Morgunblaðið - 02.11.2009, Qupperneq 5
Séra Ágúst Sigurðsson, eiginkona hans Guðrún
Lára Ásgeirsdóttir og Anna Sigurkarlsdóttir hafa
haft veg og vanda af bókinni.
Góðir landsmenn
Bókin, Öll þau klukknaköll,
frásagnir 25 prestkvenna, er
ein af 10 bókum sem Vestfirska
forlagið gefur út á þessu ári.
Hún er gefin út til heiðurs öllum
prestsfrúm sem unnið hafa
fjölda starfa við hlið manna
sinna án þess að hafa nokkurt
erindisbréf eða laun. Og þær
veittu þeim oft styrk og kjark
þegar mest á reyndi.
Fæst í bókaverslunum um land allt.
Verð kr. 4.980,-
„Þá var séra Bjarni aldinn að árum, en andinn í fullu fjöri eins og venju-
lega og fuku hjá honum gamanyrðin. Allt í einu segir hann eitthvað á
þessa leið: „Þegar ég er allur og farið verður að tala yfir mér, þá verður
ekki talað um mig. Þá verður talað um Áslaugu og sagt: „Hvað hefði
séra Bjarni verið án Áslaugar? Hún stóð við hlið hans í öllu hans starfi
og hún var svo dugleg að spila.“
Þetta var sagt í gamansömum tón. En öllu gamni fylgir nokkur alvara.
Ég held þetta hafi verið fegursti vitnisburðurinn, sem eiginmaður gat
gefið konunni sinni, eftir hálfrar aldar sambúð.“
(Anna Sigurkarlsdóttir)