Morgunblaðið - 23.09.2009, Page 30

Morgunblaðið - 23.09.2009, Page 30
Kveðja frá Karlakór Selfoss Það er erfitt að setj- ast niður og koma orð- um á blað um félaga okkar Sigurð Karlsson. Siggi Kalla, eins og hann var jafnan nefndur, var sjálfsagður hluti Selfoss. Hann varð sjálfstæður verktaki á vörubílum og gröfum um leið og hann mátti aka þeim. Margir muna hann eflaust standandi á malbikun- arvélinni skipandi fyrir á báða bóga. Siggi gekk í Karlakór Selfoss árið 1994 og söng þar óslitið þar til fyrir 2 árum að „félagi parki“ eins og hann kallaði parkinsonsjúkdóminn hamlaði honum að syngja lengur. Hann söng alla tíð 1. tenór og hafði fallega og kraftmikla rödd. Siggi söng inn á alla 3 útgefna hljómdiska kórsins og söng tvísöng ásamt Jónasi Lilliendhal í 2 lögum. Siggi var orðheppinn mjög og þótti gaman að takast á í orðræðu á æfingum og víðar sérstaklega ef iðn- aðarmenn eða lögmenn voru annars vegar. Á skemmtunum kórsins var hann hrókur alls fagnaðar og æv- inlega búinn að draga að sér nokkra félaga til að syngja saman. Á síðustu vortónleikum kórsins var Siggi gerður að heiðursfélaga sem honum þótti mikið til koma. Það er frekar óskemmtilegt hlut- skipti mitt sem formanns kórsins að þurfa að setja saman minningabrot um 2 kórfélaga á aðeins 2 vikum því Simon de Haan, félagi okkar í 1. bassa, var jarðsettur 2. september sl., en svona er lífið. Um leið og ég kveð félaga okkar Sigurð Karlsson með sárum söknuði sendi ég Ingunni og sonum hans okkar dýpstu samúð. Minningin um góðan dreng lifir. Gísli Á. Jónsson formaður. Sigurður Karlsson er allur. Það er erfitt að sætta sig við það. Þessi kraftmikli maður sem vílaði ekkert fyrir sér. Sérstaklega litrík persóna, aldrei neitt vol né væl. Leiðir okkar lágu fyrst saman í fluginu en báðir vorum við einkaflugmenn og síðan í kringum líkamsræktina en við vor- um að slást við aukakíló alla tíð, við gengum mikið og fórum í sund og komum svo við í sjoppuni og fengum okkur diet og eitthvað bráðhollt. Við unnum eina og eina orrustu en má kannski segja að við höfum tapað stríðinu. Sigurður var einstaklega góður félagi, góður sögumaður og hafði gaman af að segja frá. Mikill söng- maður og hafði einstaklega gaman af að syngja og var ósjaldan tekið á Sigurður Snorri Þór Karlsson ✝ Sigurður SnorriÞór Karlsson fæddist á Hofsstöðum í Stafholtstungum 11. ágúst 1945. Hann lést á lungnadeild Land- spítalans 10. sept- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Selfosskirkju 19. september. því. Við áttum einnig saman margar fjöl- skylduferðir til Kan- aríeyja og eigum við margar minningar þaðan. Í seinni tíð var Sigurður veikur og háði harða baráttu við illvígan sjúkdóm sem dró hann til dauða. Ég vil votta Ingunni og strákunum hans og fjölskyldum þeirra dýpstu hluttekningu og biðja góðan Guð að veita þeim huggun í sorginni.Við munum ávallt minnast þín með þakklæti í hjarta. Guð blessi minningu þína. Guðni bakari. Þegar við kveðjum í dag kæran vin, Sigurð Karlsson, einn af bestu sonum Selfoss, vefst manni tunga um tönn því af svo mörgu er að taka. Þetta ljúfmenni andaðist á Land- spítalanum í Fossvogi þann 10. sept- ember eftir erfið veikindi til margra ára. Sigurður var gæfumaður allt sitt líf, einstaklega lífsglaður og mikill vinur vina sinna. Hans verður víða sárt saknað. Eitt af því sem ein- kenndi hann var mikil góðvild í garð allra manna. Aldrei nokkurn tímann heyrðum við hann tala illa um nokk- urn mann, þetta voru allt saman vin- ir hans og kunningjar. Dugnaður og vinnusemi Sigurðar var engu lík og sjást víða merki þess hér í bæ, torg, stræti og fleiri mann- virki sem vinnuflokkur hans í Verk- tækni hefur staðið að og