Morgunblaðið - 29.10.2009, Page 16

Morgunblaðið - 29.10.2009, Page 16
16 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2009 Saga Gagnfræðaskóla Akureyrar, sem er löng og litrík, er komin út á bók. Skólinn var stofnaður árið 1930 en var lagður niður 1997.    Þrír fyrrverandi kennarar við skól- ann, Bernharð Haraldsson, Baldvin Jóh. Bjarnason og Magnús Aðal- björnsson, skipuðu sjálfa sig í rit- nefnd fyrir nokkrum árum og árang- urinn er nú kominn í ljós.    Lengi hafði verið talað um að skrá þyrfti sögu skólans. Í formála bók- arinnar segir að það hafi verið á haustmánuðum árið 2006, að Magn- ús Aðalbjörnsson vakti enn máls á nauðsyn þess, enda væri þá hartnær áratugur frá því skólinn hefði verið lagður niður og hann mætti ekki falla í gleymsku.    „Eftir nokkrar vangaveltur ákváðum við, sem hér köllum okkur ritnefndina, að engir væru betur til verksins fallnir en einmitt við, enda samanlagður tími í Gagnfræðaskól- anum, fyrst sem nemendur, síðan kennarar og stjórnendur, alls 87 ár. Skipuðum við því sjálfa okkur í nefndina,“ segir m.a. í formálanum.    Ritnefndin segist eiga mörgum að þakka við gerð þessa ritverks en engum eins og Sverri Pálssyni, fyrr- verandi skólastjóra. „Það var ekki einungis, að hann kenndi okkur öll- um í þrjá vetur, heldur var hann samstarfsmaður okkar og skóla- stjóri um áratuga skeið, vinur okkar alla tíð. Hann var hvatamaður að þessu verki, ráðhollur og þegar fyrir kom, að ljósið varð að tíru, blés hann í glæðurnar, loginn varð í senn heit- ur og sýnilegur. Hann lægði líka öld- ur, þegar þess var þörf.“    Sverrir léði ritnefndinni ritgerð sína um Þorstein M. Jónsson skólastjóra, sem birt er í heild í bókinni, endur- gjaldslaust. Þá rifjar fjöldi nemenda upp árin í skólanum.    Sverri Pálssyni og eiginkonu hans, Ellen Lísbet Pálsson, var afhent fyrsta eintak bókarinnar; í hátíð- arútgáfu, bundið í skinn.    Ljóst er að þremenningarnar í rit- nefndinni eru ekki sáttir við að skól- inn var lagður niður.    „Það kom í ljós, þegar farið var að kafa í þær heimildir, sem tiltækar eru, að þær voru fátæklegri en efni stóðu til. Ýmislegt, sem varðveitt var í skólanum og til var, þegar hann var lagður niður, fannst ekki. Það gerði okkur erfiðara fyrir, að t.d. fundar- gerðir kennarafunda í hartnær tvo áratugi voru með öllu horfnar, fund- argerðir kennararáðs sömuleiðis,“ segir í formálanum.    Margt annað vantaði, sem vitað er til, að var heilt og óskemmt og varð- veitt í skólanum, segja þremenning- arnir í formálanum. „Margir leituðu og leituðu lengi, allt kom fyrir ekki. Þá var einnig leitt til þess að vita, að stjórnmálamenn þeir, sem unnu að því að leggja skólann niður, gátu ekki skýrt ýmislegt, sem ritnefndin vildi fá að vita, svöruðu ekki spurn- ingum hennar og að skjalavarsla þá- verandi skólanefndar var með slík- um fádæmum, að menn setur hljóða.“    Þess má geta að þremenningarnir þiggja ekki laun fyrir vinnu sína. „Laun ritnefndar eru ekki af verald- legum toga, verkið er tilraun til að gjalda góðri stofnun fósturlaunin.“ AKUREYRI Skapti Hallgrímsson Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Útgáfa Baldvin Jóhann Bjarnason, Sverrir Pálsson, Ellen Lísbet Pálsson, eiginkona Sverris, Bernharð Haraldsson og Magnús Aðalbjörnsson. Bónus Gildir 29. okt.-1. nóv. verð nú áður mælie. verð KS frosið sparhakk ..................... 