Morgunblaðið - 29.09.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.09.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Sigtrygg Sigrtyggsson sisi@mbl.is VEÐRIÐ skiptir Íslendinga miklu máli og það hlýtur að vera helsta skýringin á hve mikið fólk horfir á veðurfréttir í sjónvarpi. Einnig hlýtur það að hafa áhrif að veð- urfréttirnar eru sýndar á besta tíma hjá RÚV, þ.e. milli kvöld- fréttanna og Kastljóssins. Þegar leitað var til sérfræðinga á þessu sviði höfðu þeir ekki tiltækar upp- lýsingar um það hvort áhugi Íslend- inga á veðurfréttum ætti sér hlið- stæðu meðal annarra þjóða eða væri einsdæmi. Ef síðasta tiltæk mælivika er skoðuð hjá Capacent-Gallup, þ.e. 37 vika ársins, 7. til 13. september, tróna veðurfregnirnar á toppnum með 28,3% áhorf fólks á aldrinum 12 til 80 ára. Er hér miðað við með- aláhorf á mínútu. Veðrið skákar Popppunkti Veðurfréttirnar skáka hinum vin- sæla spurningaþætti Popppunkti, sem er næstur með 27,1% áhorf. Í þriðja sæti er kvennalandsleikur í knattspyrnu með 26,6% og síðan kemur þáttur Gísla Einarssonar, Út og suður, með 21,7%. Fréttir RÚV hafa 21,2% áhorf og Kastljós 21,1%. Sérstaka athygli vekur að þessa sömu viku er áhorf á Ísland í dag á Stöð 2 meira en frétt- ir RÚV, eða 21,5%. Áhorf á fréttir Stöðvar 2 er 19,0%. Tíuveður RÚV nær 19% og veð- urfregnir Stöðvar 2 ná 12,2% áhorfi. Fróðlegt er að bera þessar tölur saman við áhorfstölur sömu viku fyr- ir nákvæmlega ári. þ.e. 8-14. sept- ember 2008. Þá kemur í ljós að áhorf á alla fréttatíma RÚV hefur dalað umtalsvert nema veðurfréttirnar. Þær hafa tekið stökk upp á við. Fréttir RÚV voru með 27,0% áhorf í fyrra og tíufréttirnar voru í 4. sæti með 25,8%, en þær komast ekki á lista yfir efstu 10 nú í ár. Í fyrra voru fréttir Stöðvar 2 með svipað áhorf, eða 19,0%. Í fyrra var Ísland í dag með 11,1% áhorf svo segja má að sá þáttur sé hástökkvarinn milli ára. Vinsælasti þátturinn á Skjá einum í ár er Law&order með 16,0 áhorf en sömu viku í fyrra var það C.S.I. New York, með 20,4%. Sem fyrr er miðað við aldurshópinn 12-80 ára. Gallup mælir einnig áhorf í ald- urshópnum 12-49 ára og þar breytist röðin nokkuð. Hjá RÚV skjótast Popppunktur og landsleikurinn upp fyrir veðurfréttirnar. Hjá Stöð 2 heldur Ísland í dag toppsætinu en Auddi og Sveppi, Ástríður og The Simpsons skjótast upp fyrir fréttir Stöðvar 2. Þegar hlutdeild viðkomandi sjón- varpsstöðvar í heildaráhorfi í viku 37. er skoðuð kemur í ljós að Rík- issjónvarpið er með stærstan hlut eða 44,6%, Stöð 2 er með 25,5% og SkjárEinn með 15,0% hlutdeild. Á aðrar stöðvar, svo sem sportrás- ir og svokallaðar plússtöðvar, er mun minna horft á. Um 500 manns með tæki á sér Mælingin á sjónvarpsáhorfi og út- varpshlustun fer þannig fram að um 500 manns eru með tæki á sér sem mælir þetta með rafrænum hætti. Aðeins misjafnt eftir dögum hve svörin eru mörg því alltaf eru ein- hverjir í útlöndum eða ekki að nota miðlana af einhverjum ástæðum. Áður en þátttakendur fara að sofa á kvöldin setja þeir mælitækið í sér- stakt hleðslutæki. Þetta tæki hefur tvenns konar tilgang. Það hleður tækið fyrir næsta dag og tekur jafn- framt við gögnum um áhorf dagsins og sendir Capacent-Gallup yfir há- nóttina. Landinn er sólginn í veðurfréttir  Veðurfréttir Ríkissjónvarpsins hafa ítrekað verið það sem mest er horft á í sjónvarpinu í sumar  Þær hafa jafnvel skákað fréttatímunum hjá RÚV  Þátturinn Ísland í dag á Stöð 2 er hástökkvarinn milli ára Morgunblaðið/Eggert Gleði Fólk er spennt að fylgjast með því hvort sólin muni skína á kroppinn.                                                ! Í HNOTSKURN »Fyrri mælingar á áhorfisjónvarpsstöðva og hlustun á útvarpsstöðvar fóru þannig fram að þátttakendur héldu dagbækur. »Fyrir tæpum tveimur ár-um var tekin upp svoköll- uð rafræn mæling með um 500 þátttakendum. »Rafræna mælingin er talingefa mun raunhæfari nið- urstöðu um notkun fólks á ljósvakamiðlum. Talsverð breyting hefur orðið á út- varpshlustun milli ára og greini- legt að útvarpsstöðin Bylgjan hef- ur mjög sótt í sig veðrið. Þegar skoðuð er 37. vika þessa árs kemur í jós að hlutdeild Bylgj- unnar í heildarhlustun í vikunni er 36,4%, Rásar tvö 32,2% og Rásar eitt 16,7%. Er þá miðað við aldurs- hópinn 12-80 ára. Sömu viku árið 2008 var hlutdeild Rásar tvö 35%, Bylgjunnar 30,5% og Rásar eitt 19,1%. Þegar aldurshópurinn hefur ver- ið þrengdur í 12-49 ára eru yf- irburðir Bylgjunnar enn meiri. Hún er með 46,1% hlustun, Rás tvö 24,9% og Rás eitt 5,2%. Í þessum aldurshópi hefur FM 95,7 skotist upp í þriðja sætið með 15% hlustun. Í aldurshópnum 12-49 ára hefur Bylgjan bætt við sig tæpum 6 pró- sentustigum milli ára en Rás tvö tapað 4 prósentustigum. FM hefur bætt við sig rúmu prósentustigi en Rás eitt tapað rúmu stigi. Í niðurstöðum Capacent-Gallup kemur ekki fram hvernig hlustun skiptist milli einstakra þátta. Hlustun á Bylgjuna hefur aukist milli ára Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is KOSTNAÐUR við undirbúning óperuhúss í Kópavogi nam um 34,6 milljónum króna, en það hefur nú verið slegið af. Á fjárhagsáætlun 2008 voru 100 milljónir króna ætl- aðar til undirbúnings. Áætlaður kostnaður nam 2,5 milljörðum króna samkvæmt hönnunargögn- um en útreikningur miðað við til- lögur arkitekta í hönnunarsam- keppni sýndi 2,8 milljarða kr. kostnað fyrir utan um 1,2 milljarða kostnað í sviðsbúnað. Þetta kom fram á síðasta fundi bæjarráðs Kópavogs. Í sund- urliðun kostnaðar má sjá að að- keypt tækniþjónusta var um 19,6 milljónir króna og kostnaður vegna verktaka nam um 12,7 millj- ónum. Gunnsteinn Sigurðsson, bæj- arstjóri í Kópavogi, segir að ekki hafi verið pólitískur ágreiningur um fyrirhugaða framkvæmd. Sér- stök nefnd fulltrúa Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks hafi haldið utan um verk- efnið og segja megi að það hafi verið lán í óláni að verkefnið hafi ekki verið komið lengra, þegar hrunið skall á. „Við erum ekkert að fara að nýta þessa fjárfestingu á næst- unni,“ svarar Gunnsteinn spurður hvort undirbúningskostnaðurinn sé tapað fé. „Það liggur alveg ljóst fyrir að við erum ekki að fara að byggja óperuhús á næsta ári eða þar næsta.“ Hann bætir við að ís- lenska óperan fái líklega inni í Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu í Reykjavík og Kópavogur hafi ekki fjármuni til þess að halda verkefn- inu áfram. Kostnaður um 34,6 milljónir króna Áætlun vegna óperuhúss hljóðaði upp á um 2,8 milljarða Morgunblaðið/Golli Salurinn Tónlistarhús Kópavogs var byggt utan um tónlistina. ÞAÐ hefur vakið verðskuldaða at- hygli að ítrekað hafa veðurfréttir RÚV verið það sem mest er horft á allra dagskrárliða sjónvarps- stöðvanna í sumar, samkvæmt mælingum Capacent-Gallup. ÞINGFLOKKUR og landsstjórn Framsóknarflokksins leggjast ein- dregið gegn því að skattahækkanir ríkisstjórnarinnar nái til virð- isaukaskatts á matvæli. Slík hækk- un mun koma verst við lág- tekjufólk, atvinnulausa, aldraða og öryrkja,“ segir m.a. í tilkynningu frá þingflokki framsóknarmanna eftir sameiginlegan fund þing- flokksins og landsstjórnar Fram- sóknarflokksins, sem haldinn var á Hólmavík 27.-28. september s.l. Þá taldi fundurinn jákvætt ef rík- isstjórnin ætlaði að grípa til al- mennra aðgerða til að leiðrétta skuldir heimilanna, líkt og fram- sóknarmenn og fleiri hefðu barist fyrir í átta mánuði. „Framsóknarmenn fagna því þegar frumkvæði að atvinnu- uppbyggingu kemur frá heima- mönnum á hverjum stað. Hlutverk ríkisstjórnar er að skapa aðstæður og styðja heimamenn. Í því ljósi harmar fundurinn að ríkisstjórnin standi ekki heilshugar að baki Norðlendingum í þeirra atvinnu- sköpun.“ Gegn hækkun á matarskatti Framsókn Þingflokkur framsókn- armanna hélt fund með landsstjórn. „Við viljum vita um hvað málið snýst. Okkur líst ekki á að verið sé að framlengja það óvissuástand sem er í þjóðfélaginu. Það er kominn tími til að ríkisstjórnin komi með skýra stefnu í orkumálum og öðrum stórum atvinnumálum sem búið er að gefa fólkinu fyrir norðan undir fótinn með,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suð- urlandi, sem óskað hefur eftir fundi í iðnaðarnefnd Alþingis. Tilefnið er að stjórnvöld hyggjast ekki framlengja viljayfirlýsingu um álverið á Bakka við Húsavík. Vill nefndarfund um álverið á Bakka Unnur Brá Konráðsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.