Morgunblaðið - 23.09.2009, Side 33
Dagbók 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
6
8 4 3
5 9
8 7
9 7 4
6 3
1 8 6
9 1 3
4 1 9 5
9
6 5
4 9 7
2 5 1 6 7
1 3 9
6 5 8
2
6 3
9 7 8 4
2
4 6 9
5 4 1 7
1 8 7 6 4
5 8 1
4 1 5
5 6 2
3 7
6 5 9 2 1 4 7 8 3
3 4 8 5 7 6 2 9 1
7 1 2 8 3 9 4 6 5
9 7 1 4 5 2 6 3 8
4 8 3 6 9 1 5 2 7
2 6 5 7 8 3 1 4 9
1 9 6 3 2 7 8 5 4
5 3 4 1 6 8 9 7 2
8 2 7 9 4 5 3 1 6
6 2 8 1 3 9 4 7 5
3 4 9 6 5 7 1 2 8
1 5 7 2 4 8 6 3 9
2 8 3 9 6 4 5 1 7
7 9 1 5 8 2 3 4 6
5 6 4 3 7 1 9 8 2
4 3 2 8 9 5 7 6 1
9 1 6 7 2 3 8 5 4
8 7 5 4 1 6 2 9 3
8 6 1 4 5 3 7 9 2
9 5 4 2 7 8 6 1 3
3 2 7 9 1 6 8 5 4
7 8 6 5 4 1 2 3 9
1 4 9 6 3 2 5 8 7
5 3 2 8 9 7 4 6 1
4 7 3 1 6 5 9 2 8
6 9 8 3 2 4 1 7 5
2 1 5 7 8 9 3 4 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist töl-
urnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 23. september,
266. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Þetta er mitt boðorð, að
þér elskið hver annan, eins og ég hef
elskað yður. (Jh. 15, 12.)
Kvikmyndahátíðin fór af stað meðmiklum krafti um helgina og er
boðið upp á ýmsar uppákomur. Opn-
unarmyndin heitir því óvenjulega
nafni Ég drap mömmu og er eftir
tvítugan kanadískan leikstjóra, Xav-
ier Dolan. Myndin ber aldri höfund-
arins vitni og á köflum var lopinn
teygður, en inn á milli komu
skemmtilegir sprettir, sem gefa fyr-
irheit um bjarta framtíð. Annars er
nóg um óvenjulegar og skemmti-
legar uppákomur á hátíðinni. Í
fyrrakvöld buðu þrír íslenskir leik-
stjórar gestum heim til sín að horfa
á uppáhaldsmyndirnar sínar og sá
Víkverji eftir að hafa ekki nýtt sér
þetta tækifæri þegar hann sá mynd
af Friðriki Þór Friðrikssyni á for-
síðu Morgunblaðsins í gær með full-
an pott af brakandi poppi að undir-
búa sýninguna. Víkverji velti einnig
fyrir sér hvernig áhorfendum hefði
gengið að troða marvaðann á hryll-
ingsmyndasýningu í Sundhöll
Reykjavíkur. Síðan er vel til fundið
að sýna Stuðmannamyndina Með
allt á hreinu í bílabíói. Það hæfir
myndinni fullkomlega.
x x x
Mestur fengur þykir Víkverja íkomu eins frægasta leikstjóra
samtímans, Milosar Formans, til Ís-
lands. Í gærkvöldi var mynd hans
Slökkviliðspartíið sýnd í Háskólabíói
að viðstöddum leikstjóranum.
Myndin var gerð árið 1967 og sú síð-
asta, sem hann gerði í Tékkóslóv-
akíu. Forman hefur alltaf haldið því
fram að ekkert byggi að baki mynd-
inni, sem ekki væri á yfirborðinu, en
yfirvöld lásu ýmis dulin skilaboð úr
henni. Hún var sýnd í þrjár vikur í
tékkneskum kvikmyndahúsum, en
eftir að Sovétmenn réðust inn í land-
ið 1968 og bundu enda á vorið í Prag
var sýningum á henni hætt. Forman
var staddur í París þegar innrásin í
Tékkóslóvakíu átti sér stað og varð í
raun útlagi. Ráðgert hafði verið að
Slökkviliðspartíið yrði keppnismynd
á kvikmyndahátíðinni í Cannes það
árið, en vegna stúdentaóeirðanna
var hátíðinni aflýst. Í kvöld verður
Gaukshreiðrið sýnt og mun leik-
stjórinn svara spurningum. Þá mynd
þarf ekki að kynna. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 svipað, 4 auð-
veldur, 7 maula, 8 blóm-
um, 9 rangl, 11 ill kona,
13 tölustafur, 14 óskar
eftir, 15 líf, 17 spil, 20
skordýr, 22 þýðgengur,
23 gluggi, 24 undin, 25
synja.
