Morgunblaðið - 23.09.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009
Ætla má að það hafi komið stuðn-ingsmönnum álvera og stór-
iðju þægilega á óvart að Rajendra
K. Pachauri, formaður milliríkja-
nefndar Sameinuðu þjóðanna um
loftslagsbreytingar og handhafi
friðarverðlauna Nóbels, skyldi lýsa
því yfir að betra væri að knýja ál-
bræðslur hér með endurnýjanlegri
orku en með jarðefnaeldsneyti ann-
ars staðar.
Margir hafa ef til vill átt von áþví að Pachauri myndi gefa
sjónarmiðum náttúruverndarsinna
meiri gaum, en hins vegar er senni-
legt að hann líti á loftslagsmálin í
hnattrænu samhengi.
Eða hvað?
Árni Finnsson,formaður
Náttúruvernd-
arsamtaka Ís-
lands, setur í
samtali í Morg-
unblaðinu í gær
spurningarmerki við ummæli nób-
elsverðlaunahafans.
Árni telur að Ólafur RagnarGrímsson, forseti Íslands, hafi
dregið upp glansmynd af frammi-
stöðu Íslands í loftslagsmálum í
samtölum við Pachauri.
Hefði Pachauri vitað að Íslend-ingar losuðu árlega næstum
því 17 tonn af koldíoxíði á mann
hefði hann vart látið út úr sér að Ís-
land væri forusturíki í loftslags-
málum.
Á tímum útrásarinnar var forset-inn iðinn við að draga upp
glansmyndir af hinni íslensku úr-
valsþjóð.
Það er erfitt að láta af gömlumsiðum.
Rajendra K.
Pachauri
Glansmynd handa nóbelshafa?
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 7 alskýjað Lúxemborg 22 heiðskírt Algarve 25 léttskýjað
Bolungarvík 5 skýjað Brussel 22 heiðskírt Madríd 26 léttskýjað
Akureyri 4 alskýjað Dublin 16 skýjað Barcelona 26 léttskýjað
Egilsstaðir 4 skýjað Glasgow 15 skýjað Mallorca 22 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 7 skýjað London 20 skýjað Róm 25 léttskýjað
Nuuk 2 þoka París 24 heiðskírt Aþena 22 léttskýjað
Þórshöfn 11 léttskýjað Amsterdam 18 léttskýjað Winnipeg 16 skýjað
Ósló 17 léttskýjað Hamborg 20 heiðskírt Montreal 17 alskýjað
Kaupmannahöfn 18 skýjað Berlín 22 skýjað New York 22 alskýjað
Stokkhólmur 16 skýjað Vín 23 léttskýjað Chicago 22 alskýjað
Helsinki 15 skúrir Moskva 16 skýjað Orlando 32 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
23. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2.44 0,5 9.01 3,8 15.14 0,7 21.19 3,5 7:15 19:26
ÍSAFJÖRÐUR 4.51 0,3 11.00 2,2 17.26 0,5 23.14 1,9 7:19 19:31
SIGLUFJÖRÐUR 1.18 1,3 7.09 0,3 13.25 1,3 19.32 0,2 7:02 19:14
DJÚPIVOGUR 6.05 2,3 12.29 0,5 18.16 1,9 6:44 18:56
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á fimmtudag
Suðvestanátt, yfirleitt 8-13
m/s, en heldur hægari á Vest-
fjörðum. Víða rigning í fyrstu,
en síðan skúrir og léttir til aust-
anlands. Hiti 6 til 12 stig.
Á föstudag og laugardag
Ákveðin suðvestanátt með
rigningu eða skúrum, en yf-
irleitt þurrt norðaustan- og
austanlands. Hiti 3 til 11 stig.
Á sunnudag
Vestlæg átt með skúrum í flest-
um landshlutum. Áfram fremur
svalt í veðri.
Á mánudag
Útlit fyrir norðlæga átt með úr-
komu fyrir norðan og austan og
kólnandi veðri.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Suðvestan 3-8, bjart á Norð-
austur- og Austurlandi, annars
víða skúrir. Hiti 5 til 10 stig.
