Morgunblaðið - 23.09.2009, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009
Morgunblaðið/Golli
Unga kynslóðin Mun birta til hjá Íslendingum von bráðar eða mun unga
fólkið sitja með skuldaklafa sem fyrri kynslóðir stofnuðu til?
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
STJÓRNVÖLD standa nú frammi
fyrir því risavaxna verkefni að koma
böndum á ríkisreksturinn. Óhætt er
að fullyrða að í annan tíma hefur
verkefnið varla verið jafnerfitt.
Spurningin er hvernig best er að
vinna úr málunum en margir gagn-
rýna fjárlögin sem úrelt og kalla eftir
breytingum. En hvernig er hægt að
ná settum markmiðum? Er flatur nið-
urskurður rétta leiðin? Er betra að
tína 25% af hér og loka annars stað-
ar? Eru ekki til stofnanir sem þola
meiri niðurskurð en hinn flata, sem
virðist vera vinsælasta leiðin? Á hinn
bóginn eru til stofnanir sem engan
niðurskurð þola og þarf að hlífa.
Vart er hægt annað en hafa samúð
með þeim sem vinna að fjárhagsáætl-
unum fyrir hið opinbera. Fjárlaga-
gerðin er flókin og erfitt að segja til
um fyrirfram hvernig t.d. verðlag
þróast. Flestir viðmælendur Morg-
unblaðsins eru sammála um að skera
þurfi fjárlögin algjörlega upp og
hugsa þau upp á nýtt þó að sú vinna
„geti tekið mörg ár“, eins og einn orð-
aði það. „Mér finnst fjárlaga-
frumvarpið eins og það hefur þróast í
áranna rás vera úrelt fyrirbæri,“ seg-
ir einn viðmælandi og bætir því svo
við að erfitt myndi reynast að finna
einhvern hjá hinu opinbera sem væri
tilbúinn að segja þetta opinskátt.
„Menn setjast alltaf með sama plagg-
ið, taka 10% af þessu og 10% af hinu.
Þetta er svo mikið plokk og það er
aldrei horft yfir þetta heildrænt. Við
þurfum að hugsa til þess að loka
stofnunum, færa til, sameina eða
brjóta upp. Það skortir mjög á þessa
nálgun hjá okkur,“ segir hann og
hnykkir á að stjórnsýslan sé alltof
flókin.
Í skýrslu ríkisendurskoðunar um
framkvæmd fjárlaga 2007 og árs-
áætlanir 2008 kemur eftirfarandi
fram: „Í markmiðum ríkisfjármála
2007-2010 sem lögð voru fram með
fjárlögum 2007 segir: fylgt verði að-
haldssamri stefnu í ríkisfjármálum.
Þannig verði árlegur vöxtur sam-
neyslu að jafnaði ekki umfram 2,0%
að raungildi og hækkun tilfærslu út-
gjalda að jafnaði ekki umfram 2,5%
að raungildi. Útgjaldaheimildir ársins
2007 hjá A-hluta ríkissjóðs voru 66
ma.kr. hærri en útgjöld ársins 2006.
Hækkunin nemur rúmlega 19%.
Sambærileg hækkun milli áranna
2005 og 2006 var um 14%. Að teknu
tilliti til verðlagshækkana er þó ljóst
að raunaukning útgjalda er nokkuð
umfram markmiðin.“ (bls. 9)
Endanlegar heimildir hærri
Í skýrslunni kemur einnig fram að
endanlegar útgjaldaheimildir eru
jafnan umtalsvert hærri en heimildir
fjárlaga og er vanmatið kerfisbundið.
