Morgunblaðið - 29.10.2009, Page 18

Morgunblaðið - 29.10.2009, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2009 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Hinn 25. júnísl. und-irrituðu ríkisstjórnin og að- ilar vinnumark- aðarins svokall- aðan stöðugleikasáttamála. Með þeim sáttmála átti meðal ann- ars að stuðla að nýtingu orku- auðlinda landsins til atvinnu- sköpunar. Sem kunnugt er hefur ríkisstjórnin síðan gert flest til að hindra einmitt þessa gerð atvinnusköpunar. Stöð- ugleikasáttmálinn reyndist því marklaust plagg og engin leið er að draga aðra ályktun af að- gerðum ríkisstjórnarinnar en að aldrei hafi staðið til að efna þennan sáttmála. Eftir að viðræður rík- isstjórnar og aðila vinnumark- aðarins að undanföru um að lífga upp á stöðugleikasáttmál- ann skiluðu engum árangri hef- ur ríkisstjórnin komið með stórfurðulegt útspil. Hún hefur nú sent frá sér einhliða yfirlýs- ingu „um framgang stöð- ugleikasáttmálans“, sem að því er virðist er ætlað að koma í staðinn fyrir samkomulag við aðila vinnumarkaðarins. Yf- irlýsingin skilaði þeim fyr- irsjáanlega árangri að bæði samtök vinnuveitenda og verkalýðs hafa andmælt henni og lýst þeirri skoðun að hún sé alls ófullnægjandi. Ríkisstjórnin tekur yfirlýs- ingu sína um stöðugleikasátt- málanna aug- ljóslega jafn alvarlega og sátt- málann sjálfan. Hún gengur jafn- vel svo langt að setja fram eftirfar- andi fullyrðingu í yfirlýsing- unni: „Ríkisstjórnin stendur við fyrri heit sín um að greiða götu þegar ákveðinna og áformaðra stórframkvæmda á Suðurnesjum og í Straumsvík.“ Þessi heit hafa sem kunnugt er verið efnd með því að standa í vegi fyrir þessum fram- kvæmdum með öllum tiltækum ráðum og tefja þær eða jafnvel spilla varanlega. Með yfirlýsingunni er haldið í áform um nýja skatta á orku- notendur, áform sem þegar hafa hindrað framgang fjölda nýrra verkefna. Gefið er til kynna að þeir skattar sem afla átti með þessu móti verði að hluta til fluttir yfir á aðra tekjustofna, en slíkt mun litlu breyta. Hættan á hækkun nýju skattanna er eftir sem áður fyrir hendi, auk þess sem eng- inn tekur mark á yfirlýsing- unni eftir reynsluna af sviknum loforðum vegna stöðugleika- sáttmálans. Eftir framgöngu sína í tengslum við stöðugleikasátt- málann er ríkisstjórnin rúin trausti. Einhliða yfirlýsing, sett fram í ósátt við aðra aðila sáttmálans, stuðlar ekki að því að endurheimta traustið. Reynslan segir að ný yfirlýsing ríkis- stjórnarinnar er marklaust plagg. } Engin sátt um stöðugleikasáttmála Margur hefurhaft efa- semdir um gagn- semi norræns sam- starfs, að minnsta kosti á seinustu tíð. Það hafi vissu- lega gert verulegt gagn á síð- ari hluta nýliðinnar aldar. Þá hafi fjölmörgum hindrunum verið rutt úr vegi fyrir beinum samskiptum norrænna borg- ara og þjóðirnar hafi gengið í smiðju hver hjá annarri um skipun stjórnsýslu, umgjörð um mannréttindamál um leið og viðskipti á milli þjóðanna voru gerð lipur og þar fram eftir götunum. Sjálfsagt er það rétt að norrænt ríkis- stjórnarsamstarf skiptir minna máli en áður, þótt önn- ur samskipti séu umfangs- mikil, svo sem á milli fagaðila ýmiss konar og samtaka borg- aranna. Því hefur verið haldið fram að Norðurlandaþjóðir all- ar myndu draga sama taum, ef þær væru allar í Evrópusam- bandinu og notuðu evru sem gjaldmiðil. En aðeins ein þeirra gerir það nú. Ekki er sjálf- gefið og reyndar ólíklegt að þær mynduðu sameig- inlega blokk á þeim vettvangi. Reynsla Íslendinga af nor- rænu samstarfi, nú þegar mest á reynir, er afleit. Bræðra- þjóðirnar hafa af óskiljan- legum ástæðum notað þá stöðu að Ísland þarf á hjálp þeirra að halda um skamma hríð til að tryggja að Bretar og Hol- lendingar geti beitt landið efnahagslegu ofbeldi. Líklegt er að sú afstaða norrænna rík- isstjórna hlyti þunga gagnrýni alls almennings þar, ef honum yrði staðan ljós. Íslensk ríkis- stjórn hefur illa brugðist í því verki að færa fram sjónarmið þjóðarinnar. Því er framganga Bjarna Benediktssonar á þingi Norðurlandaráðs mjög virð- ingarverð. Og hlutur skáldsins Knuts Ödegårds má heldur ekki gleymast. Tillögur hans, ábendingar og röksemdir voru drengskaparbragð. Framganga Bjarna Benediktssonar í Norðurlandaráði var virðingarverð.