Morgunblaðið - 02.11.2009, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2009
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Jóhannes kl. 5:40 - 8 - 10 LEYFÐ
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:40 B.i. 16 ára
Zombieland kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Wanted and Desired kl.5:45 - 8 - 10:15 B.i.12 ára
Zombieland kl. 6 - 8 B.i.16 ára
Broken Embraces kl. 6 - 9 B.i.12 ára
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 6 - 9 B.i.16 ára
This it It kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
Capitalism kl. 6 - 9 B.i. 7 ára
Zombieland kl. 8 - 10 B.i.16 ára
Jóhannes kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Guð blessi Ísland kl. 5:45 Ath. síðustu sýningar LEYFÐ
Auðmenn elska peninga,
en þó sérstaklega
peningana þína!
HHH
„Ef þú sást fyrstu myndina
og fílaðir hana, þá máttu
alls ekki sleppa þessari!“
T.V. – Kvikmyndir.is
Mikil grimmd og logandi
frásögn. Lisbeth Salander
er orðin klassísk og ein
eftirminnilegasta persóna
glæpabókmenntana.
F.E. Rás 2
„Frábær eins og sú fyrsta! Heldur
athygli manns allan tímann!
Maður getur eiginlega ekki beðið
um meiri gæði!“
–H.K., Bylgjan
HHHH
„Stúlkan sem lék sér að eldinum
er ekki síðri en forveri hennar ...
afar spennandi, takturinn betri...
Michael Nykvist og Noomi Rapace
eru frábær í hlutverkum sínum“
– VJV, FBL
SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
HHHH
ÓHT, Rás 2
HHHH
– H.S., MBL
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
EINGÖNGU
SÝND Í 2 VIKUR
ÁÐUR ÓSÉÐ MYNDEFNI SEM
HEIMURINN HEFUR BEÐIÐ EFTIR
UPPLIFÐU
LISTAMANNINN
EINS OG ÞÚ HEFUR
ALDREI SÉÐ
HANN ÁÐUR.
SÝND Í REGNBOGANUM
www.facebook.com/graenaljosid
Nýju ljósi varpað á eitt umdeildasta
sakamál síðar tíma í grípandi og
gríðarlega vandaðri heimildarmynd.
Perla sem enginn kvikmyndaunnandi
lætur fram hjá sér fara.
„Mynd sem þú verður að
sjá í bíó til að fá tónlistina
og upplifunina beint í æð.”
H.A., FM 957
„Í alla staði stórskemmtileg
og áhugaverð, enda söguleg.
Mynd sem ALLIR ættu að hafa
gaman af.”
H. K., Bylgjan
„Loksins sá maður
tónlistarmanninn á bak
við grímuna. Gaman að
skoða á bak við tjöldin og
hljómurinn er einstaklega
góður.”
R. R., Bylgjan
„Grípandi og vel unnin
heimildarmynd um einhvern
áhugaverðasta leikstjóra
kvikmyndasögunnar. Saga
mannsins er vægast sagt
merkileg.“
T.V. – Kvikmyndir.is
„Frábær!“
- Roger Ebert
„Hárbeitt rökræða!
Vönduð og snjöll.“
- The New York Times
„Svo töfrandi og kraftmikil
að eins hefur varla sést áður!“
- Entertainment Weekly
„Gríðarlega grípandi
og vel gerð!“
- The Hollywood Reporter
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og HáATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR
Nýjasta mynd Soderberghser í flesta staði vel gerð,meinfyndin en dagsönntragikómedía um efna-
fræðinginn Mark Whitacre (Dam-
on). Hann var jafnframt aðstoðar-
framkvæmdastjóri matvörurisans
ADM, auk þess sem hann gekk með
óviðráðanlega spæjaradrauma í
maganum og var óforbetranlegur
lygari. Þessir þættir eru varasamir
samankomnir í einum mannsheila og
dæmdir til að enda slysalega.
The Informant gerist á 10. ára-
tugnum. Whitacre, efnafræðing-
urinn ungi, hefur komist hratt til
metorða innan stórfyrirtækisins
ADM, sem er einn aðalframleiðandi
aukaefnanna sem blandað er í alla
matvælaframleiðslu á jarðkringlunni
en láta lítið yfir sér; þau eru þessi
undarlegu nöfn, skráð með fína letr-
inu í innihaldslýsingunum á flestum
umbúðum í verslunum þar sem hill-
ur svigna undan matföngum. Mikið
af þessum efnum er framleitt úr ma-
ís og nýtt til margra hluta, svo sem í
rotvarnarefni, bragðefni og fæðubót-
arefni og var ADM í fararbroddi á
heimsmarkaðnum.
Whitacre kemst fljótlega að því að
ADM er með óhreint mjöl í poka-
horninu, notar m.a. yfirburðastöðu
sína um allan heim til að hagnast enn
meira með ólöglegu verðsamráði og
setur sig í samband við alríkislög-
regluna FBI. Whitacre gerist upp-
ljóstrari fyrir stofnunina og eru lög-
reglumennirnir Shephard (Bakula)
og Herndon (McHale) tengiliðir
hans. En það kemur fljótlega í ljós
að þótt Whitacre sé gagnlegur við að
fletta ofan af alþjóðlegu og kolólög-
legu gróðasvindli er maðurinn vafa-
samur í meira lagi, dálítið sturlaður
og fársjúkur lygalaupur.
