Morgunblaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2009
Bjóðum upp á margar gerðir og verðflokka af vönduðum heyrnartækjum frá Oticon. Þú getur fengið
heyrnartæki sem eru nánast því ósýnileg bak við eyru eða lítil og nett heyrnartæki inn í eyra.
Pantaðu tíma hjá okkur í fría heyrnarmælingu og upplifðu hvað nýjasta heyrnartæknin getur gert
fyrir þig. Auk daglegrar þjónustu í Reykjavík þá bjóðum við einnig upp á heyrnarmælingar víðs
vegar á landsbyggðinni.
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | w w w . h e y r n a r t a e k n i . i s
Nánari upplýsingar og tímapantanir
í síma 568 6880 eða á www.heyrnartækni.is
Heyrðu betur
með vönduðu
heyrnartæki
FYLGI Sjálfstæðisflokksins eykst
um fjögur prósentustig frá síðasta
mánuði, samkvæmt Þjóðarpúlsi
Gallups og eins og sagt var frá í
fréttum RÚV. Fylgi flokksins er nú
33% og hefur ekki verið meira síðan
í júní á síðasta ári.
Samfylkingin mælist með 25%
(26% í síðustu könnun), Vinstri-
græn mælast með 23% (22% síðast)
og 16% segjast ætla að kjósa Fram-
sóknarflokkinn (18% í síðustu könn-
un) en 3% nefna aðra flokka. Fylgi
Samfylkingar minnkar því um eitt
prósentustig frá fyrri mánuði,
Vinstri-græn hækka sig um eitt stig
en Framsókn dalar um tvö pró-
sentustig.
48% svarenda segjast styðja ríkis-
stjórnina, sem er svipað og í síðustu
könnun.
Niðurstöðurnar eru úr netkönnun
sem Capacent Gallup gerði dagana
29. september til 29. október. Heild-
arúrtaksstærð var 4.931 manns af
öllu landinu og svarhlutfall 59,5%.
Morgunblaðið/Golli
Á Alþingi Stuðningur við ríkis-
stjórnina helst svipaður.
Fylgi Sjálf-
stæðisflokks
og VG eykst
BOCUSE d’Or akademían á Ís-
landi hefur valið Þráin Frey Vig-
fússon, aðstoðaryfirmatreiðslu-
mann á Grillinu, sem næsta
keppanda fyrir hönd Íslands í
matreiðslukeppninni Bocuse d’Or
sem fram fer í frönsku borginni
Lyon í janúar 2011. Þráinn etur
þar kappi við 24 efnilegustu mat-
reiðslumenn heims. Þráinn Freyr
hefur áður hlotið titilinn Mat-
reiðslumaður ársins. Framundan
eru strangar æfingar undir hand-
leiðslu Hákonar Más Örvarssonar,
en hann hreppti sjálfur þriðja sæt-
ið í Bocuse d’Or árið 2001. Í
keppninni nota allir sama hráefni í
bæði kjöt- og fiskirétt, sem þeir
þurfa síðan að bera á borð fyrir
dómara keppninnar.
Keppnin sjálf tekur tvo daga og
keppa tólf af tuttugu og fjórum
keppendum hvorn daginn.
Þráinn
Freyr í Bo-
cuse d’Or
Meistarakokkur Þráinn Freyr.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
SKATTTEKJUR Borgarbyggðar
verða 100 milljónum minni á þessu
ári en reiknað var með og því er spáð
að tekjur á næsta ári lækki um 50
milljónir til viðbótar. Stjórnendur
sveitarfélagsins hafa ákveðið að
kynna fyrir íbúum tillögur sem gera
ráð fyrir verulegri skerðingu á þjón-
ustu í fræðslumálum. Róttækustu
tillögurnar gera ráð fyrir að þremur
af fimm grunnskólum sveitarfé-
lagsins verði lokað og tíminn sem
leikskólarnir eru opnir verði styttur.
Þessar tillögur verða kynntar á
íbúafundum næstu daga. Fyrsti
fundurinn verður í kvöld í Borg-
arnesi.
Borgarbyggð rekur núna grunn-
skóla á fimm stöðum, Borgarnesi,
Varmalandi, Kleppjárnsreykjum,
Hvanneyri og Laugagerði. Í skýrslu
um sparnað í fræðslumálum, sem
kynnt verður á fundinum í kvöld, eru
lagðar fram tillögur um tvær leiðir. Í
annarri (leið A) er gert ráð fyrir að
allir skólarnir verði reknir áfram, en
að hámarksfjöldi í bekk verði aukinn
og árgöngum verði í einhverjum til-
vikum slegið saman. Í leið B er lagt
til að þrír skólar verði lagðir niður
og skólar verði áfram reknir í Borg-
arnesi og annaðhvort Varmalandi
eða Kleppjárnsreykjum. Áætlað er
að með þessari leið sé hægt að spara
100 milljónir í rekstri.
Finnbogi Rögnvaldsson, formaður
vinnuhópsins sem vann skýrsluna,
segist ekki eiga von á að henni verði
tekið fagnandi. Það sé eðlilegt að
fólk sem búi á svæði þar sem verið
er að gera tillögu um skerta þjón-
ustu mótmæli.
Finnbogi segir að Borgarbyggð
hafi nokkra sérstöðu í samanburði
við önnur sveitarfélög. Þar séu
reiknir tveir háskólar, á Bifröst og
Hvanneyri. Í sveitarfélaginu séu til-
tölulega margir ungir tekjulágir íbú-
ar sem þurfi mikla þjónustu á sviði
fræðslumála.
Frá 2002 hefur Borgarbyggð
byggt tvo nýja leikskóla og byggt við
tvo aðra. Finnbogi segir að fjárhags-
staða sveitarfélagsins sé með þeim
hætti að ekki verði komist hjá því að
skera niður í rekstri.
Ýmsar ástæður eru fyrir fjárhags-
erfiðleikum Borgarbyggðar. Stjórn-
endur sveitarfélagsins reiknuðu með
fjölgun íbúa og hafa fjárfest í þjón-
ustu við íbúa í samræmi við það. Nú
hefur íbúum hins vegar fækkað um
200 á skömmum tíma. Mest eru það
útlendingar sem horfið hafa til síns
heima, en stór hluti þeirra starfaði
hjá Loftorku sem varð gjaldþrota
fyrr á árinu. Aðeins um 30 manns
starfa nú hjá endurreistu félagi.
Gjaldþrot Loftorku er ekki eina
áfallið í atvinnulífi sveitarfélagsins
því sparisjóðurinn komst í þrot. Það
eru því ekki eins margir íbúar sem
greiða útsvar og því til viðbótar hafa
tekjur margra lækkað.
Leggja fram tillögu um að
loka þremur grunnskólum
Skatttekjur Borgarbyggðar skerðast um 100 milljónir í ár og 50 milljónir 2010
Morgunblaðið/RAX
Skallagrímur Borgnesingar koma saman til fundar í kvöld til að ræða
sparnað í fræðslumálum. Tillögurnar fara síðan fyrir sveitarstjórn.
Íbúar í Borgarbyggð ræða þessa
dagana tillögur sem fela í sér
skerta þjónustu í fræðslumálum.
Hugmyndir eru uppi um að leggja
niður skóla og stytta þann tíma
sem leikskólar eru opnir.