Morgunblaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 21
Dagbók 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2009 Sudoku Frumstig 2 7 4 7 9 1 2 8 9 1 8 6 4 9 8 2 1 5 1 6 8 3 5 2 2 9 9 8 3 1 4 3 9 5 6 5 4 8 1 2 4 5 7 6 9 1 8 6 4 8 2 9 6 4 1 9 6 1 2 3 5 3 4 7 7 4 1 3 6 7 6 5 3 6 1 7 4 2 5 9 8 5 7 2 9 8 3 1 6 4 4 8 9 1 6 5 2 7 3 9 5 6 3 1 4 8 2 7 7 1 3 5 2 8 9 4 6 2 4 8 6 9 7 3 5 1 6 2 4 8 3 9 7 1 5 1 3 5 2 7 6 4 8 9 8 9 7 4 5 1 6 3 2 8 1 9 7 4 2 3 6 5 5 4 7 6 3 1 8 9 2 6 3 2 5 8 9 1 7 4 7 9 4 2 5 3 6 1 8 1 5 8 4 6 7 2 3 9 3 2 6 9 1 8 5 4 7 9 8 3 1 7 5 4 2 6 2 6 5 3 9 4 7 8 1 4 7 1 8 2 6 9 5 3 6 2 5 8 1 9 4 3 7 4 9 7 3 2 6 5 8 1 1 8 3 7 5 4 6 9 2 8 7 6 4 3 5 2 1 9 3 4 2 9 7 1 8 5 6 9 5 1 6 8 2 3 7 4 2 3 4 5 9 7 1 6 8 5 6 9 1 4 8 7 2 3 7 1 8 2 6 3 9 4 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 2. nóvember, 306. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta. (Mk 13, 27.) Sumum finnst það vera dálítið ein-kennilegt hjá þeim sem staðið hafa fyrir smölun á kindunum í Tálkna að beita fyrir sig rökum dýraverndar. Hvernig getur það verið dýraverndarmál að ná í kind- urnar upp í fjall og drepa þær? Það er auðvitað ekki æskilegt að sauðfé eða hestar drepist úr hor, en það gerist samt á Íslandi á hverju einasta ári. Samkvæmt lögum á allt búfé á landinu rétt á fóðri og húsa- skjóli. Hægt er að draga mann fyrir dóm sem ekki fóðrar hesta eða kind- ur sem hann á. Það er full ástæða fyrir yfirvöld til að taka fastar á þessum málum því að hross sem eru í girðingu eða á húsi eiga líf sitt og heilsu undir manninum. x x x Í síðustu viku var maður á Suður-landi dæmdur fyrir að horfóðra hesta. Hann hafði áður verið dæmd- ur fyrir sömu brot. Samt samþykkti dómarinn ekki kröfu sækjanda um að honum yrði bannað að eiga hesta. Þetta er ekki eina dæmið um að menn hafi oftar en einu sinni verið dæmdir fyrir illa meðferð á dýrum en samt fengið að eiga dýr. Á þessu þurfa stjórnvöld að taka af meiri festu. x x x Kindurnar í Tálkna hafa aldreiverið í vörslu manna, ekki frek- ar en fuglarnir, tófurnar eða mýsnar sem þar eru. Án efa drepst eitthvað af þessum kindum úr hor. Það er hins vegar athyglisvert að flestar kindurnar voru í mörgum reifum. Það bendir til þess að þær séu í sæmilegum holdum á vorin. Kindur sem eru mjög horaðar missa oftast nær alla ullina á vorin þegar þær komast í nýgræðinginn og fara að fitna á ný. Kindurnar í Tálkna virð- ast hins vegar vera í jöfnum holdum. Víkverja finnst eðlilegt að líta á kindurnar sömu augum og önnur dýr sem ganga villt um í fjallinu. Þær vilja ekki láta bjarga sér. Ef menn vilja endilega smala þeim og setja í sláturhús verða menn að finna einhver önnur rök en dýraverndar- rök. Þau eiga ekki við í þessu tilviki. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 glymur, 4 hlýðinn, 7 ójafnan, 8 erf- ið, 9 fel, 11 klöpp, 13 múli, 14 frillan, 15 gæslumann, 17 skyld, 20 blóm, 22 bolmagnið, 23 lofar, 24 aflaga, 25 mergðin. Lóðrétt | : 1 hroki, 2 ófrægir, 3 jaðar, 4 rasp- ur, 5 vænan, 6 úrkomu, 10 vermir, 12 skap, 13 bókstafur, 15 dirfist, 16 óheilbrigt, 18 greinar, 19 líffærið, 20 elska, 21 ófús. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 löðrungur, 8 fælum, 9 goggs, 10 mær, 11 sötra, 13 afræð, 15 flesk, 18 strák, 21 átt, 22 niðji, 22 annar, 24 linnulaus. Lóðrétt: 2 örlát, 3 remma, 4 negra, 5 uggur, 6 ofns, 7 ósið, 12 rós, 14 fet, 15 fáni, 16 eyðni, 17 Káinn, 18 stagl, 19 runnu, 20 korg. