Morgunblaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009 Umslag plötunnar White Lun-ar gefur lítil fyrirheit uminnihaldið, þekki menn ekki karlana tvo sem prýða það. Tveir miðaldra menn, hárprúðir mjög, í fallegum skyrtum sem opnar eru niður á bringu. Um háls bera þeir festar, annar með kross en hinn e.k. stein eða bein. Sá hárprúðari horfir beint í linsu myndavélarinnar en hinn horfir annars hugar til hliðar, líkt og hann viti ekki af myndatök- unni. Það er einhver illútskýr- anlegur töfraljómi yfir myndinni nema þá kannski að aðdáun und- irritaðs á myndefninu sveipi hana töfraljóma, það skyldi þó aldrei vera. Mennirnir tveir eru nefnilega ekki alveg „venjulegir“ því þeir búa yfir mikilli sköpunargáfu þegar kemur að tónlist. Þetta eru Ástr- alarnir Nick Cave og Warren Ellis. Cave og Ellis hafa starfað saman í fimmtán ár, í sveitunum The Bad Seeds, Grinderman og The Dirty Three. Þeir sem séð hafa þessa tvo galdramenn á sviði verða vart samir aftur, eins og sannaðist á tónleikum þeirra á Broadway fyrir sjö árum. Á þeim gátu hörðustu aðdáendur setið í nokkurra metra fjarlægð frá Cave og Ellis og felldu þar einhverjir tár í tónlistaralgleymi. Undirritaður fékk ítrekað gæsahúð og missti tímaskynið. Það kemur nú ekki oft fyrir á tónleikum.    Og nú er komið frá þeim enn eittsnilldarverkið, safnplatan White Lunar með tónlist sem þeir sömdu fyrir kvikmyndirnar The As- sassination of Jesse James by the Coward Robert Ford, The Proposi- tion og The Road og heimild- armyndirnar The English Surgeon og The Girls of Phnom Penh auk tveggja laga verka sem þeir Cave og Ellis segja koma „úr hvelfing- unum“. Þeir sem séð hafa myndina um vígamanninn Jesse James hljóta að hafa tekið eftir magnaðri tónlist- inni sem small fullkomlega við magnaða myndatöku og lýsingu í myndinni. Tónlist Caves og Ellis fyrir þá mynd nær yfir allan tilfinn- ingaskalann, frá undirblíðu stefi sem tileinkað er Jesse, með við- kvæmu klukkna- og sílófónspili í bland við píanóleik Caves á hæstu nótum. Með hverju laginu sem líður magnast upp tilfinningin fyrir því að Jesse fljóti sofandi að feigðarósi. Þá er ekki síðri tónlistin fyrir hálf- vestrann blóðuga, The Proposition, þar sem seiðmagnaður fiðluleikur Ellis er meira áberandi, ekki síst í hinu stórkostlega stefi „The Pro- position no. 1“ þar sem hlustandi fær sterklega á tilfinninguna að blóðugt uppgjör sé í vændum. „The Rider Song“ er svo afskaplega Bad Seeds-legt, sé litið til seinustu platna Caves og félaga. Hinni tvöföldu White Lunar verð- ur seint lýst með orðum, ekki frekar en fullu tungli. Þetta er skyldueign fyrir alla aðdáendur Caves og Ellis. Eigum við eitthvað að ræða það? Ég hélt ekki. helgisnaer@mbl.is Fullt tungl hjá Cave og Ellis » Þeir sem séð hafaþessa tvo galdra- menn á sviði verða vart samir aftur, eins og sannaðist á tónleikum þeirra á Broadway fyrir sjö árum. White Lunar Ellis og Cave eitursvalir á ljósmynd Steve Gullick. AF LISTUM Helgi Snær Sigurðsson Nokkuð er um liðið síðanEgill Sæbjörnsson gafsíðast úr plötu, reyndarnæstum áratugur, en hann sendi síðast frá sér breiðskíf- una Tonk Of The Lawn árið 2000. Á henni mátti meðal annars finna eitt af lögum þess árs, hið óborganlega „I Love You So“. Síðan þá hefur Eg- ill sinnt listsköpun af ýmsu öðru tagi, á borð við myndlist og innsetningar hvers konar, en er hins vegar loks mættur með nýja músík í farteskinu. Platan er samnefnd kappanum og er gefin út á vegum hinnar nýju plötu- útgáfu sem nefnist Borgin, og taka verður ofan fyrir kraftinum þar á bæ strax á fyrstu metrum starf- seminnar. En það er önnur saga. Eitt af því sem heillaði svo marga á fyrri plötu Egils var hversu glettilega lunkinn hann var að semja og spila músík sem hafði til að bera talsvert af listrænum metn- aði en var samt aðgengileg og gríp- andi – enda tók Egill sig bara mátu- lega alvarlega þegar upp var staðið. Ekki er metnaður Egils minni á nýju plötunni heldur er markið þvert á móti sett hátt. Tónlistin er sem fyrr gítarpopp, eilítið blúsað, lífrænt nokk og lítið ber á hljóðgervlum þótt í þeim heyrist einstaka sinnum. Egill er naskur á laglínur eins og við var að búast og bestu lög plötunnar er hreint afbragð. Upphafslagið „She Was a Fighter“, „You Take all My Time“ og „Try To Stay Unhooked“ eru öll fín og lokalagið „I Pray God- less Today“ er