sýnimennska.
Með þeim lék búlgarski harm-
onikkuvirtúósinn Borislav Zugorski
sem óneitanlega setti sitt mark á
kvöldið. Honum er þessi músík í blóð
borin og forréttindi fyrir íslenska tón-
leikagesti að berja hann augum.
Einn helsti ókosturinn var að þetta
voru sitjandi tónleikar. Úr því bætti
fríður hópur dansara sem notaði litla
plássið fyrir framan sviðið til að stíga
sín búlgörsku spor. Dansinn og tón-
listin eru nefnilega tengd órjúf-
anlegum böndum í Balkanlöndunum
og hvort mótar annað. Því væri betra
að sjá Narodna Muzika á standandi,
eða öllu heldur dansandi tónleikum.
Tónlist án landamæra
Án mæra Narodna Muzika er leidd af hinum fjölhæfa Hauki Gröndal. Sveit-
in lék á Jazzhátíð Reykjavíkur síðastliðið fimmtudagskvöld.
Rósenberg
Jazzhátíð Reykjavíkur
bbbbn
Narodna Muzika lék á Jazzhátíð Reykja-
víkur fimmtudaginn 27. ágúst á Rósen-
berg. Haukur Gröndal klarinett, Borislav
Zgurovski harmonikka, Erik Qvik slag-
verk, Matthías M.D. Hemstock slagverk,
Ásgeir Ásgeirsson tambura, Guð-
mundur Pétursson gítar, Þorgrímur
Jónsson kontrabassi og Matthías Stef-
ánsson fiðla.
ARNLJÓTUR
SIGURÐSSON
TÓNLIST
HHHH
„BESTA TARANTINO-MYNDIN
SÍÐAN PULP FICTION OG
KLÁRLEGA EIN AF BETRI
MYNDUM ÁRSINS.“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
„EIN EFTIRMINNILEGASTA
MYND ÁRSINS OG EIN SÚ
SKEMMTILEGASTA“
S.V. - MBLHHHH
- H.G.G, POPPLAND/RÁS 2
FRÁ LEIKSTJÓRA
QUENTIN TARANTINO
KEMUR HANS MAGNAÐASTA, VILLTASTA OG
STÓRKOSTLEGASTA ÆVINTÝRI TIL ÞESSA
Í REYKJAVÍK
SÝND MEÐÍSLENSKU OGENSKU TALI
EIN ALLRA BESTA DISNEY-
PIXAR MYND TIL ÞESSA
TVÆR ÓLÍKLEGAR HETJUR
MUNU FINNA TÝNDA VERÖLD,
EN STÆRSTA ÆVINTÝRIÐ
VERÐUR AÐ KOMAST AFTUR HEIM
STÓRKOSTLEGT ÆVINTÝRI
SEM ENGIN FJÖLSKYLDA MÁ MISSA AF
GAGNRÝNENDUR ERU Á EINU MÁLI
“BESTA MYND ÁRSINS”
HHHH
„SKEMMTILEG, HJARTNÆM
OG DREPFYNDINN“
- T.V. KVIKMYNDIR.IS
HHHH
„HÉR ER ENN EITT
MEISTARAVERK FRÁ PIXAR,
SEM RYÐUR BRAUTINA
Í NÚTÍMA TEIKNIMYNDAGERÐ.“
- ROGER EBERT
100/100 – VARIETY
100/100 – THE HOLLYWOOD REPORTER
HHHH
„MÖGNUÐ OG VEL HEPPNUД
– H.S. MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI,
SÝND Í ÁLFABAKKAKEFLAVÍK, SELFOSSI OG AKUREYRI
/ ÁLFABAKKA
INGLOURIOUS BASTERDS kl. 5:30 - 8:30- 10:10 16 UP m. ensku tali kl. 83D DIGTAL 3D L
INGLOURIOUS BASTERDS kl. 10:10 LÚXUS VIP UP m. ensku tali kl. 3:40 - 5:50 - 8 LÚXUS VIP
DRAG ME TO HELL kl. 8 - 10:10 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 3:403D - 5:503D L
PUBLIC ENEMIES kl. 8 - 10:40 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 3:40 L
G-FORCE m. ísl. tali kl. 3:30 - 5:50 L HARRY POTTER 6 kl. 5 10
THE PROPOSAL kl. 5:50 - 8 - 10:20 L HANGOVER kl. 3:40 síðustu sýningar 12
/ KRINGLUNNI
UP m. ensku tali kl. 63D - 8:103D - 10:203D L DIGITAL 3D
UPP (UP) m. ísl. tali kl. 3:403D - 5:503D L DIGITAL 3D
UPP (UP) m. ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 L
DRAG ME TO HELL kl. 8:20 - 10:30 16
PUBLIC ENEMIES kl. 10:10 16
G-FORCE 3D m. ísl. tali kl. 43D L DIGITAL 3D
THE PROPOSAL kl. 8 L DIGITAL