Morgunblaðið - 29.10.2009, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2009
BÍÓ GESTIR TJÁ SIG Á FACEBOOK
- Æðisleg!
- Algjört meistarverk!!
- Myndin er geeðveik! :D
- sá myndina þína í dag þú er idolið mitt sveppi
YFIR 25.000 GESTIR FYRSTU 3 VIKURNAR
ÞESSI KEMUR ÞÉR Í „FEELING“
Frábær tónlist,
frábær dans,
frábær mynd!
BEIN ÚTSENDING LAUGARDAGINN 7. NÓVEMBER KL. 18.00 (ÖRFÁIR LAUSIR MIÐAR)
ENDURSÝND MIÐVIKUDAGINN 11. NÓVEMBER KL. 18.30
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.OPERUBIO.IS
TURANDOT MARIA - GULEGHINA
LIÙ MARINA - POPLAVSKAYA
CALÀF MARCELLO - GIORDANI
TIMUR SAMUEL - RAMEY
PUCCINI
TURNADOT
HHHH
- T.V. KVIKMYNDIR.IS
HHHH
- ROGER EBERT
HHHH
– H.S. MBL
HHHH
RÁS 2-HGG
HHHH
Ó.H.T. RÁS 2
Í REYKJAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA
STÓRKOSLEG
G ERIC BANA HHHH
- S.V. MBL
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
ÆVINTÝRI, GRÍN
OG GAMAN!
STÓRSKEMMTILEG MYND
FRÁ DISNEY FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
DRAUMAR
GETA RÆST!
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
/ SELFOSSI
JÓHANNES kl. 8 L
FUNNY PEOPLE kl. 10 12
THE UGLY TRUTH kl. 8 14
GUÐ BLESSI ÍSLAND kl. 10 L
/ KEFLAVÍK
MORE THAN A GAME kl. 8 7
JÓHANNES kl. 10:20 L
GUÐ BLESSI ÍSLAND kl. 8 L
FINAL DESTINATION 4 kl. 10:20 16
/ AKUREYRI
kl. 8 - 10:20 12
kl. 8 L
kl. 10:20 16
Við upplifum stundina ogleggjum á hana mat,vinnum úr reynslu og miðl-
um til komandi kynslóða. Þó að
enn sé skammt um liðið og dómur
tímans liggi enn ekki fyrir má full-
yrða að bankahrunið 2008 verði
talið einn af merkustu atburðum
þjóðarinnar. Hver kynslóð upplifir
sína Íslandssögu. Á síðustu mán-
uðum hefur komið út fjöldi bóka
þar sem fjallað er um fall bank-
anna, orsakir þess og afleiðingar,
þar sem höfundarnir velja sér hver
sinn kögunarhól til að skrifa út frá
sem er eðlilegt. Sama gildir um
kvikmyndagerðarmenn, þeir nálg-
ast viðhafsefnið hver úr sinni átt-
inni.
Ung kona stóð við gluggann ásjúkrahúsi inni við Sundin blá
á bjartri vornóttu á því herrans ári
1940. Hún horfði á dularfull stór-
skip renna sér inn á Reykjavík-
urhöfn, en vissi ekki meira um mál-
ið. Um morguninn fregnaði hún að
landið hefði verið hernumið af
Bretum sem áttu eftir að hafa mikil
áhrif og fleyta Íslandi inn í nýja
öld. Að hafa orðið vitni að hernám-
inu þykir forvitnilegt meðal afkom-
enda ungu konunnar sem nú er
komin á tíræðisaldur.
Fall fjármálakerfisins snertihvern einasta Íslending með
einhverju móti. Allir muna hvar
þeir voru staddir þegar forsætis-
ráðherrann flutti sjónvarpsávarp
og bað Guð um að blessa Ísland.
Velsældarríkið Ísland var sem
hrunin spilaborg. En víst mun
komandi kynslóðum þykja hnýsi-
legt að spyrja í fyllingu tímans þá
sem nú eru í blóma lífsins þess
hvernig þeir hafi upplifað at-
burðina veturinn 2008 til 2009;
fjármálakrísu og búsáhaldabylt-
ingu. Í fyllingu tímans þegar þess-
ir tíma verða orðnir að sögulegum
minnum munu teljast nánast for-
réttindi að hafa lifað þá.
Bækur Gunnars M. Magnúss,Virkið í norðri og Árin sem
aldrei gleymast, eru grundvallarrit
um síðari heimsstyrjöldina á Ís-
landi. Hins vegar má ætla að höf-
undurinn hefði skrifað hernáms-
söguna með allt öðrum hætti í dag
en honum var gerlegt á sínum tíma.
