Morgunblaðið - 29.09.2009, Blaðsíða 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
9 5 4 1
1 7
8 6 9 7
3 6 4 2
4 1 3
5 6 8 3
7 9
9 1 4 6
2
5 2 1
3 7
5
4 9 6 1
4
8 5
7 3 5 8
7 8 5
4
2 6 5
3 5 1 4 6
5 9
4 8
1 4 5 8
9 6 8 7 3
2 8 3 5 6 4 1 9 7
7 5 4 1 2 9 6 8 3
9 1 6 8 3 7 4 5 2
1 3 9 6 4 5 2 7 8
8 4 2 7 9 1 5 3 6
5 6 7 2 8 3 9 4 1
4 2 5 3 1 8 7 6 9
3 7 1 9 5 6 8 2 4
6 9 8 4 7 2 3 1 5
4 5 6 3 1 8 2 7 9
9 8 7 4 5 2 6 1 3
2 1 3 9 7 6 8 5 4
8 4 2 1 6 5 9 3 7
7 6 1 2 3 9 4 8 5
5 3 9 8 4 7 1 2 6
1 9 5 6 8 3 7 4 2
6 7 8 5 2 4 3 9 1
3 2 4 7 9 1 5 6 8
2 3 1 9 4 6 8 7 5
5 7 8 3 2 1 6 9 4
4 6 9 5 8 7 2 3 1
8 4 6 1 7 2 9 5 3
9 5 2 4 3 8 7 1 6
3 1 7 6 5 9 4 2 8
7 9 3 8 6 5 1 4 2
1 8 4 2 9 3 5 6 7
6 2 5 7 1 4 3 8 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 29. september,
272. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Enn sagði hann við þá:
„Gætið að, hvað þér heyrið. Með þeim
mæli, sem þér mælið, mun yður mælt
verða og við yður bætt.“ (Mk. 4, 24.)
Það er svakaleg tímaskekkja aðbanna sjónvarpsstöðvum að
sýna beint frá kappleikjum í öðrum
löndum á sama tíma og loka-
umferðin á Íslandsmótinu í knatt-
spyrnu fer fram.
Raunar var skaðinn lágmarkaður
sl. laugardag með þeim hætti að ís-
lensku leikirnir hófust kl. 16 þegar
sjö leikjum í ensku úrvalsdeildinni
var lokið. Sennilega hefur KSÍ gert
þetta af ráðnum hug og að fenginni
reynslu til að víkja sér undan reiði
áhugamanna um ensku knattspyrn-
una. Hver er þess umkominn að
segja sparkelsku fólki hvort það á
frekar að horfa á Manchester Unit-
ed eða Þrótt?
x x x
Einn leikur í Englandi varð eigiað síður fyrir barðinu á þessari
hvimleiðu tímaskekkju á laugardag-
inn var, viðureign Fulham og Arsen-
al, sem flautuð var á kl. 16.30. Beinu
útsendingunni var skolað burt með
baðvatninu en leikurinn settur á
dagskrá Stöðvar 2 Sport 2 kl. 18.
Víkverji nennti ekki að bíða eftir því
enda tekur hann sér að jafnaði stöðu
fyrir framan grillið milli kl. 18 og 19
á laugardögum. Hann hélt því sem
leið lá niður á knattknæpuna Ölver.
Það var ekki að sökum að spyrja –
fullt var út úr dyrum.
Við þetta má bæta að ekkert var í
húfi í lokaumferð Íslandsmótsins,
fyrir lá hvaða lið er meistari, hvaða
lið fara í Evrópukeppni og hvaða lið
falla. Hefði Björgólfur Takefusa
ekki verið í spartverskum ham hefði
sennilega ekki nokkur maður veitt
því athygli að lokaumferð mótsins
fór fram um helgina.
x x x
Athygli vekur hvað sænski lands-liðsmaðurinn Zlatan Ibrahimo-
vić hefur verið snöggur að laga sig
að leik síns nýja félags en kappinn
hefur skorað í fimm fyrstu leikjum
Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni
í haust. Og þó? Hver myndi ekki
njóta góðs af því að spila við hliðina á
Lionel Messi, Thierry Henry, Xavi
og Andrési Iniesta? Umkringdur
þessum köppum gæti Víkverji jafn-
vel komist á blað! víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 sax, 4 hnusar
af, 7 ekki djúp, 8 kvabbs,
9 tók, 11 tóma, 13 ilma,
14 gálan, 15 bráðum, 17
brúka, 20 hlass, 22 alir,
23 fiskurinn, 24 skyn-
færin, 25 hreinar.
