Morgunblaðið - 23.09.2009, Side 17

Morgunblaðið - 23.09.2009, Side 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009 Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is LEIÐTOGAR Samtaka Ameríku- ríkja (OAS), Bandaríkjanna og Evr- ópusambandsins skoruðu í gær á bráðabirgðastjórnina í Hondúras og andstæðinga hennar að forðast hvers konar aðgerðir sem leitt gætu til blóðsúthellinga. Óttast er að mannskæð átök blossi upp í Hondúras eftir að Manuel Zelaya sneri aftur til landsins í fyrradag, tæpum þremur mánuðum eftir að herinn steypti honum af stóli forseta og rak hann í útlegð. Herinn hafði reynt allt sem hann gat til að hindra að Zelaya sneri aft- ur til heimalandsins, m.a. sent her- sveitir að landamærunum. Hermt er að forsetanum hafi verið laumað inn í höfuðborgina í bílskottum og á dráttarvélum. Bráðabirgðastjórnin neitaði því í fyrstu að Zelaya væri kominn til höf- uðborgarinnar og heimkoma hans er álitin auðmýkjandi ósigur fyrir hana. Deilt um þjóðaratkvæði Ekkert ríki hefur viðurkennt bráðabirgðastjórnina, sem hefur sætt harðri gagnrýni fyrir valdarán- ið. Stjórnin hafði samt vonast til þess að geta þraukað fram yfir for- setakosningar, sem eiga að fara fram 29. nóvember, en líklegt þykir að henni verði ekki kápan úr því klæðinu eftir heimkomu Zelaya. Herinn steypti Zelaya af stóli til að hindra þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort breyta ætti stjórnarskránni. Andstæðingar Zelaya sögðu að markmið hans væri að afnema ákvæði um að enginn mætti gegna forsetaembættinu lengur en í eitt kjörtímabil, en Zelaya neitaði því og sagðist ekki sækjast eftir endur- kjöri. Kjörtímabili Zelaya lýkur í janúar á næsta ári og ólíklegt er að hægt hefði verið að breyta stjórn- arskránni fyrir þann tíma. Reynt að afstýra blóðs- úthellingum í Hondúras Heimkoma Zelaya forseta álitin auðmýkjandi ósigur fyrir valdaræningjana Reuters Umkringdur Zelaya ræðir við fréttamann í brasilíska sendiráðinu í Teguci- galpa þar sem hann leitaði skjóls. Hermenn umkringdu bygginguna í gær. Í HNOTSKURN » Manuel Zelaya var álitinnmiðjumaður þegar hann var kjörinn forseti árið 2006. » Hann færðist þó síðar tilvinstri og varð bandamað- ur Hugos Chavez, forseta Venesúela, og fleiri vinstri- sinnaðra leiðtoga í Rómönsku Ameríku. JESPER Olesen, héraðs- læknir í Nuuk á Græn- landi, vill að barist verði gegn útbreiðslu kyn- sjúkdóma með því að hengja pakka með smokkum um hálsinn á bjórflöskum og svo- nefndum breezer- flöskum á veitinga- húsum. Margir smitast þegar þeir hafa samræði drukknir. Vilji menn auka notkun á smokkum „verður að sjá til þess að smokkar séu á stöðum þar sem fólk hittist ef til vill með í huga að eiga síðar kynmök“, segir Ole- sen. kjon@mbl.is Smokkur um flösku- hálsinn Ný baráttuaðferð gegn kynsjúkdómum BRESKA hönnunarfyrirtækið De- sign Q leggur til að farþegavélar sem notaðar eru á stuttum leiðum verði innréttaðar með svipuðum hætti og herflutningavélar til að spara pláss. Hægt yrði að lækka farmiðaverð um 30% með slíkri til- högun. Farþegar myndu sitja andspænis hver öðrum og snúa baki að byrð- ingi vélarinnar. Einnig eru uppi hugmyndir um að hægt verði að fá ókeypis stæði aftast. kjon@mbl.is Raðirnar verði þéttar í flugi Friðar- minnisvarði almennings- garður Estudio R. Carrera fyrir 1 km ZELAYA SNÝR AFTUR Tegucigalpa HONDÚRAS Karíbahaf Yfirvöld í Hondúras settu útgöngubann til að hindra mótmæli og lokuðu flugvöllum landsins eftir að Manuel Zelaya, sem herinn steypti af stóli forseta 28. júní, laumaðist inn í landið og leitaði hælis í sendiráði Brasilíu. Forseta- byggingin Þinghúsið Hæstiréttur Toncontin- flugvöllur TEGUCIGALPA Palmira- hverfi Manuel Zelaya tókst að laumast inn í höfuðborgina í fyrradag þótt herinn hefði reynt að hindra að forsetinn kæmist yfir landamærin Þúsundir stuðnings- manna Zelaya söfn- uðust saman við bygginguna þrátt fyrir útgöngubannið Brasílíska sendiráðið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.