líklega hið sterkasta á plötunni. Frábært lag, og munar þar ekki minnstu að Egill tekur virkilega á söngnum; minnir stöku sinnum meira að segja á David Bowie fyrir 30 árum og ekki leiðum að líkjast. Engu að síður er það söngurinn sjálfur sem stendur stemningunni stundum fyrir þrifum. Egill hefur tamið sér frekar afslappaðan söng- stíl alla jafna og hann verður hrein- lega letilegur þegar svo ber við. Þá er þeim mun mikilvægara að tefla um leið fram grípandi laglínu því annars er hætt við að athyglin fjari eilítið út, og það gerir hún einstaka sinnum. Platan er engu að síður fín og það er vonandi að fjöllyndi Egils þegar kemur að því að tilbiðja lista- gyðjuna kosti ekki aðra níu ára bið eftir breiðskífu. Egill snýr aftur Egill S – Egill S bbbmn JÓN AGNAR ÓLASON TÓNLIST Egill S. „...það er vonandi að fjöllyndi Egils þegar kemur að því að tilbiðja listagyðjuna, kosti ekki aðra níu ára bið eftir breiðskífu,“ segir m.a. í dómi. LADY Gaga og Kings of Leon eru með flestar tilnefningar, fimm hvor, til evrópsku MTV-tónlist- arverðlaunanna. Söngkonan og hljómsveitin keppa m.a. hvor við aðra í þremur flokkum, fyrir besta lagið, bestu tónleikana í Evrópu og bestu tónleikana á heimsvísu. Lady Gaga er líka tilnefnd sem besta söngkonan og besta nýstirnið, Kings of Leon er þá tilnefnd sem besta hljómsveitin og bestu rokk- ararnir. Beyonce Knowles kemur næst á eftir þeim með fjölda tilnefninga eða fjórar og Eminem og Green Day næst með þrjár hvor. Það er kaldhæðnislegt að banda- rískir listamenn eru með flestar til- nefningar til evrópsku MTV- tónlistarverðlaunanna þetta árið; Jay-Z, Katy Perry, Kanye West og Black Eyed Peas eru öll með tvær tilnefningar. U2 eru einu tónlist- armennirnir sem eru ekki amer- ískir og með fleiri en eina tilnefn- ingu, þeir eru tilnefndir fyrir bestu tónleikana og sem bestu rokk- ararnir. Hátíðin fer fram í Berlín 5. nóv- ember. Meðal þeirra sem koma þar fram eru Leona Lewis, Green Day og þýska sveitin Tokio Hotel. Reuters Kings of Leon Er tilnefnd til fimm verðlauna, m.a. sem besta sveitin. Lady Gaga og Kings of Leon berjast Lady Gaga Fékk verðlaun á bandarísku MTV- mynd- bandaverðlununum. FRÁSAM RAIMI LEIKSTJÓRA EVIL DEAD OG SPIDER MAN ENTERTAINMENT WEEKLY - 100/100 LOS ANGELES TIMES - 100/100 WALL STREET JOURNAL - 100/100 WASHINGTON POST - 100/100 FILM THREAT - 100/100SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK BÓ THE PSÝND Í ÁLFABAKKA HHHH – IN TOUCH HHH „HITTIR Í MARK.“ -S.V. MBL SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK FRÁ FRAMLEIÐANDANUM PETER JACKSON KEMUR EIN BESTA MYND ÞESSA ÁRS! HHHH “DISTRICT 9 ER EIN AF ÞESSUM MYNDUM SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ Í BÍÓ.” “KEMST Á BLAÐ MEÐ ALLRA SKEMMTILEGUST VÍSINDASKÁLDSÖGUM Á HVÍTA TJALDINU FRÁ UPPHAFI.” BIO.BLOG.IS HHHHH „MADLY ORIGINAL, CHEEKILY POLITICAL, ALTOGETHER EXCITING DISTRICT 9.“ ENTERTAINMENT WEEKLY HHHH “IT’S A GENUINELY EXCITING AND SURPRISINGLY AFFECTING THRILLER.” EMPIRE HHHH „EIN AF BESTU MYNDUM SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÞESSU ÁRI.“ „ÞRÆLSKEMMTILEG... SVARTUR HÚMOR... OG STANSLAUS SPENNA.“ T.V - KVIKMYNDIR.IS HHHHH „A GENUINELY ORIGINAL SCIENCE FICTION FILM THAT GRABS YOU IMMEDIATELY, NOT LETTING GO UNTIL THE FINAL SHOT.“ THE HOLLYWOOD REPORTER HHHHH SAN FRANCISCO CHRONICLE HHHHH WASHINGTON POST HHHHH „DISTRICT 9 IS A TERRIFIC ACTION THRILLER, IT’S A BLAST. . . .“ LOS ANGELES TIMES ATH. ALLR A SÍÐUST U SÝNING AR TILBOÐ 350 KR. - EKKI MISSA AF VINSÆLUSTU MYND ÁRSINS EINHVER FYNDNASTA MYND SÍÐARI ÁRA YFIR 61.000 MANNS SÝND Í ÁLFABAKKA / ÁLFABAKKA DISTRICT 9 kl. 5:50 - 8 - 10:30 16 BANDSLAM kl. 5:45 - 8 - 10:20 L DISTRICT 9 kl. 8 - 10:30 LÚXUS VIP UP m. ensku tali kl. 8 - 10:20 L REYKJAVÍK WHALE WAT... kl. 10:30 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:503D DIGITAL 3D L DRAG ME TO HELL kl. 10:30 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:50 L THE PROPOSAL kl. 8 L HARRY POTTER kl. 5 10 THE PROPOSAL kl. 5:50 LÚXUS VIP THE HANGOVER kl. 8:20 12 / KRINGLUNNI DISTRICT 9 kl. 8:10 - 10:30 16 FINAL DESTINATION4 kl. 8:303D - 10:303D 16 DIGITAL 3D BANDSLAM kl. 6 L DIGITAL 3D REYKJAVÍK WHALE.. kl. 8:30 - 10:30 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 63D L DIGITAL 3D

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.