} Bræðraþjóðirnar brugðust M ótlæti má taka á alls kyns vegu og fæstir mæta því með brosi á vör enda engin sérstök ástæða til. Það er í góðu lagi að syrgja og reiðast og sakna þess sem var. Hins vegar hlýtur að renna upp sá dagur að menn jafni sig og takist á við til- veruna. Menn eru kannski ekki eins kátir og þeir voru þegar allt gekk þeim í hag en þeir verða samt að halda áfram að lifa vegna þess að annað er ekki hægt. Það er sagt að mótlæti þroski fólk, geri það göfugra og betra en það var. Þetta hljómar fal- lega en næstum því of vel til að geta verið satt. Og sagan sýnir að mótlæti fer misvel í fólk. Sumir göfgast, aðrir verða enn verri en þeir voru áður. Því miður virðist ekki sem íslenska þjóðarsálin hafi upp til hópa þroskast af því mótlæti sem hún hefur nú glímt við í ár. Þjóðarsálin er afundin, fúllynd, uppstökk og neikvæð eins og dekurbörn verða þegar þau hafa eyðilagt dýru leikföngin sín með illri meðferð og fá ekki önnur ný í staðinn. Vondu fréttirnar eru alls staðar. Fjölmiðlar keppast við að segja þær og telja sig þannig vera að sinna upplýsinga- hlutverki sínu. Það má svo sem segja að það sé ekki hlut- verk þeirra að koma með lausnir. Í dag þykir heldur ekki fínt að koma auga á einhverja ljósglætu, það er miklu betra fréttaefni að láta eins og myrkrið umlyki þessa litlu þjóð í norðri. Og orðin „Bretar“ og „Hollendingar“ eru sögð, eða hvæst, svo oft að þjóðin er komin nálægt því að leggja trú á að útlendingar séu aðallega til bölvunar. Það er ekki til að auka þjóðinni kjark og bjartsýni að í Alþingishúsinu hafa allflestir kjörnir fulltrúar þjóðarinnar gjörsamlega misst sjónar á hlutverki sínu og blaðra tím- unum saman eftir forskrift frá flokksskrifstofu sinni. Þeir eru harðlæstir inni í sínum litla og ómerkilega flokkspólitíska heimi og sjá ekki út fyrir hann. Langfæstir þeirra eru færir um að leiða þjóðina úr vandræðum. Rétt er þó að taka fram að einstaka réttlátir eru þarna á meðal, sem er líka eins gott þjóðarinnar vegna. Á netinu er umræðan enn verri en á Alþingi. Þar hafa nafnlausir bloggarar risið upp eins og draugaher og gusa dag hvern á netið frústra- sjónum sínum, sleggjudómum og níði. Óneit- anlega spyr maður sig í hvert sinn sem maður les illgjörn skrif þessara nafnleysinga hvort vont uppeldi hafi gert þá svona eða hvort dónaskapur þeirra sé al- gjörlega sjálfsprottin. Margir sem skrifa undir nafni eru svo litlu skárri en þessi hópur. Þegar fólk er reitt eða í uppnámi slæst það ekki í för með skynseminni fyrr en það er búið að jafna sig. Þá fyrst nær fólk áttum. Það er vissulega valkostur að festa sig í neikvæðni og lifa þannig dag hvern. Það má vel gera það að lífsstíl en það er bara ekkert skemmtilegt. Það er held- ur ekkert vit í því að haga lífinu á þann veg. Þetta ætti hin afundna þjóðarsál að minna sig á dag hvern. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Þjóðarsál án skynsemi STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is I nnkauparáð Reykjavík- urborgar samþykkti sam- hljóða á síðasta fundi sínum að óska eftir því við innri endurskoðun borgarinnar að hún skoðaði stjórnarhætti og stjórn- sýslu í tengslum við undirbúning og framkvæmd forvals og útboðs á upp- steypu húsa á brunareitnum svokall- aða á horni Lækjargötu og Austur- strætis. „Með þessu móti verður farið yfir þetta ferli frá a til ö, frá því að ákveðið var að fara í lokað útboð og forval vegna þess og þar til tilboði Eyktar var tekið um miðjan þennan mánuð,“ segir Stefán Jóhann