Morgunblaðið - 29.10.2009, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2009
Ljós í myrkri Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra á blaðamannafundi í gær um endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Samstarfið við AGS á að standa til maí 2011.
Golli
HALLDÓR Lax-
ness lét eftirfarandi
orð falla á síðustu öld
„meðan ég sækist
ekki eftir annarra
manna gróða, kæri ég
mig ekki um að bera
annarra manna skuld-
ir“. Hitti maður
vinstrimann á förnum
vegi í dag stendur
upp úr honum bunan
um að „við Íslendingar verðum að
ábyrgjast skuldbindingar okkar“.
Allir heiðarlegir menn styðja
það en hvers vegna eigum við að
yfirtaka allt það sem okkur ekki
ber eins og í Icesave-málinu? Sagt
var forðum „gjöldum keisaranum
það sem keisarans er“.
Hverjir stjórna þessum heila-
spuna sem troðið er inn á okkur
um okkar ábyrgð á öllu Icesave-
málinu? Hvað er hér á ferðinni,
heilaþvottur kratanna, höfðings-
skapur, mikilmennska eða minni-
máttarkennd Íslendinga, vegna
þess að nokkrir tugir útrás-
armanna særðu stolt okkar og
misfóru með nafn þjóðarinnar. Við
sem þjóð skömmumst okkar og
viljum að umræðan um okkur
batni í útlöndum. Umræða sem er
ýkt vegna átaka við tvær þjóðir,
almenningur í þessum löndum er
ekkert að fordæma Ísland.
100 milljónir á dag
Stafar þetta af misskilinni
skömm, við ráðum við þetta er
sagt eða er það af því að við skul-
um inn í Evrópusambandið. Þess
vegna hefur Samfylkingin ráðið
ferðinni í málinu. Við erum stolt
þjóð sem ætlar að yfirtaka alla
skömmina á okkur, þrátt fyrir að
okkur beri það ekki.
Hvert ferming-
arbarn, hver hugs-
andi maður hér og
erlendis, veit og
getur reiknað að ís-
lenska ríkið ræður
aldrei við vextina af
Icesave, hvað þá
alla kröfuna til við-
bótar. Vextirnir ein-
ir alls upp á eitt
hundrað milljónir
upp á hvern einasta
dag. Þingið ætlar
svo enn að bæta hag Breta og
Hollendinga, þvo út fyrirvara Al-
þingis frá því í sumar, um það
snúast viðbótarsamningarnir og
ný uppgjöf. Jahá, eitt hundrað
milljónir á dag, bara í vexti, eða
þrjátíu og sjö milljarðar á ári fyrir
utan afborganir af upphæðinni.
Vextir og afborganir eins og allt
skólakerfið á Íslandi kostar á ári.
Svo blekkja fjölmiðlar okkur
gagnrýnislaust og segja frá ís-
lenskri, „getspá“ ríkisstjórn-
arinnar í nýjum og gömlum bönk-
um að aðeins 75 milljarðar standi
útaf í Icesave-málinu, eignir bank-
ans borgi hitt. Hvaða upphæð er
þetta nú, t.d. vextirnir einir.
Æðsta stjórn íslenska ríkisins for-
setaembættið, Alþingi, ríkisstjórn
og Hæstiréttur kosta 3,4 milljarða
á ári, eða 10 milljónir á dag, á
móti vöxtum Icesave upp á 100
milljónir á dag, hvert erum við
komin í umræðunni?
Af hverju hafa mál þróast með
þeim hætti að það þykir bara
sjálfsagt að íslenska þjóðin sem
slík beri bankaslysið í Bretlandi
og Hollandi? Ég ætla ekki að
ræða vandræðagang og úrræða-
leysi ríkisstjórnar Íslands í fyrra-
haust í þessari grein, það hef ég
marggert og skil ekki enn hvernig
landið var knésett af einum
breskum forsætisráðherra með
þrennum hætti: yfirlýsingu um
gjaldþrota land, hryðjuverkalög-
um og að fella breska Kaupþings-
bankann. „Ísland eitt í hvirfilbyl,“
sagði Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, og
skammaði Norðurlandaþjóðirnar
vegna hræðslu við Breta. Það
sama á við um Evrópusambandið
sem ber alla ábyrgð á löggjöfinni
um peninga og bankastarfsemi.