Lóðrétt | 1 þrælkun, 2
örlátur, 3 mjög, 4 útlit, 5
skvettir, 6 rödd, 10
mannsnafn, 12 þegar, 13
sterk löngun, 15 einfald-
ur, 16 org, 18 mennta-
stofnun, 19 rétta við, 20
næði, 21 ógæfa.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hjákátleg, 8 lætur, 9 kelda, 10 rok, 11 neita, 13
akrar, 15 gulls, 18 áflog, 21 auk, 22 tómat, 23 aflar, 24
hranalegt.
Lóðrétt: 2 játti, 3 kurra, 4 takka, 5 eflir, 6 flón, 7 gaur,
12 tól, 14 káf, 15 gáta, 16 lemur, 17 satan, 18 ákall, 19
léleg, 20 gert.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. cxd5 cxd5 4. Rf3
Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bf4 Rh5 7. Bd2 e6
8. Hc1 Rf6 9. e3 Bd6 10. Bd3 O-O 11.
O-O e5 12. dxe5 Rxe5 13. Be2 a6 14.
Rxe5 Bxe5 15. Bf3 Be6 16. g3 De7
17. De2 Had8 18. Hfd1 Hfe8 19. Be1
d4 20. exd4 Bxd4 21. Bd2 b5 22. Bg5
h6 23. Bf4 Da7 24. Df1 g5 25. Bd2
Rg4 26. Re4 Bf5 27. Bxg4 Bxg4 28.
He1 f5 29. Rc3
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Montreal í
Kanada. Bandaríski stórmeistarinn
Vinay Bhat (2473) hafði svart gegn
kanadíska alþjóðlega meistaranum
Thomas Roussel-Roozmon (2487).
29… Bxf2+! 30. Dxf2 Dxf2+ 31.
Kxf2 Hxd2+ 32. Kg1 Hxe1+ 33.
Hxe1 Kf7 34. b4 Bf3 og hvítur gafst
upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Hliðarkall.
Norður
♠ÁKDG8
♥1043
♦964
♣K8
Vestur Austur
♠9532 ♠1074
♥ÁG97 ♥K652
♦Á32 ♦KD108
♣75 ♣D9
Suður
♠6
♥D8
♦G75
♣ÁG106432
Suður spilar 1G.
Lauria og Versace nota ekki kröfu-
grand við hálit. Auk þess eru „tveir-
yfir-einum“ krafa í geim í þeirra kerfi
og þá fer að skiljast hvernig suður get-
ur orðið sagnhafi í einu grandi. Lauria
vakti sem sagt á 1♠, Versace sagði 1G
og allir pass. Spilið er frá úrslitaleik
HM.
Rodwell kom út með ♥7 og Meck-
stroth tók á kónginn. Vörnin þarf að
hirða rauðu slagina strax og það vafðist
ekki fyrir meisturunum. Eftir nokkra
umhugsun spilaði Meckstroth ♥2 til
baka – þriðja hæsta frá ríkjandi lengd.
Rodwell drap og tók á ♥G og ♥9. Þá
notaði Meckstroth tækifærið til að kalla
til hliðar. Hann átti eftir sexu og fimmu
í hjarta og röðin á þeim spilum sýnir
hvort hann vill að makker skipti yfir í
lauf eða tígul. Allt á hreinu, Rodwell
spilaði tígli og grandið fór tvo niður.
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú heldur að það sé ekki heilla-
vænlegt að láta skrýtinn draum rætast
eða nota sköpunarkraftinn. Framlag ykk-
ar skiptir máli svo gangið beint til verks.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Stundum pælirðu í hvor er skrýtnari
þú eða fólkið í kringum þig. Nú er komið
að því að bretta upp ermarnar og drífa í
hlutunum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ekki takast eitthvað á hendur
bara af því að það er áhugavert. Sinntu
vinum þínum og gefðu þér tíma til að
hlusta á þá.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert hrókur alls fagnaðar og all-
ir vilja vera nálægt þér. Láttu ekki leti og
kæruleysi ná tökum á þér því þú þarft að
skila verkefni sem krefst einbeitingar.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert í djúpum þönkum þessa dag-
ana og aðrir eiga erfitt með að skilja hvað
fyrir þér vakir. Einhver óróleiki ríkir á
vinnustað þínum og þér finnst erfitt að
átta þig á stöðu mála.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Hlustaðu á stjórnendur, umsjón-
armenn og yfirboðara í dag. Af hverju að
efna til illinda? Haltu skoðunum þínum
fyrir þig.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Taktu þátt í verkefnum annarra, og
hleyptu öðrum inn í þín. Sumir eyða fé í
förðunarvörur, lýtaaðgerð eða nýjar
tískugallabuxur.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Farðu að öllu með gát í
vinnunni í dag og ekki gefa loforð sem þú
getur ekki staðið við. Varastu að gera
óraunhæfar kröfur til þinna nánustu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Reyndu að mæta þörf þinni
fyrir aukna hvíld og einveru. Leggðu af
alla ósiði og taktu upp heilbrigt líferni.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Stjórnendur, yfirmanneskjur,
kennarar og foreldrar rugla þig hugs-
anlega í ríminu í dag (reyndar ekki að
ásettu ráði).
