Morgunblaðið - 01.09.2009, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 01.09.2009, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 244. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM»  Er ekki óhætt að fjarlægja höfuðbún- aðinn? spurði Pétur Guðgeirsson, héraðs- dómari í Reykjavík, í dómsal 201 í gær. Þar var kveðinn upp dómur yfir þremur ungum mönnum, sem voru ákærðir fyrir íkveikju og fleiri afbrot. Tveir mannanna biðu utan við réttarsalinn með hettur á höfði og trefla vafða um andlitið til varnar myndavélum og þannig búnir komu þeir inn í dómsalinn og settust. Þar inni hafði Pétur bannað ljósmynd- urum að mynda og hann mæltist því til þess að mennirnir tækju ofan áð- ur en þeir hlýddu á dóminn. Sem þeir gerðu. Enga trefla í dómsal                        !    " # $ %  %  " &' ("' "  ) *+,-./ +/.-/* **.-0+ +1-/.2 +/-033 *0-,+* **0-30 *-.1,1 *3,-,0 *02-31 4 564 .*# 647 8 +//3 *+,-9/ +/.-,/ **1-/, +1-*/2 +/-29/ *0-,0+ **2-./ *-.13. *39-*, *03-11 +.+-*92+ &  :; *+,-3/ +/.-33 **1-.2 +1-*02 +/-3+* *0-9+. **2-9. *-.,.+ *39-0. *03-31 Heitast 15°C | Kaldast 5°C  Dregur úr vætu, úr- komulítið síðdegis og styttir upp norðvest- anlands. Hlýjast á Suð- urlandi. »10 Vera Lynn er 92 ára aðlaður harðjaxl sem slær nú aftur í gegn. Gaf út ævi- sögu og plötu á þessu ári. »30 AF LISTUM» Drottning almúgafólks FÓLK» Ásdís Rán nýtir sér Apple-tæknina. »29 Á annan tug verka sýndur á sjö sviðum á leiklistarhátíðinni Lókal sem verður haldin 3.-6. sept- ember. »28 LEIKLIST» Lókal leik- listarhátíð KVIKMYNDIR» Mikið úrval heimild- armynda á RIFF. »33 TÓNLIST» Skítamórall og Biggi í Maus í eina sæng. »33 Menning VEÐUR» 1. Hálfkaraðar glæsihallir 2. Jaycee starfaði fyrir ræningjann 3. Tveir í langt fangelsi 4. Saka Ólaf F. um fjárdrátt  Íslenska krónan hélst óbreytt »MEST LESIÐ Á mbl.is  Þegar þetta er lesið er ný útvarpsstöð um- boðsmanns Íslands, Einars Bárðarsonar, væntanlega komin á fullt stím. Kaninn, sem sendir út frá Off- iseraklúbbnum á Keflavíkur- flugvelli á tíðninni 91,9, fór í loftið kl. 8 og er það Gulli Helga sem mun mæla í míkrafóninn að morgni til. Í tilefni af opnuninni ætla hann og samstarfsfólkið að gæða sér á staðgóðum amerískum morg- unverði; eggjum, beikoni, pönnu- kökum með sírópi og öðru tilfall- andi. Kani með beikoni og eggi  Ýmir Vigfússon, sem varði doktorsritgerð sína í tölvunarfræði við Cornell-háskóla fyrir skemmstu, er aðeins 25 ára. Hann er því kom- inn í hóp örfárra Ís- lendinga sem hafa afrekað að hljóta doktorsnafnbót svo ungir að árum. Í ritgerðinni rannsakaði hann hóp- samskipti milli tölva sem og not- enda. Kynnir Ýmir tvö ný kerfi sem bæta þessi samskipti og nota stór- fyrirtækin IBM og CISCO þegar annað þeirra. Foreldrar Ýmis eru Sigurlaug Hauksdóttir, félags- ráðgjafi hjá landlæknisembættinu og LSH, og Vigfús Svavarsson, vörustjóri hjá EJS hf. Unnusta Ýmis er Rebecca Mitchell, doktorsnemi í faraldsfræði og dýralækningum við Cornell-háskóla. »13 25 ára með doktorspróf Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is EIÐUR Smári Guðjohnsen er orðinn liðsmaður hjá franska félaginu Mónakó, fyrstur Íslendinga. Hann skrifaði í gærkvöld undir tveggja ára samn- ing við liðið eftir að hafa gengist undir ítarlega læknisskoðun og Barcelona