alltaf var Sigurður þar fremstur í flokki. Það sem Sigurður var þó stoltastur af voru synir hans fjórir. Allt saman glæsilegir ungir menn sem honum þótti afskaplega vænt um. En stóra vinninginn hlaut hann er hann kynntist eftirlifandi sambýliskonu sinni, Ingunni Guðmundsdóttur. Hún hefur staðið eins og klettur við hlið hans í öllum hans veikindum og vitum við að drengirnir hans eru henni ævarandi þakklátir fyrir hennar hlýju og elskusemi í garð föður þeirra. Um leið og við sendum öllum við- komandi okkar innilegustu samúð- arkveðjur, móður hans og bróður, strákunum og Ingunni, viljum við þakka fyrir að hafa fengið að kynn- ast þessum stórkostlega manni, Sigga Kalla. Hólmgeir og Ólína. Nú er fallinn frá á besta aldri Sig- urður Karlsson, eftir baráttu við erf- ið veikindi. Siggi Kalla var einn af þessum mönnum sem settu svip sinn á umhverfið og eru nauðsynlegir hverju samfélagi. Siggi Kalla fór ekki hljóðlega um, hann var áber- andi í sínu samfélagi og lét sér fátt óviðkomandi. Ég hef verið svo lánsamur að hafa umgengist Sigga Kalla töluvert á minni ævi og þegar ég minnist hans þá kemur strax þrennt upp í hug- ann: skemmtun, fróðleikur og vin- semd. Skemmtun vegna þess að hvar sem hann kom var hann hrókur alls fagnaðar. Siggi kunni að skemmta sér og öðrum og gerði í því að gera lífið skemmtilegra og fann ávallt tilefni til að gefa lífinu lit og það hef ég fengið að upplifa. Fróð- leikur vegna þess að fáir höfðu eins mikla þekkingu og hann á landinu og umhverfinu. Að ferðast með Sigga um hálendið á undanförnum árum eða réttara sagt áratugum í veiði- ferðum er á við háskólanám. Hvar sem komið var þekkti Siggi hverja þúfu, hvert vatn, hverja á og hvert og eitt einasta fjall. Þessum fróðleik kom hann til skila til okkar sem yngri erum og hefur sá fróðleikur komið mér að góðum notum. Vin- semd því fáir eru jafnmiklir vinir vina sinna og Siggi, sem lagði mikið á sig til að rækta og viðhalda vina- samböndum og af því naut ég góðs. Eftir stendur minning um góðan dreng sem reyndist mér og minni fjölskyldu alltaf ákaflega vel. Ingunni, Kristínu, frændum mín- um og fjölskyldum þeirra færi ég innilegar samúðarkveðjur. Steinþór Einarsson. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Í Landi minninganna eru helgir reitir, þar sem enginn fær komið nema hugurinn einn. Þangað er hon- um kært að reika, þegar önn og erill dagsins leyfir, nema staðar og litast um, rekja gullna þræði góðra minn- inga um hina ágætustu menn og konur, sem verið hafa förunautar manns um lengri eða skemmri kafla á genginni götu. Í huga mínum er minningaþráðurinn um Sigurð Karlsson heill og snurðulaus allt frá fyrsta degi er við hittumst á sól- björtum morgni austur á Kjartans- stöðum vorið 1953. Ég var nýút- skrifaður ýtustjóri frá Sigfúsi Öfjörð á Lækjarmóti, kominn með TD-6una, plóg og herfi til að vinna að jarðrækt fyrir nýja bóndann á Kjartansstöðum, Karl Þórarinsson. Það var vor í lofti þennan eftir- minnilega morgun þarna á bæjar- hlaðinu. Nýmjólkaðar kýrnar að tín- ast út úr fjósi, virðulegur íslenskur hani gól með taktföstu stefi uppi í heygarði. Á hlaðinu stóð nýr Massey Harris Poný-traktor í öllum sínum glæsileika og uppi í honum sat ung- ur, spengilegur maður, nafn hans var Sigurður Karlsson. Þessi morg- unstund fyrir fimmtíu og sex árum stendur mér ljóslifandi fyrir hug- skotssjónum, ég kom ekki að „tóm- um kofunum“ þegar við fórum að tala saman, hann fylgdist greinilega vel með öllu því sem varðaði vélar og tæki sem voru að ryðja sér til rúms með breyttu verklagi til sveita. Hann vildi líka vita allt um ýtuna og tólin sem henni fylgdu, hvað hún væri mörg hestöfl, hvað hún kostaði á