Morgunblaðið - 29.09.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.09.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009 SKIPULAGSRÁÐ Reykjavíkur hef- ur falið skipulagsstjóra að gera samantekt á þeirri bótaskyldu sem sveitarfélög gætu skapað sér sam- kvæmt núverandi skipulags- og byggingarlögum. Skipulagsstjóri geri jafnframt tillögur að leiðum sem geta skapað skipulags- yfirvöldum meira svigrúm við gerð skipulagsáætlana. Júlíus Vífill Ingvarsson, formað- ur skipulagsráðs, segir það mik- ilvægt að gerðar verði breytingar á skipulags- og byggingarlögum, þar sem skipulagsyfirvöldum verði veitt meira frelsi til að móta nýjar skipulagsáætlanir. Aukið frelsi í skipulagsmálum LANDSFUNDUR Ungra vinstri grænna var haldinn á Hvolsvelli um helgina. Steinunn Rögnvaldsdóttir hætti sem formaður og var Jan Eric Jessen kosinn í hennar stað. Ásamt honum sitja í stjórn Guðrún Axfjörð Elínardóttir, varaformaður, Tómas Gabríel Benjamin, ritari og Þórunn Rögnvaldsdóttir, gjaldkeri. Nýr formaður UVG Í DAG, þriðjudag, kl. 20 verður hald- inn borgarafundur á Hótel Selfossi um málefni nýrrar Ölfusárbrúar. Framsögumenn verða Garðar Ei- ríksson, fulltrúi íbúa á Selfossi, Svanur Bjarnason, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar, Björn Ingi Gísla- son, Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar, Einar Elías- son, og Kristján Möller samgöngu- ráðherra. Fyrirspurnir og almennar umræður verða eftir á. Ölfusárbrú ÍSLANDSMEISTARAKEPPNIN í ökuleikni var haldin á laugardag sl. við Forvarnarhúsið í Kringlunni. Ökuleiknin var haldin á vegum Brautarinnar - Bindindisfélags ökumanna, en í keppninni er einnig prófað í umferðarreglum. 25 kepp- endur voru skráðir til leiks og var þeim einnig boðið að skipta sér í lið. Sigurvegarinn í kvennaflokki var Birgitta Pálsdóttir, en í karlaflokki Ævar Sigmar Hjartarson. Ævar er reyndur rallökumaður og raunar fyrrum Íslandsmeistari í ralli á óbreyttum bílum. Leikni Ýmsar þrautir þurfti að leysa. Íslandsmeistarar í ökuleikni UM helgina var nýjum sorptunnum dreift í Fljótsdalshéraði. Í þéttbýl- inu munu íbúarnir flokka sorpið í þrjá tunnur þannig að almennt sorp fari í gráa tunnu, endurvinnanlegt í græna og lífrænt sorp í brúna tunnu, en í dreifbýlinu fer lífrænt sorp í sérstakt jarðgerðarílát. Nýjar sorptunnur Eftir Andra Karl andri@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær tvo karlmenn, Jónas Inga Ragnarsson og Tind Jónasson, í tíu og átta ára fangelsi. Dómurinn taldi sannað að mennirnir hefðu í sameiningu staðið að framleiðslu amfetamíns og að úr upphafsefnum sem fundust í húsnæði framleiðsl- unnar hefði mátt fá rúm fjórtán kíló af hreinu amfetamíni. Mennirnir munu báðir áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Mismun á refsingu má rekja til þess að Jónas Ingi var jafnframt sakfelldur fyrir að hafa í vörslu sinni rúm átján kíló af maríjúana og tæp 700 g af amfetamíni. Hvað varðar amfetamínfram- leiðslu neituðu báðir sök og bentu á að þeir hefðu aðeins framleitt upp- hafsefni, P-2-NP og P-2-P, sem í sjálfu sér eru ekki fíkniefni. Þá hafi vantað nauðsynleg efni til fram- leiðslu amfetamíns. Fram kom í mál- inu að umrædd efni sem slík gangi kaupum og sölum á svörtum mark- aði. Leiðbeiningar um amfetamín- framleiðslu