Morgunblaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2009
BEIN ÚTSENDING LAUGARDAGINN 7. NÓVEMBER KL. 18.00 (ÖRFÁIR LAUSIR MIÐAR)
ENDURSÝND MIÐVIKUDAGINN 11. NÓVEMBER KL. 18.30
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.OPERUBIO.IS
TURANDOT MARIA - GULEGHINA
LIÙ MARINA - POPLAVSKAYA
CALÀF MARCELLO - GIORDANI
TIMUR SAMUEL - RAMEY
PUCCINI
TURNADOT
Í REYKJAVÍK
SÝND Í KRINGLUNNI
FRÁ LEIKSTJÓRA 40 YEAR OLD VIRGIN OG
KNOCKED UP. STÓRKOSLEG GRÍNMYND
MEÐ ÞEIM ADAM SANDLER, SETH ROGEN
OG ERIC BANA
HHHH
- S.V. MBL
FRÁ
LEIK
STJÓ
RA C
RAN
K HÖ
RKU
HAS
ARM
YND
ÞÚ S
PILA
R TIL
AÐ L
IFA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
ÞESSI KEMUR ÞÉR Í „FEELING“
Frábær tónlist,
frábær dans,
frábær mynd!
DRAUMAR
GETA RÆST!
SURROGATES
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA
OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA
OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAK A OG KRINGLUN I
EIN VINSÆLASTA
TEIKNIMYND ALLRA
TÍMA ER LOKSINS
KOMIN Í ÞRÍVÍDD
/ SELFOSSI
STÚLKAN SEM LÉK SÉR AÐ ELDINUM kl. 8 - 10 16
JÓHANNES kl. 8 L
GAMER kl. 10:40 16
/ KEFLAVÍK
JÓHANNES kl. 8 L
STÚLKAN SEM LÉK SÉR AÐ ELDINUM kl. 10 16
MORE THAN A GAME kl. 8 7
FUNNY PEOPLE Síðustu sýningar kl. 10:10 12
/ AKUREYRI
kl. 8 - 10:20 12
kl. 8 L
kl. 10:20 16
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞEIR sem hafa gaman af því að lesa
slúður ættu að kíkja á vefsíðuna
x17online.com. Um er að ræða hina
bestu slúðursíðu með miklu af mynd-
skreytingum. Fréttirnar ganga mik-
ið út á það að hafa ferskar myndir
með, nýjar myndir af stjörnunni sem
er fjallað um. Fréttirnar eru líka
stundum búnar til í kringum mynd-
irnar. Til dæmis, þegar þetta er rit-
að, er efsta fréttin á síðunni um Par-
is Hilton. Fréttin er einmitt skrifuð
út frá myndum sem náðust af Hilton
úti á meðal almennings í skokkgalla
eða náttfötum, fer eftir því hvernig á
það er litið. Nítján myndir eru af
Hilton í gráa skokkgallanum á
snyrtistofu þar sem hún lét
lakka á sér neglurnar. Sú
myndasyrpa ætti svo sann-
arlega að fullnægja þörf Paris
Hilton-aðdáenda fyrir innsýn
inn í líf goðsins.
Hversdagsathafnir
myndaðar
„Enginn felur sig fyrir okk-
ur,“ er slagorð síðunnar og
virðast starfsmenn hennar
uppfylla það.
Mikið er af myndböndum á
síðunni, m.a af Dustin Hoff-
man þar sem hann fær sér
að borða í New York. Önnur
ómerkileg myndbönd er þar
líka að finna af hversdags-
athöfnum fræga fólksins í
Bandaríkjunum.
Það verður að segjast
um síðuna að þó manni
finnist þetta ósköp
ómerkilegt þá er hún oft
fyrst með fréttirnar í heimi frægra
sem og fyrst með myndirnar. Ef ný
pör eru að fæðast í stjörnuheimum
þá er nánast undantekningalaust
komin mynd af þeim inn á x17on-
line.com, næstum því áður en þau
vita af því að þau eru að fara að byrja
saman, svo árvökul er frétta-
mennskan á síðunni.
x17online.com er ágætis slúð-
ursíða og fær plús fyrir það að fara
ekki soraleiðina í fréttamennskunni.
Enginn felur
sig fyrir okkur
Paris Hilton
Vinsælt um-
fjöllunarefni
slúðursíða.
Reuters
Enginn rithöfundur er vin-sælli á Íslandi í seinni tíðen Arnaldur Indriðasonog fara verður alllangt
aftur til að finna höfund sem notið
hefur viðlíka vinsælda. Svörtuloft er
tíunda bókin í framhaldssögunni um
lögreglumanninn Erlend Sveinsson,
því þó hann sé
ekki alltaf í aðal-
hlutverki er hann
eiginlega það sem
bindur bækurnar
saman þó þær
standi alla jafna
nokkuð sjálf-
stæðar.
Eitt það besta
við bækurnar um
Erlend og félaga hans er að í þeim
öllum eru margar sögur samtímis,
ekki bara málið eina sem glímt er við,
heldur er líka sitthvað annað í gangi
sem spannar jafnvel margar bækur,
eins og fórnarlamb barnaníðings sem
birtist í Harðskafa en finnur loks frið,
ef svo má segja, tveimur bókum síðar
– í Svörtuloftum. Önnur saga sem
gengið hefur bókum saman er sagan
af Erlendi og bróður hans, en í Harð-
skafa má segja að Erlendur hafi loks
ákveðið að kveða niður þann draug
og hverfur austur á æskuslóðir til að
fá botn í málið. Á meðan við bíðum
óþreyjufull eftir þeirri uppgjörsbók
sitjum við uppi með þau Elínborgu
og Sigurð Óla.
