Morgunblaðið - 23.09.2009, Blaðsíða 36
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009
Kvikmynd Óskars Jónassonar,
Reykjavík-Rotterdam, hefur verið
valin sem framlag Íslands til Ósk-
arsverðlaunanna að þessu sinni.
Það er Íslenska kvikmynda- og
sjónvarpsakademían sem stendur
að valinu. Aðrar myndir sem komu
til greina voru Reykjavík Whale
Watching Massacre, Heiðin, Skrapp
út, Sveitabrúðkaup og Stóra planið.
Nú er það bara spurningin: vinna
Íslendingar Óskarinn?
Reykjavík-Rotterdam í
forval fyrir Óskarinn
Fólk
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
DR. Gunni, Gunnar Lárus Hjálmarsson, stefnir að því að gefa
út rokkrit sitt Eru ekki allir í stuði?: rokk á Íslandi á síðustu
öld, frá árinu 2001, í uppfærðri útgáfu á næsta ári. Dokt-
orinn er ekki búinn að finna sér útgefanda en segir það frek-
ar spurningu um að velja forlag, því þau muni án efa öll bí-
tast um bókina. „Það vilja allir að sjálfsögðu gefa þetta út,
ég á bara eftir að ákveða hver verður sá heppni,“ segir dokt-
orinn kíminn. „Á næsta ári verður náttúrlega kominn áratug-
ur í viðbót og þar sem bókin hefur ekki verið til ár-
um saman þá er fínt að koma með hana aftur í
endurskoðaðri útgáfu og öðruvísi í lúkki,“ seg-
ir hann. „Þótt það hafi nú svosem ekkert
gerst af viti á þessum tíu árum,“ bætir hann
við og hlær kvikindslega. Stefnan er sett á jólabókaflóðið
2010.
Vill fá Bubba og KK í þáttinn
Spurningaþætti Dr. Gunna og Felix Bergssonar,
Popppunkti, lauk síðasta föstudag með æsispennandi
lokakeppni Ljótu hálfvitanna og Jeff Who? þar sem
hálfvitar höfðu sigur. „Jú, mér skilst það,“ svarar Dr.
Gunni, spurður að því hvort Popppunktur verði ekki
sýndur áfram í Sjónvarpinu á næsta ári. „Ég er nátt-
úrlega strax búinn að taka saman hvaða bönd eiga eftir
að koma og það er alls konar gúmmelaði sem á eftir að
detta inn,“ segir doktorinn og segist til dæmis gjarnan
vilja fá Bubba Morthens og KK til keppni.
Áratugur af rokki bætist við hjá doktornum
Tónlistarmaðurinn Bubbi Mort-
hens er ólíkindatól, eins og marg-
oft hefur komið fram. Í nýjustu út-
gáfu Lögbirtingablaðsins kemur
fram að Bubbi hafi stofnað fyrir-
tækið B Morthens ehf. Í stjórn fyr-
irtækisins sitja hann og eiginkona
hans, Hrafnhildur Hafsteinsdóttir.
Þá segir að tilgangur fyrirtækisins
sé meðferð höfundarréttar og tón-
listarflutnings, tónlistarstarfsemi,
rekstur fasteigna og skyldur rekst-
ur. Þegar Bubbi var spurður út í
málið sagðist hann ekki geta tjáð
sig að svo stöddu.
Bubbi Morthens stofn-
ar B Morthens ehf.
„Við erum að
draga saman seglin
fyrir veturinn sem
lítur út fyrir að verða
erfiður,“ segir Ari
Sigvaldason, eig-
andi ljósmyndaversl-
unarinnar Fótógrafí
við Skólavörðustíg, sem flutt verð-
ur í minna húsnæði við götuna, í
hús nr. 22, og opnuð í byrjun októ-
ber. Afgreiðslutími verður eitthvað
styttur. Ari er í leit að starfi með-
fram verslunarrekstri enda veltan
mun lakari að vetri til en sumri,
sérstaklega eftir að kreppan skall
á. Ari er einn þriggja eigenda versl-
unarinnar og segir þá ekki að
leggja árar í bát þrátt fyrir þessar
breytingar.
Fótógrafí fikrar sig upp
Skólavörðustíginn
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA var rosalega skemmtilegt
verkefni,“ segir Snorri Sturluson
hjá kvikmyndafyrirtækinu Snorri
Bros. í New York sem tók nýverið
að sér að gera auglýsingu með
sjálfum Dennis Hopper.
Auk Snorra standa þeir Eiður
Snorri Eysteinsson og Einar
Snorri Einarsson að Snorri Bros.
sem starfrækt er bæði í Bandaríkj-
unum og Evrópu, en Snorri og Eið-
ur unnu að auglýsingunni með
Hopper. Þeir félagar eru bæði
kvikmyndagerðarmenn og ljós-
myndarar og vinna sem slíkir að
auglýsingum, tónlistarmyndböndum
og fleiru.
„Við unnum þetta verkefni fyrir
bandaríska sjónvarpsstöð, Starz,
sem framleiðir þætti sem heita
Crash og eru byggðir á samnefndri
óskarsverðlaunamynd frá 2004.
Þeir fengu okkur sem sagt til að
gera auglýsingu fyrir þá þætti,“
segir Snorri og bætir því við að
fyrirtækið hafi ekki viljað fara
hefðbundnar leiðir og gera stiklu
upp úr þáttunum, heldur gera eitt-
hvað nýtt.