398 498 398 kr. kg Bónus ferskir kjúklingabitar ........ 398 498 398 kr. kg Myllu heimilisbrauð, 375 g ......... 98 144 261 kr. kg Myllu jólakaka, 420 g ................ 198 418 471 kr. kg SS rosmarinkryddað lambalæri ... 1.399 1.598 1.399 kr. kg KB ferskt ungnautahakk ............. 974 1348 974 kr. kg Gv ferskar grísakótilettur ............. 979 1258 979 kr. kg Fjarðarkaup Gildir 29.-31. október verð nú áður mælie. verð Hamborgarar, 2x115 g m/brauði 298 398 298 kr. pk. Nautagúllas úr kjötborði ............. 1.498 1.878 1.498 kr. kg Fjallalambs lifrarpylsa, frosin ...... 558 797 558 kr. kg Fjallalambs blóðmör, frosinn....... 530 757 530 kr. kg Fjallalambs lambasúpukj., frosið. 535 669 535 kr. kg Fjallalambs kindabjúgu .............. 741 872 741 kr. kg FK reykt folaldakjöt .................... 589 917 589 kr. kg Hagkaup Gildir 29. okt.-1. nóv. verð nú áður mælie. verð SS hálfur lambsskrokkur, snyrtur . 974 1498 974 kr. kg Hamborgarhryggur með beini...... 998 998 kr. kg Fyllt svínalund ........................... 1.498 1.498 kr. kg SS frosið lambalæri ................... 1.079 1.079 kr. kg SS folaldalund grillkrydduð......... 1.805 2.578 1.805 kr. kg Holta danskur sveitakjúklingur .... 599 998 599 kr. kg Myllan sérbakað vínarbrauð........ 99 189 99 kr. stk. Myllan mini vínarbrauðssnúðar ... 279 549 279 kr. pk. Krónan Gildir 29. okt.-1. nóv. verð nú áður mælie. verð Grísahryggur með pöru ............... 899 1.198 899 kr. kg Grísagúllas................................ 849 1.598 849 kr. kg Grísakótilettur............................ 849 1.498 849 kr. kg Grísahnakkasn. úrb. kryddaðar ... 849 1.798 849 kr. kg Grísasíður pörusteik ................... 498 798 498 kr. kg Krónu hamborgarhryggur ............ 898 1.498 898 kr. kg Myllu jólakaka........................... 199 439 199 kr. stk. Nóatún Gildir 29. okt.-1. nóv. verð nú áður mælie. verð Folaldahakk .............................. 298 698 298 kr. kg Folalda innralæri ....................... 1.695 2.649 1.695 kr. kg Folaldalundir............................. 2.498 3.389 2.498 kr. kg Folaldafille ................................ 1.998 2.959 1.998 kr. kg Folaldagúllas ............................ 1.399 1.798 1.399 kr. kg Folalda piparsteik...................... 1.798 2.898 1.798 kr. kg Grísasteik að hætti Dana............ 999 1.998 999 kr. kg Þín verslun Gildir 29. okt.-5. nóv. verð nú áður mælie. verð Ísfugls kjúklingur, heill ................ 620 886 620 kr. kg Ísfugls úrb. kjúklingabringur........ 2.011 2.873 2.011 kr. kg Champion rúsínur, 500 g............ 335 439 670 kr. kg Chicago New York/Deli flatbaka .. 569 798 1.650 kr. kg Lambi salernispappír, 6 rl. .......... 535 639 90 kr. stk. Bio Tex blettasprey, 500 ml......... 498 679 996 kr. ltr Helgartilboð Folaldakjöt og lambasvið Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Sjálfur er ég talandi dæmi umað það er líf eftir áfall, því éghef öðlast nánast fullan bataeftir að hafa fengið blóð- tappa fyrir fimm árum,“ segir Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, en samtökin standa á morgun, laug- ardag, fyrir svokölluðum slagdegi. „Við verðum með aðstöðu í Smára- lind, Kringlunni og Glerártorgi á Akureyri, klukkan eitt til fjögur. Við ætlum að bjóða fólki upp á að mæla blóðþrýsting og gera fyrsta mat á hættu á heilaslagi og vera með al- menna fræðslu. Læknar