Vilji - 01.12.1928, Blaðsíða 18

Vilji - 01.12.1928, Blaðsíða 18
166 y ilji aðir; orsakast það af því að þeir hirða ei um líkama sinn sem skyldi, halda honum ekki við, þannig að hann veiklast og mótstöðuafl hans gegn ýmiskonar sjúkdóm- um minkar þá að sama skapi. Þetta hefir þau áhrif, að ýmsir þessara manna eiga við að stríða ýmsa sjúkdóma, sem eyðileggja þá og murka úr þeim lífið á skömmum tíma. Ýmsir halda því fram, að skáldin sjeu tilfinninga- ríkari, en aðrir menn. Það virðist mjer vafasamt mjög, enda virðist margt benda til hins gagnstæða. Það væri og skiljanlegt, að þeir væru sinnuminni en aðrir, þeir geta tæmt tilfinningabrunn sinn með skáldskapnum einum, enda munu flestir þeirra hafa verið reikuiir í ráði í ástamálum sem öðru; tekið eina þá önnur fór, og lítið hirt um liðna tímann. En ruslakista þeirra geymir þó máske grát og gnístran tanna frá augnabliksæsingu, sem allir komast vafalaust einhverntíma í á æfinni. Það er ekkert sjerkenni skáldanna. Menn þeir, sem halda að skáldin sjeu tilfinningaríkari, en aðrir menn, byggja það einkanlega á því, að skáldin hafa opin augu fyrir því, sem miður fari í mannlífinu, gleðjist með glöð- um, hryggist með hryggum, og geti auðveldlega orðio geðveikir af lítilsháttar andstreymi. Skal nú vikið að þessu nánara. Allir menn eru tilfinninganæmir, og allir sjá eymd- ina og volæðið, vilja gjarnan bæta úr því, en ýmiskonar áhyggjur dreyfa hugsunum hversdagsmannanna þann- ig, að þeir hugsa að síðustu mest um sjálfa sig, en skáldunum er á annan veg farið. Þeir þurfa að lifa, skáldskapinn hafa þeir gert að áhugamáli sínu, og sjálfsbjargarhvötin er rík hjá þeim sem öðrum. Þess- vegna verða þeir að kynna sjer eymdina og baslið, sem virðist í sannleika sagt ekkert verri en auður, og gera það að yrkisefnum sínum, til þess, að halda huga fólks- ins vakandi og augum þess opnum, og ennfremur til að fá sjálfir aura til viðurværis síns. En hversvegna yrkja skáldin? Af metnaðargirnd verður svarið Þeir upp-

x

Vilji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.