„ÉG velti því fyrir mér hvort það
nægi að læra af sögunni. Er ekki
mikilvægara að horfast í augu við
hana og takast á við þann fortíðar-
vanda sem við stöndum frammi fyr-
ir,“ segir Irma Erlingsdóttir, for-
stöðukona Rannsóknarstofu í
kvenna- og kynjafræðum (RIKK),
um þátt sinn í málþingi sem beinir
sjónum að endurreisn á grundvelli
jafnréttis. Málþingið er liður í Jafn-
réttisdögum sem hefjast í Háskóla
Íslands í dag og lýkur nk. föstudag.
Að mati Irmu þarf nauðsynlega
að fara fram samtímalegt endurmat
og þar eru háskólarnir og hlutverk
þeirra í kerfishruninu ekki und-
anskildir. „Því háskólinn getur ekki,
frekar en aðrar stofnanir, verið
stikkfrír og ber ekki minni ábyrgð
en aðrir á þessu hruni og hug-
myndafræðinni sem hér var allsráð-
andi.“ Spurð
hvernig slíkt
endurmat fari
best fram segir
Irma mikla þörf
á gagnrýnum og
óháðum rann-
sóknum. „Það
má segja að
kynja- og jafn-
réttisfræði hafi
þróað aðferðir og kenningar sem ég
tel að gætu nýst við slíkar rann-
sóknir og við slíka gagnrýna endur-
skoðun, vegna þess að þetta er
kerfishrun sem kallar á samfélags-
legar breytingar, róttækar aðgerðir
og breytta lífssýn. Allt þetta af-
hjúpar einhverjar kerfisveilur sem
kynjafræðin er sérþjálfuð í að tak-
ast á við,“ segir Irma og hvetur
fræðimenn af ólíkum sviðum til
þess að sækja um styrki til öndveg-
issetursins EDDA til þess að skoða
efnahagshrunið. Setrið fær 35 millj-
óna króna styrk á ári næstu sjö ár-
in frá vísinda- og tækniráði. Dag-
skrá Jafnréttisdaga, sem er afar
fjölbreytt og efnismikil, má finna á
vefnum: jafnretti.hi.is. silja@mbl.is
Nægir að læra bara af sögunni?
Jafnréttisdagar hefjast í Háskóla
Íslands í dag og standa til föstudags
Irma Erlingsdóttir
HANNA Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri opnaði í gær fyrstu vistgötur
Reykjavíkur, Haðarstíg og Válastíg, sem liggja á milli Freyjugötu og
Nönnugötu. Viðstaddir voru nokkrir borgarfulltrúar og íbúar úr götunum.
Höfðu íbúar við Haðarstíg óskað eftir þessari breytingu við hverfisráðið.
Vistgötum er ætlað að auka umhverfisgæði, m.a. með 15 km hámarkshraða
ökutækja um þær.
Vistgötur í Reykjavík
RAGNHEIÐUR Hergeirsdóttir,
bæjarstjóri Árborgar, hefur ákveðið
að gefa ekki kost á sér í næstu sveit-
arstjórnarkosningum. Ragnheiður
hefur verið bæjarstjóri í Árborg í
tæp þrjú ár og er þetta hennar ann-
að kjörtímabil. Ragnheiður sagði í
samtali við mbl.is að ákvörðunin
væri persónuleg. Tími væri til kom-
inn að hleypa nýju fólki að. Enginn
hefur enn boðið sig fram í odd-
vitasæti Samfylkingar í Árborg en
Ragnheiður sagðist meðal annars
hafa tilkynnt um ákvörðun sína til
þess að gefa fólki
umhugsunartíma.
Ragnheiður sagði
stærstu verk-
efnin nú vera að
endurskoða fjár-
mál Árbogar og
að ráðist yrði í
verulega hagræð-
ingu og niður-
skurð. „Þá verður
búið að taka stóru
og erfiðu ákvarðanirnar þegar kosn-
ingar verða.“
Gefur ekki kost á sér aftur
Ragnheiður
Hergeirsdóttir