Vilji - 01.12.1928, Qupperneq 7
VILJI
155
„Böl er .mest ef bróðir hatar
„bróður, þjóðin sundurlynd
„frelsi sínu og framtíð glatar,
„forna drýgir höfuðsynd.
„Söfnumst því að sama merki,
„sama hafa allir viljann,
„sýnum hann með viti og verki,
„við munum sjá hvort Danir skilja ’ann.“
Hvort frelsið sendi um holt og haga
hlýja geisla eftir jel,
við ramman yrði reip að draga
raunar sá hann mæta vel.
Þótt gamall væri hófst hann handa,
hjelt á móti danaveldi,
víkingur hann var í anda
vildi sjá hvor annan feldi.
Einn hann barðist fyrir frelsi,
fjell, en oki varð ei ljett,
af oss varpa vildi hann helsi
og vernda landsins fornan rjett.
„Styrkið heill og bræðrabandið“,
blóð hans hrópar alla daga.
„Elskið frelsið, elskið landið,
afrek þjóðar geymir saga.“
Flutt í „Gamla Bíó“ 1. des. 1928
Kristján Guðlaugsson.