fundust í tölvum Fjölskipaður héraðsdómur taldi sannað að um amfetamínframleiðslu væri að ræða. Litið var m.a. til þess að í tölvum mannanna fundust ítar- legar greinar um framleiðslu am- fetamíns og metamfetamíns, s.s. sama skráin hjá báðum sem bar heit- ið Stórfelld framleiðsla metam- fetamíns (e. Large-Scale Meth- amphetamin Manufacture). Dómurinn taldi víst að mennirnir hefðu getað fengið að minnsta kosti 353 kg af amfetamíni með því að þynna hreina amfetamínið. Verjendur mannanna, Sveinn Andri Sveinsson og Brynjar Níels- son, voru báðir mjög ósáttir við slíka útreikninga. Brynjar sagði það „fabúleringar“, óstuddar rökum. Í niðurstöðu dómsins segir að brot mannanna sé stórfellt og verði að teljast enn alvarlegra en innflutning- ur eða varsla fíkniefna. Þá hafi ásetningur þeirra verið mikill og ein- beittur. Mennirnir voru einnig dæmdir til að greiða 2,5 milljónir króna í sak- arkostnað og um tvær milljónir hvor til verjenda sinna. Framleiðsla talin sönnuð  Tveir karlmenn dæmdir í tíu og átta ára fangelsi fyrir amfetamínframleiðslu  Fjölskipaður héraðsdómur telur framleiðslu fíkniefna alvarlegri en innflutning » Hefði getað framleitt rúm fjórtán kíló af hreinu amfetamíni eða 353 kg með þynningu » Sögðust aðeins vera að framleiða upphafs- efni, ekki hefði staðið til að framleiða amfetamín HANNA Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, voru bæði meðal ræðumanna á kynningu á Forvarn- ardeginum gí Háteigsskóla í gær. Auk þess voru nemendur og starfsmenn úr Háteigsskóla við- staddir og tók Ásgeir Beinteinsson skólastjóri fyrstur til máls. Forvarnardagurinn fer fram í grunnskólum landsins á morgun, miðvikudag. Þá verður sýnt myndband sem flutt var á kynn- ingunni. Tillögum og hugmyndum nemenda sem fram koma á deginum verður safnað í heil- steypta greinargerð, sjá forvarnardagur.is. Morgunblaðið/Ómar FYRIRMENNI Í FORVÖRNUM Í HÁTEIGSSKÓLA Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „EFTIR mínum upplýsingum er verið að vinna í þessu. Það er ekki búið að taka ákvörðun um þetta,“ segir Elís Reynarsson, fram- kvæmdastjóri fjármála og rekstrar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, um þær sparnaðarhugmyndir að hætta að gera keisaraskurði á kon- um í Keflavík og á Akranesi. „Það var í síðustu viku heilmikill vinnufundur í heilbrigðisráðuneyt- inu. Þar voru ýmsar hugmyndir lagðar fram. Það er verið að vinna úr þeim og eftir því sem ég best veit ætla menn að vera búnir að þeirri vinnu um miðjan október.“ – Hvernig er þessum hugmynd- um tekið suður með sjó? „Við tökum þessu misjafnlega eins og gengur. Það er hins vegar erfitt að tjá sig um þær á meðan þær eru í vinnslu. Við erum ekki komin í þann gír að hafa á þessu miklar skoðanir.“ – Skiptir máli frá heilsufarslegu sjónarmiði hvort aðgerðirnar eru gerðar nærri heimili sjúklinga? „Já. Ég hefði haldið að út frá samfélagslegu sjónarmiði væri hag- stætt að hafa þjónustuna sem næst sjúklingum,“ segir Elís, sem treyst- ir sér ekki til að leggja mat á hvort þetta muni draga úr öryggi sjúk- linga. Keisaraskurður skorinn niður Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Keflavík Heilbrigðisst. Suðurnesja. Verði hætt á Akra- nesi og í Keflavík STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.