Morgunblaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „VIÐ hefðum viljað vera búin að klára þetta mál fyrir löngu vegna þess að það er svo margt sem hangir á þessu máli […] Það hangir á þessu lánafyrirgreiðsla frá Norð- urlöndunum og endurskoðun á áætlun okkar hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Þannig að það er ýmislegt sem hangir á þessu. En hvort þetta eru nokkrir dagar núna til eða frá, það skiptir ekki máli og bráðabirgðalög koma ekki til greina,“ sagði Jóhanna Sigurðardótt- ir forsætisráðherra, spurð um stöðu Icesave- málsins, áður en hún gekk inn á þingflokks- fund stjórnarflokkanna í gær. „Fulltrúar þjóðanna eru að tala saman og ég er að vona að við getum fengið einhverja niðurstöðu í málið fyrir lok þessarar viku.“ Innt eftir því til hvaða aðgerða stjórnin hyggst grípa til að styrkja gengið sagði hún unnið að breytingum á gjaldeyrishöftunum svo hægt yrði að afnema þau í þrepum. Þá væri nauðsynlegt að lækka stýrivexti, meðal annars út af stöðugleikasáttmálanum, ásamt því sem aðild að ESB væri mikilvægur upp á teningnum hér. Þá taldi ráðherrann eðli- legra að leita til nágrannaþjóða. – Nú liggur fyrir að stór hluti fyrirtækja á erfitt með að standa í skilum. Hvað ætlar rík- isstjórn þín að gera til að hjálpa fyrirtækjum að komast í gegnum þennan skafl og fyrirsjá- anlegar skattahækkanir? Fyrst og fremst skuldavandi „Það er auðvitað alveg ljóst að það er fyrst og fremst skuldavandi fyrirtækjanna sem er þeim mikill fjötur um fót,“ sagði Steingrímur. „Erlend lán hafa hækkað með gengisfalli krón- unnar og alveg ljóst að það bíður gríðarlegt verkefni banka og fjármálastofnana að vinna úr skuldavanda sinna viðskiptavina, heimila og fyrirtækja. Það verður eitt allra mikilvægasta verkefnið í okkar samfélagi um leið og bankakerfið okkar er komið á fót til fulls og orðið endanlega og að fullu undir það búið að takast á við þessi verk- efni,“ sagði Steingrímur og bætti því svo við að „sýna þyrfti fyrirtækjum og atvinnulífinu um- burðarlyndi eða mildi eftir því sem hægt er í sambandi við gjalddaga og aðra slíka hluti“. „Það höfum við þegar gert,“ sagði ráðherrann. liður í því að vinna þjóðina út úr erfiðleik- unum. Hvort og þá hvenær lán yrðu flutt úr bönkunum yfir í Íbúðalánasjóð, eins og rætt hefur verið, treysti hún sér ekki til að segja. Bandamaður í austri? Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra ræddi einnig við blaðamenn en athygli vakti að þegar sá valkostur var borinn undir ráðherrann að leitað yrði til Kínverja til að liðka fyrir endurreisninni upplýsti hann að samskiptin við stjórn landsins hefðu farið vaxandi að undanförnu. Kínverjar hefðu hins vegar keypt upp auðlindir víða um heim og kvaðst hann andvígur því að sama yrði Sjá til lands í Icesave-málinu  Forsætisráðherra segir samninga langt komna  Vill frekari lækkun stýrivaxta  Steingrímur upplýsir um aukin samskipti við Kínverja » Stjórnarflokkarnir hitt- ust á þingflokksfundi » Jóhanna segir unnið að afnámi gjaldeyrishafta UM þrjú hundruð drengir á aldrinum 7-14 ára spreyta sig nú í söngprufum Þjóðleikhússins fyr- ir söngleikinn Óliver sem frumsýndur verður í febrúar. Prufur hófust um síðustu helgi og standa fram á fimmtudag. Á föstudag ræðst hverjir fara áfram. Að endingu verða valdir 25- 30 drengir en tveir eru um hvert hlutverk. Strákarnir hafa haft þrjár vikur til að æfa lag úr söngleiknum og þóttu standa sig frábærlega. ÞRJÚ HUNDRUÐ VILJA SYNGJA UM OLIVER