„Ríkisendurskoðun telur þetta end-
urspegla það sjónarmið stjórnvalda
að fjárlögin séu fremur áætlun en
bindandi fyrirmæli.“ (bls. 10)
„Í nóvember 2007 sendi Ríkisend-
urskoðun fjárlaganefnd umsögn sína
um fjáraukalagafrumvarp 2007 að
beiðni nefndarinnar. Þar ítrekar
stofnunin m.a. það mat að hinn mikli
tilflutningur fjárheimilda milli fjár-
lagaára sé ekki bara til þess fallinn að
veikja fjárlög sem stjórntæki heldur
gefi einnig ranga mynd af raunveru-
legum rekstri ríkissjóðs.“ (bls. 15) Í
þessari sömu skýrslu og samsvarandi
skýrslu fyrir 2006 kemur ítrekað
fram að endanlegar útgjaldaheimildir
eru jafnan umtalsvert hærri en heim-
ildir fjárlaga. „Sú venja hefur með
öðrum orðum skapast að fjárlögin séu
ekki endanlegur útgjaldarammi eða
því sem næst heldur einungis „fyrstu
drög“ að útgjöldum ársins. Þetta staf-
ar annars vegar af því að útgjöld rík-
isins virðast ítrekað vanmetin við
fjárlagagerð og hins vegar af því að
framkvæmdavaldið virðist ekki
megna að framfylgja vilja Alþingis
um útgjaldaramma ársins.“ (bls. 9)
Risavaxið verkefni
bíður stjórnvalda
Verkefnið hefur vart verið jafnerfitt og hvernig er hægt að ná settum markmiðum?
Ríkisendurskoðandi segir þá venju hafa skapast að litið sé á fjárlögin sem „fyrstu drög“
Niðurskurður Skófluna ber við ríkisstofnanir. Niðurskurðarhnífurinn þarf að koma víða við til að böndum verði komið á ríkisreksturinn.
Fasteignir ríkissjóðs er stofnun
undir fjármálaráðuneytinu og hef-
ur umsjón með embættis-
bústöðum víða um land. Stofn-
unin umsýslar 23 slíka bústaði.
Fjármálaráðuneytið hefur þannig
umsjón og umsýslu með bústöð-
um sem notaðir eru sem bústaðir
sýslumanna, skattstjóra og hér-
aðsdómara á þeim svæðum sem
heimilt er að hafa slíka bústaði.
Rekstrargjöld vegna ársins
2008 voru 27 m.kr. en tekjur á
móti námu 14,3 m.kr. Gerður hef-
ur verið samningur við heilbrigð-
isráðuneytið um að allir bústaðir
þess ráðuneytis, 61 bústaður, fari
í umsýslu stofnunarinnar en sá
samningur komst til framkvæmda
á þessu ári og tekjur og gjöld
vegna þeirra liggja ekki fyrir í
fjármálaráðuneytinu vegna síð-
asta árs og tekjur og gjöld vegna
þessa árs varla marktæk.
„Ríkið hefur á undanförnum ár-
um reynt að draga úr notkun
embættisbústaða eins og kostur
er,“ segir Hafsteinn S. Haf-
steinsson, lögfræðingur á fjár-
reiðu- og eignaskrifstofu fjár-
málaráðuneytisins. Hann segir
jafnframt ljóst að sumir starfs-
menn ríkisins, t.d. læknar, hafi
sinnt verkefnum á ýmsum stöðum
um landið og í mörgum tilvikum
hefði verið erfitt að manna slíkar
stöður ef gerð væri krafa um að
þeir fjárfestu í húsnæði við töku á
starfi úti á landi. „Vegna þessa og
vegna þess að skipunartími
manna er tímabundinn til fimm
ára í senn hefur ekki verið talið
forsvaranlegt að leggja þá alveg
af,“ segir Hafsteinn. Það kemur
m.a. til af því að sums staðar er
það lítil hreyfing á fasteignamark-
aðnum að gera má ráð fyrir, í ein-
hverjum tilvikum, að viðkomandi
starfsmaður geti átt í verulegum
erfiðleikum með að selja eign sína
á ný við lok skipunartíma eða
vegna flutnings í starfi. „Ríkið
hefur þó þrengt verulega að notk-
un slíkra bústaða, t.d. hafa kenn-
arabústaðir nánast alveg verið af-
lagðir,“ segir Hafsteinn.
Reynt að draga úr notkun embættisbústaða
Ráðstöfun ríkisfjármuna
Í fjárlögum 2009, sem afgreidd voru
frá Alþingi 22. desember 2008, er
undir hatti forsætisráðuneytis lið-
urinn ýmis verkefni. Þar undir er úr-
skurðarnefnd upplýsingalaga með
fjárveitingu upp á 5,3 milljónir,
efnahagsrannsóknir 49,9 milljónir,
ráðgjöf vegna breytinga í heilbrigðis-
og tryggingamálum 18,4 og und-
irbúningur að hátíðarhöldum vegna
tveggja alda afmælis Jóns Sigurðs-
sonar forseta 30,2 milljónir.