tímann og annað eftir því. Hann þekkti mjólkurbílstjórana, alla bæi í sveitinni og kunni góð skil á því helsta sem búið þurfti með. Og þó aldursmunur væri raunar mikill á okkur á þessu tímaskeiði, hann á áttunda árinu ég á því sautjánda, fór strax afar vel á með okkur í öllum orðræðum og samskiptum, enda áhugamálin um margt þau sömu, bílar, traktorar og vélvæðingin til sveita. En þó dvölin á Kjartansstöðum tæki fljótt enda og ég héldi mína leið upp Flóann,var þessi ungi vinur minn mér hugstæður þó samskipti okkar væru ekki mikil næstu árin. En tímans straumur vann sitt verk og við flutum fram á veginn bundnir viðfangsefnum líðandi stundar hvor á sínum stað þar til einn góðan veð- urdag um vor, að flautað var hressi- lega á mig fyrir utan mjólkurbúið, ungur og brosleitur maður sat undir stýri á Landrover-bifreið og bauð mér far vestur úr. Sigurður Karls- son var mættur á staðinn, fullþrosk- aður, hress og vígdjarfur, ég steig upp í bílinn og fann um leið að ald- ursmunurinn hafði minnkað stórum. Fáum árum síðar áttum við báðir 30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009 Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargrein- ar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vís- að í greinar á vefnum. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengdarmörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5- 15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Minningargreinar ✝ Eiginkona mín og móðir okkar, SIGRID TOFT, Selási 11, Egilsstöðum, sem lést á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Seyðisfirði þriðjudaginn 15. september, verður jarðsungin frá Egilsstaðakirkju föstudaginn 25. september kl. 14.00. Magnús Pálsson, Kristín Einarsdóttir, Guðrún Einarsdóttir, Þorsteinn Einarsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, fyrrverandi eiginkona og systir, ELÍSABET HJÖRDÍS HARALDSDÓTTIR, Háaleitisbraut 39, áður Kárastíg 12, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnu- daginn 13. september, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 24. september kl. 15.00. Orri Sigurðsson, Saga Ýrr Jónsdóttir, Hildur H. Sigurðardóttir, Unnur Sigurðardóttir, Stefán Birgisson, Sigurður I. Tómasson, Halla V. Haraldsdóttir, Jónína G. Haraldsdóttir. ✝ Ástkær móðir, tengdamóðir, dóttir, systir og amma, RÓSA MARÍA GUÐNADÓTTIR, Kleppsvegi 56, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 25. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið. Stella Guðný Kristjánsdóttir, Hans Christian Jensen, Stefanía Kristjánsdóttir, Gary Orri Taylor, Guðni Albert Guðnason, Júlíana Kristín Jónsdóttir, Guðbergur Guðnason, Alda Sigríður Guðnadóttir, Ronja Rós Jensen. ✝ Ástkær dóttir okkar, fósturdóttir, systir, barnabarn og frænka, LÍSA ARNARDÓTTIR, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þriðjudaginn 15. september. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 25. september kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Vímulausa æsku. Jóhanna Jónsdóttir, Óskar Geir Pétursson, Örn Hilmarsson, Mila Prodanovic, Stefán Hafberg Sigurðsson, Heiða Arnardóttir, Jóna Kristín Hallgrímsdóttir, Guðrún Kalla Bárðardóttir, Hilmar Þór Sigurþórsson, Alma Rán Stefánsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu eiginmanni, fósturföður og afa okkar, SMÁRA BJÖRNSSYNI, Dalsbakka 2, Hvolsvelli, hjálpsemi í veikindum og fjölskyldunni samúð og hlýhug við andlát hans og útför. Álfheiður Ósk Einarsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson, Anna Jónsdóttir, Einar Rúnar Sigurðsson, Matthildur Unnur Þorsteinsdóttir, Eyrún Ósk Sigurðardóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.