Morgunblaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009 SKUGGINN sem hvílir yfir íslenskri þjóð í kjölfar Icesave- samningsins, fjölda- uppsagnir, atvinnu- leysi og verðbólga, háir vextir svo ekki sé minnst á verð- tryggingu lána er sú hryggðarmynd sem blasir við íslensku þjóðfélagi á komandi hausti. Algjört stefnuleysi stjórn- valda til að bjarga almenningi frá gjaldþroti þar sem lánin hækka og hækka og eignastaðan versnar með degi hverjum. Gengishrun og verðtrygging eru draugar sem draga alla niður í svað skulda og eymdar. Fyrirhuguð skjaldborg um hag heimila og loforð um leið- réttingu lána hafa verið innantóm orð og fyrirtækin leggja upp laup- ana eitt af öðru. Þessari harma- sögu verður að fara að ljúka. Það er deginum ljósara að aukinni skattlagningu ríkisins verður mætt af fullri hörku af hálfu al- mennings með minni neyslu sem gerir það að verkum að ríkið fær ekkert fyrir sinn snúð. Rík- isstjórnin hlýtur að vera búin að átta sig á því að aukin skattlagn- ing á neysluvörur skilar nánast engu í galtóman ríkiskassann. Sjávarútvegurinn hagnast á lágu gengi þessa dagana en hann einn getur ekki staðið undir þeim auknu útgjöldum sem ríkið þarf að standa skil á í framtíðinni. En það er ljós í myrkrinu. Fyr- irhuguð olíuvinnsla við Ísland og bjartsýnar spár um að þar sé að finna gríðarlegt magn af ol- íu og gasi á Dreka- svæðinu og nánast allt upp í landsteina norð-austanlands og hefur Skjálfandaflói þar oftast verið nefndur með Flatey á Skjálfanda sem bor- pall á besta stað. Sterkar vísbendingar eru um að olíu og gas sé að finna í setlögum á hafsbotni undir Skjálfandaflóa sem gefa þessum málaflokki byr undir báða vængi. Rétt er að geta þess að Alþingi veitti á sínum tíma fjármunum í tvígang fyrr á árum til að bora eftir olíu í Flatey á Skjálfanda og skilst mér að holan standi nú í 300-400 metrum og hafi verið það lengi. Þarna er verk að vinna fyrir bormenn Íslands eða spilar kannski pólitík þarna inn í? Löng er biðin búin að vera. Gaman væri að heyra hvað starfs- menn Orkustofnunar hafa um þetta mál að segja og skora ég á þá að gera hreint fyrir sínum dyr- um í þessu máli frá upphafi – öll spilin upp á borðið. Strax og það kæmi í ljós að olíu og gas væri að finna við Ísland myndi hagur þjóðarinnar nánast breytast á einni nóttu. Lánaleiðir myndu opnast og vextir af erlend- um lánum lækka. Gjaldeyrir myndi streyma til landsins og þús- undir starfa skapast. Fjárhags- vandi þjóðarinnar myndi leysast nánast af sjálfu sér. Í framhaldi af þessu er rétt að benda á þau fá- ránlegu skattaákvæði sem emb- ættismönnum þjóðarinnar hefur tekist að hengja á þennan mála- flokk og standa þessu verki fyrir þrifum. Þarna þarf að hengja góða beitu á öngulinn til að laða að fyr- irtæki í olíuleit og olíuvinnslu en ekki gera þeim erfitt fyrir með skattlagningu sem á sér enga hlið- stæðu. Þarna verður ríkisstjórnin að grípa snarlega inní og breyta þessum fráhrindandi skatta- reglum. Þá mun komast skriður á málin og hjólin fara að snúast. Ljóst er að samstarf við Norð- menn er æskilegt til að koma þessum málum af stað því að þekking og tækjakostur er til staðar í Noregi. Ríkisstjórn Íslands þarf að hafa hugrekki til að hrinda þessu máli úr vör. Gríðarlegir hagsmunir liggja þarna að baki og er þetta eina ljósið í myrkrinu sem mun koma íslenskri þjóð úr þeirri kreppu sem hún er nú í. Það má engan tíma missa og vænti ég þess að iðnaðarráðherra gangi í málið af fullum skörungsskap. Þetta er eina haldreipið sem við höfum. Höggva þarf á þann hnút sem múlbundið hefur íslenska þjóð. Leiðin út úr kreppunni Eftir Sigurjón Gunnarsson » Fyrirhuguð olíuleit við Ísland og bjart- sýnar spár um að þar sé að finna bæði olíu og gas – leiðin út úr krepp- unni. Sigurjón Gunnarsson Höfundur er matreiðslumeistari. FRÁ upphafi verka- lýðsbaráttu á Íslandi, á fyrri hluta síðustu aldar, hefur krafan um fulla atvinnu verið ein helsta krafa verka- lýðshreyfingarinnar. Sú krafa, ásamt kröf- unni um lífvænleg laun fyrir átta stunda vinnudag, er enn í gildi. Öllum nýjum at- vinnurekstri, sem stofnað var til, hefur verkalýðurinn fagnað þótt deilt væri um kaup og kjör. Næg atvinna var grundvallaratriði. Verkalýðshreyfingin var róttæk til vinstri. Foringjar hennar voru jafnframt forystumenn í þeim stjórnmálaflokkum sem voru lengst til vinstri í þjóðmálum. Þingmenn þeirra flokka beittu sér ávallt fyrir hvers konar atvinnuuppbyggingu