Morgunblaðið - 29.09.2009, Blaðsíða 16
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
FRAKKAR lýstu í gær miklum áhyggjum af
eldflaugatilraunum Írana og kröfðust þess að
stjórnvöld í Teheran byndu þegar enda á „aðgerð-
ir sem grafa mjög undan stöðugleika“. Flaug-
arnar geta hitt skotmörk í Ísrael og draga alla leið
til Evrópu. Vestræn ríki hafa fordæmt aðgerðir
Írana sem þeir efna til í kjölfar þess að ljóstrað
var upp um smíði þeirra á nýrri leynilegri verk-
smiðju til að auðga úran en efnið má nota í kjarn-
orkusprengjur.
Á fimmtudag hefja Íranar viðræður í Genf við
Þjóðverja og þjóðirnar fimm sem eiga fastasæti í
öryggisráði SÞ. Öryggisráðið hefur samþykkt
nokkrum sinnum viðskiptalegar refsiaðgerðir
gegn Íran vegna kjarnorkutilraunanna en vitað er
Íranar hvika hvergi
Óvíst hvort Rússar samþykkja væntanlegar tillögur Vesturveldanna um mun
harðari refsiaðgerðir gegn stjórnvöldum í Teheran vegna kjarnorkutilrauna þeirra
» Íranar hafa gert tilraunir
með meðaldrægar Shahab-3- og
Sejil-flaugar sem draga 2000
km og gætu borið kjarnavopn
að stjórn Baracks Obama í Bandaríkjunum vill
mun harðari aðgerðir.
Ein hugmyndin er að stöðva bensínflutninga til
Írans; ríkið er ekki sjálfu sér nógt um bensín,
þrátt fyrir olíulindirnar. En Kínverjar hafa heitið
að selja Írönum áfram bensín og eru andvígir
frekari refsiaðgerðum. Obama lagði nýlega til
hliðar áform um að reisa gagnflaugakerfi í A-
Evrópu en Rússar sögðu flaugunum beint gegn
sér. Óvíst er hvort þessi tilslökun Bandaríkja-
manna breyti að ráði stefnu Rússa gagnvart Írön-
um, að sögn The New York Times. Góð samskipti
við Írana séu Rússum svo mikilvæg að þeir vilji ef
til vill ekki stofna þeim í hættu.
Þýskir kjósendur endurnýjuðu umboð Angelu
Merkel kanslara á sunnudaginn og hún fær nú
tækifæri til að vinna með Frjálsum demókrötum
(FDP) í stjórn sem mun takmarka hlut ríkisins í
þessu stærsta hagkerfi Evrópu.
2005
2002
35,2 34,2 9,8 8,7
38,5 38,5 7,4 8,64
8,1 4
*2009 33,8 23,0 14,6 11,9 10,7 6
*spá
3
Kjörsókn
NIÐURSTÖÐUR (%)
SÆTI
239
146 FDP93
GrænVinstri Aðrir
77,7%
79,1%
ÚRSLIT ÞÝSKU KOSNINGANNA
Heimild: Bundeswahlleiter
20092005
30% 50%
CDU/CSU
SPD
Vinstri
PERSÓNUKJÖR %
Breyting
München
Berlín
Hamborg
Köln
Angela Merkel (CDU-CSU)
Sterkustu flokkarnir í kjördæmunum
Berlín
München
Köln
Hamborg
Kjördæmamörk 2009
VINSTRI 76
GRÆN 68ALLS622
16 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009
Reuters
FELLIBYLURINN Ketsana hefur
valdið geysimiklum flóðum og mann-
tjóni á Filippseyjum, hér er verið að
dreifa matvælum af vörubílspalli í
Pasig City, austan við Manila.
Stjórnvöld óskuðu í gær eftir al-
þjóðlegri aðstoð en ljóst er að
minnst 140 manns fórust í flóðunum
um helgina. Skortur er á stórvirkum
tækjum til að fjarlægja brak úr hús-
um á vegum landsins, víða eru lík á
floti. Bandarískir sérsveitarmenn
björguðu 52 íbúum í austurhluta
Manila, þ.á m. vanfærri konu. Hluti
höfuðborgarinnar Manila fór undir
vatn og urðu hundruð þúsunda
manna að yfirgefa heimili sín. Talin
er hætta á að fólk í yfirfullum neyð-
arskýlum fái ýmiss konar hættulega
smitsjúkdóma. kjon@mbl.is
Ketsana
veldur
flóðum
SVISSNESKIR
fjölmiðlar for-
dæmdu í gær
handtöku kvik-
myndaleikstjór-
ans Romans Pol-
anskis, sögðu
hana „smán-
arblett á ímynd
þjóðarinnar“.
Polanski var
handtekinn í Zü-
rich á laugardag þegar hann kom
þangað til að taka við verðlaunum á
kvikmyndahátíð.
Leikstjórinn er 76 ára. Hann var
ákærður í Kaliforníu 1977 fyrir að
nauðga 13 ára stúlku, Samantha
Geimer, eftir að hafa gefið henni
fíkniefni og áfengi. Polanski játaði
en flúði land áður en dómur féll.
kjon@mbl.is
Fordæma hand-
töku leikstjór-
ans Polanskis
Roman
Polanski
TVEIR Tyrkir og fjórir menn frá
Balkanríkjum hafa verið hand-
teknir í tengslum við ránið í
Stokkhólmi nýverið. Þyrla var not-
uð við ránið. Flugmaðurinn hefur
starfað fyrir sænskar sjónvarps-
stöðvar og átt samskipti við
þekkta stjórnmálamenn. Serb-
neska lögreglan segist hafa vitað
um áform ræningjanna fyrir mán-
uði og varað Svía við en ekkert
verið gert í málinu.
Mennirrnir voru búnir að kaupa
flugmiða til Asíulanda þegar þeir
voru handteknir á sunnudag.
kjon@mbl.is
Meintir ræningjar í
haldi lögreglunnar
PETER Mandel-
son, viðskipta-
málaráðherra
Bretlands, réðst í
gær harkalega á
ónefnda „hægri-
ofstækismenn“
sem hann sagði
nú dreifa orð-
rómi um að
Gordon Brown
forsætisráðherra ætti í erfiðleikum
vegna ofneyslu verkjalyfja, að sögn
Guardian.
Fréttamaður BBC, Andrew
Marr, spurði Brown í viðtali um
orðróminn en ráðherrann virtist
víkja sér undan spurningunni.
Hann ræddi þess í stað um augn-
vanda sinn en Brown missti sjón á
öðru auga í slysi á táningsárunum.
Hornhimnan á hinu er auk þess
sködduð. kjon@mbl.is
Ofnotar Brown
verkjalyf?
Gordon Brown