Lóðrétt | 1 mæla, 2
smyrsl, 3 karlar, 4 görn,
5 stygg, 6 þvaðra, 10
dáð, 12 beita, 13 elska,
15 fást við, 16 næstum
ný, 18 heiðursmerki, 19
getur gert, 20 heiðurinn,
21 slæmt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 termítana, 8 fælir, 9 feita, 10 ill, 11 móður, 13
asnar, 15 sögðu, 18 ólgan, 21 Róm, 22 tórum, 23 iðnað,
24 riklingur.
Lóðrétt: 2 eplið, 3 mærir, 4 tafla, 5 náinn, 6 ófim, 7
maur, 12 urð, 14 sál, 15 sótt, 16 gerpi, 17 urmul, 18 óm-
inn, 19 gengu, 20 næði.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5.
Bd3 0-0 6. 0-0 Rc6 7. d5 Rb4 8. Be2 e5 9.
a3 Ra6 10. Re1 Rc5 11. f3 Rh5 12. Be3 f5
13. Rd3 Rxd3 14. Bxd3 f4 15. Bf2 g5 16.
b4 Rf6 17. Kh1 Kh8 18. Re2 g4 19. c4
De8 20. Rc3 Dg6 21. De1 Bh6 22. Bh4
Bg5 23. c5 Hg8 24. Hg1 Dh6 25. Bxg5
Hxg5 26. fxg4
Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga
2009/2010 fór fram um síðustu helgi.
Einn liðsmanna Skákfélagsins Máta var
svo hjálplegur að senda umsjónarmanni
skákhornsins þessa skák sem tefld var á
Íslandsmóti skákfélaga 2008/2009 sem
lauk sl. vor. Liðsmaðurinn ónefndi var
eðlilega hreykinn af fléttu félaga síns,
Þórleifs Karlssonar (2.115), sem hafði
svart í stöðunni gegn Haraldi Bald-
urssyni (1975). 26. … Dxh2+!! 27. Kxh2
Rxg4+ 28. Kh3 Hh5+ 29. Dh4 Rf2+ og
hvítur gafst upp enda mát í næsta leik.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Þverþjóðlegt mót.
Norður
♠ÁD1087
♥Á94
♦G874
♣G
Vestur Austur
♠G ♠K93
♥D1063 ♥G75
♦10653 ♦9
♣Á987 ♣D106543
Suður
♠6542
♥K82
♦ÁKD2
♣K2
Suður spilar 4♠.
Samhliða HM í Sao Paulo fór fram
opin þverþjóðleg keppni með þátttöku
68 sveita. Kunnir kappar fóru þar með
sigur af hólmi: Norðmennirnir Helness
og Helgemo, Pólverjarnir Balicki og
Zmudzinski, ásamt Frökkunum Mul-
ton og Zimmermann.
Suður varð víða sagnhafi í 4♠ eftir
grandopnun og yfirfærslu norðurs.
Spilið er léttunnið, nema út komi tígull.
Þá er hætta á stungu. Þróunin gæti
orðið þessi: Sagnhafi svínar ♠D í öðr-
um slag, sem austur tekur og spilar
♣D – kóngur og ás. Vestur gefur
makker tígulstungu og síðan fær vörn-
in slag á hjarta í fyllingu tímans.
Einmitt. En því skyldi suður leggja
♣K á drottninguna? Setji hann smátt
lauf gerist annað tveggja: stungan fer
fyrir lítið eða ♣K fríast sem niðurkast
fyrir hjarta í borði.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Flýttu þér hægt, því flas er
sjaldnast til fagnaðar. Ef þú ert mjög já-
kvæður og hefur augun opin eru þér allir
vegir færir.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Gættu þess að ganga ekki fram af
þér og þú skalt verða þér úti um eins
mikinn frítíma og þú frekast getur.
Vertu þér meðvitandi um vald þitt og
farðu vel með það.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Lánið mun leika við þig ef þú
ert maður til þess að grípa tækifærið
þegar það gefst. Vertu raunsær í vali
verkefna.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér finnst þú hlaðin(n) orku og
áhuga varðandi vinnuna í dag. Farðu í
bókabúð, á safn eða eitthvert annað sem
þú ert ekki vön/vanur að fara.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú gætir tjáð hugmyndir þínar um
að betrumbæta og gera nýjan mann úr
nánum vini á lýðræðislegri hátt. Láttu
svo ekkert standa á milli þín og ást-
arinnar.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Viðræður skila miklum og hag-
nýtum árangri í dag. Reyndu að vera
fullkomlega heiðarleg/ur bæði við
sjálfa/n þig og aðra.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Einhver í fjölskyldunni lætur orð
falla sem gætu eyðilagt eða bjargað deg-
inum. Njóttu ferskleikans til hins ýtrasta
og uppgötvaðu þér áður óþekkta hluti.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú ert skýjum ofar því
draumar þínir eru orðnir að veruleika.