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rc3 d6 3. f4 g6 4. Rf3 Bg7 5. Bc4 e6 6. d4 cxd4 7. Rxd4 Rf6 8. Rdb5 d5 9. e5 dxc4 10. Rd6+ Kf8 11. exf6 Bxf6 12. Rce4 Rc6 13. Rxf6 Dxf6 14. Bd2 e5 15. Rxc8 Hxc8 16. O-O Kg7 17. fxe5 De7 18. e6 fxe6 19. Dg4 Hhd8 20. Be3 b5 21. a4 a6 22. axb5 axb5 23. Ha6 Hd5 24. h3 h6 25. Hb6 Hc7 26. b3 Hf5 27. He1 cxb3 28. cxb3 Db4 29. Hc1 Dd6 30. Dh4 g5 31. De1 b4 32. De2 e5 33. h4 Rd4 34. Da6 Hxc1+ 35. Bxc1 Dc5 Staðan kom upp í Evrópukeppni taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í Ohrid í Makedóníu. Bandaríski stór- meistarinn Gata Kamsky (2692) hafði hvítt gegn kollega sínum Viktor Bo- logan (2688) frá Moldavíu. 36. Da7+! Hf7 37. Hg6+! og svartur gafst upp enda drottningin að falla í valinn. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Réttur samningur. Norður ♠D97 ♥ÁD87 ♦76 ♣G984 Vestur Austur ♠ÁG10864 ♠52 ♥10 ♥G9654 ♦D84 ♦G10932 ♣763 ♣5 Suður ♠K3 ♥K32 ♦ÁK5 ♣ÁKD102 Suður spilar 6G. „Við áttum að spila 6♣, makker.“ Suður hafði farið niður á grandslemm- unni og var að reyna að koma sökinni yfir á makker. Það tókst ekki, því norð- ur hafði komið auga á vinningsleið í 6G og var fús til að deila þeirri sýn sinni. Þess ber að geta að vestur vakti á 2♠ og kom svo út með hlutlaust lauf. Norður kunni til verka í þving- unarfræðum og sá fyrir sér tvöfalda þvingun í áföngum. Fyrst er ♠K spilað, sem vestur verður að taka. Segjum að vestur spili ♠G um hæl. Sagnhafi drep- ur og tekur laufin í botn. Við það þvingast austur, sem neyðist til að fara niður á tvo tígla til að geta staðið vörð um hjartalitinn. Nú er vestur einn um að tígulvaldið og ræður ekki við þrýst- inginn þegar sagnhafi tekur toppslag- ina í hjarta. Nei, það er ekkert að samningnum. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú gætir þurft að annast einhvern sem þarf á hjálp þinni að halda. Kannski getur þú ráðið gátuna seinna meir. (20. apríl - 20. maí)  Naut Nú er rétti tíminn til þess að upplifa ný ævintýri svo þú skalt bara láta það eft- ir þér að sletta svolítið úr klaufunum. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sál- ar. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Haltu vöku þinni svo ekkert fari úrskeiðis fyrir sofandahátt eða kæruleysi. Láttu það ekki fara í taugarnar á þér heldur taktu því sem sjálfsögðum hlut. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Fyrir komandi atburði er mjög mikilvægt að vita hvað þú átt. Þú ættir að undirbúa málin vandlega því þá getur þú óttalaus ýtt þeim úr vör og stýrt til sigurs. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú gætir rekist á gamla kunningja og skólafélaga og það mun hugsanlega opna þér ný tækifæri. Fólki finnst þú mjög klár. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þetta er frábær dagur til að vinna að frama og auknum tekjum. Hvort sem er þá ertu uppfullur af samúð gagnvart þeim sem minna mega sín. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Ný persóna gengur inn í líf þitt. Kannski er um að ræða einhvern úr for- tíðinni sem birtist þér í minningarbroti, eða einhvern nýjan sem lífgar upp á dag- inn. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Viðkvæmni er vanmetin í heimi þar sem frumskógarlögmálið gildir. Farðu því varlega í allri samningagerð. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Umhverfi þitt kemur upp um alla þína galla, sérstaklega skipulags- leysið sem hrjáir þig. Sjálfsöryggi og þol- inmæði skiptir miklu máli þegar þú leysir úr vandamálum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ættir að njóta lífsins með vinum þínum í dag. Suma daga er auð- veldara að sjá samhengið en aðra. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þér finnst álagið í vinnunni vera orðið fullmikið. En forðastu bara að dragast inn í atburðarás sem kemur þér ekkert við. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Einhver sem stærir sig af mætti sínum, efast um hann innst inni. Hlustaðu heldur á viðhorf hans/hennar þannig að þið getið leitað leiða til að vinna saman að sameiginlegum markmiðum. Stjörnuspá 2. nóvember 1938 Togarinn Ólafur frá Reykja- vík fórst í norðanveðri á Hala- miðum með allri áhöfn, 21 manni á aldrinum frá tvítugu til fimmtugs. 2. nóvember 1941 Bandarísk flugvél fórst á Langahrygg á Reykjanesi og með henni ellefu menn. Þetta var þá talið mesta flugslys hér á landi. 2. nóvember 1961 Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti að „gera varúðar- ráðstafanir til almannavarna“. Þetta var gert „vegna yfirvof- andi geislunarhættu og ófrið- arhættu“. Næstu tvo mánuði á undan höfðu Rússar sprengt þrjátíu kjarnorkusprengjur í tilraunaskyni. 2. nóvember 2000 Verslunarmiðstöðin Glerár- torg á Akureyri var opnuð. Þar voru þá tuttugu verslanir af ýmsu tagi í níu þúsund fer- metra húsnæði sem byggt var á hálfu ári. Heildarkostnaður var um einn milljarður króna. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Helena Ósk Hálfdánardóttir og Andrea Steinþórsdóttir héldu tom- bólu fyrir utan Samkaup í Hafn- arfirði og söfnuðu 6.710 krónum sem þær færðu Rauða krossi Ís- lands. Hlutavelta „ÉG var með veislu heima hjá mér á laugardags- kvöldið fyrir fjölskyldu mína og íslenska gesti sem komu hingað út til mín í tilefni afmælisins og það gladdi mig mjög,“ segir séra Þórir Jökull Þor- steinsson sendiráðsprestur úti í kóngsins Kaup- mannahöfn, en hann er fimmtugur í dag. Hann segist hafa boðið upp á rammíslenskan mat, hangikjöt og lamb í ofni. „Í eftirrétt bauð ég upp á rauð epli með sírópi unnu úr granateplum, en þessum rétti kynntist ég úti í Sýrlandi þar sem ég var nýlega.“ Þórir Jökull segir afmælishaldi ekki alveg lokið því hann eigi eftir að fagna með sam- starfsfólki sínu síðar í mánuðinum. Þegar hann lítur yfir farinn veg segist hann sáttur. „Guð hefur verið góður við mig en margt hefur á daga mína drifið. Ég hef starfað við mörg og ólík störf, fyrir utan það að starfa sem prestur hef ég hef verið landbúnaðarverkamaður, sjó- maður, útvarpsfréttamaður, diplómat og ýmislegt fleira. Við hálfrar aldar afmæli stend ég á krossgötum því starf mitt verður lagt niður í janúar, en ég sé möguleika sem opnast við þessar breytingar og kannski sest ég á skólabekk hér í Kaupmannahöfn, er að velta fyrir mér að fara í framhaldsnám í kirkjusögu.“ khk@mbl.is Þórir Jökull Þorsteinsson er fimmtugur í dag Guð hefur verið góður við mig Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.