Stefánsson, fulltrúi Samfylkingarinnar í inn- kauparáði Reykjavíkurborgar, sem bar upp tillöguna. Segist hann vænta þess að innri endurskoðun muni m.a. leita svara við þeim spurningum sem Þorleifur Gunnlaugsson, borgarráðs- fulltrúi VG, lagði fram á síðasta fundi borgarráðs. Þar var spurt hvers vegna innkauparáð hefði hætt við fyr- irhugað útboð á brunareitnum sem gert var ráð fyrir því að fimm fyrir- tæki fengju að taka þátt í. Einnig var spurt hvenær og hver hefði óskað eft- ir því við innkaupaskrifstofu að öll fyrirtæki, sem uppfylltu útboðs- reglur, fengju að taka þátt í útboðinu. Og jafnframt hvenær og hver hefði upplýst að tillagan um val á fimm þátttakendum í útboðinu væri ekki með fullnægjandi hætti. Málið enn ekki kært Forsaga málsins er sú að síðsum- ars var ákveðið að fara í lokað útboð um fyrrgreindar framkvæmdir með að hámarki fimm þátttakendum. Alls tóku 16 fyrirtæki þátt í forvalinu og uppfylltu 11 skilyrði þess. Fljótlega kom fram gagnrýni á matslíkanið sem notað var í forvalinu, en líkaninu var ætlað að meta ákveðna fjárhags- lega styrkleika og reynslu en kvað hins vegar ekki á um hvernig meta skyldi þessa tvo þætti. Þá lagði fram- kvæmda- og eignasvið til að hætt yrði við lokaða útboðið og farið í opið út- boð þar sem öll fyrirtækin 11 mættu vera með. Þegar sú tillaga kom fyrir fund innkauparáðs var á það bent að slík útfærsla væri á skjön við útboðs- gögnin, málinu frestað og það lagt fyrir borgarlögmann til skoðunar. Þá var lagt til að farið yrði í opið útboð sem síðan var framkvæmt. Eins og fram hefur komið reyndist verktakafyrirtækið Fonsi með lægsta tilboðið í opna útboðinu og Eykt með það næstlægsta, en tilboði Eyktar var tekið á fundi innkauparáðs 13. októ- ber. Tvenns konar rök voru sögð fyrir því að taka ekki tilboði Fonsa. Þau voru annars vegar að fyrirtækið upp- fyllti ekki skilyrði um 30 milljóna króna eigið fé samkvæmt ársreikn- ingi síðasta árs og hins vegar að sam- kvæmt yfirliti yfir fyrri verk í áður innsendum gögnum Fonsa hefði fyr- irtækið ekki unnið sem kostaði meira en 150 milljónir eins og krafa var gerð um. Í framhaldinu sakaði fram- kvæmdastjóri Fonsa framsóknar- menn í borginni um spillingu og íhug- aði að kæra málið. Hann hafði samband við lögfræðing Samtaka iðnarins sem skrifaði borginni bréf þar sem gagnrýnt var hvernig hún hefði staðið að útboðinu. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur engin kæra enn borist borginni. Morgunblaðið/Júlíus Stórskaði Eldurinn að Austurstræti 22 sem breiddist yfir í Lækjargötu 2 kom upp á vorið 2007. Húsin sem brunnu voru 150 og 200 ára gömul. Vilja skoðun innri endurskoðanda Óánægja Samtaka iðnaðarins með útboð Reykjavíkurborgar á hinum svonefnda brunareit hefur leitt til þess að innkauparáð borgarinnar óskar eftir því að farið verði yfir málið frá a til ö. Hallur Magnússon, formaður innkauparáðs Reykjavíkur- borgar, segir mönnum hafa þótt við hæfi að fá innri endurskoðun Reykjavíkur- borgar til að staðfesta að verkferlar og vinnulag hafi verið í samræmi við innkaupa- reglur borgarinnar og eðlilega stjórnsýslu. „Það er alveg ljóst að þegar samtök eins og Samtök iðn- aðarins gera athugasemdir við vinnubrögð starfsfólks á inn- kaupaskrifstofu Reykjavík- urborgar sem og á skrifstofu borgarlögmanns, þótt at- hugasemdir þeirra hafi verið hraktar og eigi sér ekki stoð, þá situr eftir að það hefur verið vegið að starfsheiðri þessa starfsfólks Reykjavík- urborgar.“ Ekki náðist í Hall Sím- onarson, innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar, við vinnslu fréttarinnar en hann kemur aftur til vinnu 4. nóvember nk. Á skrifstofu innri endurskoð- unar fékkst hins vegar upp- gefið að farið yrði yfir málið þegar Hallur kæmi til baka og tekin afstaða til þess hvaða málsmeðferð það skuli fá. Starfsheiður í húfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.