Vilji - 01.12.1928, Blaðsíða 36
184
V IL J I
Leiðrjetting. í síðasta hefti »Vilja«, á bls. 117,4. línu
að ofan, hefir meinleg villa slæðst inn í: »hefir listin
gleymt að boða æðsta takmark síns tíma«, á að vera:
»hefir listin gleymt að boða æðsta takmark tímanna«.
Ennfremur í kvæðinu »Frelsi«, 3. vísu, 2. ljóðlínu, »hönd-
um«, í stað »böndum«.
„Vilja“ hefir undanfarið borist all-mikið af kvæðum
og sögum. Vill ritið þakka fyrir það, en mælast til þess
um leið, að ungir menn, sem áhugamál eiga, sendi greinir
við og við til ritsins. Það er markmið ritsins, að verða
sem skemtilegast og fjölbreyttast, og því mun það ekki
hirða um, hvaða afstöðu þeir taka til málanna, sem í ritið
skrifa, en auðvitað þarf það ekki að vera skoðunum rit-
stjórans samkvæmt. Að endingu þakkar ritið fyrir góðar
undirtektir þetta fyrsta ár, og vonar að því auðnist á því
næsta, að ná til flestra ungra manna landsins.
Gjalddagi ritsins er 1. apríl.
Brjef og greinir sendist Kristjáni Guðlaugssyni,
Óðinsgötu 20.
ísafoldarprentsmiöja h.f.