Morgunblaðið - 29.09.2009, Qupperneq 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 2009
✝ Örn Vilmundarsonfæddist á Akranesi
25. júní 1962. Hann lést
19. september síðast-
liðinn á heimili sínu,
Hurðarbaki í Hval-
fjarðarsveit. Foreldrar
hans voru Vilmundur
Jónsson, f. 7.11. 1935,
d. 13.2. 1999, og kona
hans, Sigríður Salvör
Georgsdóttir, f. 21.3.
1930, d. 6.6. 1971.
Systkini Arnars eru
Georg, f. 1954. Guð-
jóna, f. 1959. Vilborg,
f. 1960, og Eyvindur Gauti, f. 1977.
Örn var í sambúð með Guðrúnu
Mogesen, f. 6.6. 1963, og eignuðust
þau tvær dætur, þau skildu. Örn gift-
ist Ingibjörgu Þorbjörgu Eyjólfs-
dóttur, f. 3.7. 1960, og eignuðust þau
Synir hans Mikael Aron, f. 5.8. 2003,
Baldur Freyr, f. 9.6. 2005.
Guðrún Þóra, f. 30.4. 1987. Móðir:
Ragnhildur Pála Tómasdóttir, f.
23.10. 1958. Davíð Arnarson, f. 7.7.
1987. Móðir: Sigríður Davíðsdóttir, f.
20.11. 1960. Sigríður Helga, f. 9.4.
1991. Móðir: Guðrún Mogensen, f.
6.6. 1963. Sambýlismaður Danlord
Ragmat. Dóttir þeirra Apríl Eva, f.
16.7. 2009. Sigrún Eva, f. 28.4. 1993.
Móðir: Guðrún Mogesen, f. 6.6. 1963.
Sunneva, f. 3.6. 1995. Móðir: Svava
Þórhildur Hjaltalín, f. 24.11. 1963.
Eyþór Vilmundur, f. 9.1. 2000. Móðir:
Ingibjörg Þorbjörg Eyjólfsdóttir.
Erna Björg Rán, f. 29.6. 2003. Móðir:
Ingibjörg Þorbjörg Eyjólfsdóttir.
Örn fæddist og ólst upp á Akranesi
til 11 ára aldurs en fluttist þá með
föður sínum til Reykjavíkur.
Útför Arnar fer fram frá Hall-
grímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarð-
arströnd í dag, 29. sept. og hefst at-
höfnin kl. 13.
Meira: mbl.is/minningar
tvö börn, þau skildu.
Sambýliskona Kristín
Sigfúsdóttir, f. 1.2. 1962.
Börn Kristínar: Sigfús
Helgi, f. 3.4. 1989, Helga
Margrét, f. 5.3. 1992,
Kristín Hlíf, f. 4.2. 1996.
Börn Arnar: Hallgrímur
Viðar, f. 22.7. 1979.
Móðir: Harpa Hall-
grímsdóttir, f. 9.6. 1962.
Maki: Miriam Jutta Arn-
arson, f. 18.1. 1974.
Börn þeirra eru Erik, f.
23.6. 2002, og Freyja
Líf, f. 8.8. 2007.
Guðmundur Orri, f. 22.6. 1983.
Móðir: Jórunn Petra Guðmunds-
dóttir, f. 30.8. 1962. Sambýliskona:
Kolbrún Ýr Oddgeirsdóttir, f. 2.9.
1987. Birgir Þór, f. 18.10. 1985. Móð-
ir: Jónína Birgisdóttir, f. 9.9. 1957.
Kallið kom – við finnum ekki orð
Aðeins stöndum hjá – í hljóði söknum.
Maður verður samt að mæta um borð
Því morgunn lífsins bíður er við vöknum.
(Höf Emmó.)
Maður verður orðlaus við svona
sviplegt andlát. Við Örn fengum mjög
stuttan tíma saman. Við náðum strax
mjög vel saman, þekktumst reyndar
sem unglingar en hann var oft innan
míns vinahóps sem brallaði margt og
skemmtilegt saman, sumt ekki prent-
hæft.
Þegar ég starfaði í Hvalstöðinni
þeystist hann eitt sinn inn í eldhús til
mín um miðja nótt í ermalausum
Nike-bol, kvartbuxum og strigaskóm
og bað mig að gefa sér að borða. Þeg-
ar hann var orðinn saddur læddi hann
því að mér að hann væri líka bens-
ínlaus en hann yrði að komast í bæinn
og það strax, eins og honum einum
var lagið. Ég reddaði manninum,
ræsti út bensínstrákinn í Olíustöðinni
svo Örn kæmist leiðar sinnar.
Hann var alveg með það á hreinu
að hann yrði ekki langlífur, en yfir 50
árin ætlaði hann að ná. Við vorum bú-
in að ákveða að halda upp á afmælin
okkar saman. Hann ætlaði að mæta
með sitt síða hár, koma öllum á óvart
um miðnættið og stökkva fram í
gleðina með stutt hár.
Við fengum tvær yndislegar helgar
saman áður en yfir lauk, fórum á
ljósanótt í Keflavík þar sem hann hitti
marga vini og kunningja og skemmti
sér konunglega. Á heimleiðinni vildi
hann fara fjörðinn og þegar í Saur-
bæjarhlíðina var komið vippaði hann
sér út af þjóðveginum, upp í fjall og
sýndi mér lóð sem hann hafði haft
augastað á lengi. Þarna vildi hann
byggja heilsárshús og bað mig að búa
þar með sér.