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Haltu fast um pyngjuna, það
þarf ekki stóra óaðgæslu til að aurarnir
fljúgi. Verið ekkert að tvínóna við hlutina,
en takið enga óþarfa áhættu.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú þarft að setja þér ákveðnar
reglur varðandi einkalíf þitt og starf
þannig að engir árekstrar verði þar í milli.
Fólk er farið að taka eftir þér og lítur á
þig sem fyrirmynd.
23. september 1241
Snorri Sturluson var veginn í
Reykholti í Borgarfirði, um 63
ára. Hann var goðorðsmaður
og lögsögumaður og kom mik-
ið við sögu í valdabaráttu á
Sturlungaöld. Snorri er talinn
þekktastur íslenskra rithöf-
unda fyrr og síðar og skrifaði
m.a. Heimskringlu og Snorra-
Eddu.
23. september 1922
Oddný Hannesdóttir, tæplega
90 ára, giftist Oddi Oddssyni,
74 ára. Hún var þá talin elsta
brúður á Íslandi.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Ellen Bjarna-
dóttir er níræð í
dag, 23. sept-
ember. Hún og
eiginmaður
hennar, Guð-
mundur Sig-
urjónsson, fyrr-
verandi
aðalbókari í Landsbankanum, verja
deginum með fjölskyldu sinni. Mál-
verkasýning Ellenar í menning-
arsalnum á Hrafnistu í Hafnarfirði
stendur til 2. nóvember.
90 ára
Kolfinna Pola Grétarsdóttir og
Júlía Bríet Baldursdóttir héldu
flóamarkað í Grímsbæ í Reykjavík
og gáfu afraksturinn, 9.475 krónur,
til Kattholts.
Flóamarkaður
„ÉG ætla að taka mér frí í vinnunni, í fyrsta skipti
á afmælisdaginn,“ segir Kristín Gunnarsdóttir
sem fagnar fimmtugsafmæli sínu í dag. Kristín
starfar hjá inn- og útflutningsfyrirtæki sem sér-
hæfir sig í að flytja út vinnuvélar.
Kristín ráðgerir að eyða deginum í að undirbúa
afmælisveisluna sem haldin verður á laugardag-
inn en fjölda fólks er boðið í hana og ætlar eig-
inmaður Kristínar, Pétur Júlíus Halldórsson, að
byggja yfir pallinn svo gestirnir komist nú allir
fyrir. Í kvöld ætlar Pétur hins vegar að bjóða
Kristínu á Hereford-steikhús.
Aðspurð segir Kristín fertugsafmælið hafa verið afar eftirminni-
legt. „Þá var ég líka með veislu. Mér fannst það svo skemmtilegt að ég
ákvað að gera það aftur þegar ég yrði fimmtug,“ segir hún. Að sögn
Kristínar eru ein helstu áhugamál hennar Lionsklúbburinn Kaldá í
Hafnarfirði, sem hún er meðlimur í, og gönguferðir en hún stefnir á
að fara að prufa golf. „Ég er ekki byrjuð í golfinu en ég á settið. Það
bíður bara,“ segir Kristín og skellihlær. Að auki les hún mikið og eiga
þá spennusögur helst upp á pallborðið hjá henni en hún segist hrifin
af Dan Brown, Yrsu Sigurðardóttur og Stieg Larsson. ylfa@mbl.is
Kristín Gunnarsdóttir er fimmtug í dag
Undirbýr afmælisveisluna
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
England Ellis Kristinn
fæddist 5. febrúar kl.
15.28. Hann vó 3.610 g og
var 54 cm langur. For-
eldar hans eru Helga
Kristín Þorsteinsdóttir og
Timothy John Senior.
Reykjavík Christína Sæ-
unn fæddist 3. júní kl.
8.27. Hún vó 3.200 g og er
49 cm löng. Foreldrar
hennar eru Svavar Þór
Einarsson og Alina Amal-
iei.