og bættum efnahag þjóðarinnar. Nú er það liðin tíð. Forystumenn vinstriflokka nútímans láta sig at- vinnumál litlu skipta eða þvælast fyrir nútíma iðnvæðingu. Vinstri græn, sem þykjast vera lengst til vinstri íslenskra stjórnmálaflokka, og málsvari verkalýðsins, berjast af hörku gegn atvinnuuppbyggingu nútímans. Lykilorð í stefnu VG er „stóriðjustopp“ og var kynnt fyrir síðustu alþingiskosningar af einum núverandi þingmanni þeirra í Reykjavík. Lykilorðið var sagt hafa fjölþætta merkingu. Einkum þá að VG krefjast þess að öllum virkjunar- og stóriðjuáformum verði hætt. Öllum rann- sóknum í þágu orku- öflunar fyrir stóriðju verði hætt. Útgefin rannsóknarleyfi verði fryst. Aðeins verði leyft að ljúka rann- sóknarverkefnum sem þegar eru í gangi. Og þessi stefna VG er að ganga fram í ríkisstjórninni nú á sama tíma og þjóðin þarf, sem aldrei fyrr, á öfl- ugri atvinnustarfsemi að halda. VG halda því auk þess fram að með ál- framleiðslu Íslendinga sé verið að menga andrúmsloftið í þágu útlend- inga. Í „stóriðjustopp“-stefnu VG felst meira afturhald í atvinnumálum en áður hefur sést hjá íslenskum al- vöru stjórnmálaflokki. Andstaða VG gegn virkjun orku- linda landsins er ekki studd nein- um efnahagslegum rökum sem standast skoðun. Aðeins er rætt um eyðileggingu lands og náttúru, sem er ekki rétt. Undarlegast er hve margir hafa fallið fyrir ósönn- um áróðri VG og annarra svo- nefndra náttúruverndarsinna. Það er eins og margir skilji ekki að peningarnir verði til í atvinnulífinu. Auðlindir Íslendinga eru fiskimiðin, vatnsföllin og jarðhitinn. Þar er uppruni velmegunar undanfarinna ára. Það alrangt, sem ýmsir halda fram, að framleiðsla áls á Íslandi auki mengun andrúmsloftsins. Ál- framleiðsla með vatnsorku eða jarðhita á Íslandi dregur úr álfram- leiðslu með mengandi orkugjöfum í öðrum löndum. Þetta staðfesti dr. Rajendra K. Pachauri, formaður nefndar SÞ um loftslagsbreytingar, í sjónvarpsviðtali á RÚV 19. sept. sl. Þörf fyrir ál í heiminum er vax- andi og aukin notkun þess, t.d. í bíla, er orkusparandi og dregur þar með úr mengun. Ál verður því framleitt í heiminum meðan þörf er á því og markaður er fyrir það. Það er því hagkvæmt, vegna minni mengunar, að framleiða ál á Ís- landi. Efnahagur Íslendinga byggir á viðskiptum við útlönd og hefur allt- af gert það. Íslendingar efnuðust á því að veiða fisk fyrir útlendinga. Afurðir framleiddar með tilstyrk orkulindanna munu reisa við og viðhalda góðum efnahag íslendinga, nái afturhaldsöflin ekki að hindra það með því að nýta þær ekki eða selja þær í hendur útlendinga. Náttúruauðlindir landsins verða umfram allt að vera í fullri eigu og umráðum Íslendinga. Vinstri græn framkvæma nú í ríkisstjórninni stefnu flokksins, sem er í raun að viðhalda þeirri kreppu og atvinnuleysi, sem varð eftir bankahrunið, enn lengur en ella. Lykilorð stefnu þeirra, fyrir síðustu alþingiskosningar, sem var „stóriðjustopp“, er því að komast í framkvæmd. Framganga VG í því að hindra nýtingu íslenskra nátt- úruauðlinda til hagsbóta fyrir þjóð- ina í heild er öllum sem vilja end- urreisn og framþróun íslensks atvinnu- og efnahagslífs áhyggju- efni. Það að stjórnmálaflokkur, sem að verulegu leyti snýst um slíka afturhaldssemi, hafi veruleg áhrif í ríkisstjórn hjá jafn upplýstri þjóð og Íslendingar eru er mjög und- arlegt. Náttúruvernd er hjá VG orðin að öfgatrúarbrögðum sem vilja hindra alla skynsamlega nýt- ingu náttúrunnar. Eftir Árna Þormóðsson » Andstaða VG gegn virkjunum orkulinda landsins er ekki studd neinum efnahagslegum rökum sem standast skoðun. Árni Þormóðsson Höfundur er næturvörður. Á afturhald VG að ráða? Yfir 33.000 heimsóknir á viku– meira fyrir áskrifendur Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00 mánudaginn 28. september. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105, kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um vinnuvélar, atvinnubíla, jeppa, pallbíla, fjölskyldubíla og fl. föstudaginn 2. október 2009. Í þessu blaði verða kynntar margar þær nýjungar sem í boði eru fyrir leika og lærða Meðal efnis verður : Vinnuvélar Námskeið um vinnuvélar. Atvinnubílar. Fjölskyldubílar. Pallbílar. Jeppar. Nýjustu græjur í bíla og vélar. Varahlutir. Dekk. Vinnufatnaður. Hreyfing og slökun atvinnubílstjóra. Ásamt fullt af öðru spennandi efni og fróðleiksmolum. Vinnuvélar og bílar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.