Morgunblaðið - 29.09.2009, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 272. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-,.
*/0-+,
**1-12
+,-,3
+*-+/.
*0-02+
*+4-,
*-1/*2
*/.-.1
*2+
5 675 +2# 89
6 +44/
*+,-0.
*/0-0+
**1-0*
+,-3++
+*-13/
*0-21,
*+4-0,
*-1/3/
*/0-++
*2+-3*
+1,-1.3.
&:8
*+3-4.
*/2-+
**,-4,
+,-3/,
+*-,++
*0-22.
*+*-42
*-,
*/0-2*
*21-4+
Heitast 8°C | Kaldast 0°C
SV 5-13 m/s, skúrir
eða slydduél, en lengst
af léttskýjað SA-til.
Hlýjast við vestur-
ströndina. »10
Íslenski tölvuleikja-
framleiðandinn Dex-
oris hannaði tölvu-
leikinn Peter und
Vlad fyrir tvær
Apple-græjur. »28
TÖLVULEIKIR»
Skapandi
Íslendingar
AF LISTUM»
Harry og Heimir eru
fyndnir, alveg satt. »33
Vefsafn.is verður
öflug samtímaheim-
ild um íslenskt þjóð-
líf. Vefsafnið verður
opnað í dag og verð-
ur opið almenningi.
»27
FJÖLMIÐLAR»
Vefsíðum
safnað
KVIKMYNDIR»
Fyndið fólk er fjögurra
stjarna. »30
TÓNLIST»
Raggi söng 87 lög á ein-
um degi. »32
Menning
VEÐUR»
1. Lét þrettán ára son sinn keyra
2. Ósáttur við þungan dóm
3. 25% lækkun höfuðstóls gengislána
4. Úrskurðuð í gæsluvarðhald
Íslenska krónan styrktist um 0,3%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Vel á annað þús-
und gestir létu
hríðarbylji ekkert
á sig fá í Skagafirði
á laugardaginn og
fjölmenntu í Lauf-
skálarétt. Var
haldið í góðar hefð-
ir með hópsöng undir rétt-
arveggnum og meðal fjölmargra
þátttakenda þar var Samúel Örn
Erlingsson, hestaíþrótta-
fréttamaður á Sjónvarpinu og vara-
bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í
Kópavogi, sem gaf skagfirskum
hetjutenórum ekkert eftir í söngn-
um. Þéttu menn hópinn í kuldanum
og sungu hátt sem aldrei fyrr.
HESTAR
Gaf skagfirskum tenórum
ekkert eftir í Laufskálarétt
Viðtal við söng-
konuna Margréti
Eddu Jónsdóttur
Gnarr birtist í
bandaríska bæj-
arblaðinu Wicked
Local Rochester á
sunnudaginn. „Ég
setti myndband af áheyrnarprufunni
minni í Idolinu hér heima á Youtube.
Blaðamaðurinn hafði samband við
mig því hann var að gera grein um
Idolið um allan heim og vildi spyrja
mig nokkurra spurninga. Í framhald-
inu tók hann viðtal við mig,“ segir
Margrét sem vinnur að sólóplötu.
TÓNLIST
Margrét Edda Jónsdóttir
Gnarr í bandarísku blaði
Evrópumeist-
aramóti (EM)
landsmeistara í
keilu lauk nýlega á
eynni Krít. Stein-
þór Geirdal Jó-
hannsson gerði
það sem engum
öðrum keppanda á mótinu tókst; að
fella allar tíu keilurnar tólf sinnum í
röð, eða að ná svonefndum 300-leik.
Það vakti ekki síst athygli á Evr-
ópumeistaramótinu að Steinþór náði
þessum frábæra árangri þegar
skipst var á um að kasta kúlunum á
olíubornum brautum og það með
mismiklum olíuburði.
KEILA
Felldi allar tíu keilurnar tólf
sinnum í röð á EM á KrítBANDARÍSKA knattspyrnufélagið
Chicago Red Stars vill fá landsliðs-
konuna Guðrúnu Sóleyju Gunnars-
dóttur í sínar raðir fyrir næsta
tímabil. Chicago hefur öðlast val-
rétt á Guðrúnu og hafði þar betur í
samkeppni við bandarísku meist-
arana Jersey Sky Blue, sem höfðu
líka augastað á henni.
Forráðamenn Chicago eru búnir
að setja sig í samband við KR og
Guðrúnu, en hún leikur með Djur-
gården í Svíþjóð og er þar í láni frá
KR. Hún er samningsbundin Vest-
urbæjarfélaginu út næsta ár.
„Mér líst rosalega vel á þetta og
það er spennandi kostur að fara og
spila í þessari sterku deild. Svo
spillir ekki fyrir að Chicago er
uppáhaldsborgin mín, ég var í
Notre Dame-háskólanum skammt
frá henni og er enn spenntari fyrir
vikið. Mér skilst að liðið spili mjög
góðan sóknarleik en þurfi að
styrkja vörnina,“ sagði Guðrún Sól-
ey við Morgunblaðið í gær.