Síðustu helgina sem Örn lifði var
yndisleg fjölskylduhelgi en yngstu
börnin hans voru hjá okkur. Við
fylgdumst með smalamennsku og
réttum í sveitinni. Hann kvaddi litlu
börnin sín á sunnudeginum, sáttur
með gleði í hjarta. Örn var mikill fjöl-
skyldumaður. Hann var lánsamur og
eignaðist stóran og fallegan barna-
hóp. Það kom sérstakt blik í augun á
honum þegar hann ræddi um börnin
sín við mig. Hann elskaði þau öll og
var mjög stoltur af þeim. Einnig náði
hann mjög vel til barnanna minna og
þeim þótti mjög vænt um hann. Það
var aldrei logn í kringum Örn, hann
var litríkur persónuleiki. Hann var
mikill fótboltaáhugamaður og mikið
gekk á ef hans menn, Arsenal, stóðu
sig ekki.
Ástin mín, okkar tími var alltof
stuttur, ég elskaði þig af öllu mínu
hjarta og við vorum miklir vinir.
Framtíðin blasti við okkur. Þú varst
fæddur náttúrulegur cool-gaur eins
og þú sagðir sjálfur. En Guð? – það
hlýtur að vera einhver tilgangur með
því að hann Öddi minn þurfti að
kveðja svona fljótt, kannski hefur
vantað stjórnanda þarna uppi.
Ég votta öllum börnunum þínum,
fjölskyldunni, fyrrverandi konu og
vinum, mína dýpstu samúð og megi
guð styrkja ykkur í þessari miklu
sorg. Hvíl í friði, elsku Öddi minn,
kannski eigum við eftir að hittast aft-
ur en ég kem ekki strax.
Elskaði þig svo mikið, ástin mín.
Mun sakna þín rosalega. Takk fyrir
mig.
Þín sambýliskona,
Kristín Sigfúsdóttir,
Hlíðarbæ.
Örn Vilmundarson
Fleiri minningargreinar um Örn
Vilmundarson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Óttar Bjarkan
Bjarnason
✝ Óttar BjarkanBjarnason fædd-
ist á Siglufirði 29.
september 1955.
Hann lést á gjör-
gæsludeild Landspít-
alans við Hringbraut
31. janúar síðastliðinn
og fór útför hans fram frá Hjallakirkju 6.
febrúar.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, sambýliskona,
amma, frænka og systir,
JÓHANNA RAGNARSDÓTTIR,
Möðrufelli 13,
Reykjavík,
varð bráðkvödd á heimili sínu að morgni fimmtu-
dagsins 24. september.
Útför hennar fer fram frá Seljakirkju föstudaginn
2. október kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hilmar Þór Valsson.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts eiginkonu minnar
og móður okkar,
SIGRID TOFT,
Selási 11,
Egilsstöðum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar
Austurlands og annarra þeirra sem sýndu umhyggju
og aðstoðuðu í veikindum hennar.
Magnús Pálsson,
Kristín Einarsdóttir,
Guðrún Einarsdóttir,
Þorsteinn Einarsson.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
RÓSU AÐALHEIÐAR GEORGSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til allra þeirra sem hlúðu að henni
í veikindum hennar.
Sigríður Guðmundsdóttir,
Kristín Björg Kjartansdóttir, Þorgrímur Benjamínsson,
Ástríður Thorarensen, Stefán Thorarensen,
Anna María Pétursdóttir, Þorlákur Kjartansson,
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
PÁLL G. PÁLSSON,
Arnarhrauni 5,
Hafnarfirði,
andaðist á Hrafnistu Hafnarfirði laugardaginn
26. september.
Vilhelmína S. Jónsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma,
GYÐA GRÍMSDÓTTIR,
sem lést laugardaginn 19. september, verður
jarðsungin frá Hveragerðiskirkju fimmtudaginn
1. október kl. 14.00.
Óttar Egilsson, Anat Egilsson,
Davíð Sigmarsson, Sólrún Sigurðardóttir,
Guðrún Rut Sigmarsdóttir, Lárus Guðmundsson,
Kristín María Grímsdóttir,
Sigríður Grímsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskuð móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN SVANLAUG ANDERSEN
frá Sandprýði
í Vestmannaeyjum,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn
25. september.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL HAUKUR GÍSLASON,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
miðvikudaginn 23. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Steinunn Unnur Pálsdóttir, Einar Hörður Þórðarson,
Halldóra Pálsdóttir,
Sigurður Pálsson, Jóhanna Skúladóttir,
afa- og langafabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
SONJA JÓHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
andaðist á sjúkrahúsinu í Þórshöfn, Færeyjum,
sunnudaginn 27. september.
Útför verður auglýst síðar.
Svavar Benediktsson,
Díana Jóhanna Svavarsdóttir, Guðmundur Þorkell Eyjólfsson,
Þorvaldur Svavarsson, Sigrún Erla Gísladóttir,
Kristján Jónas Svavarsson, Edda Dan Róbertsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Alvöru blómabúð
Allar skreytingar unnar af fagfólki
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499
Heimasíða: www.blomabud.is
Netfang: blomabud@blomabud.is
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is