Vilji - 01.12.1928, Blaðsíða 33
VILJI
181
þeim. En þeir, sem ekki þykjast geta keypt, hafa þó a. m.
k. stundarsvölun af dýrðinni, sem fyrir augun ber. Og sjer-
hver sorg yfir vanmætti hefir í sjer fólginn dálítinn urmul
af gleði yfir mættinum, sem ekki er til. Guð tekur hins
vegar viljann fyrir verkið og gerir sig ánægðan með kristi-
legar óskir manna, ef verkin eru ekki framkvæmanleg.
Ef því skyldi nú vera til að dreifa, að einhverjir fengju
sjer þessa eða hina glaðningu með helst til veraldlegu hug-
arfari og meiri löngun til að gera verkum Drottius rækileg
skil heldur en minningu hans, þá er það ekki kaupmanns-
ins sök. Hann hefir það hlutverk, að uppfylla jarðneskar
óskir manna fyrir sanngjarna þóknun. Hann telur sig ekki
bera ábyrgð á nytsemi þeirra, fremur en Guð þarf að svara
til saka fyrir að hafa látið sóttkveikjur og efni í vin og
tóbak og aðrar nautnavörur þróast á jörðinni. Kaupmaður-
inn tekur við af Guði og færir gæði lífsins þaðan, sem
hann hefir skilið við þau og hingað út á hala veraldar,
þar sem fátt er ætt nema kjöt og fiskur. Hann gefur oss
tækifæri til að reyna margt, velja það góða og hafna hinu,
ef við svo viljum. En hann tekur ekki á sig þá ábyrgð, að
gæta bróður síns, fremur en aðrir synir Adams.
Ó. M.
Verkbönn og verkföll.
Ein af þeim úrlausnum, sem liggur fyrir þjóð vorri, er
hvernig deilur milli vinnuveitenda og -þiggjenda verði
leiddar til lykta á hagkvæman hátt, þannig að hvorugir
aðilar bíði tjón að óþörfu. Þetta er eitthvert hið mesta
vandamál, sem þjóðirnar hafa átt við að stríða; ýmsar leiðir
hafa verið reyndar, en án nokkurs verulegs árangurs, því
að altaf fjölgar verkbönnum og verkföllum með ári hverju,