Vilji - 01.12.1928, Síða 14

Vilji - 01.12.1928, Síða 14
í 62 V ILJ I gáta, því að sjervitringa og afburðamenn skilur enginn til fulls. Þrátt fyrir alt þetta er þó hægt að sjá, að afburða- mennirnir hafa haft sína galla við að stríða engu síður, en aðrir breiskir menn. Flestir þeirra hafa haft ein- hverja þessara eiginleika til brunns að bera: Stærilæti og hroka, veikleika holdsins, vínnautnasýki, ástarsýki, afbrýðissemi, ósjálfstæði, nautn æsandi eyturlyfja, móð- ursýki, illgirni, öfund, hleypidóma og ýmiskonar ann- að siðleysi. Schopenhauer segir: Afburðamennirnir eru ekki einungis leiðinlegir og óþægilegir í daglegu lífi, heldur eru þeir einnig siðferðissljófir og illkvitnir. Slíkir menn geta aðeins átt fáa vini; á tindunum ríkir einveran." Þetta er þungur dómur og að því er virðist engan veg- inn rjettur um heildina; þannig eru þeir ekki allir, sem af bera, en einhver af nefndum göllum hefir hver ein- asti einstaklingur í heiminum, en auðvitað á mismun- andi stigi. Hrokafullir eru allir menn undir og niðri í, en þeir mest, sem marga aðdáendur hafa, heyra smjaður og lofsyrði úr hverju horni og er hvert orð, sem þeim verður á að segja, er hafið til skýjanna sem ímynd æðstu speki. Þessi hroki, sem byggist auðvitað á sjálfs- trausti, getur einnig verið nauðsynlegur afburðamann- inum í baráttu lífsins. Engir eiga í meiri baráttu, en hann. Ofsækendur og öfundarmenn hans eru margir, þar eð hann leitar sannleikans, kollvarpar erfðavenjum og veitir trúarofstæki banahögg. Innra stríð og ytri ásókn auk erfiðleikana, en köllunin er sterkari en svo að hún láti buga sig. Afburðamaðurinn má ekki taka til- lit til neins nema samvisku sinnar og sannleiksástar, og venjulega gengur hann einn og óstuddur gegnum lífið, einrænn sökum skilningsskorts annara og harður sem steinn gegn heiminum, sem hefir gert bljúga sál, sem 'þarfnaðist styrktar og skilnings, að bústað gremju og

x

Vilji

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vilji
https://timarit.is/publication/776

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.