Hún er menntaður fjármála-
hagfræðingur og er nýbúin að ráða
sig til sænska seðlabankans til sex
mánaða. vs@mbl.is | Íþróttir
Chicago vill
fá Guðrúnu
Morgunblaðið/Golli
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
HAUSTLITIRNIR eru að verða allsráðandi í náttúr-
unni. Haustlægðirnar hafa gengið yfir landið hver af
annarri síðustu daga en á fögrum degi, eins og í gær, get-
ur fólk notið litadýrðarinnar.
Það hefur vakið verðskuldaða athygli að ítrekað hafa
veðurfréttir RÚV verið það sem mest er horft á allra
dagskrárliða sjónvarpsstöðvanna í sumar, samkvæmt
mælingum Capacent-Gallup.
Ef síðasta tiltæk mælivika er skoðuð hjá Capacent-
Gallup, þ.e. 37. vika ársins, 7.-13. september, tróna veð-
urfregnirnar á toppnum með 28,3% áhorf fólks á aldr-
inum 12 til 80 ára. Er hér miðað við meðaláhorf á mínútu.
Veðrið skiptir Íslendinga miklu máli og það hlýtur að
vera helsta skýringin á hve mikið fólk horfir á veður-
fréttir í sjónvarpi. Einnig hlýtur það að hafa áhrif að
veðurfréttirnar eru sýndar á besta tíma hjá RÚV, þ.e.
milli kvöldfréttanna og Kastljóssins. Þegar leitað var til
sérfræðinga á þessu sviði höfðu þeir ekki tiltækar upp-
lýsingar um það hvort áhugi Íslendinga á veðurfréttum
ætti sér hliðstæðu meðal annarra þjóða eða væri eins-
dæmi.
Veðurfréttir RÚV skáka hinum vinsæla spurninga-
þætti Popppunkti, sem er næstur með 27,1% áhorf. Í
þriðja sæti er kvennalandsleikur í knattspyrnu með
26,6% og síðan kemur þáttur Gísla Einarssonar, Út og
suður, með 21,7%.
Fréttir RÚV hafa 21,2% áhorf og Kastljós 21,1%. Sér-
staka athygli vekur að þessa sömu viku er áhorf á Ísland
í dag á Stöð 2 meira en fréttir RÚV, eða 21,5%. Áhorf á
fréttir Stöðvar 2 er 19,0%. | 14
Morgunblaðið/Ómar
Veðurfréttirnar vinsælastar
Veðurfréttir RÚV hafa ítrekað verið vinsælasta sjón-
varpsefnið í sumar Með meira áhorf en Popppunktur
EINSTAKAR frumgerðir íslenskra peningaseðla
fyrir seðlaútgáfuna árin 1957 og 1958 verða boðn-
ar upp hjá uppboðsfyrirtækinu Spinks í London í
dag. Um er að ræða tillögur að seðlum á verð-
bilinu 10-5000 krónur sem voru aldrei notaðar,
þótt kunnuglegum andlitum bregði fyrir á nokkr-
um þeirra.
Magni R. Magnússon safnari sá seðlana nýlega
þegar hann var á ferðinni í Lundúnum. „Spinks er
stórt uppboðsfyrirtæki í London og er með útibú
út um allan heim. Þegar ég var með búðina Hjá
Magna skipti ég oft við þá.“
Hver seðill er teiknaður í tveimur útgáfum en
verðgildin eru 10, 25, 100, 1000 og 5000 krónur.
Forkólfar úr íslensku stjórnmála- og þjóðlífi
prýða seðlana, s.s. Jón Sigurðsson, Tryggvi Gunn-
Frumgerðir seðla á uppboði
Áætlað að hátt í milljón fáist fyrir tillögur sem gerð-
ar voru fyrir íslensku peningaprentunina 1957-1958
arsson, Magnús Stephensen og Jón Eiríksson,
auk þess sem Skúli Magnússon hefur átt að prýða
5000-kallinn, en ekki var lokið við teikninguna af
honum. Athygli vekur að á 25 króna seðlinum og
annarri gerðinni af 5000 króna seðlinum er talan
fimm skrifuð „simm“ og segir Magni það senni-
lega benda til þess að teiknarinn hafi verið af
þýskum uppruna. „Hann hefur sennilega litið á ís-
lenska f-ið eins og gotneska s-ið í þýskunni,“ út-
skýrir hann.
Á bakhlið seðlanna má sjá ýmiskonar tákn-
myndir framfara í landinu, s.s. hafnir, virkjanir,
togara og vegaframkvæmdir.
Ásett verð á seðlasafninu er 3000-4000 pund,
eða um 600-800 þúsund krónur, auk þóknunar
uppboðshaldara. ben@mbl.is
Tillögur Ekki var lokið við að teikna andlit Skúla
Magnússonar á 5000 króna seðilinn.