Af einhverjum undarlegum ástæðum
halda vinnufélagar þínir þér fyrir utan
nýjasta samstarfshópinn.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Fólk sem þú ert innan um
núna virðist einstaklega lagið við að
lenda í vandræðum. Þú logar af metnaði
í augnablikinu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Stattu vörð um heilsu þína og
hamingju. Vertu lítillátur og reyndu að
verða við væntingum eins og þú frekast
getur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ertu að reyna að firra þig
ábyrgð? Eða er einhver að reyna að
forðast þig? Vertu með á nótunum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Láttu sjálfselskuna ekki ná svo
sterkum tökum á þér að þú verðir óal-
andi og óferjandi. Svo þekkirðu líka fullt
af fólki til að spyrja ráða.
Stjörnuspá
29. september 1906
Landssími Íslands tók til
starfa við hátíðlega athöfn.
Símalínan frá Seyðisfirði
norður um land til Reykjavík-
ur var 614 kílómetrar. Sent
var fyrsta símskeyti milli
Reykjavíkur og Kaup-
mannahafnar (frá ráðherra til
konungs).
29. september 1949
„Nýtt söngvasafn handa skól-
um og almenningi“ kom út.
Friðrik Bjarnason og Páll
Halldórsson bjuggu það til
prentunar. Þar voru 225 lög
við vinsæl ljóð.
29. september 1985
Sigurður P. Sigmundsson, þá
28 ára, setti Íslandsmet í
maraþonhlaupi karla í Berlín.
Hann hljóp 42,195 kílómetra á
2 klukkustundum, 19 mínútum
og 46 sekúndum. Metið stend-
ur enn.
29. september 2000
Auðlindanefnd lagði til í
skýrslu sinni að sett yrðu
ákvæði í stjórnarskrá um þjóð-
areign á náttúruauðlindum og
að gjald yrði tekið fyrir nýt-
ingu þeirra. Forsætisráðherra
sagði tillögurnar áfanga í leit
að sátt um fiskveiðistjórn-
unarkerfið.
29. september 2008
Tilkynnt var að ríkissjóður
ætlaði að leggja Glitni til 84
milljarða króna og eignast
75% hlutafjár til að bjarga
bankanum frá gjaldþroti.
„Hamfarir á fjármálamark-
aði,“ sagði Fréttablaðið.
„Stærsta bankarán Íslands-
sögunnar,“ sagði Jón Ásgeir
Jóhannesson í samtali við
blaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„ÉG byrja daginn á að funda með Sinfóníu-
hljómsveitinni en síðan ætla ég að bjóða nánustu
fjölskyldumeðlimum heim til mín í tilefni dagsins.
Þetta verður notalegt, ég ætla að grilla eitthvað
gott á svölunum hjá mér handa fólkinu mínu,“ segir
Þórunn Sigurðardóttir sem fagnar 65 ára afmæli í
dag. „Þetta verður einfalt og smátt í sniðum í takt
við kreppu og breytta tíma. Þegar ég varð sextug
hélt ég aftur á móti stóra og eftirminnilega veislu í
Iðnó sem var ofsalega skemmtilegt og það komu á
annað hundrað manns til að fagna með mér. Hrafn-
hildur Hagalín og Steinunn Ólína voru veislustjórar
en ég hafði unnið með þeim báðum og mæðrum þeirra beggja. Ræð-
urnar voru í bundnu máli og Jagúar spilaði fyrir dansi. Þetta var mikið
fjör,“ segir Þórunn sem var til margra ára listrænn stjórnandi Listahá-
tíðar en starfar nú sem stjórnarformaður í Ago, sem sér um rekstur og
starfsemi Tónlistar og ráðstefnuhússins. Hún segir mjög spennandi að
taka þátt í að móta þá starfsemi sem þar verður. „Ég vil vera þar sem
þörf er fyrir mig. Þetta verður bara skemmtilegra eftir því sem maður
verður eldri. Ég hef aldrei haft eins mikið að gera og núna. Ég hef verið
mjög heppin í mínu lífi.“ khk@mbl.is
Þórunn Sigurðardóttir er 65 ára í dag
Batnar með hverju árinu
Nýirborgarar
Reykjavík Helgi fæddist
24. mars kl. 7.06. Hann vó
3.260 g og var 50 cm lang-
ur. Foreldrar hans eru
Helga Dröfn Helgadóttir
og Sigurgeir Trausti
Höskuldsson.
Reykjavík Lóa fæddist 8.
september. Hún var 15
merkur og 51 cm löng.
Foreldrar hennar eru Rún
Ingvarsdóttir og Daði
Birgisson.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is