Morgunblaðið - 23.09.2009, Side 13
Morgunblaðið/Golli
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009
Þægilegast að
beita flötum
niðurskurði
„FJÁRLÖGIN hafa verið gagnrýnd
fyrir ýmislegt, sérstaklega þá
kannski fyrir það að þau halda
illa,“ segir Gunn-
ar Helgi Krist-
insson stjórn-
málafræðingur
aðspurður hvort
fjárlögin og fjár-
lagagerðin séu
orðin úrelt fyrir-
bæri. Gunnar
Helgi skrifaði
bók um fjár-
lagagerð sem út
kom árið 1999 og
er vel heima í málaflokknum.
„Annaðhvort eru fjárlögin
óraunhæf og menn ætla sér að
skera niður í fjárlögum sem engin
leið er síðan til að framfylgja, eða
þá að aginn í eftirfylgninni er ekki
nógu mikill. Í það minnsta er það
alltof algengt að stofnanir fara út
fyrir þau 4% mörk sem sett eru,“
segir hann og bætir við að aug-
ljóslega sé því pottur brotinn ein-
hvers staðar.
Gunnar Helgi bendir einnig á þá
gagnrýni að fjárlögin séu bara eins
árs áætlun þó að stofnanir þurfi að
vita miklu meira um sína langtíma-
fjármögnun.
Hægt að læra á fjáraukalögin
Spurður um fjáraukalögin segir
Gunnar Helgi þau vera fyrirbæri
sem hægt sé að læra á. „Reynslan í
minni rannsókn var að ef menn
vildu hækka fjárveitinguna var
sennilega auðveldara að gera það
með því að nýta sér einhverja krísu
sem upp kom í framkvæmdinni
heldur en í undirbúningnum. Fá
þannig aukafjárveitingu sem svo
var gengið frá í fjáraukalögum.
Það virðist þannig vera eitthvað
sem „slyngir“ stjórnendur nýta
sér,“ segir hann.
Um þá gagnrýni að í fjár-
lagagerð sé unnið út frá fjárveit-
ingum síðasta árs frekar en horfa
fram í tímann segir Gunnar Helgi
að það sé auðveldara að segja en
gera. „Í Bandaríkjunum hafa verið
prófaðar aðrar aðferðir,“ segir
hann og á þar við sérstakar núll-
grunnsáætlanir sem stuðst hefur
verið við lítillega þar. Þá er unnið
út frá því að stofnanir séu á núlli
þegar vinnan er hafin og þurfi að
sýna fram á fjárþörf fyrirfram.
„Niðurstaðan af því hefur ekki ver-
ið góð. Það hefur leitt til mikillar
skriffinnsku og í þessu virðist falin
ofurtrú á skynsemishyggju,“ segir
hann. „Ég er ekki viss um að það
séu til neinar töfralausnir. Það sem
helst hefur virkað til að halda aftur
af fjárlögunum er svokölluð „top-
down“-nálgun,“ segir Gunnar
Helgi og útskýrir það þannig að þá
sé byrjað á að setja útgjaldaram-
mann og inni í fjárlagagerðinni sé
ákveðið markmið um ríkisútgjöld.
„Og þá eru fjárlögin unnin niður
eftir, út frá þeim markmiðum,
frekar en út frá öllum þeim góðu
hlutum sem hægt er að gera fyrir
peningana. Þetta er, að mínu viti,
skynsamleg ábending,“ segir hann
og bætir við að þetta hafi verið
reynt á Íslandi undanfarin 15-20 ár
„með góðum árangri á köflum en
síðustu 10-12 árin hefur ekki verið
neitt alvöru aðhald.“
Við fjárlagagerðina segir Gunn-
ar Helgi að tilhneiging sé til að
horfa alltaf á stóru útgjaldaliðina
þegar kemur að því að skera niður,
þá sérstaklega heilbrigðis- og
menntakerfið. „Hins vegar er lang-
stærsti útgjaldaliðurinn í ríkis-
rekstrinum laun, kannski allt að
80%, og ef ná á einhverjum árangri
í að draga úr ríkisútgjöldum þarf
annaðhvort að fækka ríkis-
starfsmönnum eða lækka laun
þeirra.“ Hann veltir því fyrir sér
hvort ekki sé einmitt núna skiln-
ingur á því í þjóðfélaginu að lækka
þurfi laun, fækkun starfsmanna sé
erfiðari.
Í fjárlögunum sem nú eru vænt-
anleg kveðst Gunnar Helgi, þrátt
fyrir að hann sé ríkisstarfsmaður,
vonast til að sjá árangur í því að
skera niður. „Ekki bara flatt með
því að taka einfaldlega prósentur
af öllu heldur þannig að farið hafi
verið eitthvað í gegnum málin,“
segir hann en klykkir svo út með
því að segja að flatur niðurskurður
sé á hinn bóginn alltaf einfaldari.
„Það er feikilega flókið að skera
niður. Það er þó ekki bara einfald-
leikinn í flötum niðurskurði heldur
eru menn líka með honum að hluta
til að spara sér óþægindi. Það
gengur það sama yfir alla og þá er
ekki hætta á stríði við neinn tiltek-
inn hóp. Það er þess vegna líka
pólitísk ástæða fyrir því að flatur
niðurskurður er oftast viðhafður.
Það breytir ekki því að þetta er
ekki góð aðferð.“
Fjárlögin óraunhæf eða aginn of lítill?
Gunnar Helgi
Kristinsson
A
T
A
R
N
A í september
Glæsilegar vörur nú á
Tækifærisverði.
Láttu drauminn rætast.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Skoðið Tækifæristilboðin á
www.sminor.is
Umboðsmenn um land allt.
Tæki færi
Frestur til að skila hugmyndum í samkeppni um
heildarskipulag Gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar í
Reykjavík rennur út þriðjudaginn 6. október 2009.
Notið fallega haustdaga til að láta hugann reika í
þágu Gömlu hafnarinnar! Allar hugmyndir eru vel
þegnar og þeim má skila í óbundnu eða bundnu
máli, sem teikningum eða ljósmyndum eða á
annan þann hátt sem höfundar telja best hæfa.
Upplýsingar um framsetningu og frágang er að finna í
samkeppnislýsingu.
• Heildarverðlaun í samkeppninni verða fjórtán milljónir
króna, þar af tólf milljónir króna fyrir tillögur fagfólks
og annarra sem uppfylla tiltekin skilyrði og tvær
milljónir króna fyrir hugmyndir frá almenningi.
• Samkeppnislýsingu má nálgast á faxafloahafnir.is
eða á ai.is
• Dómnefnd gerir ráð fyrir að birta niðurstöður sínar
í lok nóvember 2009.
Lending að loknu
hugmyndaflugi
6. október
A
T
H
Y
G
L
I