Ótrúleg og kaldhæðnisleg enda
byggð á atburðum frá róstusömum
tímum 10. áratugarins, þegar hvít-
flibbabandittar fóru ránshendi um
heimsbyggðina á sinn lævísa og út-
smogna hátt. Whitacre er óvenju-
legur, nánast harmrænn kvistur af
þessum meiði, ráðgáta sem Damon
tekur föstum og sannfærandi tökum
og ánægjulegt að sjá hvað leikarinn
er margslunginn því persónan er í
ljósárafjarlægð frá harðjaxlinum
Bourne, sem Damon er þekktastur
fyrir til þessa. Horfinn er töffara-
bragurinn, Whitacre er fremur
óásjálegur og ólíklegur til stórræða.
Það sem honum gengur til er svo fá-
ránlegt að það þarf traustan leik til
að gera persónuna trúverðuga og
myndina að jafn ánægjulegri
skemmtun og raun ber vitni.
Whitacre skortir ekki neitt, lifir í
vellystingum sem einn af stjórnar-
mönnum stórfyrirtækis þar sem
hann hefur komið ár sinni vel fyrir
borð á, að því er virðist, góðri mennt-
un og hæfileikum. Þá fær hann þessa
furðuhugmynd í kollinn að stunda
iðnaðarnjósnir hjá húsbændum sín-
um og setur þær í gang með vitund
alríkislögreglunnar. Telur víst að
slíkur gjörningur geri hann að hetju
í augum almennings, og það sem er
enn langsóttara; hækki hann í tign
hjá vinnuveitendunum.
Saga Whitacres er lyginni líkust
og Soderbergh nálgast hana af fag-
mennsku sem minnir á hans bestu
verk og á að auki heiðurinn af áhrifa-
ríkri kvikmyndatöku, en bæði leik-
stjórnin og takan minna á heimild-
armyndagerð. The Informant nær
andrúmslofti þess 10. nánast óað-
finnanlega og nýtur til þess ekki að-
eins veigamikillar hjálpar frá Damon
og stormandi góðum hópi aukaleik-
ara, heldur leggja sitt af mörkum
frábær búninga- og sviðsmynda-
hönnuður, og ekki síst tónskáldið
Marvin Hamlisch, sem hefur ekki
gert betur í áravís. Lunkin, kald-
hæðnisleg mynd sem kemur
skemmtilega á óvart.
Hraðlygni heimildarmaðurinn
Sambíóin
The Informant – Heimildarmaðurinn
bbbmn
Leikstjóri: Steven Soderbergh. Aðalleik-
arar: Matt Damon, Scott Bakula, Joel
McHale, Melanie Lynskey. 105 mín.
Bandaríkin. 2009
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Kaldhæðnisleg Mynd byggð á atburðum frá róstusömum tímum 10. áratug-
arins, þegar hvítflibbabandittar fóru ránshendi um heimsbyggðina.
Sú var tíðin að Hamlisch var eitt,
ef ekki eftirsóttasta tónskáld í
kvikmyndaheiminum um árabil og
ánægjulegt að heyra hann fara á
kostum á nýjan leik. Hann varð
eftirsóttur eftir farsælt samstarf
við Woody Allen fyrir hartnær
100 myndum síðan. Seinni árin
hefur starfsvettvangurinn flust
yfir í sjónvarpsgeirann. Frægð-
arsól tónskáldsins þaut upp á
stjörnuhimininn fyrir 35 árum,
þegar hann vann það einstaka af-
rek að hrifsa til sín alla tónlist-
artengdu Óskarana þrjá. Þetta
var árið 1974 og verðlaunin hlaut
hann fyrir bestu frumsömdu tón-
listina í The Way We Were; Bestu
notkun á áður saminni tónlist
Scotts Joplin í The Sting (allir
sem hafa aldur til muna glögg-
lega yfirgengilegt ragtime-æðið
sem greip um sig), og fullkomn-
aði þrennuna með besta lagi árs-
ins, sem var að finna á tónrás
The Way We Were. Hamlisc hefur
alls verið tilnefndur til verð-
launanna í níu skipti og er örugg-
ur um þá 10., í ár, fyrir The In-
formant. saebjorn@heimsnet.is
Hamlisch sýnir gamalkunna takta
ÍRSKA sveitin U2 á fjölmarga
aðdáendur víða um heim sem
votta henni virðingu sína á ýmsa
lund. Bandaríska sveitin Earl Pic-
kens & Family hefur nú tekið
meistaraverk sveitarinnar frá
árinu 1987, The Joshua Tree, og
sett hana eins og hún leggur sig í
kántrí/blágresisútgáfu. Slík hug-
mynd er sannanlega ekki ný af
nálinni en Earl Pickens og fjöl-
skylda ná hins vegar að taka þetta
upp fyrir brandarastigið og ljá
þau lögum plötunnar nýja og ann-
ars konar dýpt. Lögin leggja sig
furðu vel að útsetningunum og í
raun ekki skrítið þar sem upp-
runalega verkið er mjög „amer-
ískt“ en í kjölfarið átti U2 eftir að
taka Ameríkupælingar sínar enn
lengra með Rattle and Hum-
verkefninu. Platan var tekin upp í
stofunni hjá Earl yfir eina helgi
eða svo og útkoman er reyndar
svo vel heppnuð að það er nánast
einkennilegt að Edge sjálfum
skyldi ekki detta í hug að skella
banjó á „Red Hill Mining Town“!
arnart@mbl.is
Heiðrun Umslag plötunnar góðu.
Joshua
Tree
plantað í
blátt gras