Á seinni árum hefur verið heim-
ilaður aðgangur að ýmsum erlend-
um skjalasöfnum, en heimildir úr
þeim ranni hafa brugðið nýju ljósi á
stríðssöguna, gang hennar og þró-
un. Í fjarlægð tímans hafa menn
sömuleiðis öðlast algjörlega nýjan
skilning á atburðum þessa mikla
hildarleiks sem aldrei gleymist. Á
sama hátt mun Ármann Þorvalds-
son skrifa Ævintýraeyju sína með
allt öðru móti eftir einhver ár og
sama munu aðrir höfundar gera.
Rannsóknarnefnd á vegum Al-þingis kannar orsakir banka-
hrunsins og leggur fram skýrslu
sína í febrúar næstkomandi. Í við-
tali nýverið sagði formaður nefnd-
arinnar, Páll Hreinsson, að nið-
urstaða nefndarinnar yrði þjóðinni
verri fréttir en alla jafna eru sagð-
ar. Þá er sérstakur saksóknari að
störfum og má ætla að niðurstaða
hans verði á líka lund. Á meðan
rannsóknir og dómar þessara
tveggja stofnana liggja ekki fyrir
er hins vegar illmögulegt að kveða
upp dóma um ástæður brotlending-
arinnar.
Hvaða dóma sem saksóknari ogrannsóknarnefnd fella skiptir
ekki öllu. Upplýsingar um hrunið
verða að koma fram næstu áratugi.
Málið er af þeirri stærðargráðu að
það verður umfjöllunarefni fram á
miðja þessa öld. Og eftir því sem
lengra líður færumst við nær nið-
urstöðu því upplýsingar, opin um-
ræða og fjarlægð tímans eru yf-
irleitt góðir dómarar.
sbs@mbl.is
Hrunið mikla er óskráð saga
»Og eftir því semlengra líður færumst
við nær niðurstöðunni,
því upplýsingar, opin
umræða og fjarlægð tím-
ans eru góðir dómarar.
Morgunblaðið/Golli
Eldur Búsáhaldabyltingin markar kaflaskil þó að dómur sögu sé ekki fallinn og verði varla næstu áratugi.
AF LISTUM
Sigurður Bogi Sævarsson
„LÆKNIRINN sagði mér að ég ætti
ekki að brosa. Ég sagði honum að
ég gerði ekki svoleiðis,“ sagði
Morrissey áhorfendum er hann
sneri aftur á sviðið í Royal Albert
Hall á þriðjudagskvöldið. Á laug-
ardagskvöld var hann fluttur á
sjúkrahús eftir að hafa fengið að-
svif á tónleikum.
„Spennið beltin, leiðin verður
torfær,“ sagði söngvarinn er hann
sté á svið við gríðarlegan fögnuð.
Morrissey hóf tónleikana með
Smiths-klassíkernum „This Charm-
ing Man“ en það var lagið sem hann
komst ekki í gegnum á fyrri tón-
leikunum. Morrissey mun hafa ver-
ið í fantaformi og góðu skapi á tón-
leikunum, lagðist m.a. í gólfið í
nokkrar mínútur rétt til að svið-
setja yfirliðið. Hann heldur því lík-
lega tónleikaferð sinni áfram en í
næsta mánuði verður hann m.a. í
Hollandi, Frakklandi, Belgíu,
Þýskalandi og á Írlandi.
Morrissey í fantaformi
Svalur Morrissey er sagður hafa
náð sér eftir yfirliðið um helgina.
WILL Smith var meðal fjölmargra Holly-
wood-stjarna sem mættu á frumsýningu
myndarinnar This is it í Los Angeles. Myndin
sýnir frá undirbúningi Michael Jacksons fyrir
tónleikaferð sem aldrei var farin vegna and-
láts listamannsins. Stemningin á samhæfðum
frumsýningum um allan heim hefur verið til-
finningaþrungin en jafnframt gleðileg.
Fyrstu viðbrögð gagnrýnenda hafa verið já-
kvæð. „Heimurinn virðist hafa misst af djö …
fínum tónleikum,“ segir í The Hollywood Re-
porter. „Undraverður flutningur Jacksons er
ekki vinna myndavélanna heldur hans sjálfs,“
segir gagnrýnandi AP-fréttastofunnar. Fjórir
bræðra Michaels, þeir Jermaine, Marlon, Tito
og Jackie, voru viðstaddir frumsýningu í Los
Angeles. Þeir sögðust hafa fyllst ást og stolti
við að sjá myndina. „Ég grét þegar ég sat
þarna og horfði á hann koma fram. Því ég
elska hann svo mikið,“ sagði Jackie Jackson.
Stjörnur flykkjast á Jackson
Reuters
Glamúr Will Smith, Paris Hilton, Jennifer Lopez og Rosanna
Arquette voru meðal stjarna á frumsýningunni í Los Angeles.