Rekstur Námsmatsstofnunar er
dýr og á fjárlögum fær hún 173,4
milljónir. Hún tilheyrir mennta-
málaráðuneyti. Undir því eru einnig
liðirnir alþjóðlegar samstarfsáætlanir
á sviði vísinda 20 milljónir, mark-
áætlun á sviði vísinda og tækni 315
milljónir og almennur rekstur rann-
sóknasjóðs 834 milljónir, Tækja-
sjóður 145 milljónir, Rannsókn-
arnámssjóður 100 milljónir og
almennur rekstur Listasjóðs 362
milljónir! Leikmaður spyr: hvað er
þetta allt saman? Og undir mennta-
málaráðuneyti er Kvikmyndamiðstöð
Íslands og undirliður í henni (1.10) er
Kvikmyndasjóðir 590 milljónir. Lið-
urinn 02-982 Listir, framlög hefur
fjölmarga undirliði og án efa alla
verðuga. Gjöld þess liðar eru 918
milljónir.
Fiskistofa er undir sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneyti og á fjárlögum
eru henni ætlaðar 833 milljónir.
Fiskistofa rekur 13 manna tölvudeild
sem einnig þjónustar Hafrannsókna-
stofnun. Karítas Jónsdóttir hjá Fiski-
stofu segir rekstrarkostnað tölvu-
deildarinnar á síðasta ári hafa verið
102,3 miljónir kr. „Inni í þeirri tölu
eru öll leyfisgjöld fyrir hugbúnað okk-
ar. Tölvudeild Fiskistofu sér um við-
hald og uppbyggingu gagnagrunna
og þjónustu við notendur Fiskistofu,
Hafrannsóknastofnunar, SRA og 59
hafnir allt í kringum landið vegna
afladagbóka og aflaskráningar í
gagnagrunn Fiskistofu og lönd-
unarhafna (GAFL),“ segir hún jafn-
framt og tiltekur ýmis önnur verkefni
tölvudeildarinnar.
04-417 er númer liðarins Rann-
sóknasjóður til að auka verðmæti
sjávarfangs og fær 335 milljónir í
fjárlögum. Undirliður Landgræðslu
og skógræktar í þágu landbúnaðar er
rannsóknir í skógrækt í þágu land-
búnaðar. 25,4 milljónir fóru í það og
í almennan rekstur Fóðursjóðs 115
milljónir.
Dóms- og kirkjumálaráðuneyti er
með í sínum áætlunum Kristnisjóð
sem á fjárlögum fær 94,5 milljónir.
Sérstaka athygli vekur liðurinn laun
vegna forfalla, orlofs o.fl. hjá félags-
og tryggingamálaráðuneyti með 18
milljónir. Svo sem ekki há upphæð
en eftirtektarvert að slíkur liður fái
sérnúmer á fjárlögum. Að ekki sé tal-
að um liðinn Fræðslusamtök um kyn-
líf og barneignir sem fá 1,2 milljónir.
Hjá fjármálaráðuneyti fær liðurinn
þróunarmál í upplýsingatækni sér-
stakt númer og upphæðin er 13,2
milljónir. Lágu upphæðirnar skjóta
víða upp kollinum og samgöngu-
ráðuneyti er með lendingabætur á
fjárlögum, 7,5 milljónir. Undir sam-
gönguráðuneyti er einnig Jöfnunar-
sjóður alþjónustu 208 milljónir.
Tækniþróunarsjóður er undir iðn-
aðarráðuneyti en almennum rekstri
hans voru merktar 690 milljónir.
Jafnframt er iðnaðarráðuneytið að
markaðssetja Ísland í Norður-
Ameríku og ætlar til þess 87,6 millj-
ónir.
Smáliðir umhverfisráðuneytis eru
m.a. umhverfisvöktun 22,4 millj-
ónir, ýmis verkefni 30,9 og ýmis
framlög umhverfisráðuneytis 78,5
milljónir. Almennur rekstur „ýmissa
verkefna“ er samtals 300,4 milljónir.
Umhverfisráðuneytið hefur yfir Land-
græðslu ríkisins að segja og þar undir
eru fyrirhleðslur 64,6 milljónir og
Skógrækt ríkisins 429,8 milljónir.
Margt smátt
gerir stórt
Flestir telja að sameina beri fleiri
ráðuneyti til að spara og fastir lið-
ir á fjárlögum. Ráðuneytin sögð
misklók að krækja sér í liði.
Á morgun