Morgunblaðið - 02.11.2009, Síða 6

Morgunblaðið - 02.11.2009, Síða 6
FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is ÁKVÖRÐUN hefur ekki verið tekin um afskriftir á skuldum eign- arhaldsfélags Haga, 1998 ehf., sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar og fjölskyldu hans. Skuld 1998 við Nýja Kaupþing nemur ríflega 48 milljörðum króna, en eina eign fé- lagsins er Hagar. Finnur Svein- björnsson, bankastjóri Nýja Kaup- þings, sagði í samtali við Morgun- blaðið að ekkert hefði enn verið afskrifað af skuldum 1998. „Þetta mál hefur ekki verið leitt til lykta og því vil ég ekki tjá mig um það. Verk- lagsreglur bankans gilda, og engar skuldir 1998 hafa verið afskrifaðar, enn sem komið er.“ Skuldir Haga námu tæplega 22 milljörðum samkvæmt hálfsárs- uppgjöri 31. ágúst 2008. Forstjóri Haga, Finnur Árnason, segir að fé- lagið standi undir skuldsetningunni. Þó séu Hagar ekki nálægt þanþoli skuldsetningar, en ekki sé áætlað að stofna til frekari skulda í náinni framtíð. Eigendur njóti trausts Í verklagsreglum Nýja Kaup- þings um útlánavanda fyrirtækja segir að áframhaldandi þátttaka eig- enda og stjórnenda fyrirtækja sé háð því að þeir þyki mikilvægir fyrir framtíð fyrirtækisins og að þeir njóti trausts. Jafnframt segir að gagnsæi skuli ríkja við endurskipulagningu og að samkeppnissjónarmið skuli höfð að leiðarljósi. Aðspurður um hvort hugsanlegar afskriftir á skuld- um 1998 yrðu þá til marks um traust stjórnenda Nýja Kaupþings í garð eigenda Haga, segist Finnur ekki vilja tjá sig um það. „Við vinnum samkvæmt reglum bankans, í öllum málum,“ segir hann. Finnur segir jafnframt að eigendur 1998 hafi ekki fengið neina sérmeðferð umfram aðra skuldara hjá Nýja Kaupþingi. Erna Bjarnadóttir, stjórnarfor- maður Nýja Kaupþings, segist ekki vilja tjá sig um einstök mál innan bankans, en tekur fram að verklags- reglur stjórnar bankans séu skýrar. „Við leitumst við í öllum tilfellum að hámarka endurheimtur bankans,“ sagði Erna í samtali við Morgun- blaðið. Aðrir stjórnarmenn sem haft var samband við neituðu að tjá sig um málefni 1998. Í stjórn Nýja Kaup- þings sitja ásamt stjórnarformanni þau Jónína Sanders, Helga Jóns- dóttir, Drífa Sigfúsdóttir, Jóhannes Rúnar Jóhannsson og Theódór Sig- urbergsson. Kröfu skilanefndar Kaupþings í þrotabú Baugs, sem var í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjöl- skyldu, er nam 27 milljörðum króna var hafnað með fyrirvörum. Sú synj- un virðist þó ekki hafa orðið til þess að rýra traust Nýja Kaupþings í garð eigenda 1998. Ekki hafa orðið neinar breytingar á eignaraðild 1998, ef marka má ummæli Jóhann- esar Jónssonar í Morgunblaðinu 30. október. Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld var greint frá því að nú væri rætt Engin sérmeðferð á 1998 Samkvæmt verklagsreglum Nýja Kaupþings eiga samkeppnissjónarmið og gagnsæi að ríkja við endurskipulagningu á skuldsettum fyrirtækjum Morgunblaðið/Golli Framtíðaráform Í verklagsreglum Nýja Kaupþings um útlánavanda fyrirtækja segir að áframhaldandi þáttaka eig- enda og stjórnenda fyrirtækja sé háð því að þeir þyki mikilvægir fyrir framtíð fyrirtækisins og að þeir njóti trausts. Forsvarsmenn Nýja Kaupþings vilja ekki tjá sig um málefni 1998 ehf., en segja fyrirtækið ekki hafa hlotið sérmeðferð hjá bank- anum. Bankastjóri útilokar ekki afskriftir á skuldum 1998. innan Nýja Kaupþings að Jón Ás- geir Jóhannesson og aðrir fjárfestar reiddu fram 7 milljarða króna til að eignast 60% hlut í Högum. Eignar- haldsfélagið 1998 og skuld þess við Nýja Kaupþing yrði þar með úr sög- unni. Bankinn mundi síðan eignast 40% í Högum. Ef af þessum áætlunum verður fá eigendur 1998 rúmlega 90% afskrift af sinni skuld við Kaupþing, en 40% hlutur bankans í Högum er um 4,6 milljarða virði miðað við þessar for- sendur, og skuld 1998 því færð niður um rúmlega 90%. Jafnframt yrði af- skrift á skuld 1998 um það bil 36,7 milljarðar króna. Ekki náðist í Jón Ásgeir Jóhann- esson eða Jóhannes Jónsson við vinnslu fréttarinnar.  Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og formann Samfylking- arinnar, eða aðstoðarmenn hennar.  Magnús Orra Schram, varaformann viðskiptanefndar Alþingis og þing- mann Samfylkingarinnar.  Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokks, eða aðstoðarmann hans. Ekki vildu tjá sig um málið:  Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar og formaður stýrihóps forsætisráðuneytisins um sóknaráætlun um eflingu atvinnu- lífsins í öllum landshlutum. Við vinnslu þessarar fréttar náðist ekki í: 6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2009 www.noatun.is 1098 FISKIBOLLUR KR./KG878 Ódýrt og gott á mánudegi VERÐ FRÁBÆRT F ÚRFISKBOR ÐI ÚR FISKBORÐI ERSKIR Í FISKI 20% afsláttur „ÉG HEF [...] aldrei rætt mál- efni Haga við neina bankamenn og engin afskipti haft af fjárhags- legri endurskipu- lagningu fyrir- tækisins,“ segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, í yfirlýsingu vegna ummæla Sigurðar G. Guð- jónssonar, hæstaréttarlögmanns, í grein sem birt er á vefsvæðinu pressan.is. Sigurður segir þá sögu ganga að viðskiptaráðherra hafi hringt í Finn Sveinbjörnsson, for- stjóra Nýja Kaupþings, og krafist aðgerða af hálfu bankans gegn Hög- um. Í yfirlýsingu Gylfa segir að ásökun þessi sé tilhæfulaus með öllu. Morgunblaðið reyndi að fá við- brögð hjá ráðherra vegna mögu- legra afskrifta á skuldum Haga og 1998. Aðstoðarmaður ráðherra sagði Gylfa ekki koma að málinu og hann myndi því ekki tjá sig um það. Kemur ekki að mál- inu og tjáir sig ekki Í verklagsreglum Nýja Kaupþings um lausn á út- lánavanda fyrir- tækja er vikið að samkeppnisþætt- inum. Segir m.a. að leitast verði við að velja þá leið við endur- skipulagningu fyrirtækja sem eflir samkeppni eða raskar henni minnst. Þá verði svigrúm nýtt til að draga úr fákeppni, aðgangshindr- unum, óæskilegum stjórnunar- og eignatengslum eða markaðsráð- andi stöðu. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segist ekki átta sig á hvers vegna það virðist svo auðvelt fyrir eigendur Haga að halda yfir- ráðum sínum. Skoða eigi málið út frá samkeppnissjónarmiðum, líkt og Samkeppniseftirlitið hefur lagt áherslu á og reglurnar segja til um. „Það er búið að tala um það í mörg ár að stór markaðshlutur þessarar keðju á smásölumark- aðnum sé umdeilanlegur og jafnvel neytendum ekki til góðs. Það ætti því kannski að nota kreppuna til að endurskipuleggja og stokka upp.“ Nota ætti kreppuna til að stokka upp „HLUTVERK okkar þingmanna er ekki að fella dóma um einstök mál innan bankanna en frekar opinberra eftirlitsstofnana. Ég trúi því og treysti að eftirlitsstofn- anir fylgist grannt með því sem gerist við endurskipu- lagningu fyrirtækja og að jafnræðissjónarmiða sé gætt í þeim efnum,“ segir Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, um mögulegar afskriftir skulda Haga og móðurfélagsins, 1998 ehf., Birkir segir flokk sinn hafa talað fyrir almennum að- gerðum í stað sértækra, m.a. svo að önnur sjónarmið ráði ekki ferð við niðurgreiðslur. Birkir segir ljóst að það þurfi að afskrifa eitthvað eftir hrunið, bæði hjá fyrirtækjum og heimilum. Til þess þarf að móta gagnsæjar reglur enda annars hætta á að jafnræði verði fyrir borð borið. Vekur tortryggni og óánægju Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsókn- arflokks, tekur heldur dýpra í árinni. „Ég óttast að inni í bönkunum sé verið að afskrifa hjá sumum og öðrum ekki. Og það skapar ógagnsæi og ójafnræði,“ segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsókn- arflokks. Hann segir spurningar vakna um ójafnræði; að sum- ir fái niðurfærslu á meðan aðrir njóta ekki sömu kjara. „Þetta vekur tortryggni og óánægju, að verið sé að hygla einhverjum sem er hugsanlega tengdur ein- hverjum stjórnmálaflokkum. Þjóðfélagið hefur ekki gott af því,“ segir Höskuldur en fæst ekki til að skýra ummæli sín nánar. Hann segir aðferðafræði bankanna mismunandi og hann muni berjast fyrir því að málsmeðferðin verði gerð skýrari og gagnsærri. Treystir á eftirlitsstofnanir ALLIR reyna að vanda sig og leggja skyn- samlegar viðmið- unarreglur til grundvallar úr- vinnslu skulda- mála fyrirtækja, segir Steingrím- ur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Hann vill ekki tjá sig um einstök mál. „Við höfum lagt áherslu á það sem kemur fram í eigendastefnunni, þær áherslur sem við höfum mótað um jafnræði, skipulögð og samræmd vinnubrögð og gagnsæi,“ segir Steingrímur og bætir við að hann hafi séð hugmyndir og tillögur hjá bönkunum, á mismunandi stigum, um mótun sinnar aðferðafræði. „Að sjálfsögðu er leitast við að vinna þessi mál á faglegum forsendum.“ Spurður út í fréttir af mögulegum afskriftum skulda Haga og móður- félags þess, 1998 ehf., segist Stein- grímur ekki vera svo kunnugur mál- inu að hann geti tjáð sig um það. „En sambærilegum vinnubrögðum á að beita við sambærilegar aðstæður og ekki á að fara í manngreinarálit í þeim efnum.“ Mál unnin á fagleg- um forsendum Finnur Sveinbjörnsson Erna Bjarnadóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.