Morgunblaðið - 29.09.2009, Page 15

Morgunblaðið - 29.09.2009, Page 15
Fréttir 15VIÐSKIPTI|ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009 Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is VÍSITALA neysluverðs miðuð við verðlag í september 2009 er 349,6 stig og hækkaði um 0,78 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 328,9 stig og hækk- aði hún um 0,86 prósent frá ágúst. Verð á fötum og skóm hækkaði um 6,2 prósent og verð á dagvörum, þar á meðal matvælum, um 1,5 pró- sent. Kostnaður vegna eigin hús- næðis hækkaði um 0,8 prósent og voru áhrif af hækkun markaðsverðs 0,14 prósent en af lækkun raunvaxta -0,04 prósent. Verð á bensíni og dís- ilolíu lækkaði um 2,8 prósent og verð á flugfari til útlanda lækkaði um 12,7 prósent. Húsnæðisverð hækkar lítillega Húsnæðisverð hefur hækkað um 1,13 prósent milli mánaða, en þetta er í fyrsta skipti í fjóra mánuði sem húsnæði hækkar milli mánaða. Vísitala húsnæðisverðs stendur nú í 217,5 stigum en til samanburðar var hún 251 stig í janúar 2008. Flest- ir kaupsamningar vegna fasteigna í dag eru á grundvelli makaskipta. Guðrún R. Jónsdóttir, deildarstjóri vísitöludeildar Hagstofunnar, segir að Hagstofan taki sérstaklega út makaskiptasamningana í mæling- unum. „Við notum háa ávöxt- unarkröfu til þess að núvirða þá samninga. Við segjum, þetta eru ekki peningar og þess vegna eru um- ræddir samningar ekki eins verð- mætir og reiðufé,“ segir Guðrún. Hún segir að markaðsverð húsnæðis hafi lækkað um 11,1 prósent á und- anförnum tólf mánuðum, um sé að ræða 20 prósent raunlækkun sem sé mjög mikið fyrir einn lið. „Þetta er sveiflukennt og því er ekki að neita að þetta eru fáir samningar,“ segir Guðrún. Hún segir að vísitalan gefi ágæta mynd af því að neysla almennings sé að breytast. Hún segir að hækkanir á dagvörum séu meðal annars til komnar vegna sykurskatts sem lagður var á matvörur hinn 1. sept- ember sl. Hækkanir á fatnaði megi rekja til þess að útsöluáhrif séu að ganga til baka. Fatnaður og matvara hækka Morgunblaðið/Sverrir Hækkanir Matvörur hafa hækkað og liggur skýringin m.a. í vörugjöldum og sykurskatti sem lagður var á matvörur hinn 1. september síðastliðinn. Verðbólgan mælist nú 10,8 prósent ● STARFSMENN greiningardeildar Deutsche Bank eru bjartsýnni á fram- tíðarvöxt íslenska hagkerfisins en írska. Í nýrri greiningu nefna þeir fyrst til sög- unnar aðlögun sem hefur átt sér stað í gegnum gengi íslensku krónunnar. Í greiningunni kemur fram að sam- keppnishæfni Íslands hafi aukist veru- lega með falli krónunnar. Borinn er saman kostnaður á hverja vinnustund, sem sögð er hafa fallið um 29% síðasta ár og um 45,6% frá síðasta ársfjórð- ungi 2005. Gengisaðlögun og betri nýt- ing náttúruauðlinda séu frekari vexti mikilvæg. bjorgvin@mbl.is Gengisaðlögun til góðs  "         # $         !" #!$ %  &        '()* +          %,  &      ÞETTA HELST ... ● VELTA með hlutabréf í Kauphöllinni í gær var rúmlega 1,57 milljarðar króna sem er töluvert meira en veltan und- anfarið. Þar ræður mestu velta með bréf Marels, sem var rúmlega 1,5 millj- arðar króna en bréf félagsins hækkuðu um 5,18% í viðskiptum gærdagsins. Velta með skuldabréf í Kauphöllinni var 12,8 milljarðar króna. thorbjorn@mbl.is 5% hækkun Marels ● GENGI ís- lensku krónunnar styrktist um 0,36 prósent í gær og stóð geng- isvísitalan í 233, 40 stigum við lok- un viðskipta, samkvæmt upplýs- ingum frá gjald- eyrisborði Íslandsbanka. Ein evra kostar nú um 182,5 krónur, Bandaríkjadalur 124,22 krónur og danska krónan um 24,5 íslenskar krón- ur. Þá kostar breskt pund 197,6 krónur, en virði þess fór í fyrsta sinn niður fyrir 200 krónur á föstudag frá því í byrjun júnímánaðar. thordur@mbl.is Íslenska krónan styrktist um 0,36% ● KRÖFUHAFAR Glitnis munu fá á bilinu 22 til 36 prósent af kröfum sínum greidd. Þetta kom fram á Bloomberg fréttastofunni í gær samkvæmt upplýs- ingum frá skilanefnd Glitnis. Þá var stofnefnahagsreikningur Íslandsbanka, sem stofnaður var um innlenda starfsemi Glitnis, birtur í gær, 364 dögum eftir að tilkynnt var um yfirtöku ríkisins á meirihluta í bank- anum. Þar kom fram að heildareignir bankans væru um 629 milljarðar króna, og þar af eru innlán um 424 milljarðar króna. Í bráðabirgða- stofnefnahagsreikningi bankans sem birtur var í nóvember 2008 voru eignir áætlaðar 885 milljarðar króna. thordur@mbl.is