Ögmundur er okkar von
Hvers vegna líða t.d. Vinstri
grænir það að AGS misbeiti valdi
sínu gegn okkur og vinni op-
inberlega fyrir Breta og Hollend-
inga? Ögmundur Jónasson sagði
sig frá ráðherraembætti af því að
hann veit að ríkisstjórnin er að
kaupa sér stundarfrið með blekk-
ingum, hann veit að auðæfi, þar á
ég við auðlindir og sjálfstæði Ís-
lands, munu sennilega tapast
vegna seinni nauðungasamning-
anna, þess vegna fór hann. Ög-
mundur getur ekki setið og þagað
á þingbekkjum þegar verið er að
fjötra Ísland í skuldum og AGS
misfer með vald sitt. Ögmund
þekki ég sem drengskaparmann
sem fylgir sannfæringu sinni og
slær á hönd óvitans þótt hann
standi honum nærri eins og nú
ber við. Hann hlýtur fyrr eða
seinna að höggva. Hann hlýtur að
varpa ljósi á aðra möguleika okk-
ar sem þjóðar. AGS burt, jökla-
bréfin burt, vextir lækkaðir með
handafli og t.d. norska leiðin
skoðuð í fullri alvöru. Rædd verði
beiðni um lánalínu eins og vinir
okkar í Noregi setja fram í fullri
alvöru.
Öll umfjöllun um heimboð þing-
manna Framsóknarflokksins, Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar
formanns og Höskuldar Þórhalls-
sonar alþingismanns, til Noregs í
boði formanns Miðflokksins, Liv
Signe Navarsete, og Per Olaf
Lundteigen, þingmanns flokksins,
hefur verið rangtúlkuð og kölluð
„sneypuför,“ og öllum illum nöfn-
um. Samfylkingunni var mikið í
mun að eyða þessari hugsun og
loka fyrir aðrar leiðir. Und-
arlegur tölvupóstur forsætisráð-
herra með beiðni um nei fór því
héðan til Noregs. Formlega bréf-
ið frá Stoltenberg er ekki nei, í
því er spurnartónn sem lýsir
áhyggjum hans og undrun, þótt
hann verði við ákalli systur sinnar
svona til málamynda.
Var líflínu varpað hingað
Hvað vildu þessir norsku vinir
og nágrannar ræða við þá fé-
lagana? Þeir vildu fræðast og
leiddu þá síðan á fund manna úr
öllum flokkum til að auka skilning
á erfiðri framtíðarstöðu Íslands.
Var það ljótt, ég spyr, voru þau
kannski að kasta líflínu til sökkv-
andi þjóðarskútu? Þau töldu og
fleiri ráðamenn Noregs að
skuldastaða Íslands væri afleit og
leist ekkert á skattastefnu rík-
isstjórnarinnar sem væri eins og
olía á eldinn. Norðmenn töldu
hins vegar að Ísland yrði sjálft
formlega að leita eftir hjálp, slík
beiðni hefði ekki borist, þeir töl-
uðu um lánalínu. Þeir höfðu
áhyggjur af framferði AGS hér og
okurvöxtunum. Þeir sjá það sem
fleiri sjá í Evrópu að AGS er að
brjóta sín lög og skyldur og vinn-
ur sem handrukkari fyrir Breta og
Hollendinga.
Þjóðargjöf Norðmanna?
Mikil viðbrögð eru nú í Noregi
við blaðagrein vinar okkar Knud
Ødegård. Manni hlýnaði um
hjartaræturnar að heyra af skrif-
um hans og því að hann telji að nú
geti norðmenn endurgoldið afrek
Snorra og íslenskra sagnamanna
með þjóðargjöf til Íslands uppá
220 milljarða íslenskra króna.
Sigrar og sjálfstæði Noregs var
sótt í gegnum íslenska sagnarit-
ara, segir hann Norðmaðurinn. Ég
hef ekki mikið séð fjallað um þessi
skrif eða þessa skoðun í fjöl-
miðlum hér, eða í alvöru um
norsku leiðina. Er það vegna þess
að vinstri slagsíða fjölmiðlanna
vinnur með ríkisstjórninni. Hvar
er gagnrýnið Kastljós svo ekki sé
talað um sunnudagsmessur Egils
Helgasonar? Ólafur Jóhannesson,
forsætisráðherra og próffessor,
kenndi okkur það að heimilt væri
að vera vitrari í dag en í gær.
Hann fór einnig sjálfur og sótti
sigra til Bretlands í landhelg-
isstríðinu. Við getum aldrei og
eigum aldrei að taka þessar
drápsklyfjar á okkur, framtíðin rís
ekki undir því. Jóhanna og Stein-
grímur geta enn snúið frá fúakeld-
unni og farið hina leiðina sem vax-
andi skilningur er fyrir um alla
norðurálfu. Það þarf samt að biðja
og viðurkenna ákveðnar stað-
reyndir, það er betra að gera slíkt
strax, seinna verður það of dýru
verði keypt, þá verðum við að
færa fórnir.
Eftir Guðna
Ágústsson » Vextirnir einir alls
upp á eitt hundrað
milljónir upp á hvern
einasta dag.
Guðni Ágústsson
Höfundur er fv. formaður Framsókn-
arflokksins.
Ótrúleg slysaganga ríkisstjórnarinnar
19