og Mónakó höfðu komist að samkomulagi um kaupverðið sem getur orðið hæst 2 milljónir evra, 360 milljónir króna. ,,Þetta er ný áskorun sem ég tekst á við. Móna- kó á glæsilega sögu og ég hlakka til. Það sem þjálfarinn sagði varðandi hlutverk mitt með liðinu fannst mér áhugavert. Ég get vonandi miðlað af reynslu minni til liðsins og get vonandi skorað mörg mörk. Ég vil bara fá að spila fótbolta sem ég fékk ekki að gera nógu mikið hjá Barcelona,“ sagði Eiður eftir að hafa skrifað undir samninginn við Mónakó sem er eitt af sigursælli félögum Frakklands, en liðið hefur sjö sinnum hampað meistaratitlinum, síðast árið 2000, og fimm sinn- um hefur það orðið bikarmeistari, síðast árið 1991. Mónakó kom geysilega á óvart í Meistaradeildinni tímabilið 2003-04 en liðið komst alla leið í úrslita- leikinn eftir að hafa slegið út bæði Real Madrid og Chelsea. „Þetta er ný áskorun“  Eiður Smári samdi við Mónakó til tveggja ára  Barcelona fær allt að 360 milljónir kr. fyrir Eið Í HNOTSKURN »Gengi Mónakó undanfarin ár hefur ekkiverið upp á það besta og til marks um það spilar liðið ekki í Evrópukeppninni í ár. »Nýr þjálfari tók við liðinu fyrir tímabil-ið en hinn 54 ára gamli Guy Lacombe var ráðinn til starfans. »Eiður leikur sinn fyrsta leik með Móna-kó 12. september en þá fær liðið París SG í heimsókn á Stade Louis-völlinn í furstadæminu Mónakó. Morgunblaðið/Eggert Ný viðmið Eiður Smári er fyrsti Íslendingurinn sem semur við franska fótboltaliðið Mónakó.  Vil bara fá að spila fótbolta | Íþróttir FÉLAGARNIR í hljómsveitinni Baggalúti fengu þá prýðilegu hug- mynd í fyrra að gefa út plötu með lögum við ellefu kvæði vestur- íslensku skáld- anna Káins og Stephans G. Stephanssonar, eftir að hafa skoðað sig um á Íslendingaslóðum í Kanada. Platan ber nafn eins kvæða Káins, Sólskinið í Dakota, en Káinn bjó í Pembina í Norður-Dakota og var lengst af vinnumaður hjá fjölskyldu Christine Hall sem hann orti margar vísur til. Christine varð hundrað ára í sumar og var upphaflega hugmyndin hjá Baggalúti að færa henni lag að gjöf við kvæði Káins. Sveitin gerði gott betur og gaf út heila plötu. | 29 Stína fékk heila plötu Fjórir Baggalútar. SPENNAN á Íslandsmótinu í fótbolta hefur aukist jafnt og þétt að undanförnu. Forskot FH á toppnum minnkar jafnt og þétt en 19. umferð lauk í gær. Eftir markalaust jafntefli Íslandsmeistaraliðsins í gær gegn botnliði Þróttar glæddust vonir KR-inga sem eru fimm stigum á eftir FH. Fylkir landaði 3:2 sigri í Grindavík í gær og Breiðablik sigraði Stjörnuna 3:1 á útivelli. Staða Þrótt- ar á botni deildarinnar er nánast vonlaus en liðið er með 12 stig þegar þrjár umferðir eru eftir af Íslands- mótinu. | Íþróttir Morgunblaðið/Eggert FORSKOT FH AÐEINS FIMM STIG ÍSLENSKA kvennalandsliðið í fót- bolta hefur lokið keppni á Evrópu- meistaramótinu í Finnlandi. Þrátt fyrir að liðið hafi tapað öllum þrem- ur leikjum sínum á mótinu fylgdust lesendur mbl.is vel með gangi mála hjá „stelpunum okkar“. Íþróttavefur mbl.is fékk 95.186 heimsóknir í síð- ustu viku og er það metfjöldi á þessu ári. Þegar íslenska handboltalands- liðið lék til úrslita á Ólympíu- leikunum í ágúst í fyrra fékk íþrótta- vefur mbl.is 148.167 heimsóknir. EM áhugi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.