„Þannig að við gerðum bæði
sjónvarpsauglýsingu og svo auglýs-
ingar fyrir prentmiðla, sem er
raunar stærri hlutinn af þessu.
New York og Los Angeles eru til
dæmis undirlagðar undir þessar
auglýsingar, það eru auglýs-
ingaskilti úti um allt og svo keyra
tveggja hæða strætisvagnar um
götur borganna sem þaktir eru
þessum auglýsingum. En svo er
þetta í sjónvarpi, blöðum, kvik-
myndahúsum, á netinu og víðar.“
Goðsögn
Auglýsingarnar voru gerðar í
Los Angeles um miðjan ágúst, en
þeir félegar fengu aðeins tvo daga í
tökur enda stórstjörnur á meðal
leikaranna.
„Þarna voru leikarar á borð við
manni er alveg stórkostleg, og hún
smitar út frá sér. Hann er nátt-
úrlega stærsta stjarnan í þessum
leikarahópi og það var augljóst að
hann var „mentorinn“ í hópnum.“
Fyrsti þáttur í þessari annarri
þáttaröð af Crash var sýnd í
Bandaríkjunum í síðustu viku, en
þættirnir njóta töluverðra vinsælda
vestanhafs.
Aðspurður segir Snorri að verk-
efnið geti vissulega vakið aukna at-
hygli á þeim félögum.
„Já það vekur alltaf athygli ef
maður vinnur með svona miklu
hæfileikafólki, engin spurning.“
var að gera,“ segir Snorri.
En hvernig var að vinna með
sjálfum Dennis Hopper?
„Hann er náttúrlega ein mesta
goðsögnin í þessum kvikmynda-
heimi og þegar hann mætti á töku-
stað sló þögn á mannskapinn – það
myndaðist svona „Mr. Hopper has
arrived“-stemning. Það er samt
ekki frá honum komið, fólk ber
bara svo mikla virðingu fyrir hon-
um. Hann er hins vegar algjör
snillingur og ótrúlega ljúfur og
góður maður,“ segir Snorri, en
Hopper er ekkert unglamb lengur
– fæddur árið 1936.
„En þegar hann er fyrir framan
myndavélina og heyrir orðið
„action“ yngist hann um 25 ár.
Orkan sem kemur frá þessum
Dennis Hopper og Eric Roberts.
Þau voru öll einstök ljúfmenni en
jafnframt miklir atvinnumenn. Það
gekk allt eins og smurt enda vissi
þetta fólk nákvæmlega hvað það
Þögn þegar Hopper mætti
Kvikmyndagerðarmennirnir Snorri Sturluson og Eiður Snorri Eysteinsson
gerðu auglýsingu með bandaríska leikaranum Dennis Hopper í Los Angeles
Með risa Jocko Sims, einn leikaranna í Crash, Eiður Snorri, Dennis Hopper og Snorri Sturluson bregða á leik.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
GUNNAR Traustason, eigandi
Apóteksins, mun brátt opna nýjan
veitingastað, P, í hluta þess rýmis
sem áður hýsti veitinga- og
skemmtistaðinn Apótekið. Apótekið
verður þó áfram á sínum stað og
heldur óbreyttri starfsemi. Gengið
verður inn á hinn nýja stað frá
Pósthússtræti og vísar nafn stað-
arins í heiti götunnar.
„Veggurinn sem skilur að þessa
tvo staði er hannaður af hljóðverk-
fræðingi, sjöfaldur gifsveggur.
Þannig að þú getur verið með þotu-
hreyfil í gangi öðrum megin en átt
ekki að heyra í honum hinum meg-
in,“ segir Gunnar. Spurður hvort
hann hafi í hyggju að koma fyrir
þotuhreyfli segir hann svo ekki
vera.
Elegant og kósí
„P er staður fyrir 25 ára og
eldri, opinn á daginn og verður
með flotta, létta rétti í hádeginu og
svoleiðis. Veitingastaður með létta
rétti skulum við kalla það, hannað í
svona art deco-/nútímastíl. Ef ég á
að lýsa þessu í stuttu máli þá verð-
ur þetta elegant, kósí staður. Ég
fékk einmitt konu til að hjálpa mér
að hanna staðinn, fá þetta kvenlega
touch,“ segir Gunnar. Hann stefnir
að því að opna P í október en ná-
kvæm dagsetning liggur ekki fyrir.
Spurður hvort bílastæðamerkið
góðkunna, P-ið, hafi veitt mönnum
innblástur við gerð merkis veit-
ingastaðarins nýja segir Gunnar
svo ekki vera, hann vilji alls ekki
að merki staðarins beri keim af
bílastæðamerkinu.
Þolir hávaða úr þotuhreyfli
Morgunblaðið/Frikki
Gunnar Fyrir utan Apótekshúsið en í því verður brátt veitingastaðurinn P.
Hljóðverkfræðingur hannaði sjöfaldan gifsvegg til að skilja
að Apótekið og nýjan veitingastað við Pósthússtræti, P
Dennis Hopper þarf vart að
kynna, enda ferill hans með
ólíkindum. Á meðal mynda sem
hann á að baki má nefna Rebel
Without a Cause (1955), Giant
(1956), Easy Rider (1969),
Apocalypse Now (1979), Blue
Velvet (1986), True Romance
(1993) og Speed (1994).
Einn sá flottasti
Dr. Gunni Veit nánast allt um rokk og popp.
Sjá má auglýsingarnar úr Crash á
heimasíðunni snorribros.com.