Morgunblaðið - 23.09.2009, Side 7

Morgunblaðið - 23.09.2009, Side 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009 FYRIRTÆKIÐ LS Retail tilkynnti í gær að það hefði selt Microsoft hugbúnaðarlausn sína, er nefnist LS Retail AX. Er þetta ein stærsta hug- búnaðarsala Íslandssögunnar og mun upphæðin vera gríðarhá. „Til marks um stærð samningsins má geta þess að 200 manna teymi Microsoft sem átti að kaupa Yahoo! var í staðinn sett í að ganga frá þess- ari sölu,“ segir Gunnar Björn Gunn- arsson, framkvæmdastjóri LS Reta- il. „Við höfum í samvinnu við Microsoft ákveðið að gefa ekki upp nákvæmar tölur en þær eru mjög háar,“ sagði Gunnar. Hann sagði Microsoft vera búið að borga og væru peningarnir allir komnir til landsins. LS Retail er nú þegar með uppsetningar í 140 löndum. Meðal viðskiptavina eru til dæmis Adidas og IKEA. Hlutabréf LS Retail voru í eigu Baugs en færðust yfir til Straums. Samkvæmt frétt Stöðvar 2 í gær gæti þrotabú Baugs krafist þess að verðmat hlutabréfanna yrði endurmetið, til lækkunar á kröfu Straums í Baug. sigrunerna@mbl.is LS Retail gerir risa- samning við Microsoft ALÞINGI, 138. löggjafarþingið, kemur saman fimmtudaginn 1. október nk. Er undirbúningur þingstarfanna í fullum gangi, sam- kvæmt upplýsingum Helga Bern- ódussonar skrifstofustjóra. Jó- hanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun halda stefnuræðu sína mánudaginn 5. október. Samkvæmt venju hefst þingsetn- ingarathöfnin með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan 13.30. Jón Baldvinsson, vígslubiskup á Hól- um, predikar. Að lokinni guðsþjón- ustu verður gengið til þinghússins þar sem Ólafur Ragnar Grímsson forseti setur þingið. Jóhanna Sigurðardóttir, aldursforseti þings- ins, mun stjórna þingfundi þar til forseti Alþingis hefur verið kjör- inn. sisi@mbl.isMorgunblaðið/Kristinn Alþingi verður sett í næstu viku Stefnuræðan verður flutt 5. október VEGAGERÐIN og Reykjavíkur- borg hafa óskað eftir tilboðum í verkið „Hring- vegur (1) á Kjal- arnesi, undirgöng við Grundar- hverfi“. Um er að ræða gerð stál- bogaundirganga undir hringveginn við Grundarhverfi á Kjalarnesi ásamt gerð göngustíga við göngin að Klébergsskóla. Einnig gerð bráða- birgðavegar, ýmsa lagnavinnu, lýs- ingu og tilheyrandi landmótun. Til- boðum í verkið skal skila í síðasta lagi 6. október nk. Verkinu á að vera að fullu lokið 1. maí 2010. Íbúar í Grundarhverfi á Kjalar- nesi hafa lengi barist fyrir því að undirgöng yrðu gerð undir Vestur- landsveginn. Stóðu þeir fyrir að- gerðum í sumar til að leggja áherslu á kröfur sínar. Í framhaldinu var ákveðið að taka verkið á dagskrá auk þess sem Vegagerðin útbjó bráðabirgðaundirgöng í gömlu ræsi sem liggur undir veginn. sisi@mbl.is Undirgöng á Kjalarnesi boðin út NAME IT SMÁRALIND S: 544 4220 / KRINGLAN S: 568 4344 FLÍSPEYSUR 2490 Str. 74-140 GALLABUXUR 2490 Str. 74-140 Takmarkað magn 2 NÁTTGALLAR 1490 s Str. 50-98 2 LANGERMABOLIR 1990 Str. 74-140 5 SAMFELLUR 1990 Str. 50-98 KJÓLAR 2990 Str. 74-140 2 LEGGINGS 1990 Str. 74-140 AFMÆLISVEISLA NAM E IT 23.-30. SEPTEMBER ÓTRÚLEG AFMÆLISTI LBOÐ PRJÓNAPEYSUR 2490 Str. 74-140 GUÐLAUGUR Jónsson, Gulli hár- greiðslumeistari, andaðist á líknar- deild Landspítalans í Fossvogi 21. september sl. eftir baráttu við krabbamein. Útför hans verður frá Dómkirkjunni kl. 11 á föstudag. Guðlaugur var frá Svefneyjum á Breiðafirði og ólst upp í Stykkis- hólmi. Hann fæddist 29. október 1931 og var því nær 78 ára. Eftir að hafa útskrifast sem rak- ari í Reykjavík lærði hann hár- greiðslu í Kaupmannahöfn og hóf síðan störf hjá Hauki Óskarssyni við Kirkjutorg. Guðlaugur tók við rekstri stofunnar þegar Haukur féll frá og rak hana undir nafninu Hár- greiðslustofan Nikk í tvo áratugi eða þar til húsnæðið var selt 2006. Guðlaugur setti sinn svip á mið- bæinn í Reykjavík og var einn sá fyrsti til þess að opinbera samkyn- hneigð sína í borginni. Hann varð fyrir miklu mótlæti þess vegna en lét það ekki á sig fá og hélt ævinlega sínu striki. Guðlaugur lætur eftir sig son, tengdadóttur og fjögur barnabörn. Andlát Guðlaugur Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.