Elínborg fékk að láta ljós sitt skína
í Myrká, en nú er röðin komin að Sig-
urði Óla, sem er um margt mun
skemmtilegri persóna en Elínborg,
ekki síst fyrir þá sök að hann er um
margt meingallaður og fátt er for-
vitnilegra en gallagripir.
Án þess ég vilji spilla fyrir vænt-
anlegum lesendum, segir bókin frá
því er kona á miðjum aldri er barin til
bana nánast fyrir augunum á lög-
reglumanninum Sigurði Óla, sem er
staddur á heimili konunnar í vafa-
sömum erindagjörðum. Þó hann sé
eiginlega fulltengdur málinu tekur
hann þátt í rannsókninni af fullum
krafti, enda bendir flest til þess að
ódæðismaðurinn hafi verið hand-
rukkari. Í tengslum við rannsóknina
rekst hann á vísbendingu um annað
sakamál og kemst á endanum að
ýmsu sem hann hefði gjarnan ekki
viljað vita. Samtímis þessu ónáðar
hann ógæfumaður með erindi sem
erfitt er að átta sig á og inn í bókina
blandast menn slegnir góð-
ærisgræðgisblindu.
Eins og getið er þá er Sigurður Óli
óttalegur þurs, uppfullur með sál-
arflækjur sem hann hefur dragnast
með alla ævi, eiginlega ekki í húsum
hæfur og kemur ekki á óvart að hann
á erfitt með að byggja upp tilfinn-
ingasamband við aðra, hvað þá að
finna sér konu. Ástamál hans koma
og nokkuð við sögu í bókinni, auk-
inheldur sem hann tekur að átta sig á
ýmsu í sambandi foreldra sinna sem
honum var áður hulið eða hann vildi
ekki sjá. Allt er þetta til þess fallið að
gefa okkur betri mynd af þeim ótta-
lega lúða sem hann er, en um leið líka
hvers vegna hann er svo þrautseigur
og ráðagóður sem lögreglumaður.
Arnaldur stendur fremstur ís-
lenskra spennusagnahöfunda og
verður að segja eins og er að enginn
kemst með tærnar þar sem hann hef-
ur hælana. Víst státa keppinautar
hans stundum af flottari morðum,
hraðari atburðarás og flottari búnaði,
sumt eins og endurrit úr CSI-
þáttum. Málið er bara að Arnaldur
kann að búa til alvöru fólk sem okk-
ur, lesendum, er ekki sama um, fólk
sem við viljum vita hvað verður um
og hvernig reiðir af. Það skýrir vin-
sældir hans öðru fremur, hér heima
og erlendis, og þó Erlendur sé enn
fyrir austan í Svörtuloftum, þá sýnir
bókin að Arnaldur er enn að bæta sig
sem höfundur og því spáð hér að
hann eigi eftir að halda velli sem vin-
sælasti rithöfundur þjóðarinnar lengi
enn.
Beðið eftir Erlendi
Skáldsaga
Svörtuloft eftir Arnald Indriðason
bbbbn
Vaka-Helgafell. 326 bls. innb.
ÁRNI MATTHÍASSON
BÆKUR
Arnaldur Bókin sýnir að hann er enn að bæta sig sem höfundur.
AÐDÁENDUR kvikmyndarinnar
Cocktail, eða Hanastél, frá 1988
hljóta að fagna því að til stendur
að setja upp söngleik sem byggjast
mun á henni. Víst er að Tom
Cruise heillaði margar meyjar með
fjölleikahússkenndum tilþrifum
sínum við barborðið en öllu erf-
iðara að sjá fyrir sér dans- og
söngatriði.
Handritshöfundur kvikmyndar-
innar, Heywood Gould, segir í sam-
tali við New York Post að hann sé
að vinna að Cocktail-söngleik.
Verkið mun skammt á veg komið
og engir leikarar í sigtinu. Þó seg-
ist Gould hrífast af leik Katie Hol-
mes en hún er eiginkona Cruise.
Holmes myndi þá líklega fara með
hlutverk kærustu barþjónsins en
hana lék Elisabeth Shue í kvik-
myndinni.
Nokkrir söngleikir byggðir á
kvikmyndum hafa verið gerðir á
seinustu tíu árum. Má þar nefnda
The Producers, Dirty Rotten
Scoundrels, The Wedding Singer,
When Harry Met Sally, Dirty
Dancing, Lord of the Rings og
væntanlegan söngleik um Kónguló-
armanninn sem U2-liðarnir Bono
og Edge semja tónlistina við. Þá
má einnig nefna High Fidelity og
Grumpy Old Men.
Söngleikur byggður á Hanastéli
Cocktail Cruise fleygir flösku.
BRESKA myndlistarkonan og kvikmyndaleikstýran Sam Taylor-Wood er
trúlofuð leikaranum Aaron Johnson en hann er 23 árum yngri en hún. John-
son fer með hlutverk Johns Lennons á táningsaldri í kvikmynd Taylor-Wood,
Nowhere Boy, sem segir af samskiptum Lennons við móður sína. Taylor-
Wood er 42 ára gömul og var áður gift galleristanum Jay Jopling. Jopling,
fyrrverandi eiginmaður Taylor-Wood, er 45 ára og átti nýverið í stuttu sam-
bandi við söngkonuna Lily Allen sem er 22 ára. 23 ára aldursmunur þar líka.
Trúlofuð 19 ára leikara
Trúlofuð Sam Taylor-Wood og Aaron Johnson á kvikmyndahátíð í London.
VEFSÍÐA VIKUNNAR: X17ONLINE.COM»