og hjúkr- unarfólk og við sem höfum reynslu af því að fá slag verðum á staðnum til að leggja okkar af mörkum við að leið- beina fólki. Við ætlum að leggja áherslu á hvað má gera til að koma í veg fyrir háan blóðþrýsting, en mikil saltneysla er þar áhættuþáttur. Aðrir áhættuþættir eru offita, streita, reyk- ingar, blóð- og eða hjartasjúkdómar. Allt getur þetta skapað blóðsega sem veldur súrefnisþurrð í heilanum, hvort sem það er af völdum blóðtappa eða heilablæðingar. Í fyrra reyndist einn af þeim sem komu við hjá okkur á slagdeginum vera að fá slag og við sendum hann beint á bráðamóttöku þar sem hann fékk viðeigandi með- ferð. Honum fannst hann bara vera svolítið slappur, sem sýnir okkur hvað þetta getur verið lúmskt. Því er nauðsynlegt að vita hvað er hægt að gera til að prófa sjálfan sig, til dæmis lyfta upp höndunum og reka út úr sér tunguna.“ Þegar Þórir fékk blóð- tappa fyrir fimm árum var hann fíl- hraustur. „Ég var mikill íþrótta- kappi, reykti ekki og var ekki of þungur. Ég sat einn daginn við morg- unverðarboðið heima hjá mér þegar allt fór að hringsnúast og mér varð flökurt. Ég ætlaði bara að leggja mig en konan mín var sem betur fer heima og hringdi strax á sjúkrabíl. Ég lamaðist hægra megin á meðan ég var í myndatökunum. Það var skelfileg tilfinning og ég var viss um að þetta væri mitt síðasta. En blóð- tappinn var leystur upp og ég var mikið veikur fyrst á eftir og bundinn við hjólastól. En ég setti undir mig hausinn og gekk í það verkefni að ná bata og læra að lifa með þessu. Við sem höfum fengið slag eigum ekkert að vera að velta okkur upp úr því hvað við gátum gert, heldur einbeita okkur að því sem við getum gert. Á einu og hálfu ári tókst mér að þjálfa upp kraft í lamaða helming líkamans og þá hóf ég aftur mín fyrri störf, fyrst í hlutastarfi en núna er ég í fullu starfi. Eina sem ég finn fyrir er að hægri ökklinn er stundum að stríða mér svo ég kemst ekki í fótboltann eins og ég var vanur, sem gerir ekk- ert til, ég gat ekkert hvort sem er. Áfall er ekki endirinn, sumir okkar verða betri einstaklingar eftir að hafa fengið þetta skot.“ Morgunblaðið/RAX Þórir Steingrímsson „Í fyrra reyndist einn af þeim sem komu við hjá okkur á slagdeginum vera að fá slag og við sendum hann beint á bráðamóttöku þar sem hann fékk viðeigandi meðferð.“ Fólk getur látið meta sig á slagdeginum Þórir Steingrímsson, for- maður Heilaheilla, hefur náð fullum bata eftir að hafa fengið blóðtappa. Hann ætlar að leggja sitt af mörkum í dag til að fræða fólk og upplýsa. Heilablóðfall Ráðið getur úrslitum að greina blóðfall og koma sjúklingnum á sjúkrahús innan þriggja klukku- stunda. Sá sem vill komast að því hvort um slag/heilablóðfall er að ræða á að spyrja þriggja einfaldra spurninga: Biðja viðkomandi að BROSA. Biðja manneskjuna að TALA, segja einfalda setningu, t.d. sólin skín í dag en í gær var rigning. Biðja hana/hann að LYFTA BÁÐ- UM HANDLEGGJUM UPP. Biðja viðkomandi að reka út úr sér tunguna. Ef hún er bogin til annarrar hliðar þá getur það verið merki um slag. Ef viðkomandi á í vandræðum með eitt eða fleiri af þessum fyrirmælum hringdu þá í 112 og lýstu einkennunum. Hvernig hægt er að þekkja slag holar@holabok.is Einfalt en fallegt og ódýrt jólaföndur. Upp með skærin og límið! Skrautlegt og skemmtilegt jólaföndur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.