Kröfuhafar fá 22-36% CHALET 101, skíðasetur Jóns Ás- geirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur eiginkonu hans við 1850 Courchevel í frönsku ölpunum, hefur verið auglýst til sölu hjá fast- eignasölunni Courchevel Estates. Á vefsíðu fasteignasölunnar er verð ekki gefið upp og er óskað eftir til- boðum. Minni skíðaskáli Jóns Ás- geirs á sama stað tilheyrir í dag þrotabúi Baugs og er í sölumeðferð. Fram kemur í ársreikningi BG Dan- mark, sem er skráður eigandi skíða- setursins, að Gaumur hafi reynt að endurfjármagna fasteignina með þátttöku EFG-bankans í Lúx- emborg. Gaumur, sem er í eigu Jóns Ásgeirs og fjöl- skyldu, keypti BG Danmark af Baugi hinn 23. október á síðasta ári. Eins og greint hefur ver- ið frá í Morgun- blaðinu greiddi Gaumur fyrir bréfin í BG Dan- mark með útgáfu skuldabréfs. Jón Ásgeir staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að skíðasetrið væri til sölu, en vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. thorbjorn@mbl.is Franskt skíðasetur Jóns Ásgeirs til sölu Jón Ásgeir Jóhannesson Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is AURLÁKI ehf., félag í eigu bræðr- anna Karls og Steingríms Wern- erssona, keypti 99,9% eignarhlut í Lyfjum og heilsu ehf. á um 3,4 millj- arða króna hinn 31. mars 2008. Seljandinn var L&H eignarhalds- félag, sem aftur var í 100% eigu Mile- stone. Wernersbræðurnir voru aðal- eigendur Milestone á þessum tíma. Greitt var fyrir með yfirtöku skulda upp á 2,5 milljarða króna og 896 milljóna króna seljendaláni sem átti að greiðast við fyrstu hent- ugleika. Búið að gera upp skuldina Þetta kemur fram í úttekt endur- skoðunarfyrirtækisins Ernst & Yo- ung á viðskiptum Milestone við tengda aðila sem skilað var inn 1. september síðastliðinn. Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að lánið hefði verið gert upp fljótlega eftir að viðskiptin áttu sér stað. Stuðst var við verðmat KPMG þegar kaupverðið á Lyfjum og heilsu var ákveðið en það hafði metið virði fyrirtækisins á 3,442 milljónir króna. Aurláki ehf. var stofnað snemma árs 2008 og hét þá GÓ1 ehf. Hinn 24. október síðastliðinn, eftir fall ís- lensku viðskiptabankanna, barst fyrirtækjaskrá síðan tilkynning um að á aðalfundi félagsins hinn 31. mars 2008 hefði nafni þess verið breytt í Aurláka og þeir Karl og Steingrímur sest í stjórn þess. Í þeirri tilkynningu kemur auk þess fram að Aurláki hafi keypt allt hlutafé í Lyfjum og heilsu ehf. Eignir til Moderna sama dag Milestone færði helstu eignir sín- ar undir sænska félagið Moderna Finance AB í Svíþjóð sama dag og Lyf og heilsa ehf. var selt Aurláka. Eignirnar sem um ræðir eru Askar Capital, tryggingafélagið Sjóvá og L&H eignarhaldsfélag. Skilanefnd Glitnis tók Moderna yfir fyrr á þessu ári, skipt hefur um kennitölu á tryggingarekstri Sjóvár og Milestone tekið til gjald- þrotaskipta fyrr í þessum mánuði, líkt og fyrr sagði. Þá eru fjárfestingar Sjóvár á undanförnum árum til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara. Borgað eftir hentugleiku  Verslunarkeðjan Lyf og heilsa var seld til félags í eigu Wernersbræðra vorið 2008  Fengu lánað hjá Moderna fyrir kaupunum  Hafa þegar gert upp lánið Í HNOTSKURN »Í úttekt Ernst & Young áMilestone kemur einnig fram að það hafi lánað öðru fé- lagi í eigu Wernersbræða sam- tals 6,1 milljarð króna. »Um 2,5 milljarðar króna afupphæðinni fóru til að kaupa systur þeirra, Ingunni, út úr Milestone. »Það stangast á við 104. gr.hlutafélagalaga að lána hluthafa til að fjármagna kaup í félaginu sjálfu. Karl Wernersson Steingrímur Wernersson ● ÞEIR sem telja sig eiga kröfur á Sparisjóðabanka Íslands, sem hét um tíma Icebank, hafa frest til 3. október næstkomandi til að lýsa kröfunum. Sparisjóðabankanum var veitt heim- ild til greiðslustöðvunar í mars síðast- liðinn. Eftir 15. júní fór bankinn í slita- meðferð og var skipuð slitastjórn. Kröfulýsingar á að senda til slitastjórn- arinnar sem er til húsa að Rauðarárstíg 27 í Reykjavík. Í Lögbirtingablaðinu í gær var boð- að til kröfuhafafundar í fundarsal Spari- sjóðabankans föstudaginn 23. október. Rétt til setu á fundinum eiga þeir sem lýst hafa kröfu á hendur bankanum. Þar verður afstöðu slitastjórnar til krafnanna lýst. bjorgvin@mbl.is Eiga að lýsa kröfum í Sparisjóðabankann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.