TWIST Morgunblaðið/Ómar Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is HAUSTSLÁTRUN er nú í fullum gangi í sláturhúsum landsins og eru húsin að langstærstum hluta mönn- uð erlendum starfsmönnum, eins og verið hefur seinustu ár. Stóraukið atvinnuleysi hefur litlu breytt um þetta og skv. athugun Samtaka at- vinnulífsins má áætla að um 500 er- lendir starfsmenn hafi komið til landsins til starfa hér í sláturtíðinni. „Við mönnum nánast eingöngu með útlendingum. Það er ekki mikið um nýráðningar Íslendinga,“ segir Gísli Garðarsson, sláturhússtjóri SAH afurða ehf. á Blönduósi. Í slát- urtíðinni eru 95 starfsmenn þar við störf og eru erlendu starfsmennirn- ir um 70 talsins, flestir frá Póllandi og Nýja-Sjálandi. Mikill meirihluti erlendu starfsmannanna hefur starfað áður í sláturhúsinu. Að sögn Gísla var gengið frá ráðningum í sláturhúsið í apríl. „Við reyndum að fá viðbótarstarfskraft hjá atvinnumiðlunum fyrir nokkrum dögum en það gekk ekki neitt,“ seg- ir Gísli. Hann segir Íslendinga greinilega ekki sækjast eftir vinnu við sauðfjárslátrun. Þrautþjálfaðir við slátrun „Það er óbreytt, við erum alltaf með töluvert af erlendum starfs- mönnum. Þeir eru um það bil 70% starfsmanna en við erum einnig með aðeins fleiri Íslendinga en verið hefur,“ segir Magnús Freyr Jóns- son, framkvæmdastjóri Sláturhúss Kaupfélags Vestur-Húnvetninga á Hvammstanga. Flest sláturhúsin gengu frá ráðningu erlendra starfs- manna fyrir mörgum mánuðum. Um 500 erlendir starfs- menn í sláturhúsunum Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson STJÓRN Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, kom saman í gær og ræddi skipulagsbreytingar og þar með talið ráðningu ritstjóra. Að sögn Óskars Magnússonar, út- gefanda blaðsins, er málið í vinnslu. Það verði unnið mjög hratt og sé stefnt að því að ljúka því á allra næstu dögum. Ritstjóramál ræðst á næstu dögum „Ég er auðvitað mjög ánægð með það að fólk vill hafa mig sem mest í fjölmiðlum. Ég reyni að sinna því eftir bestu getu. Ég vil nú eiginlega fullyrða það að sýni- leiki minn sé ekkert minni heldur en annarra forsætisráðherra,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, spurð um þá umræðu sem skap- ast hefur um sýnileika hennar. Áhugamannabragur á undirbúningnum Það vakti athygli blaðamanns þegar hann bjó sig undir að taka viðtal við leiðtoga þjóðarinnar að starfsfólk hótelsins, Hilton Reykjavík Nordica, hafði ekki hugmynd um hvað stæði til. Óvissa ríkti um viðtalsstaðinn og gerðu blaðamenn um hríð ráð fyrir að ná tali af forsætis- og fjármálaráðherra í anddyri hótelsins. Þegar Jóhanna gekk inn í hót- elið kom það henni í opna skjöldu að til stæði að efna til blaðamannafundar. Að fundinum loknum var heldur ekki gert ráð fyrir að blaðamenn þyrftu næði eða stað til að skrifa á netið. baldura@mbl.is Ekkert síður sýnileg en forverar hennar í forsætisráðuneytinu Jóhanna Sigurðardóttir LÍKLEGT er tal- ið að þjófar hafi rænt munum úr skipsflaki Pour- quoi-Pas? sem liggur á hafs- botni úti fyrir Mýrum. Fram kom í fréttum Sjónvarpsins í gærkvöldi, að ólöglegur köf- unarleiðangur Íra og Frakka hing- að til lands væri til rannsóknar í tengslum við málið. Haft var eftir Kristínu Huld Sig- urðardóttur, forstjóra Forn- leifaverndar ríkisins, að málið væri grafalvarlegt og m.a. til rann- sóknar í utanríkisráðuneytinu. Stolið úr skipsflaki Pourquoi-Pas? Úr myndaalbúmi skipbrotsmannsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.